27
KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja- Meyvant Þórólfsson 15. september 2008

KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

  • Upload
    benoit

  • View
    67

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-. Meyvant Þórólfsson 15. september 2008. Hugsmíðihyggja: Hin hversdagslega skýring. “Trivial constructivism”, með vísan í hugmyndir Jean Piaget: - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

KHÍNám og kennsla: Inngangur

-Hugsmíðihyggja-

Meyvant Þórólfsson 15. september 2008

Page 2: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hugsmíðihyggja: Hin hversdagslega skýring• “Trivial constructivism”, með vísan í hugmyndir Jean Piaget:

  • Nemandinn sjálfur er virkur við uppbyggingu eigin þekkingar,

hann öðlast hana ekki frá umhverfi sínu ef hann er óvirkur þiggjandi

• Knowledge is actively constructed by the learner, not

passively received from the environment

• Grundvallaratriði: Sífelld leit að merkingu (making sense of the world).

- Sjá Von Glasersfeld 1990

Page 3: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hugsmíðihyggja: Hin róttæka skýring• “Radical constructivism”, með vísan í hugmyndir von

Glasersfeld. Ath. Orðin “viable” og “viability”

  • Þekkingaröflun er “dýnamískt” ferli þar sem manneskjan

reynir stöðugt að gera hugmyndir eða hluti raunhæfa/ gerlega. En við vitum aldrei fyrir víst hvort um er að ræða þekkingu á endanlegum raunveruleika (real world).

• Coming to know is a process of dynamic adaptation towards viable interpretations of experience. The knower does not necessarily construct knowledge of a "real" world.

- Von Glasersfeld 1990

Page 4: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hvað er hlutlægur veruleiki (objective reality)?

• Truman Burbank trúði því að veröld sín væri hinn eini, sanni veruleiki. Annað kom svo á daginn.

• Róttæk hugsmíðihyggja spyr: “Hvernig getum við sannprófað hvort veruleiki okkar er hinn eini sanni?”

Page 5: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hugsmíðihyggja: Hin félagslega skýring• “Social constructivism”, með vísan í hugmyndir Bruners og

Vygotsky

  • Einstaklingar byggja ekki upp þekkinguna í einrúmi, heldur

öllu fremur með samvirkni (synergy) við aðra einstaklinga í því menningarlega umhverfi sem þeir tilheyra.

• Learning is an active social process in which individuals make meanings through the interactions with each other and with the environment they live in. Knowledge is thus a product of humans and is socially and culturally constructed.

Wikipedia

Page 6: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hugsmíðihyggja: Hin menningarlega skýring• “Cultural constructivism”, “socio-cultural constructivism”

sjá m.a. Vygotsky og James Wertsch

  • Við fæðumst öll inn í ákveðna menningu sbr.

“enculturation = innvígsla í menningu”, sem mótar siði okkar, vinnubrögð, aðferðir og háttsemi

• Beyond the immediate social environment of a learning situation are the wider context of cultural influences, including custom, religion, biology, tools and language.

• Edutech Wiki

Page 7: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

• Education: The act, process, or art of imparting knowledge and skill

• Enculturation: The process of formally and informally learning and internalizing the prevailing values, and accepted behavioural patterns of a culture

answers.com

Page 8: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Veruleikinn eins og skynjum hann

• Við skynjum umhverfi okkar, getum mælt það og reynt að spá fyrir um ýmislegt sem þar gerist

• Við búum á jörðinni. Okkur er kennt að hún sé reikistjarna í útjaðri stjörnuþoku sem við nefnum Vetrarbrautina.

• Hún snúist umhverfis sólina ásamt a.m.k. 7 öðrum reikistjörnum.

Page 9: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Manngerð kerfi

• Menning okkar hefur leitt af sér kerfi eins og talnakerfi, málkerfi og önnur táknkerfi, t.d. umferðarljós.

Page 10: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Fleiri dæmi um manngerð kerfi sem við teljum heppilegt að nemendur læri

2

1

4

3

• Hvernig leysa börn svona ef þau hafa ekki lært formlega aðferð (manngert kerfi)?

4

11

4

5

4

2

4

3

Page 11: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Úr samræmdu prófi í 10. bekk 1995

• Þrír-fjórðu bolli af sykri samsvarar tólf teskeiðum. Hve margar teskeiðar af sykri eru þá í þremur bollum? Lagt fyrir sem heimaverkefni hjá 11 ára nemendum.

Page 12: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-
Page 13: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Að “veruleikinn” sé háður því hvað og hvernig við skynjum, upplifum og miðlum okkar á milli; hann sé því afstæður. Í raun sé til “margs konar sannleikur”

Dæmisagan um blindu mennina og fílinn, sem þeir reyndu að lýsa, er talin endurspegla þetta vel.

Hvað felst í “hugsmíðihyggju”?

Page 14: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Leiðir til að útskýra einkenni hugsmíðikenningar

Net af hugtökum:

• Ný hugtök og hugmyndir mæta okkur stöðugt.

• Því betri tenging sem verður milli nýrra hugmynda eða hugtaka (rauður depill) og þeirra sem fyrir eru (bláir deplar) í vitsmunabúi okkar, þeim mun betri skilningur.

Van de Walle 2003

Page 15: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Það að byggja

• To construct or build something in the physical world requires tools, materials, and effort.

• How we construct ideas can be viewed in an analogous manner.

Van de Walle 2003

Page 16: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Nemandinn sem þekkingarsmiður

Þekking í náttúrufræðum: • ...hugtakanet þar sem einstök

hugtök fá merkingu sína gegnum tengsl við önnur hugtök, ... eðlismassi fær merkingu sína gegnum tengsl við hugtökin massi og rúmmál...

Aðalnámskrá grunnskóla – náttúrufræði 2007

Page 17: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Misskilningur eða skortur á skilningi getur leitt til þess að sótt er í fyrri reynslu eða fyrri hugmyndir með misgóðum árangri...

Verkefni um orðmyndun í íslensku:• Þeir sem búa á Selfossi nefnast

Selfyssingar. Hvað nefnast þeir sem búa á Hornströndum?

• Svar eins nemanda í 7. bekk: “Strandir og Norðurland vestra”

Page 18: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Er heppilegast að hugsa sér, endanlega og staðlaða þekkingu sem við teljum að allir geti tileinkað sér eða?

• Atferlishyggja gerir í raun ráð fyrir að svo sé. Til sé endanleg þekking og veruleiki sem allir geti skilið og lært á sama hátt…þessa þekkingu megi öðlast kerfisbundið með skipulegri atferlismótun.

Input Output

Page 19: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Þetta endurspeglast í áhugahvöt (Motivation) – Stundum stjórnast námið af ytri áhugahvöt

• “Þarf maður að vita allt í heiminum?”

• “Kemur þetta á prófinu?”

• “Ég ætla að ná 8. Segðu mér bara hvað ég þarf að læra. Kenndu mér aðferðina og ég reyni að ná þessu.”

• Einblína nemendur e.t.v. of mikið á próf og einkunnir? Er það kannski bara gott mál?

Page 20: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Eða er það blekking ein að hugsa sér endanlega og staðlaða þekkingu sem allir geti tileinkað sér?

• Hugsmíðihyggja gerir ráð fyrir að þekking sé afstæð. Einstaklingar og samfélög byggi upp „persónubundna“ sýn á veruleikann sem sé háð túlkun, samhengi og merkingu. Mislangt sé gengið í að “hafna” hugmyndinni um endanlegan og hlutlægan ytri veruleika (sbr. róttæka og félagslega hugsmíði).

Page 21: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Það styður við innri áhugahvöt

• “Af hverju má maður ekki læra það sem maður hefur áhuga á og vill dýpka sig í og sleppa öðru í staðinn?”

• Rannsóknir sýna að ákveðin þverstæða getur myndast varðandi innri og ytri áhugahvöt. Innri sé jafnan sterkari, en ytri geti náð yfirhöndinni með undarl. hætti

changingminds.org

Page 22: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Lykilhugtök hugsmíðikenningar: Forhugmyndir og fyrri reynsla og þekkingDavid Ausubel 1968

í Educational Psychology - A Cognitive View :• Það sem hefur mest áhrif á nám og námsárangur er það

sem nemandinn veit fyrir. Sannreyndu hvað það er og kenndu honum svo í samræmi við það.

• Meginhugmynd hugsmíðikenningar er að byggt sé á

hugmyndum og hugtökum sem þegar hafa lærst.

• En stundum hvíla forhugmyndir á veikum grunni (schema) og þær geta jafnvel talist rangar.

Page 23: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Dæmi: NáttúrufræðiVarmaflutningur:

• Tilfærsla á varma frá heitum stað eða hlut yfir á kaldari stað eða hlut.

• Algeng ranghugmynd er að kuldi færist úr ísmolanum yfir í vatnið.

• Kennari sem tekur mið af hugsmíðihyggju miðar að því að grafast fyrir um forhugmyndir (ranghugmyndir) barna og búa svo til námsaðstæður og verkefni sem hjálpa nemendum að „endursmíða“ hugmyndir sínar.

Page 24: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Endursmíði hugmynda og hugtaka

• Hugsmíðikenning: Það er eðli mannlegrar hugsunar að reyna að “endursmíða” hugmyndir svo hlutirnir gangi upp og komist í jafnvægi

• Með endursmíðinni reynum við að gera hlutina raunhæfa eða gerlega (e. viable – viability = gerleiki).

• Hlutverk kennara getur verið vandasamt þegar kemur að endursmíði hugmynda því hann “skilur ekki fyrir nemendur sína”.

-Good og Brophy, Glasersfeld

Page 25: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Menntun og aðstæðubundið nám

• Töluverð ábyrgð hvílir á kennaranum við að leiða barnið upp á æðri stig hugsunar með því að kynna sér fyrst forhugmyndir og beina þeim svo í réttan farveg (menntun = enculturation = eins konar innvígsla í menningu)

• Aðstæðubundnu námi (e. situated learning) má líkja við nám lærlings hjá meistara við raunverulegar aðstæður. Aðstæður sem líkastar veruleikanum.

Page 26: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Vinnupallafyrirkomulag og samvinnunám

• Vinnupallafyrirkomulag (e. scaffolding). Samspil inntaks og viðfangsefna eins og bygging þar sem vinnupallar og verkfæri eru til staðar.

• Kennarinn veitir mikinn stuðning í upphafi, en ábyrgð á náminu færist smátt og smátt yfir á herðar nemandans.

• Gagnkvæm samvinna við mótun og uppbyggingu þekkingar (e. collaborative learning).

Page 27: KHÍ Nám og kennsla: Inngangur -Hugsmíðihyggja-

Hugsmíðikenning: Óljós mörk geta verið milli náms annars vegar og kennslu hins vegar

• Jerome Bruner sagði frá eðlisfræðikennara sem var að kenna erfitt hugtak:

• Kennarinn: „Ég fór í gegnum þetta og leit svo á nemendur mína. Þeir sýndu engin svipbrigði um skilning. Ég fór aftur í gegnum það og enn skildu þeir ekki neitt. Ég reyndi í þriðja sinn og þá loks kviknaði á perunni hjá sjálfum mér. Þá loks skildi ég.“

Process of Education 1977