63
Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2015 - 2016

New Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016 · 2018. 1. 15. · Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016 4 Inngangur Skólastarfið hófst með því að kennarar og starfsfólk

  • Upload
    others

  • View
    1

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

  • Ársskýrsla

    Grunnskóla Borgarfjarðar

    2015 - 2016

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    2

    Efnisyfirlit Formáli ........................................................................................................................................ 3

    Inngangur ................................................................................................................................... 4

    Hagnýtar upplýsingar ................................................................................................................. 4

    Skólastjórnendur ................................................................................................................................. 4

    Nefndir og ráð ..................................................................................................................................... 4

    Nemendafjöldi ..................................................................................................................................... 6

    Starfsmenn .......................................................................................................................................... 7

    Húsnæði ............................................................................................................................................... 8

    Skólalóð ............................................................................................................................................... 9

    Skóladagatal og starfsáætlun ..................................................................................................... 9

    Áherslur í skólastarfi ................................................................................................................. 11

    Þróunarstarf ............................................................................................................................. 13

    Leiðtoginn í mér................................................................................................................................. 13

    Byrjendalæsi ...................................................................................................................................... 14

    Heilsuefling ........................................................................................................................................ 15

    Grænfáni ............................................................................................................................................ 15

    Símenntun ................................................................................................................................ 17

    Skýrsla deildarstjóra ................................................................................................................. 19

    Skýrslur umsjónakennara ......................................................................................................... 19

    Hvanneyri .......................................................................................................................................... 19

    Kleppjárnsreykir................................................................................................................................. 22

    Varmaland ......................................................................................................................................... 33

    Aðrar skýrslur ........................................................................................................................... 43

    Hvanneyri .......................................................................................................................................... 43

    Kleppjárnsreykjadeild ........................................................................................................................ 47

    Varmaland ......................................................................................................................................... 54

    Afmæli Varmalandsdeildar ................................................................................................................ 63

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    3

    Formáli Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar kemur nú út í sjötta sinn. Skólinn hefur starfað í sex ár

    eftir sameininguna og eru starfsstöðvar hans þrjár, á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og

    Varmalandi. Skýrslunni er dreift til fræðslustjóra, fræðslunefndar og á bókasöfn skólans.

    Skýrslan mun liggja frammi á kaffistofu starfsmanna og mun hún einnig vera vistuð á vefsíðu

    skólans http://www.gbf.is undir útgefið efni.

    Markmið með útgáfu skýrslunnar er að gera grein fyrir því fjölbreytta starfi sem fer fram í

    Grunnskóla Borgarfjarðar, ásamt því að halda saman nauðsynlegum upplýsingum úr

    skólastarfinu. Hún mun nýtast sem góð heimild um skólastarfið í heild sinni frá ári til árs.

    Skýrsluna prýða ýmsar myndir úr skólastarfinu sem gefa lesendum innsýn í það, ásamt því að

    gera hana líflegri. Að gerð skýrslunnar koma: skólastjóri, deildarstjórar, kennarar og ritari.

    Grunnskóla Borgarfjarðar júní 2016

    Hlöðver Ingi Gunnarsson

    Ingibjörg Adda Konráðsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    4

    Inngangur Skólastarfið hófst með því að kennarar og starfsfólk mætti til starfa þann 17. ágúst að loknu

    sumarleyfi til að undirbúa skólastarfið. Sameiginlegur starfsmannafundur var í upphafi dags.

    Fundað var með skólabílstjórum þar sem farið var yfir ýmis mál er tengjast skólaakstri, s.s.

    öryggismál, gæslu í skólabílum, tímaplön, akstursleiðir og fl. Á undirbúningsdögum var

    ákveðið að hafa kynningu á Varmalandsdeild GBF í Háskólanum á Bifröst eins og gert var í

    upphafi síðasta skólaárs. Mjög góð þátttaka var og mæltist hún vel fyrir.

    Skólasetning var 24. ágúst; kl. 10:00 á Varmalandi, kl. 12:00 á Kleppjárnsreykjum og kl. 14:00

    á Hvanneyri. Mæting á skólasetningar var góð, eftir þær voru haldnar námsefnis- og

    skólakynningar í hverri bekkjardeild þar sem umsjónarkennarar kynntu námsefni vetrar

    ásamt því að veita upplýsingar um ýmsa hluti væntanlegs skólastarfs. Að kynningum loknum

    var öllum boðið til kaffisamsætis í mötuneytum deildanna. Kennsla samkvæmt stundatöflu

    hófst 25. ágúst.

    Breyting varð á stjórnun skólans í vetur. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir fór í ársleyfi. Hlöðver Ingi Gunnarsson og Ingibjörg Adda Konráðsdóttir tóku við skólastjórn fyrir skólaárið 2015-2016.

    Hagnýtar upplýsingar Skólastjórnendur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri - í leyfi Ingibjörg Adda Konráðsdóttir skólastjóri Helga Jensína Svavarsdóttir deildarstjóri Hvanneyri Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri

    Nefndir og ráð

    Skólaráð Hlöðver Ingi Gunnarsson, Ingibjörg Adda Konráðsdóttir, Ýmir Örn Hafsteinsson, Guðjón Snær Magnússon, Berglind Ósk Guðjónsdóttir, Svava Björg Einarsdóttir, Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir, Sigríður Sjöfn Helgadóttir, Bjarnheiður Jónsdóttir, Edda Arinbjarnar, Gróa Erla Ragnvaldsdóttir, Kristín I. Baldursdóttir. Nemendaverndaráð Eitt sameiginlegt nemendaverndarráð starfar við GBF. Í því sitja skólastjóri, sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur. Auk þeirra sitja deildarstjóri og sérkennari viðkomandi deildar sem kemur með mál inn til nemendaverndar. Ráðið fundar einu sinni í mánuði. Áfallaráð Ásþór Ragnarsson skólasálfræðingur Dagný Hjálmarsdóttir skólahjúkrunarfræðingur Skólastjóri/deildarstjóri Sóknarprestur viðkomandi sóknar eftir þörfum

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    5

    Eineltisteymi Deildarstjóri, skólasálfræðingur, skólahjúkrunarfræðingur og umsjónarkennari viðkomandi nemanda. Nemendaráð Kleppjárnsreykjadeild Varmalandsdeild Guðjón Snær Magnússon Ýmir Örn Hafsteinsson Melkorka Sól Pétursdóttir Ragnar Líndal Sigurfinnsson Ingi Þór Magnússon Ágústa Halla Guðjónsdóttir Benjamín Karl Styrmisson Stefán Jóhann Brynjólfsson Ásdís Lilja Arnarsdóttir Daníel Fannar Einarsson Umsjón með heimasíðu Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir Grænfánanefnd Ása Erlingsdóttir Björk Jóhannsdóttir Þóra Magnúsdóttir Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Bjarnheiður Jónsdóttir Helga Jensína Svavarsdóttir Heilsuefling Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir Ágústa Stefánsdóttir Sólrún Halla Bjarnadóttir Eva Ösp Matthíasdóttir Jón Ingi Baldvinsson Innra mat Magnea Helgadóttir Magnea Kristleifsdóttir Gróa Erla Ragnvaldsdóttir Steinunn Fjóla Benediktsdóttir Innleiðing aðalnámsskrár Deildarstjórar allra deilda. Ljósberateymi Agnes Guðmundsdóttir Hólmfríður Ólöf Ásmundsdóttir Rebekka Guðnadóttir Sigríður Arnardóttir Hlöðver Ingi Gunnarsson Elísabet Halldórsdóttir Steinunn Fjóla Benediktsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    6

    Nemendafjöldi

    Við upphaf skólaársins 2015-2016 voru nemendur skólans 198 en við lok þess 192 á þremur starfsstöðvum. Í Hvanneyrardeild var kennt í 2 bekkjardeildum 1. og 2. bekk og 3. og 4. bekk

    Bekkur 24. ágúst 2015 3. júní 2016

    1. bekkur 4 4

    2. bekkur 4 4

    3. bekkur 7 6

    4. bekkur 10 8

    Í Kleppjárnsreykjadeild var kennt í 7 bekkjardeildum þ.e. samkennt í 1. -4. bekk.

    Bekkur 24. ágúst 2015 3. júní 2016

    1. bekkur 2 2

    2. bekkur 10 10

    3. bekkur 4 3

    4. bekkur 2 2

    5. bekkur 15 14

    6. bekkur 8 8

    7. bekkur 15 15

    8. bekkur 15 15

    9. bekkur 7 7

    10. bekkur 14 15

    Í Varmalandsdeild var kennt í 6 bekkjardeildum þ.e. samkennt í 3. og 4. bekk, 5. og 6. bekk og 8. 9. og 10. bekk.

    Bekkur 24. ágúst 2015 3. júní 2016

    1. bekkur 10 9

    2. bekkur 10 10

    3. bekkur 7 7

    4. bekkur 9 9

    5. bekkur 6 6

    6. bekkur 17 16

    7. bekkur 6 6

    8. bekkur 3 3

    9. bekkur 7 8

    10. bekkur 5 5

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    7

    Starfsmenn Nafn Starf Umsjón/annað Stöðuhlutfall

    Agnes Guðmundsdóttir Grunnskólakennari stærðfr./íþróttir 92,3%

    Andrea Davíðsdóttir Skólaliði íþróttahús 59%

    Anna Kristín Gunnarsdóttir Kennari 1. – 4. bekkur 100%

    Ágústa Stefánsdóttir Grunnskólakennari 5. og 6. bekkur 100%

    Ása Erlingsdóttir Grunnskólakennari 7. bekkur 100%

    Berglind Ósk Guðjónsdóttir Stuðningsfulltrúi 80%

    Birna Þorsteinsdóttir Kennari tónlist 23,06%

    Bjarnheiður Jónsdóttir Grunnskólakennari 8. bekkur 100%

    Björg Ólafsdóttir Grunnskólakennari afleysingar

    Björk Jóhannsdóttir Kennari list og verkgreinar 70%

    Elísabet Halldórsdóttir Grunnskólakennari 5. bekkur 100%

    Eva Lind Jóhannsdóttir Grunnskólakennari 9. bekkur 100%

    Eva Ösp Matthíasdóttir Kennari 7. bekkur 100%

    Gróa Erla Ragnvaldsdóttir Grunnskólakennari 3. og 4. bekkur 100%

    Guðjón Guðmundsson Grunnskólakennari Íþróttir, smíði 100%

    Hanna Kr. Þorgrímsdóttir Grunnskólakennari 1. til 4. bekkur 100%

    Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir Skólaliði 100%

    Helga Björg Valgeirsdóttir Matráður 100%

    Helga Jensína Svavarsdóttir Deildarstjóri uppl.t., sérk. 100%

    Helle Larsen Stuðningsfulltrúi 48%

    Hlöðver Ingi Gunnarsson Skólastjóri 100%

    Hólmfríður Ólöf Ásmundsdóttir Grunnskólakennari 2. bekkur 100%

    Ingibjörg Adda Konráðsdóttir Skólastjóri 100%

    Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir Skólastjóri í leyfi

    Íris Inga Grönfeldt Grunnskólakennari Íþróttir 61,53%

    Jón Ingi Baldvinsson Stuðningsfulltrúi 100%

    Jósef Jóhann Rafnsson Skólaliði 83%

    Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir Matráður

    Kristín I. Baldursdóttir Grunnskólakennari listgreinar 49%

    Kristín Kristjánsdóttir Skólaritari 50%

    Lára Kristín Gísladóttir Grunnskólakennari 6. bekkur listgreinar 77%

    Lára Ólafsdóttir Skólaliði 96%

    Lilja Ósk Alexandersdóttir afleysingar

    Líney Traustadóttir Stuðningsfulltrúi 89,5%

    Magnea Helgadóttir Grunnskólakennari íslenska 100%

    Magnea Kristleifsdóttir Grunnskólakennari sérkennari 100%

    Marta Gunnarsdóttir Stuðningsfulltrúi 78%

    Ragnheiður Elín Jónsdóttir Bókavörður/skólaliði 95%

    Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir Aðstoðarmatráður 100%

    Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir Sérkennari 100%

    Rebekka Guðnadóttir Grunnskólakennari 1. bekkur 100%

    Sigríður Arnardóttir Grunnskólakennari 8. 9. 10.bekkur 100%

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    8

    Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir Skólaritari/bókasafn bókasafn 100%

    Sgríður Númadóttir Aðstoðarmatráður 100%

    Sigríður Sjöfn Helgadóttir Skólaliði 100%

    Sigrún Hjartardóttir Afleysingar

    Sigrún Kristjánsdóttir Húsvörður/skólaliði 100%

    Sigurbjörg Kristmundsdóttir Stuðningsfulltrúi 100%

    Sigurlaug Kjartansdóttir Afleysingar

    Sólrún Halla Bjarnadóttir Grunnskólakennari 1. - 4. bekkur 100%

    Steinunn Ágústa Einarsdóttir Aðstoðarmatráður 100%

    Steinunn Fjóla Benediktsdóttir Grunnskólakennari 1. - 4. bekkur 85%

    Svava Björg Einarsdóttir Stuðningsfulltrúi 100%

    Sæunn Elfa Sverrisdóttir Skólaliði 100%

    Unnar Þorsteinn Bjartmarsson Húsvörður/grunnsk.kennari smíði 100%

    Valgerður Jónasdóttir Matráður 100%

    Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir Leiðbeinandi 3.-4. bekkur 100%

    Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Grunnskólakennari 10. bekkur 100%

    Þóra Magnúsdóttir Grunnskólakennari Samfélagsfr./ tölvur 100%

    Þórunn Jóna Kristinsdóttir Skólaliði 100%

    Þuríður Ketilsdóttir Skólaliði 100%

    Húsnæði Hvanneyrardeild Kennsla fer fram í tveimur byggingum, barnaskólanum og íþróttahúsi Landbúnaðarháskólans. Í barnaskólanum eru þrjár almennar kennslustofur, tölvuver, myndmenntarstofa, bókasafn, starfsmannaaðstaða og eldhús. Nemendur borða hádegismat í miðrými skólans. Íþróttakennsla fer bæði fram utan dyra og í íþróttahúsinu. Sundkennslan fer fram í Hreppslaug í Skorradal á vorin og haustin. Kleppjárnsreykjadeild Kennsla fer fram í fjórum byggingum, grunnskólanum, smáhýsi við skólann, í fyrrum skólastjóraíbúð við skólann og í íþróttahúsinu á Kleppjárnsreykjum. Í grunnskólanum eru smíðastofa, bókasafn, tölvuver, félagsaðstaða nemenda, starfsmannaaðstaða, skrifstofa ritara og mötuneyti. Í smáhýsinu fer fram myndmenntarkennsla. Í gömlu skólastjóraíbúðinni eru náttúrufræði-, textíl- og tónmenntarstofa. Í íþróttahúsinu fer fram öll íþrótta- og sundkennsla. Varmalandsdeild Kennsla fór fram í þremur byggingum til áramóta, barnaskólanum, gamla húsmæðraskólanum og í íþrótta- og félagsheimilinu Þinghamri. 14. desember var öll starfsemi flutt út Húsó yfir í barnaskólann. Heilmiklar endurbætur áttu sér stað í skólanum. Mynd og handmenntastofan var færð í viðbyggingu og útbúnar kennslustofur fyrir unglingastig á efstu hæðinni. Nýtt anddyri tekið í notkun fyrir mið og unglingastig. Í barnaskólanum er einnig bókasafn, tölvuver, starfsmannaaðstaða, skrifstofa ritara og skólastjóra og mötuneyti. Í Þinghamri er íþróttasalur, sundlaug og smíðastofa. Einnig aðstaða fyrir félagsstarf.

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    9

    Skólalóð Hvanneyrardeild. Skólalóðin er miðsvæðis og liggur ekki að umferðargötum. Lóðin er að mestu leyti lögð möl en grasi að hluta til. Á lóðinni er góður gervigrasvöllur og steyptur körfubolta/fótboltavöllur. Einnig eru rólur og klifurgrind. Fyrir liggur teikning af skólalóðinni sem bíður framkvæmdar. Í nágrenni skólans eru skjólbelti sem eru útinámssvæði skólans. Kleppjárnsreykjadeild Skólalóðin er nokkuð stór. Í porti sem myndast af skólabyggingunni eru leiktækin og í kringum þau er möl, þar er einnig lítill malbikaður körfuboltavöllur. Utar eru svo stór gras-fótboltavöllur og grasflatir umhverfis skólann sem nýtast sem leiksvæði. Malbikaður minni fót- og körfuboltavöllur er staðsettur við enda sundlaugar. Skólinn hefur einnig til umráða gamalt tún í næsta nágrenni svokallað Læknistún og þar hefur verið unnið að aðstöðu fyrir útikennslu með byggingu skýlis og gerð eldstæðis. Þar hafa einnig verið gróðursettar plöntur til skjólmyndunar. Varmalandsdeild Náttúrulegt umhverfi skólans, skógur og hnjúkurinn hentar vel til útivistar og útináms. Við skólann er fótbolta og körfuboltavöllur, strandsblaksvöllur, frjálsíþróttasvæði og leikvöllur bæði fyrir framan skólann og í skóginum.

    Skóladagatal og starfsáætlun Skóla- og viðburðadagatal skólaársins 2015-2016 má sjá á heimasíðu skólans http://gbf.is sem og starfsáætlun skólans.

    Mánuður Hvanneyri Kleppjárnsreykir Varmaland

    Ágúst - septembe

    r

    - Ferð í Oddsstaðarétt - Sundkennsla í Hreppslaug

    - Þverárrétt 4. - 5. b.

    - Kosið í nemendaráð - Miðstigs íþróttaleikar

    - Ferðir skipulagðar af bekkjartenglum -Hópeflisferðir skipulagðar af skólanum

    -Ferð að Eiríksstöðum 6. bekkur - Samstarf við leikskólana skipulagt

    - Samræmd próf

    Október - Sláturgerð

    - Heimsókn 1.bekkur í leikskólann

    - Haustfagnaður unglingadeildar - Laugaferð 9.bekkjar

    - Forvarnardagurinn - Samtal við foreldra

    - Samstarfsdagur/uppbrot deilda

    Nóvember

    -Heimsókn í leiksk. 1.-2. b. - Heimsókn í Lbhí 3.-4. b.

    - Ljósahátíð (leikskólahóp boðið)

    Heimsókn í leiksk. 1. b.

    - Forvarnardansleikur -Smiðjuhelgi

    - Stíll

    - Dagur íslenskrar tungu

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    10

    -Menningarferð í Borgarnes 2.-3. bekkur - Leiðtogadagur

    Desember - Kaffihúsadagur 1. des - Jólatrésferð í Skorradal

    - 4.b. les úti á leiksk. - Jólakortasala

    - Helgileikur

    - Jólatré valið í Logalandsskógi

    - Árshátíð 1. - 7. bekkjar

    - Vinakeðja mynduð 1.des - Jólaskemmtun 1.-7. b.

    - Jóladansleikur samstarfsskólum boðið 8. - 10. b.

    - Litlu jólin

    Janúar - 3. b. les á leikskóla - Söngvarakeppni í 4.bekk

    -Heimsókn í leikskólann 5. b.

    - Söngvarakeppni 4. - 10. bekkur

    - Reykjaferð 7. bekkjar

    - Samtal við foreldra

    Febrúar - Öskudagshátíð -Þemavika

    - Árshátíð unglingadeilda

    - Grímuball

    Mars - Spiladagur 1.-2. bekkur á leikskólanum

    - Árshátíð

    - Skíðaferð unglingadeilda Smiðjuhelgi

    - 6. bekkur í Reykholt

    - Skauta- og menningarferð 4. - 5. bekkja

    Apríl - Lyngbrekkuball - Stóra upplestrarkeppnin 7. b.

    Maí

    - Sundkennsla Borgarnes/Hreppslaug

    - Sérstaða sveitaskóla 8. - 9. bekkir - Starfskynningar 10. bekkur

    -Samstarfsdagur/uppbrot deilda - Vorferðir

    Samstarf heimila og skóla Samkvæmt lögum á að vera starfandi skólaráð við skólann. Á haustdögum 2013 var skipað sameiginlegt skólaráð fyrir GBF. Í því sitja 11 einstaklingar sem sitja tvö ár í senn, sjá nöfn fulltrúanna undir kaflanum Nefndir og ráð hér að ofan. Skólaráðið er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólastarf. Skólaráðið fundaði þrisvar sinnum á skólaárinu. Bekkjartenglar voru boðaðir á fund að hausti þar sem farið var yfir hlutverk og starfsemi foreldrafélags skólans og bekkjarsáttmáli heimilis og skóla lagður fram. Lagt var upp með að bekkjartenglar hvers bekkjar myndu gera eitthvað með hópnum einu sinni til tvisvar sinnum yfir veturinn. Skólinn nýtur mikils velvilja í nærsamfélaginu, fyrir það ber að þakka. Hvanneyrardeild Starfsfólk kallaði eftir aðstoð foreldra við einstök verkefni; flóamarkaður, árshátíð o.fl. Tenglar sáu um bekkjarviðburði. Kleppjárnsreykjadeild Foreldrar sáu um gæslu um gistinætur á smiðjuhelgum og aðstoðuðu við móttöku og skipulagningu verkefnisins sérstaða sveitaskóla. Mismunandi var hvað bekkjartenglar gerðu með sínum bekk.

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    11

    Varmalandsdeild Foreldrar hjálpuðu til við að manna ýmsa viðburði með nemendum s.s. gistinætur á smiðjuhelgum, tóku þátt í gönguferðum, og móttöku á nemendum í verkefninu sérstaða sveitarskóla. Foreldrar hjálpuðu við fluttningana úr húsmæðraskólanum. Einnig hafa foreldrar hjálpað til við safnanir og önnur verkefni. Mismunandi var hvað bekkjartenglar gerðu með sínum bekk.

    Akstur Nær allir nemendur skólans koma og fara með skólabílum. Umsjónarmenn leiða eru: Hvítársíða/Stafholtstungur, Norðurárdalur, Borgarhreppur, Lundarreykjadalur, Bæjarsveit og Hvanneyrarleið Garðar Jónsson, Þverárhlíð Ben og félagar, Kotaleið Jósef J. Rafnsson, Bifröst og Skorradalsleið Tryggvi Sæmundsson, Húsafell og Flókadalsleið Jón Pétursson og Hálsasveit/Reykholt er Einar Guðni Jónsson.

    Áherslur í skólastarfi Hlutverk Hlutverk Grunnskóla Borgarfjarðar, í skipulagðri samvinnu við heimilin og samfélagið, er að: * stuðla að vellíðan, alhliða þroska og heilbrigði nemenda, * veita nemendum tækifæri til alhliða menntunar, bæði hugar og handa * efla gagnrýna hugsun nemenda, lífsgleði og jákvæða sjálfsmynd * undirbúa nemendur fyrir virka þátttöku í lýðræðislegu þjóðfélagi, með sjálfstraust og áræðni til að hafa áhrif á þróun samfélagsins Framtíðarsýn Grunnskóli Borgarfjarðar útskrifar metnaðarfulla nemendur, sem nýta styrkleika sína til að ná árangri. Skólinn er sérstaklega sterkur á sviði lýðheilsu, lífsleikni, list- og verkgreina, með tengingu við náttúru, arfleifð, menningu og sögu heimasvæðisins. Skólinn eykur fjölbreytni sína í gegnum ólíkar starfsstöðvar, sem standa og vinna saman að stöðugt betri árangri. Einkunnarorð Einkunnarorð skólans eru gleði, heilbrigði og árangur. Hugtökin þrjú lýsa best skólastarfi GBf og við hverju nemendur mega búast innan hans. Gleði vísar til þeirra jákvæðu viðhorfa sem skólinn vill að nemendur hafi til námsins og skólans og sé um leið lýsandi fyrir ríkjandi samskiptaform. Án gleðinnar er erfitt fyrir nemendur að ná þeim góða árangri sem skólinn væntir af þeim. Heilbrigði, vísar til andlegs og líkamlegs heilbrigðis sem er lykilþáttur nemenda til að ná árangri. Skólinn leggur sitt af mörkum til að auka heilbrigði nemenda með daglegri, skipulagðri hreyfingu og hollum mat í mötuneytinu. Árangur vísar til þess árangurs nemenda sem skólinn vill að hver einstaklingur nái bæði í námi og á félagslega sviðinu. Það er von skólans að nemendur upplifi veru sína í skólanum eftir einkunnarorðum hans. Stefna skólans er einstaklingsmiðað nám með áherslu á útikennslu og hreyfingu, sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.gbf.is.

    http://www.gbf.is/

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    12

    Gildi Við:

    berum virðingu fyrir sjálfum okkur, öðrum og umhverfinu

    tökum ábyrgð á því sem við gerum og segjum

    ástundum heiðarleg og réttlát samskipti, byggð á gagnkvæmu trausti

    göngum með gleði og jákvæðu hugarfari til leiks og starfs

    stöndum saman og vinnum saman

    sýnum umburðarlyndi og kærleika í samskiptum

    erum metnaðarfull, skipulögð og öguð í öllu sem við gerum

    gætum fyllsta trúnaðar um málefni annarra

    hvetjum til heilbrigðs lífernis

    Heimaskóli menntavísindasviðs H.Í. Skólinn veitir nemum í B.Ed.- námi við Menntavísindasvið H.Í. aðgang að skólanum til að vinna þar þau verkefni sem tengjast vettvangi. Verkefnin felast m.a. í æfingakennslu, kynningarheimsóknum, þátttöku í undirbúningi og framkvæmd kennslu, athugunum á skólastarfi o.fl. Kennarar skólans taka þátt í mati á frammistöðu nema og leiðbeina þeim á vettvangi. Þá hefur skólinn einnig hafið samstarf við Háskólann á Akureyri um vettvangsnám og æfingakennslu kennaranema. Tveir kennaranemar voru í vettvangsnámi í GBF í vetur. Samstarf leik- og grunnskóla Deildarstjórar sjá um samskipti við leikskólana í skólahverfinu: Andabæ, Hnoðraból og Hraunborg. Löng hefð er fyrir samstarfi Andabæjar og Hvanneyradeildar GBF. Skólahópur kemur að meðaltali einu sinni í mánuði í tvær til fjórar kennslustundir í senn. Nemendur í 1.-2.bekk fara líka í heimsókn í Andabæ og taka þátt í starfinu þar t.d. er sameiginleg dagskrá á degi íslenskra tungu, spiladagar og svo voru vinahópar þar sem allir bekkir skólans eiga sinn vina árgang á leikskólanum. Í ljósi þeirrar reynslu var unnin samstarfsáætlun á milli Kleppjárnsreykjadeildar og Hnoðrabóls annars vegar og Varmalandsdeildar, Hnoðrabóls og Hraunborgar hins vegar. Áætlunin byggir á því að skólahópar leikskólanna heimsækja grunnskólann nokkur skipti og mynda tengsl við ýmist 4., 5. og 6. bekk. Í byrjun taka nemendur miðstigs við leikskólabörnunum, kynna þeim skólann og vinna verkefni með þeim. Að vori heimsækja þau 1. bekk og fá að taka þátt í heilum skóladegi með þeim. Samstarf grunn- og menntaskóla Menntaskóli Borgarfjarðar í samstarfi við Borgarbyggð hefur boðið nemendum í Borgarbyggð að stunda fjarnám við skólann. Skólaárið 2015-2016 voru einn nemandi í fjarnámi við MB og einn við VMA. Í vor var nemendum 10. bekkjar boðið á kynningu í MB. Samstarf grunn- og háskóla Um árabil hefur þróast ákveðin samvinna milli leik-, grunn- og háskólans á Hvanneyri. Þessi samvinna hófst sem stuðningur áhugasamra foreldrar og velunnara við metnaðarfullt skólastarf. Samvinnan felst m.a. því að nemendur fá að: vinna í gróðurhúsi, heimsækja fjós og búvélasafn, nota svæði við skjólbelti, skoða listaverk Landbúnaðarháskóla Íslands, taka á móti skólahóp leikskólans og fá boð á viðburði í skólanum. Allt eru þetta þættir sem eru komnir með ákveðna hefð innan leik- og grunnskólans sem núna er búið að formgera og tengja á markvissari hátt við námskrármarkmið með undirrituðum samningi síðan í maí

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    13

    2009. Allir þessir skólar hafa þann kost að göngufæri er á milli þeirra og þar af leiðandi enginn aksturskostnaður. Skóli er hluti af samfélaginu og hlutverk hans felst ekki síst í því að leiða nemendur inn í þetta samfélag, gera þá meðvitaða um störfin sem þar eru unnin og hvernig það sem þeir læra tengist störfunum. Háskólinn á Bifröst hefur boðið 9. bekkingum á Varmalandi fjáröflunarleiðir fyrir söfnun í ferðasjóð nemenda. Auk þess sem stjórnendur Varmalandsdeildar hafa tekið þátt í kynningum Háskólans. Þá gaf stjörnuskoðunarfélag Bifrastar Varmalandsdeild stjörnukíki.

    Þróunarstarf Leiðtoginn í mér. Árið 2013 var ákveðið að GBF myndi taka upp þróunarverkefni sem byggir á hugmyndum Stephen Covey The Seven Habits of Highly Effective People. The Leader in me er aðferð sem þróuð var til að veita nemendum víðtækari menntun innan skólakerfisins. Aðferðin hefur verið notuð um árabil víða um heim, og hefur skilað miklum árangri. Áframhaldandi vinna átti sér stað skólaveturinn 2015-2016 í leiðtogaverkefninu. Verkefnið er að festast í sessi sem hluti af skólamenningu Grunnskóla Borgarfjarðar. Skólinn vill veita haldgóða menntun á sem flestum sviðum. Auk þess að kenna bóklegar og verklegar greinar á skólinn að efla alhliða þroska og heilbrigði nemendanna til að þeim farnist sem best í framtíðinni. Samfélagið hefur tekið örum breytingum á síðustu áratugum, og atvinnulífið gerir sífellt meiri kröfur til hvers einstaklings um fjölbreytta hæfni á mörgum sviðum. Rannsóknir hafa sýnt að það sem vinnuveitendur sækjast helst eftir hjá starfsmönnum eru þessir þættir: Að hann

    sé skapandi og frumlegur

    búi yfir gagnrýninni hugsun og hæfni til að ráða fram úr málum

    hafi góða hæfni í samskiptum og geti unnið með öðrum

    búi yfir sveigjanleika og aðlögunarhæfni

    sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

    The Leader in me er ætlað að auka sjálfsöryggi, ábyrgðartilfinningu og frumkvæði. Hver og einn lærir að koma auga á styrkleika sína og annarra, að hlusta á nýjar hugmyndir og tjá hug sinn. Nemendur og starfsfólk læra að nýta fjölbreytileikann í samstarfi og hvetja hvert annað til að til að ná enn betri árangri. Aðferðin byggir á 7 venjum sem nemendur og starfsfólk tileinka sér og læra að nota. Venjurnar eru teknar fyrir í ákveðinni röð, og byggir hver venja grunn að þeirri næstu í röðinni. Þrjár fyrstu venjurnar snúast um persónulegan þroska, sjálfsstjórn og sjálfsaga. Til að ná framförum verðum við að byrja hjá okkur sjálfum. Næstu þrjár lúta að samskiptum okkar við annað fólk, að byggja upp traust tengsl við aðra og ná besta mögulega árangri í samstarfi við þá. Síðasta venjan í röðinni beinist að því að hlú að sjálfum sér. Til að viðhalda árangri í leik og starfi og skapa okkur gott líf verðum við að gæta þess að ofbjóða okkur ekki; að brenna ekki út. Varmaland Þetta skólaárið tileinkuðu nemendur sér venjurnar 7. Unnið var með þær í öllum bekkjum og

    gerðu bekkirnir kynningu sín á milli um þær. Á unglingastigi, miðstigi og yngri barnastigi var

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    14

    gætt að því að hafa venjurnar og það sem þær standa fyrir sýnilegt. Bekkjarsáttmáli var

    settur upp í hverri stofu, þar sem nemendur komu sér sameiginlega saman um hvað

    einkennir bekkinn og hvað skal stefnt að. Starfsfólk tileinkaði sér tungumálið sem venjunum

    fylgir og tengdi þær við námið á margvíslegan hátt. Eins voru venjurnar gerðar sýnilega í

    matsalnum. Hver bekkur fékk þá eina venju til að gera góð skil í ramma.

    15.febrúar fengum við leiðtogaskóla skóla frá Boston í heimsókn. Þá var farið í leiki saman,

    spjallað um venjurnar og framtíðina.

    Lestrarátak var sett á þar sem stefnan var tekin á að lesa yfir 500 bækur fyrir maí byrjun. Þar

    stóðu allir nemendur saman og unnu sameiginlega að átakinu. Er markmiðið náðist var

    haldinn gleðidagur þar sem nemendur fóru saman í fatasund og stunduðu ísát.

    Leiðtogadagurinn var haldin þann 5.nóvember í öllum deildum skólans. Þá var skólinn opinn

    fyrir gesti og nemendur settu sig í hlutverk gestgjafa. Þeir stóðu fyrir skemmtiatriðum,

    kynningum og veitingum. Óhætt er að segja að dagurinn fór frábærlega fram og er orðinn

    einn af hátíðlegri dögum skólastarfsins.

    Sigríður Arnardóttir

    Hvanneyri

    Leiðtoginn í mér er orðið samofið starfinu á Hvanneyri og nýta nemendur venjunarnar mikið í

    daglegum áskorunum. Í vetur var unnið markvisst með styrkleika nemenda og þeir gerðir

    sýnilegir. Áfram var unnið með venjurnar 7 í gegnum verkefni sem nemendur unnu í

    samþættum íslensku og samfélagsfræðiverkefnum. Leiðtogadagurinn var haldinn í tengslum

    við flóamarkað sem nemendur halda árlega. Boðsgestir fengu kynningu á undirbúningi

    flóamarkaðsins og fleiri góðgerðarverkefnum nemenda og hvernig þau tengjast

    leiðtogaverkefninu og venjunum 7. Sumir gestanna nýttu sér foropnun markaðsins og festu

    kaup á gersemum og styrktu um leið gott málefni. Í vetur byrjuðum við með leiðtogabækur

    en í þær setja nemendur sér markmið. Þeir velja sjálfir hvaða markmið þeir setja sér og í

    hvaða námsgrein og setja sér síðan ákveðin tímamörk. Nemendur voru mjög áhugasamir í

    þessari vinnu. Í vor voru svo fótspor máluð á stéttina fyrir utan skólann eitt fyrir hverja

    venju.

    Fjóla Benediktsdóttir og Helga J. Svavarsdóttir

    Kleppjárnsreykir Ljósberateymi var myndað á Kleppjárnsreykjum í haust þar sem 1 nemandi var settur úr hverjum bekk í teymið. Í upphafi vetrar voru tveir starfsmenn í teyminu en bara einn eftir áramót. Að mati teymisins ættu að vera fleiri en 1 fullorðinn í svona mikilvægu verkefni sem Leiðtogaverkefnið er. Nemendur sem voru í þessu teymi voru mjög virkir og ábyrgir og tóku af skarið við fundarhöld og höfðu góð og gild innlegg í starfið.

    Elísabet Halldórsdóttir

    Byrjendalæsi Markmið Byrjendalæsis í lestrarkennslu er að auka almenna lestrarfærni nemenda á fyrstu

    árum grunnskólagöngu sinnar. Lögð er áhersla á að nemendur læri að lesa út frá

    merkingarbærum texta þar sem jöfnum höndum er lögð áhersla á tal, ritun, hlustun,

    lesskilning, aukinn orðaforða, samband stafs og hljóðs og lestur. Kennsla í íslensku verður

    heildstæð sem þýðir að öll vinna tengd lestri og ritun er felld að aðferðinni Byrjendalæsi.

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    15

    Í vetur voru 3 kennarar einn frá hverri deild í Byrjendalæsisnámi á 1.ári og 1 kennari í

    leiðtoganámi á 1.ári. En hvort tveggja er 2 ára nám frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á

    Akureyri í Byrjendalæsi. Hlutverk leiðtogans er að styðja kennara sem kenna eftir aðferðum

    Byrjendalæsis og greiða fyrir innleiðingu aðferðinnar í skólanum. Sjá til þess að kennarar

    leggi fyrir samræmd lestrarpróf þrisvar á vetri og hefur umsjón með því að niðurstöður

    prófanna séu nýttar til leiðsagnar um nám og kennslu. Niðurstöður skimana eru sendar til HA

    sem síðan vinnur úr niðurstöðunum og sendir til baka í skólann.

    Farnar voru 7-8 heimsóknir til hvers kennara í byrjendalæsisnámi og að heimsókn lokinni

    ræddi leiðtoginn við byrjendalæsiskennarann um sína upplifun af kennslustundinni og fór yfir

    hana með kennaranum ásamt því að svara vangaveltum og spurningum kennarans. Eftir

    hverja heimsóknarlotu í skóla, tekur leiðtogi saman helstu atriði úr heimsókninni og

    samtalinu sem átt var við kennarann og sendir til síns ráðgjafa við HA. Ráðgjafinn og

    leiðtoginn ræddu síðan saman í síma um upplifun leiðtogans og kom með ábendindingar

    handa leiðtoganum til fara með í næstu kennslustund eða smiðju.

    Haldnar voru 5 smiðjur yfir veturinn og voru 2 þeirra fyrir áramót og 3 eftir áramót. Öllum

    kennurum yngsta stigs var boðið að taka þátt í smiðjunum og nýttu sumir sér það vel. Í

    síðustu smiðjunni var farið í heimsókn í Brekkubæjarskóla á Akranesi og tóku leiðtogar úr

    Grundaskóla og Brekkubæjarskóla á móti kennurum. Þetta var mjög góð heimsókn og var

    gott veganesti fyrir alla að sjá hvernig aðrir skólar eru að vinna eftir Byrjendalæsinu.

    Fjóla Benediktsdóttir

    Heilsuefling Grunnskóli Borgarfjarðar hefur verið þátttakandi í Heilsueflandi grunnskóla frá því vorið 2012 en þá ákvað fræðslustjóri í samráði við stjórnendur leik- og grunnskóla í Borgarbyggð að allir skólarnir í sveitarfélgainu yrðu heilsueflandi skólar. Af átta þáttum sem teknir eru fyrir hefur GBf farið í gegnum mataræði/tannheilsa, hreyfing/öryggi, geðrækt og lífsleikni.

    Grænfáni Allar deildir skólans eru aðilar að Grænfánaverkefni Landverndar og flagga Grænfána. Deildirnar unnu hver að sínum markmiðum í vetur. Varmalandsdeild

    Í Umhverfisnefnd sitja þrír fulltrúar nemenda og þrír fulltrúar starfsfólks. Í vetur flaggaði deildin sínum þriðja Grænfána sem sýnir að verkefnum tengdum umhverfismálum er vel sinnt innan skólans. Alltaf má þó bæta það starf sem fram fer innan veggja skólans. Í vetur var tekin ákvörðun um að hver árgangur innan deildarinnar myndi vinna verkefni í anda Grænfánans og fengu þeir úthlutað sérstökum áherslum. Skipting verkefna 1. bekkur - Veður og árstíðir 2. bekkur – Lífsskilyrði lífvera 3. bekkur – Vatn og fæðukeðjur 4. bekkur – Orkugjafar 5. bekkur – Jarðsaga 6. bekkur – Veðrun og rof

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    16

    7. bekkur – Ábyrgð á umhverfinu 8. bekkur – Gildi vísinda og tækni 9. bekkur – Náttúruvernd 10. bekkur – Auðlindir Tekinn var einn dagur til vinnunnar og fengu nemendur að vinna úr verkefnum árgangsins á eigin hátt. Þessi og sambærileg vinna mun halda áfram á næstu árum. Ætlunin er að festa hana í sessi sem árlega vinnu hvers árgangs innan verkefnisins fyrir utan þau markmið sem sett eru hverju sinni til að fá að flagga. Í vetur hafa matarafgangar í frá mötuneyti verið nýttir til fóðrunar á dýrum. Þar hafa komið við sögur hænur og hrútar. Hænurnar fá þennan venjulega úrgang en hrútarnir njóta afgangs af hafragraut hvers dags. Þemavika skólans er ávallt í tengslum við vinnu að eflingu umhverfisvitundar og í ár var unnið með þemað Fuglar. Unnið er bæði úti og inni til að efla skilning, upplifun og færni nemenda til að umgangast náttúruna bæði í nær- og fjærumhverfi. Á vorönn varð Grænfánaveggur skólans loksins að veruleika þar sem myndmenntakennarinn tók að sér að koma honum upp. Þar verða verkefni nemenda, umhverfissáttmáli deildarinnar og markmið hennar sýnileg öllum bæði gestum og gangandi ekki síður en starfsfólki og nemendum.

    Ása Erlingsdóttir, Björk Jóhannsdóttir og Þóra Magnúsdóttir

    Kleppjárnsreykjadeild Í ár sáu þær Bjarnheiður Jónsdóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir um Grænfánavinnu á Kleppjárnsreykjum. Grænfánanefndin var að þessu sinni skipuð fulltrúum frá hverju stigi til að auka skilvirkni á fundum. Fulltrúar nemenda voru þau Ingi Þór Magnússon 10. bekk, Elías Andri Harðarson og Maren Eir Halldórsdóttir úr 7. bekk og svo Dagbjört Rós Jónasdóttir úr 4. bekk. Þetta fyrirkomulag gafst mjög vel og unnu nemendafulltrúar vel að þeim verkefnum sem nefndin ákvað að vinna. Nefndin hittist alls á fimm formlegum fundum en nefndarmenn voru duglegir að minna samnemendur og starfsfólk á að flokka rusl og að spara orku. Grænfáninn var afhentur Kleppjárnsreykjadeildinni í annað sinn þann 26. nóvember eftir að fulltrúar frá Landvernd tóku út það starf sem unnið hafði verið að í skólanum. Sáu nemendafulltrúar um að taka á móti og sýna fulltrúunum skólann. Fljótlega eftir flöggunina hófst nefndin við að skoða ný þemu til að vinna eftir og var ákveðið að vinna næst með þemun neysla og hnattrænt jafnrétti. Það kemur svo í hlut nýrrar Grænfánanefndar að útfæra hvernig við vinnum með þau og hvaða markmið við setjum okkur fyrir næstu flöggun. Hvanneyri Unnið er eftir þemanu lýðheilsa í Grænfánaverkefninu á Hvanneyri og fléttast sú vinna inn í önnur þróunarverkefni sem eru í gangi; leiðtogaverkefnið og heilsueflingu. Útinám skipar stóran sess í náminu þar sem unnið er með náttúruna og er fastur liður á stundatöflu auk

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    17

    útiíþrótta og umhverfismenntar. Söngstundir og bekkjarfundir hafa skipað fastan sess í skólastarfinu í vetur þar sem lögð er áhersla á líðan nemenda og virðingu hver fyrir öðrum. Mikilvægi þess að hver og einn taki ábyrgð á sinni líðan og sinni framkomu. Flokkun umbúða og nýting afganga er orðinn hluti af lífinu og þarf ekki að minnast á lengur en næsta skref er að taka aukna fræðslu um ábyrgð okkar í innkaupum og vali á matvælum sem ekki skilja eftir sig allar þessar umbúðir. Matarsóun verið tekin fyrir og hafa nemendur viktað afganga, sett upp í súlurit og tekið umræður um sóun matvæla. Nemendur hafa haldið áfram að rækta kartöflur, tína ber og sulta, gera slátur og rækta kryddjurtir. Haustið 2016 er stefnt að flöggun Grænfánans í áttunda sinn.

    Helga Jensína Svavarsdóttir

    Símenntun

    Almennt er endurmenntun ætlaður tími utan skipulagðan starfsramma skólaársins þ.e. 15.júní-15.ágúst alls 150 klst en hún má einnig fara fram á starfstíma skóla og er þá háð samkomulagi við viðkomandi kennara. Ef endurmenntun er flutt á starfstíma skóla reiknast 33% álag á virkum sögum en 45% um helgar og fækkar á tímum í samræmi við það. Þetta þýðir að 1 klst er 1,33 á starfstíma skóla, því gengur kennarinn hraðar á þá tíma sem varið er í endurmenntun á starfstíma skóla en utan hans. Hvað telst til endurmenntunnar

    Hvers kyns formlegt nám í viðurkenndum menntastofnunum Námskeið sem standa einn dag eða lengur, þar sem með skipulegum hætti er miðlað

    fræðslu og upplýsingum er snertir afmarkaða þætti skólastarfseminnar Styttri fræðslufundir þar sem ákveðnum upplýsingum og fræðslu er komið á

    framfæri Styttri eða lengri kynnisferðir starfsmanna þar sem horft er til umbóta og þróunar á

    ákveðnu sviði

    Endurmenntun starfsmanna má í stórum dráttum skipta í tvennt:

    Endurmenntunarverkefni, ákvörðuð af skólastjórnendum og í samræmi við áherslur í þróun skólastarfsins á hverjum tíma. Markhópurinn getur verið allir starfsmenn, allir kennarar eða minni hópar starfsmanna, eftir eðli málsins

    Endurmenntun sótt af einstökum starfsmönnum, samkvæmt eigin óskum og/eða í samráði við skólastjórnendur

    Starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðar sótti eftirfarandi námskeið á skólaárinu 2015-2016:

    Byrjendalæsi á Akureyri

    Trúnaðarmannanámskeið

    Fyrirlestur um kvíða barna, Jóhanna Kristín Jónsdóttir

    Skyndihjálp ÁsgeirSæmundsson

    Talþjálfun, Bryndís Guðmundsdóttir

    Teymiskennsla, Ingvar Sigurðsson

    Námsmat, Klébergsskóla

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    18

    Skólaþing Vesturlands

    PALS-námskeið

    Námskeið í leiðtogaverkefninu

    Einhverfuröskun

    Dönskunámskeið

    Stjörnuskoðun

    Hagnýt eðlis- og efnafræðikennsla

    Menntabúðir Vesturlands

    Námsstefna SÍ

    Námskeið fyrir stjórnendur

    Einnig voru starfsmenn í námi við LBHÍ, HÍ, HA

    Námsmat Námsmat í GBF miðar að því að auka samfellu í námsmati innan skóla og milli skólastiga. Gefin er prófseinkunn og/eða frammistöðumat við annaskil. Frammistöðumat var unnið í öllum deildum af nemendum og kennurum um áramót en einungis af kennurum að vori. Í 10.bekk var tekið upp nýtt námsmat samkvæmt nýrri Aðalnámskrá grunnskóla. Kennarar í unglingadeild ákváðu að halda óbreyttu fyrirkomulagi námsmats á vorönn þar sem nemendur unnu í prófamöppu. Samhliða þessu er innan námsgreina símat yfir allt skólaárið. Gæðagreinir Gæðagreinir er gagnlegt verkfæri fyrir skóla til þess að stuðla að breytingum, þróun og vexti skólastarfsins. Allir starfsmenn, nemendur og foreldrar hafa tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri vilji þeir stuðla að breytingum til famfara. Í upphafi skólaárs var myndað sjálfsmatsteymi með fulltrúum úr öllum deildum. Innra mats hópurinn hittist og gerði vinnuáætlun sem fólst í því að leggja fyrir gæðagreina 7, starfsmannastjórnun og stuðningur við starfsfólk. Starfsmenn, kennarar og stjórnendur unnu þá. Við matið er unnið á hverri starfsstöð fyrir sig og starfsmönnum skipt í smærri hópa sem hver og einn skilar sínum niðurstöðum til sjálfsmatsteymis. Sjálfsmatsteymið dró saman allar niðurstöður. Sjá nánar í sjálfsmatsskýrslu 2015-2016. Samræmd próf Á haustönn þreyttu nemendur 4., 7. og 10. bekkja samræmd próf í íslensku og stærðfræði og nemendur 10. bekkjar þreyttu einnig próf í ensku. Kennarar rýndu niðurstöðurnar og nýttu þær við skipulagningu kennslunnar. Erlend samskipti Nordplus er millilandasamstarf fyrir ungt fólk á Norðurlöndunum. Í þessu tilviki er um að ræða samstarf milli Íslands, Finnlands og Danmerkur sem fer fram á 2ja ára tímabili, frá hausti 2014 til vors 2016. 9.bekkur á Kleppjárnsreykjum tekur þátt í verkefninu. Markmiðið með samstarfinu er að nemendurnir kynnist mennta- og skólasamfélagi hinna landanna sem og menningu þeirra í víðari skilning. Að auki er samstarfið gott tækifæri fyrir tungumálaþjálfun en enska er vinnutungumál verkefnisins. Nemendurnir í löndunum þremur vinna verkefni tengd samstarfinu jafnt og þétt yfir tímabillið. Þau hafa meðal annars kannað eigið nærsamfélag og skólastarf og í því samhengi tekið upp myndbönd og búið til glærusýningar.

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    19

    Hápunktarnir í verkefninu eru heimsóknirnar landanna á milli. 10. bekkur á Keppjárnsreykjadeild fór til Finnlands 26. febrúar til 4. mars með umsjónarkennara og einu foreldri.

    Skýrsla deildarstjóra Við GBf starfa þrír deildarstjórar í mismunandi háum stöðuhlutföllum í stjórnun. Helga

    Jensína Svavarsdóttir deildarstjóri Hvanneyrardeildar er í 38% stöðu, Hlöðver Ingi

    Gunnarsson deildarstjóri Varmalandsdeildar og Ingibjörg Adda Konráðsdóttir deildarstjóri

    Kleppjárnsreykjadeildar. Deildarstjórar Varmalandsdeildar og Kleppjárnsreykjadeildar skiptu

    með sér stöðu skólastjóra í vetur. Megin hlutverk deildarstjóra er að stuðla að velferð og

    vellíðan nemenda og starfsfólks, skipuleggja skólastarf, gera stundatöflur, vera faglegur

    ráðgjafi og sinna aga- og umgengnismálum í sinni deild. Hann sér um daglega stjórnun og

    utanumhald, skipuleggur forfallakennslu og skráir yfirvinnu vegna hennar í samstarfi við

    ritara. Hann skipuleggur og stjórnar deildarfundum og skráir allar fundargerðir í viðkomandi

    deild. Hann heldur utanum skipulag list- og verkgreinakennslu og vettvangsferða á vegum

    skólans. Deildarstjóri situr í áfallaráði og nemendaverndarráði þegar það á við. Deildarstjóri

    og ritari hverrar deildar sjá um allar bókapantanir fyrir viðkomandi deild og hafa umsjón með

    bókageymslu og öðrum námsgögnum. Skipulag vegna alls uppbrots í skólastarfinu s.s. litlu

    jóla, árshátíðarundirbúnings, samskipta við leikskóla og vinnu á vordögum, er einnig unnið af

    deildarstjóra. Auk þess hafa deildarstjórar Varmalands- og Kleppjárnsreykjadeildar skipulagt

    saman smiðjuhelgar vetrarins. Deildarstjórar sinna einnig öðrum þeim störfum sem

    skólastjóri kann að fela þeim. Gott og reglulegt samstarf hefur verið milli allra deilda og hafa

    stjórnendur fundað vikulega í vetur til að stilla saman strengi.

    Skýrslur umsjónakennara

    Hvanneyri Nemendur í Hvanneyrardeild voru 26 í 1. – 4. bekk að hausti, 14 drengir og 12 stúlkur. Í lok

    skólaárs voru 22 nemendur í 1.-4. bekk, 12 drengir og 10 stúlkur. Í lok skólaárs voru í 1. bekk

    4 nemendur, í 2. bekk 4 nemendur, í 3. bekk 6 nemendur og í 4. bekk 8 nemendur. Á hverjum

    morgni fengu nemendur hreyfingu á móti bóklegu áður en

    farið var í morgunmat. Að loknum morgunmat var farið í

    stöðvavinnu þar sem nemendur unnu þvert á aldur í anda

    Byrjendalæsis og stærðfræði. Öðrum námsgreinum var fléttað

    inn í stöðvavinnuna. Umsjónarhópar voru einnig þvert á aldur

    en umsjónarkennarar voru S. Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún

    Halla Bjarnadóttir.

    Helstu áherslur í Hvanneyrardeild. Meginmarkmið vetrarins

    var að efla sjálfstæði, samheldni og jákvæð samskipti í

    gegnum vinnu við leiðtogaverkefnið, Leiðtoginn í mér.

    Vikulega voru haldnir umsjónarhópsfundir þar sem nemendur

    gátu tjáð sig um hin ýmsu málefni og líðan sína. Áhersla var

    einnig lögð á samþættingu námsgreina við grunnþætti

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    20

    aðalnámskrár; læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og

    sköpun.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu. Einstaklingsmiðun er höfð að leiðarljósi við kennslu

    nemenda í öllum fögum og fá nemendur að fara áfram í námsbókum eins og þeir hafa

    úthald, vilja og getu til. Notast var við fjölbreytta kennsluhætti, ýmist í hópa – eða

    einstaklingsvinnu. Í stöðvavinnu var unnið í anda Byrjendalæsis að fjölbreyttum verkefnum

    ásamt því að vinna að stærðfræðiverkefnum.

    Í stærðfræði stöðvum voru nemendur að vinna með talnaskilning, form, fjölbreyttar aðferðir

    á reikniaðgerðum, þrautir og spil. Fjölbreytt verkefni í anda Byrjendalæsis voru unnin út frá

    bók vikunnar eins og t.d. orðaskuggar, lykilorðavinna, sóknarskrift, ven kort, hugtakakort og

    margt fleira. Talsverð samþætting var milli námsgreina og þannig flæddu t.d. listgreinar,

    upplýsingatækni og samfélagsfræði inn í stöðvavinnutímana. Yndislestur fékk tíma flesta

    daga og þá lásu nemendur einnig upphátt fyrir kennara og/eða stuðningsfulltrúa. Heimanám

    var haft í lágmarki en lögð áhersla á heimalestur á hverjum degi í a.m.k. 10 mínútur upphátt

    fyrir forráðamann. Nemendur voru með leiðtogabók þar sem þau settu sér markmið ásamt

    kennara til þess að vinna eftir. Vikulega sendu umsjónarkennarar bekkjarfréttir til foreldra

    þar sem þeir fóru yfir það sem unnið var í skólanum og/eða ræddu það sem framundan var.

    Skólahópur Andabæjar kom í heimsókn í skólann mánaðarlega og nemendur heimsóttu

    leikskólann reglulega.

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    1.-2. bekkur 3. – 4. b.

    Íslenska 7 7 S.Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Stærðfræði 5 5 S.Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Enska 1 1,5 S.Fjóla Benediktsd.(3.-4.) og Sólrún Halla

    Bjarnad.(1.-2.)

    Íþróttir 4 4 Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Lífsleikni 1 1 S.Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Samfélagsfræði 4,5 4,5 S.Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Myndmennt/

    textílmennt

    2 2 Kristín Ingibjörg Baldursdóttir

    Upplýsingatækni 1,5 1 Helga Jensína Svavarsdóttir

    Útikennsla 1,5 1,5 S.Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Umhverfismennt/

    heimilisfræði

    1,5 1,5 Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir

    Tónmennt 1 1 Birna Þorsteinsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    21

    Þróunarstarf. Leiðtoginn í mér er í innleiðingarferli hjá GBF og hefur Hvanneyrardeildin

    unnið markvisst að því verkefni. Í haust var unnið með styrkleika hvers nemanda og var það

    sett utan á dvd hulstur í anda Grænfánaverkefnisins. Í vetur var líka leiðtogabók þar sem

    nemendur setja sér markmið til þess að vinna eftir. Nemendur velja sjálfir hvaða markmið

    þeir setja sér í hvaða námsgrein og þurfa að reyna að ná markmiðum sínum innan ákveðins

    tíma. Í vor voru máluð fótspor á stéttina við grunnskólann þar sem venjurnar 7 eru skráðar á

    fótsporin.

    Námsmat. Námsmatið byggist á frammistöðumati sem gefið er tvisvar yfir skólaárið í janúar

    og í maí. Nemendur fara síðan reglulega í hraðlestrarpróf og lesskilningspróf yfir veturinn. 4.

    bekkur þreytti samræmd próf í september, í íslensku og stærðfræði.

    Skemmtanir og félagslíf . Fyrsta ferð haustsins var í Oddsstaðarétt þar sem nemendur tóku

    virkan þátt í að draga fé í dilka. Hinn árlegi flóamarkaður var haldinn í nóvember í tengslum

    við leiðtogadaginn en þar selja nemendur föt sem þeir fá gefins og hluti sem fólk vill gefa

    nýtt líf. Einnig voru seldar vöfflur og kakó. Ágóði af flóamarkaði var gefinn til UNICEF. Á degi

    íslenskrar tungu fóru allir nemendur Hvanneyrardeildar í leikskólann og sungu ásamt því að

    kíkja í Landbúnaðarháskólann. Í nóvember var skoðaður grindhvalur upp á

    Kleppjárnsreykjum. Hvalinn hafði rekið að landi í Hrútafirði og kom Þorbjörg Valdís kennari

    við Varmalandsdeild og fræddi nemendur um hvali o.fl. Þann 1. desember var kaffihús í

    skólanum þar sem nemendur voru með skemmtiatriði og buðu foreldrum, ömmum og öfum í

    heimsókn. Í desember var farið að sækja jólatré í Selskóg í Skorradal þar sem Valdimar

    skógfræðingur tók á móti hópnum og aðstoðaði við að finna tré, að þessu sinni kom

    skólahópur leikskólans Andabæjar með. Einnig var komið við í Mófellsstaðakoti þar sem

    Guðmundur Hallgrímsson og Ullarselið tóku á móti nemendum og sýndu rúning á kind ásamt

    því að spinna ullina. Á hverju ári hefur Helgileikurinn verið leikinn í kirkjunni þar sem allir

    nemendur skólans taka þátt í uppsetningunni og alltaf er vel mætt í kirkjuna.

    Í janúar var hin árlega álfabrenna með leikskólanum Andabæ. Þá var farið í Skjólbeltin í

    álfagöngu. Einnig tóku margir nemendur 4. bekkjar þátt í Söngvakeppni GBF á

    Kleppjárnsreykjum. Í vikunni á undan

    var söngskemmtun á Hvanneyri þar

    sem öllum nemendum var boðið að

    spreyta sig. Í byrjun febrúar var haldið

    þorrablót í skólanum þar sem lesinn

    var upp annáll síðastliðins árs og síðan

    var snæddur indælis þorramatur. Að

    þessu sinni sáu nemendur í 4. bekk um

    skemmtiatriði ásamt því að semja

    annálinn. Á öskudaginn mættu flestir

    nemendurnir í grímubúningum og var

    gengið í fyrirtæki og sungið. Fyrir

    páskafrí um miðjan mars var árshátíð í Halldórsfjósi þar sem nemendur settu upp leikritið

    Rúmbi risaeðla. Nemendur 4. bekkjar fóru í árlega skauta- og menningarferð til Reykjavíkur í

    apríl með nemendum úr 4. – 5. bekk úr öllum deildum Grunnskóla Borgarfjarðar. Farið var á

    skauta í Egilshöll, en síðan var farið á Þjóðminjasafnið og endað á Hvalasafninu.

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    22

    Þemavinna/vordagar. Um miðjan maí var útinám í viku. Þá voru unnin ýmis verkefni tengd

    útinámi. Nemendur unnu verkefni tengdu Byrjendalæsi þar sem þeir tálguðu veru úr birkitré

    og unnu sögu í spjaldtölvu. Í útivikunni máluðu nemendur kastalann á skólalóðinni og rifu

    niður kofa í Skjólbeltunum.

    Samstarfsdagur GBF var 31. maí. Yngsta stigið hittist saman á Kleppjárnsreykjum og þar var

    unnið á stöðvum. Farið var á 5 stöðvar þvert á aldur og deildir.

    Vorferðin var farin á Akranes, vitinn skoðaður, kíkt á Langasand, pizzahlaðborð á Galító og

    endað síðan á leik í skógræktinni.

    Almennt um nemendur. Hópurinn er samsettur af ólíkum einstaklingum en er engu að síður

    samheldinn. Í kjölfar vinnu þvert á aldur (stöðvavinna) og með venjunum sjö

    (leiðtogaverkefni) skynjuðu kennarar aukið umburðarlyndi og víðsýni nemenda gagnvart

    hver öðrum.

    Í heildina voru samskipti góð og virðing á milli nemenda.

    S. Fjóla Benediktsdóttir og Sólrún Halla Bjarnadóttir

    Kleppjárnsreykir

    1.– 4. bekkur Nemendur á yngsta stigi voru 17 að vori í 1.– 4. bekk, 8 drengir og 9 stúlkur. Í 1. bekk voru 2

    nemendur, í 2. bekk 10 nemendur, í 3. bekk 3 nemendur og í 4. bekk 2 nemendur.

    Áhersla var lögð á að skapa jafnvægi á meðal nemenda og kennara. 1. desember tók Anna

    Kristín Gunnarsdóttir við stöðu umsjónarkennara af Hönnu Kristínu Þorgrímsdóttur.

    Helstu áherslur árgangsins. Lögð var áhersla á góð samskipti í bekknum, vellíðan og jákvæða

    sjálfsmynd nemenda. Í byrjun var megináherslan á að nemendur 1. bekkjar upplifðu öryggi

    og vellíðan. Áhersla var lögð á góða umgengni nemenda og ábyrgð hvers og eins gagnvart

    umhverfi sínu. Áhersla var lögð á góðan vinnufrið en hópurinn var vinnusamur.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu. Námið var einstaklingsmiðað og greinar samþættar eins og

    kostur var. Íslenska var kennd með aðferðum Byrjendalæsis. Áhersla var lögð á notkun

    fjölbreyttra kennsluaðferða og aðlögun námsefnis að hverjum og einum. Unnið var með

    fjölbreyttar sögur en vinna við þær spannaði iðulega eins til tveggja vikna tímabil.

    Í stærðfræði fengu nemendur að vinna hver á sínum hraða með námsefni við hæfi. Áhersla

    var lögð á samvinnu á meðal nemenda og góðan stuðning frá kennurum.

    Í lífsleikni var áhersla lögð á að efla samkennd og samhygð á meðal nemenda en í lok hverrar

    viku sátu nemendur bekkjarfund þar sem öllum var gefinn kostur á að tjá sig um líðan og

    annað sem lá þeim á hjarta.

    Í ensku var áhersla lögð á fjölbreytt verkefni sem tengdust bæði ritun og tjáningu.

    Útivera og hreyfing skipaði stóran sess í starfinu haust og vor

    Megin áhersla í heimanámi var lestur en einnig var nemendum frjálst að vinna í öðrum

    greinum, svo sem stærðfræði. Við samþættingu námsgreina mátti sjá anga Byrjendalæsis

    teygja sig víða.

    Foreldraviðtöl voru að hausti þar sem áhersla var lögð á að ræða líðan nemenda og eftir jól

    þar sem líðan og námsframvinda var rædd. Samstarf foreldra og kennara var einkum fólgið í

    góðri samræðu um það sem upp kom hverju sinni. Einnig sendi umsjónarkennari bréf til

    foreldra í lok hverrar viku, þar sem farið var yfir starfið undanfarna viku og það sem áætlað

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    23

    var vikuna á eftir. Samstarf var við skólahóp Hnoðrabóls en nemendur þaðan komu og sátu

    kennslustundir með nemendum í 1. – 4. bekk.

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Enska 1 Anna Kristín Gunnarsdóttir

    Íslenska 8 Anna Kristín Gunnarsdóttir Lára Kristín Gísladóttir Bjarnheiður Jónsdóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Anna Kristín Gunnarsdóttir

    Náttúrufræði/Samfélagsfræði/ umhverfismennt

    6 Anna Kristín Gunnarsdóttir Bjarnheiður Jónsdóttir Elísabet Halldórsdóttir

    Stærðfræði 5 Anna Kristín Gunnarsdóttir Jón Ingi Baldvinsson

    Smíði/Myndmennt 2 Eva Lind Jóhannsdóttir Unnar Þorsteinn Bjartmarsson

    Textílmennt 1 Anna Kristín Gunnarsdóttir Lára Kristín Gísladóttir

    Upplýsingatækni/Bókasafn 1 Anna Kristín Gunnarsdóttir Eva Lind Jóhannsdóttir Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir

    Tónmennt 1 Birna Þorsteinsdóttir Anna Kristín Gunnarsdóttir

    Þróunarstarf. Unnið var þróunarstarf í tengslum við Leiðtogann í mér.

    Námsmat/frammistöðumat.Námsmatið byggist á frammistöðumati sem gefið er tvisvar yfir

    skólaárið í janúar og í maí. Nemendur fara einnig reglulega í hraðlestrarpróf og

    lesskilningspróf yfir veturinn. 4. bekkur þreytti samræmd próf í september, í íslensku og

    stærðfræði. Læsi – lestrarskimun var lögð fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Nemendur í 3. og 4.

    bekk unnu Orðarún lesskilningskönnun.

    Í öðrum greinum var símat á þekkingu

    og færni.

    Skemmtanir og félagslíf. Leiðtogadagur

    var haldin í nóvember. Nemendur tóku

    á móti gestum og sýndu þeim hvaða

    verkefni hafa verið unnin í tengslum við

    Leiðtogann í mér. Ljósahátíðin var í

    nóvember. Þar kveikti yngsti nemandi

    skólans, ljós á trénu í portinu. Litlu jólin

    voru haldin hátíðleg. Árshátíð yngsta-

    og miðstigs var haldin í Logalandi, 1. desember. Á árshátíðinni sáu nemendur um draugahús,

    sungu og dönsuðu.

    Einn dótadagur var á vetrinum. Haldið var stjörnubíó en nemendur höfðu safnað sér inn

    stjörnum fyrir jákvæða hegðun og því bar að fagna. Horfðu nemendur á kvikmynd, átu popp

    og drukku djús. Söngvarakeppni GBF var haldin í janúar á Kleppjárnsreykjum og komu

    nemendur úr öllum deildum skólans og tóku þátt. Öskudagurinn var haldinn með pompi og

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    24

    prakt í íþróttahúsinu en nemendur á unglingastigi buðu upp á skemmtun fyrir yngri

    nemendur skólans.

    Nemendur í 1.–7 . bekk á Kleppjárnsreykjum fóru í skíðaferð í apríl og nemendur í 4. – 5.

    bekk fóru í menningar- og skautaferð til Reykjavíkur með jafnöldrum sínum úr öllum

    deildum. Nemendafélagið bauð nemendum yngsta stigs eitt sinn upp á skemmtun að loknum

    skóla, leikja- og bíódag.

    Þemavinna/vordagar. Unnin voru ýmis þemaverkefni tengd Byrjendalæsi. Sem dæmi má

    nefna var unnið með íslensku sauðkindina. Byrjendalæsisverkefni tengd sauðkindinni voru

    unnin, ásamt veggspjöldum með eyrnamörkum, einnig var farið í heimsókn á Kjalvararstaði

    að skoða ærnar. Þemavinna var unnin í tengslum við árshátíð nemenda á uppbrotsdögum.

    Nemendur skrifuðu draugasögur, æfðu draugalög og tóku þátt í annari skipulagningu tengdri

    árshátíðinni.

    Á vordögum tóku nemendur þátt í stöðvavinnu. Stöðvar voru við skólann, íþróttahús,

    Læknistún og Logaland. Einnig var farið í gönguferðir. Samstarfsdagur GBF var haldinn fyrir

    nemendur allra starfsstöðva. Að þessu sinni komu nemendur yngsta stigs saman á

    Kleppjárnsreykjum. Nemendur unnu ýmis spennandi verkefni í stöðvavinnu.

    Almennt um nemendur. Hópurinn er samsettur af ólíkum einstaklingum og hefur markviss vinna verið unnin til þess að hópurinn nái betur saman. Á bekkjarfundum hefur áhersla verið

    lögð á umburðarlyndi og virðingu gagnvart líðan og háttvísi samnemenda. Hópurinn er

    samsettur af flottum einstaklingum og býr hver og einn nemandi yfir styrkleikum sem hefur

    jákvæð áhrif á bekkjarandann. Anna Kristín Gunnarsdóttir

    5. bekkur

    Í bekknum voru 16 nemendur, 6 stelpur og 10 strákar. 5 nemendur komu frá Hvanneyri. Um

    áramót flutti einn strákur og svo annar í febrúar og fjöldi nemenda orðinn 14. Bekknum

    hefur fylgt einn nemandi úr 4 bekk.

    Helstu áherslur árgangsins. Unnið hefur verið með sjálfstæði og samvinnu og lýðræðisleg

    samskipti. Einnig hefur Leiðtogaverkefnið fallið inn í alla almenna vinnu leynt og ljóst.

    Aðalnámsskrá Grunnskólanna var fylgt við gerð námsáætlana.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Danska 1 Elísabet Halldórsdóttir

    Enska 3 Magnea Helgadóttir

    Íslenska 7 Elísabet Halldórsdóttir/Lára Kristín Gísladóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Elísabet Halldórsdóttir

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 3 Elísabet Halldórsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    25

    Stærðfræði 6 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Áhugasviðsval 2 BJ/EH/JIB/AKG/SHG/UÞB

    Textílm/myndm/smíði 2 LKG/ELJ/UÞB

    Upplýsingatækni 1 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Umhverfismennt/útinám 2 Elísabet Halldórsdóttir/ Unnar Þ. Bjartmarsson

    Þróunarstarf. Bekkurinn hefur unnið að uppbyggingu á Læknistúninu smíðað kofa og bætt

    það sem þurft hefur. Vinnan á Læknistúninu hefur verið í gangi allt skólaárið. Á 4 vikna fresti

    völdu nemendur sér vinnustofu til að vinna í næstu 4 vikurnar. Grænfánaverkefnið og

    Leiðtogaverkefnið hefur verið fléttað inn í alla vinnu vetrarins eftir því sem við hefur komist.

    Bekkurinn tók þátt í Barna og menningarhátíð í Reykholti 3. maí ásamt öðrum skólum af

    vesturlandi. Hátíðin tókst vel og var þetta skemmtilegt ferli og vinna sem tók á öllum

    hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá grunnskóla.

    Námsmat/frammistöðumat. Námsmat er gefið tvisvar sinnum yfir veturinn. Það felst í

    frammistöðumati í öllum greinum og prófseinkunn/vinnueinkunn í sumum þeirra. Leshraði

    og lesskilningur er kannaður tvisvar sinnum og lestrarlag einu sinni yfir skólaárið.

    Skemmtanir og félagslíf. Ljósahátíð var haldin í lok nóvember og árshátíð yngri deildanna var

    haldin í Logalandi í desember. Að þessu sinni var unnið með draugaþema og fór hátíðin fram

    úti í skógi þar sem útbúinn og skreyttur var draugagangur en síðan var farið inn og hátíðin

    kláruð þar. Allir tóku einhvern þátt í hátíðinni. Leiðtogadagur var haldinn 5. nóvember. Þar

    tóku nemendur á móti boðsgestum og kynntu þeim leiðtogaverkefnið. Fjölgreindaleikarnir

    voru haldnir í mars. Þar svara nemendur spurningum eða leysa þrautir úr öllum

    námsgreinum. Í apríl var farið í skauta og menningarferð til Reykjavíkur. Fyrst var farið á

    skauta og eftir það á Hvalasafnið og Þjóðminjasafnið. Þegar heim var komið úr þeirri ferð

    tóku foreldrar á móti hópnum með mat og huggulegheitum. Farið var í sund og leiki.

    Þemavinna/vordagar. Þemadagar voru samkvæmt venju að hausti og vori. Tvo daga var

    unnið í stöðvum þar sem nemendur höfðu val um að vinna við gróðursetningu o.fl. á

    Læknistúni, vera í fótbolta eða körfubolta, sett var upp þrautabraut, ratleikur og líffræðistöð.

    Þau höfðu einnig val um að fara upp í Logalandsskóg. Einn daginn var boðið uppá hjólaferð

    upp í Reykholt, gönguferð upp á Hurðarbaksfell eða styttri göngu niður með Reykjadalsá.

    Einn dagur var síðan helgaður verkefni tengdu UNICEF hreyfingunni þar sem safnað var

    áheitum.

    Almennt um bekkinn. Þetta er skapandi hópur og einstaklega sterkir og þéttir vinahópar

    innan bekkjarins. Þeir nemendur sem komu frá Hvanneyri féllu fljótt inn í hópinn sem fyrir

    var.

    Vinnusamur og skemmtilegur hópur.

    Elísabet Halldórsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    26

    6. bekkur

    Í bekknum voru 8 nemendur, 2 stelpur og 6 strákar. 3 nemendur komu frá Hvanneyri og 2

    nýir bættust í hópinn.

    Helstu áherslur árgangsins.Lögð var áhersla á eða efla jákvæð samskipti, vellíðan og að bæta

    sjálfsmynd nemenda. Einnig að auka samheldni hópsins með ýmsum hópeflisleikjum og

    umræðum. Unnið var með Leiðtogaverkefnið og reynt að nýta það inn í alla vinnu með

    nemendum. Aðalnámskrá grunnskóla var fylgt við gerð námsáætlana.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Danska 3 Elísabet Halldórsdóttir

    Enska 3 Magnea Helgadóttir

    Íslenska 7 Lára Kristín Gísladóttir/Elísabet Halldórsdóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 2 Lára Kristín Gísladóttir/Þóra Geirlaug

    Bjartmarsdóttir

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 2 Elísabet Halldórsdóttir

    Stærðfræði 6 Eva Ösp Matthíasdóttir/Jón Ingi Baldvinsson

    Áhugasviðsval 2 BJ/EH/JIB/AKG

    Textílm/myndm/smíði 2 LKG/ELJ/UÞB

    Upplýsingatækni 1 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Þróunarstarf.Áhugasviðsval var þannig að nemendur völdu sér verkefni til u.þ.b. 4 vikna í

    senn. Haldið var áfram að vinna með Leiðtogaverkefnið og Heilsueflandi skóla auk

    Grænfánaverkefnisins.

    Námsmat/frammistöðumat. Námsmat er gefið tvisvar sinnum yfir veturinn. Það felst í

    frammistöðumati í öllum greinum og prófseinkunn/vinnueinkunn í sumum þeirra. Í

    stærðfræðinni eru tekin kaflapróf jafnt og þétt yfir veturinn og gildir meðaltal þeirra til

    lokaeinkunnar. Leshraði og lesskilningur er kannaður tvisvar sinnum og lestrarlag einu sinni

    yfir skólaárið.

    Skemmtanir og félagslíf. Ljósahátíð var haldin í lok nóvember og árshátíð yngri deildanna var

    haldin í Logalandi í desember. Að þessu sinni var unnið með draugaþema og fór hátíðin fram

    úti í skógi þar sem útbúinn og skreyttur var draugagangur en síðan var farið inn og hátíðin

    kláruð þar. Allir tóku einhvern þátt í hátíðinni. Söngvarakeppni var haldin eftir áramótin.

    Leiðtogadagurinn var haldinn í skólanum 5. nóvember. Þar tóku nemendur á móti

    boðsgestum og kynntu þeim leiðtogaverkefnið. Fjölgreindaleikarnir voru haldnir í mars. Þar

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    27

    svara nemendur spurningum eða leysa þrautir úr öllum námsgreinum og allir taka þátt.

    Bekkurinn hélt bekkjarkvöld í mars og fékk að gista í skólanum. Farið var í leiki, bakaðar pítur,

    farið í íþróttahúsið og sund, en endað á að horfa á mynd fyrir háttinn. Þetta var gert í

    samstarfi bekkjakennara og foreldra. Farið var í siglingu um sundin blá þann 19. apríl.

    Siglingin var í boði Faxaflóahafna sem bjóða árlega einum bekk í þessa ferð. Farið var í

    dagsferð á skíði í Bláfjöll í apríl og heppnaðist mjög vel. Haldið var bekkjamót í sundi í lok

    apríl.

    Þemavinna/vordagar. Þemadagar voru samkvæmt venju að hausti og vori. Tvo vordaga var

    unnið í stöðvum þar sem nemendur höfðu val um að vinna við gróðursetningu o.fl. á

    Læknistúni, vera í fótbolta eða körfubolta, sett var upp þrautabraut, ratleikur og líffræðistöð.

    Þau höfðu einnig val um að fara upp í Logalandsskóg. Einn daginn var boðið uppá hjólaferð

    upp í Reykholt, gönguferð upp á Hurðarbaksfell eða styttri göngu niður með Reykjadalsá.

    Einn dagur var síðan helgaður verkefni tengdu UNICEF hreyfingunni þar sem safnað var

    áheitum. Á samstarfsdegi GBF var miðstigið að þessu sinni á Hvanneyri. Farið var í ratleik á

    Landbúnaðarsafni, fræðst um engjarnar og ýmsar plöntur skoðaðar, Ullarselið heimsótt og

    farið í þrautabraut við skólann. Lokadag skólans var svo farið í leiki á stöðvum sem

    unglingarnir héldu utanum og endað á ratleik þar sem allir nemendur tóku þátt og unnu

    saman í liðum þvert á aldur.

    Almennt um bekkinn. Bekkurinn samanstendur af kraftmiklum og klárum krökkum frá

    Hvanneyri og úr uppsveitunum. Hópurinn er svolítið sundurleitur þó að hann sé lítill, en

    samheldnin óx þó svolítið þegar leið á veturinn og var mjög skemmtilegt að fylgjast með

    þessum krökkum vaxa og þroskast.

    Lára Kristín Gísladóttir

    7. bekkur

    Í bekknum voru 15 nemendur, 6 stúlkur og 9 drengir. Skipt var um umsjónarkennara í febrúar, þá fór Eva Ösp Matthíasardóttir í veikindaleyfi og Jón Ingi Baldvinsson tók við af henni. Helstu áherslur árgangsins. Lögð var áhersla á jákvæð samskipti, vinnusemi og vellíðan.

    Vinna með Leiðtogaverkefnið hélt áfram og reynt að tileinka sér venjurnar 7 í náminu.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Danska 3 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Enska 4 Magnea Helgadóttir

    Íslenska 6 Lára Kristín Gísladóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Jón Ingi Baldvinsson

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 3 Jón Ingi Baldvinsson

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    28

    Stærðfræði 6 Jón Ingi Baldvinsson

    Val 1 Jón Ingi Baldvinsson

    Áhugasviðsval 2 Bjarnheiður, Jón Ingi, Anna Kristín, Elísabet,

    Sigríður Halldóra, Unnar.

    Myndmennt/smíði/textíl 2 Eva Lind Jóhannsdóttir, Unnar Bjartmarsson, Lára

    Kristín Gísladóttir

    Þróunarstarf. Unnið var með LÍM jafnt og þétt yfir veturinn. Hámark starfsins var á

    Leiðtogadeginum 5.nóvember.

    Námsmat/frammistöðumat. Námsmat er gefið tvisvar yfir veturinn. Það felst í

    frammistöðumati í öllum greinum og prófseinkunn/vinnueinkunn. Í stærðfræðinni eru tekin

    kaflapróf jafnt og þétt yfir veturinn og gildir meðaltal þeirra til lokaeinkunnar. Leshraði og

    lesskilningur er kannaður tvisvar sinnum og lestrarlag einu sinni yfir skólaárið. Bekkurinn tók

    samræmt próf í stærðfræði og íslensku í haust.

    Skemmtanir og félagslíf. Árshátíð var haldin hjá 1.-7. bekk 1. desember. Bekkurinn fór í

    skólabúðir að Reykjum með umsjónakennara í janúar. Bekkurinn tók þátt í Stóru

    upplestrarkeppninni, forkeppni var haldin í skólanum og tveir nemendur valdir til að taka

    þátt í Vesturlandskeppninni. Fjölgreindarleikar voru haldnir og nemendur 7. bekkjar tóku

    þátt með

    unglingastiginu.

    Nemendahópnum var

    skipt í nokkur lið, hvert

    og eitt þeirra með

    nemendur úr öllum

    bekkjum. Liðin leysa

    svo þrautir og svara

    spurningum úr öllum

    námsgreinum.

    Þemavinna/vordagar. Í byrjun maí tóku nemendur þátt í hreingerningarátaki og hreinsuðu

    ruslið í kringum skólann. Á vordögunum tóku nemendur þátt í UNICEF deginum, þau söfnuðu

    áheitum og unnu svo hinar ýmsu þrautir. Einnig voru göngu-og hjóladagar þar sem

    nemendur völdu sér verkefni við hæfi, langa eða stutta gönguferð eða hjólaferð.

    Almennt um bekkinn. Að hausti voru nemendur 15 talsins í 7.bekk. Bekkurinn var mjög

    samheldinn og tók vel við þeim kennarabreytingum sem urðu í febrúar. Hópurinn náði mjög

    vel saman bæði í kennslustundum og annarsstaðar.

    Jón Ingi Baldvinsson

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    29

    8. bekkur

    Helstu áherslur árgangsins. Einn nemandi bættist við frá fyrra ári og voru nemendur

    bekkjarins því 15 talsins þetta skólaárið, 6 stelpur og 9 strákar. Bekkurinn var í samkennslu

    með 9. bekk í dönsku og samfélagsfræði auk hluta kennslustunda í ensku og íþróttum. Lögð

    var mikil áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námi.

    Kennsluhættir/skipulag kennslu (36 stundir skiptust þannig):

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Danska 3 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Enska 4 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Íslenska 6 Magnea Helgadóttir og Bjarnheiður Jónsdóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 3 Bjarnheiður Jónsdóttir og Magnea Helgadóttir

    Stærðfræði 6 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Val 6 Anna Kristín, Birna, Bjarnheiður, Elísabet, Eva Lind,

    Guðjón, Jón Ingi, Lára, Magnea, Sigríður Halldóra, Unnar

    Þorsteinn og Þóra Geirlaug.

    Námsmat/frammistöðumat. Frammistöðumat er gefið í lok hvorrar annar en í lok þeirrar

    fyrri fá nemendur jafnframt tækifæri til sjálfsmats. Vitnisburður er birtur nemendum í lok

    hvorrar annar en í flestum fögum er um símat að ræða og er það námsmat þá að stærstum

    hluta byggt á einkunnum úr verkefnum, kafla- og lotuprófum. Lokapróf voru lögð fyrir seint í

    maí með prófamöppum, að þessu sinni tók 8. bekkur lokapróf í íslensku, stærðfræði og

    ensku.

    Skemmtanir og félagslíf. Bekkurinn tók virkan þátt í starfi nemendafélagsins venju

    samkvæmt. Í september var farin hópeflisferð í Lundarreykjadal. Að þessu sinni var ferðin

    sameiginleg fyrir unglingadeildirnar á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Gengið var sem leið

    lá upp frá Háafelli í Skorradal og yfir í Lundarreykjadal þar sem dvalið var næturlangt í

    félagsheimilinu Brautartungu. Nemendum var skipt í hópa og tóku þeir virkan þátt í

    matargerð, frágangi og þrifum. Söngvarakeppni skólans var haldin í janúar og átti bekkurinn

    þar nokkra fulltrúa. Árshátíð 8. – 10. bekkjar var svo haldin í Brún þann 24. febrúar en þar

    sýndu nemendur þrjú frumsaminn leikverk, Charlie Chaplin, Titanic og Breakfast Club, undir

    stjórn leikstjórans Ármanns Guðmundssonar. Drjúgur hluti bekkjarins tók þátt í

    Boðsundsmóti Grunnskóla þann 8. mars og flestir fóru jafnframt á Skólahreysti daginn eftir

    eða þann 9. mars. Farið var í dagsferð í Bláfjöll þann 12. apríl og tókst vel til. Þann 14. apríl

    fór svo unglingastigið eins og það lagði sig á Tæknimessu á Akranesi þar sem nemendur

    fengu kynningu á hinum ýmsu fyrirtækjum á Vesturlandi. Bekkjartenglar voru í vetur þær

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    30

    Steinunn Ágústa Einarsdóttir og Íris Þórlaug Ármannsdóttir en farið var í skemmtiferð til

    Reykjavíkur í febrúar auk þess sem bekkurinn seldi kökur og annað góðgæti á

    foreldraviðtalsdegi í janúar.

    Þemavinna/vordagar. Nemendur bekkjarins voru í verkefninu Sérstaða sveitaskóla og dvöldu

    á hinum ýmsu sveitabæjum dagana 9. og 10. maí. Nemendur unnu ýmis verkefni meðan á

    dvölinni stóð og kynntu svo býlið fyrir samnemendum sínum þann 30. maí. Sameiginlegur

    dagur milli deilda var þann 31. maí og hittust unglingar á Varmalandi þar sem Sigurður Þorri

    Gunnarsson fjallaði um sjálfsmynd og Kolbrá Höskuldsdóttir um dvöl sína í Palestínu. Síðasta

    skóladaginn eða þann 1. júní sáu unglingarnir um hinar ýmsu stöðvar fyrir yngri

    samnemendur fram að hádegi en eftir hádegi fóru allir nemendur skólans samans í árlegan

    ratleik.

    Unnin hafa verið hin ýmsu verkefni í tengslum við verkefnið Leiðtoginn í mér en haldinn var

    Leiðtogadagur þann 5. nóvember og tóku nemendur virkan þátt í undirbúningi hans.

    Bekkurinn tók jafnframt þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur og vann verkefni í tengslum við

    það.

    Almennt um bekkinn. Veturinn hefur verið lærdómsríkur og einstaklega skemmtilegt að

    kynnast og vinna með þessum flottu og áhugasömu krökkum.

    Bjarnheiður Jónsdóttir

    9. bekkur

    Helstu áherslur árgangsins. Í bekknum eru 4 strákar og 3 stelpur. Nemendur hafa verið að

    hluta til í samkennslu með 8. bekk. Tenglar í vetur voru foreldrar Lilja Björg Ágústsdóttir og

    Torfi Finnbogason og hefur það verið hefð að fara eftir stafrófsröð nemenda í vali á tenglum.

    Samtöl við foreldra voru tvisvar yfir veturinn það fyrra var 14. október og það síðara 21.

    janúar. Umsjónarkennari sendi fréttir frá skólastarfinu heim vikulega.

    Kennsluhættir/skipulag

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Danska 3 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Enska 4 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Íslenska 6 Magnea Helgadóttir

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 3 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Stærðfræði 6 Eva Lind Jóhannsdóttir

    Val 6 Lára, Unnar, Eva Lind, Jón Ingi, Guðjón, Sigríður H,

    Elísabet, Birna, Anna Kristín og Bjarnheiður

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    31

    Námsmat. Frammistöðumat er í lok annar og er gefið í flestum fögum. Það felst í símati yfir

    önnina þar sem tekið er tillit til vinnu heima og í skóla. Einkunnir eru gefnar fyrir lotupróf og

    verkefni og er það undirstaða fyrir útkomu vetrarins ásamt lokaprófi.

    Skemmtanir og félagslíf. Árshátíð 8.-10. bekkjar var haldin í Brún 24. febrúar þar sem

    nemendur voru með þrjú verk, Charlin Caplin, Titanic og Breakfast club leikstjóri þeirra var

    Ármann Guðmundsson. Nemendur 9. bekkjar fóru að Laugum í Sælingsdal vikuna 19.-23.

    október. Þar var mikið unnið með samvinnu og sjálfstraust nemenda. Jólaball var haldið að

    Varmalandi þann 10. desember og Halloween dansleikur var haldinn í Brún þann 30.

    október. Nemendur fóru í skíðaferðalag 4. apríl og heppnaðist sú ferð mjög vel gott veður og

    ágætis færi. Einnig var farin ferð á skólahreysti þar sem nemendur GBf kepptu ásamt

    skólum á Vesturlandi og Vestfjörðum. 14. apríl fóru nemendur á starfamessu sem haldin var

    í Fjölbrautarskólanum á Akranesi. Þar fengu nemendur að kynnast því sem kennt er í

    skólanum og einnig kynntu fjölmörg fyrirtæki starfsemi sína. Í lokin var keyrt um svæðið hjá

    Grundartanga þar sem nemendur fengu að heyra hvaða starfsemi væri í hverju húsi fyrir sig.

    Þemavinna/vordagar. Nemendur voru í verkefninu sérstaða sveitaskóla þann 9.-10. maí þar

    sem þau fóru á sveitabæji eða heimsóttu einhverja starfsemi í sveitarfélaginu. Markmiðið er

    að þau kynnist fjölbreyttri starfsemi í sveitarfélaginu og kynni hana fyrir hinum

    nemendunum í lokin. Sameiginlegur dagur var haldinn á milli deilda þar sem unglingastigið

    fór að Varmalandi unnu ýmis verkefni og farið í leiki. Á síðasta degi skólans fór öll deildin í

    ratleik og aðra leiki og að lokum grilluðu eldri nemendur fyrir skólann.

    Nemendur unnu nokkur verkefni í leiðtoga verkefninu t.d. plakat og tré með venjunum

    einnig tóku þau á móti nemendum frá Brooklyn og létu þau skrifa sína styrkleika á hjörtu sem

    þau settu svo í gluggann í matsalnum. Nemendur tóku þátt í verkefninu tóbakslaus bekkur

    og fengu allir spilastokk að gjöf frá Landlæknisembættinu.

    Almennt um bekkinn. Nemendur eru mjög ólíkir og þeim semur ágætlega þó að samheldnin

    mætti vera meiri. Þetta eru allt frábærir krakkar og öll dugleg hvert á sínu sviði. Foreldrar

    voru dugleg í vetur að fara með nemendur í ferðir og vera með kaffisölu og fl.

    Eva Lind Jóhannsdóttir

    10. bekkur

    Helstu áherslur árgangsins. Í bekknum eru alls 15 nemendur sem luku skóla í vor, 4 stúlkur

    og 11 drengir. Í vetur voru bekkjartenglar þær Eva María Jóelsdóttir og Þórhildur Ýr

    Jóhannesdóttir. Einnig var mikið um annað samstarf við foreldra vegna NordPlus verkefnis

    nemenda sem lauk nú á vordögum eftir ferð til Finnlands. Foreldrasamtöl voru 14. október

    og 21. janúar. Umsjónarkennari sendi fréttir frá skólastarfinu heim vikulega.

    Kennsluhættir/skipulag

    Námsgrein Kennslust.fj. Kennari

    Íslenska 6 Magnea Helgadóttir

    Enska 4 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Danska 4 Bjarnheiður Jónsdóttir

  • Ársskýrsla Grunnskóla Borgarfjarðar 2016

    32

    Íþróttir 4 Guðjón Guðmundsson

    Lífsleikni 1 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Náttúrufræði 3 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

    Samfélagsfræði 3 Bjarnheiður Jónsdóttir

    Stærðfræði 6 Eva Ösp Matthíasdóttir og Jón Ingi Baldvinsson

    Val 6 Lára, Unnar, Eva Lind, Jón Ingi, Guðjón, Sigríður H,

    Elísabet, Birna, Anna Kristín og Bjarnheiður

    Námsmat. Frammistöðumat í flestum fögum felst í símati yfir önnina þar sem tekið er tillit til

    vinnu heima og í skóla. Einkunnir eru gefnar fyrir lotupróf, verkefni og er það undirstaða fyrir

    útkomu vetrarins ásamt lokaprófi. Fjölbreyttir kennsluhættir eru viðhafðir í greinunum,

    þannig er bæði íslenska og stærðfræði unnin í lotum en enskan t.a.m. meira verkefnatengd.

    Þemavinna/Þróunarstarf. Nemendur hafa síðustu tvö ár unnið að NordPlus verkefni ásamt

    Norre Nebel skólanum í Danmörku og Poutan koulu í Tornio Finnlandi. Lokahnykkurinn þess