10
Fimmtudagur 25. júní 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 25. tbl. 33. árgangur Eigendur Kaupfélagshússins eða Kaupmannshússins þau Ari Þorsteinsson og María Gísladóttir hafa af miklum metnaði og útsjónarsemi haldið áfram endurbótum á húsinu. Jafnframt hafa þau útbúið og látið prenta skemmtilegt og áhugavert upplýsingablað um húsið sem þau kalla Hústíðindi. Allt er þetta í gömlum stíl og anda hússins. Af þessu tilefni er eftirfarandi viðtal tekið og þótti ritstjóra sömuleiðis viðeigandi að birta „Minningarbrot úr Kaupfélagshúsinu“ sem Halldór Ásgrímsson skrifaði fyrir húseigendur stuttu fyrir andlátið. Miklar endurbætur innanhúss „Við eyddum síðasta vetri í að ljúka við viðgerð á skorsteini og háalofti. Áður hafði verið gert við skorsteininn á miðhæð en nú kom Jón Eldon Logason arinsmiður og lauk verkinu á efri hæð og á háalofti en skorsteinninn var mjög götóttur og illa farinn eftir viðvarandi leka sem einnig tókst að stöðva í þessari aðgerð. Þá tókum við háaloftið einnig í gegn og hentum út gömlu torfi sem nýtt hafði verið sem einangrun og einangruðum upp á nýtt. Þessu var lokið fyrir jól en þá tók við að klára að gera kjallarann tilbúinn fyrir veitingarekstur og stærsta verkefnið á vormánuðum var svo að endurgera allt eldhúsið á miðhæð þ.e. að breyta því úr heimiliseldhúsi í fullbúið veitingaeldhús með tilheyrandi græjum. Svo var það gæluverkefnið Hústíðindi, íbúa- og byggingasaga Kaupmanns/ Kaupfélagshússins sem við unnum með Sigurði Erni Hannessyni fyrrverandi skjalaverði og Tómasi Jónssyni grafískum hönnuði og kom úr prentun í síðustu viku. Hústíðindi munu liggja frammi á borðum Nýhafnar til aflestrar fyrir gesti en vilji fólk fá að taka með sér eintak kostar það 1.000 kr. Boðið uppá hákarl og harðfisk Með breytingunum á eldhúsinu í fullbúið veitingaeldhús hefur orðið breyting á rekstrinum á þá leið að í Stofunni á miðhæðinni erum við hætt með smurbrauð en erum með matseðil þar sem við bjóðum upp á heitan mat svo sem fiskisúpu, humar, sólkola, lamb o.fl. Í Kjallaranum bjóðum við upp á flatbrauð með hangikjöti og reyktum silungi frá Geiteyjarströnd, harðfiskflök og hákarl ásamt úrvali af rarítets bjórum. Í kjallaranum getum við líka tekið á móti hópum í mat eða ýmiskonar móttökur. Ýmsar hugmyndir eftir að framkvæma Í sumar sinnum við veitingarekstrinum eingöngu enda stefnir allt í gott sumar hvað ferðamanna bransann varðar en líklega lýkur svona verkefni að eiga gamalt hús aldrei. Eins eru komnar upp hugmyndir um að endurgera Nýjahús/Vindheim en það var hús sem stóð á lóðamörkunum milli Hafnarbrautar 2 og 4 og var notað sem fiskverkunarhús og verbúð en það eina sem eftir er af því í dag er gamli hjallurinn sem stóð við Gömlubúð áður en hún var flutt á núverandi stað. Eins þarf að koma Hústíðindum út á ensku og líklega er það gott vetrarverkefni ásamt því að klára íbúaskrána og gera allt efni sem ekki komst í blaðið aðgengilegt á heimasíðunni okkar www. nyhofn.is Margir lagt verkefninu lið Okkur langar að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa unnið með okkur bæði hvað varðar viðgerðir á sjálfu húsinu og þeirra sem komu að útgáfu Hústíðinda hvort sem það var í formi vinnu eða styrkja en Menningaráð Suðurlands, Vinir Vatnajökuls og Hornafjarðarsöfn studdu okkur í útgáfu blaðsins. Menningarverðmæti og Hústíðindi Minningar Halldórs Ásgrímssonar Halldór Ásgrímsson, sonur kaupfélagsstjórahjónanna, var á sjötta aldursári þegar fjölskyldan flutti í húsið. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum af húsinu m.a. á eftirfarandi hátt; Vorið 1953 leit ég Kaupfélagshúsið fyrst augum. Við komum með Herðubreið frá Vopnafirði og eitt það fyrsta sem ég sá var húsið sem átti að verða okkar nýja heimili. Það blasti við frá höfninni, hátt og tígulegt og mér fannst það nema við himinn. Það stóð hærra en Kaupvangur á Vopnafirði þar sem ég er fæddur og átti heimili fyrstu ár ævinnar. Mér fannst skrítið að Kaupfélagið sjálft væri í lægra húsi og fannst það heldur lítið við hliðina á íbúðarhúsinu. Háaloftið var síðan mikill ævintýraheimur og var ég hálf hræddur við það. Ég lá stundum andvaka á kvöldin og hlustaði á einhvern eða einhverja ganga um loftið. Mér fannst að þetta væru draugar, en aðrir sögðu að svona brakaði í timburhúsum. Mér fannst umgangur undarlegt brak. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara og kíkja upp og horfast í augu við myrkrið. Háaloftið var tvískipt og innri hlutinn var þakinn torfi sem mér fannst skrítið og dró ekki úr trú minni að þarna væri kjörið fyrir drauga að dveljast og gamna sér á nóttinni. Seinna var mér sagt að reimt væri í húsinu, þar hefði fólk kvatt þetta líf og margir ættu þaðan ljúfar minningar. Kjallarinn var mér meira að skapi. Þar varð ég ekki var við draugagang, en einstaka rotta var þar á ferð. Eitt sinn heyrðist skaðræðisöskur úr kjallaranum, en þá hafði Ingólfur bróðir stigið ofan á eina. Þetta mjúka undirlag framkallaði þetta mikla öskur og voru dagar hennar þar með taldir. Mikið afrek sem seinna varð til þess að veiðar með bambusstöngum voru hafnar og varð að miklu ævintýri nokkurra stráka í þorpinu. Er mér til efs að menn hafi skemmt sér betur við ljónaveiðar í frumskógum Afríku. Þau koma við sögu verkefnisins ásamt fleirum; Sveinn Sighvatsson smiður, Hermann Hansson sem hóf þessa vegferð, Sigurður Hannesson ritstjóri Hústíðinda, Ari og María og Finnur Jónsson smiður.

Eystrahorn 25. tbl. 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Eystrahorn 25. tbl. 2015

Fimmtudagur 25. júní 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn25. tbl. 33. árgangur

Eigendur Kaupfélagshússins eða Kaupmannshússins þau Ari Þorsteinsson og María Gísladóttir hafa af miklum metnaði og útsjónarsemi haldið áfram endurbótum á húsinu. Jafnframt hafa þau útbúið og látið prenta skemmtilegt og áhugavert upplýsingablað um húsið sem þau kalla Hústíðindi. Allt er þetta í gömlum stíl og anda hússins. Af þessu tilefni er eftirfarandi viðtal tekið og þótti ritstjóra sömuleiðis viðeigandi að birta „Minningarbrot úr Kaupfélagshúsinu“ sem Halldór Ásgrímsson skrifaði fyrir húseigendur stuttu fyrir andlátið.

Miklar endurbætur innanhúss

„Við eyddum síðasta vetri í að ljúka við viðgerð á skorsteini og háalofti. Áður hafði verið gert við skorsteininn á miðhæð en nú kom Jón Eldon Logason arinsmiður og lauk verkinu á efri hæð og

á háalofti en skorsteinninn var mjög götóttur og illa farinn eftir viðvarandi leka sem einnig tókst að stöðva í þessari aðgerð. Þá tókum við háaloftið einnig í gegn og hentum út gömlu torfi sem nýtt hafði verið sem einangrun og einangruðum upp á nýtt. Þessu var lokið fyrir jól en þá tók við að klára að gera kjallarann tilbúinn fyrir veitingarekstur og stærsta verkefnið á vormánuðum var svo að endurgera allt eldhúsið á miðhæð þ.e. að breyta því úr heimiliseldhúsi í fullbúið veitingaeldhús með tilheyrandi græjum. Svo var það gæluverkefnið Hústíðindi, íbúa- og byggingasaga Kaupmanns/Kaupfélagshússins sem við unnum með Sigurði Erni Hannessyni fyrrverandi skjalaverði og Tómasi Jónssyni grafískum hönnuði og kom úr prentun í síðustu viku. Hústíðindi munu liggja frammi á borðum Nýhafnar til aflestrar fyrir gesti en vilji fólk fá að taka með sér eintak kostar það 1.000 kr.

Boðið uppá hákarl og harðfisk

Með breytingunum á eldhúsinu í fullbúið veitingaeldhús hefur orðið breyting á rekstrinum á þá leið að í Stofunni á miðhæðinni erum við hætt með smurbrauð en erum með matseðil þar sem við bjóðum upp á heitan mat svo sem fiskisúpu, humar, sólkola, lamb o.fl.Í Kjallaranum bjóðum við upp á flatbrauð með hangikjöti og reyktum silungi frá Geiteyjarströnd, harðfiskflök og hákarl ásamt úrvali af rarítets bjórum. Í kjallaranum getum við líka tekið á móti hópum í mat eða ýmiskonar móttökur.

Ýmsar hugmyndir eftir að framkvæma

Í sumar sinnum við veitingarekstrinum eingöngu enda stefnir allt í gott sumar hvað ferðamanna bransann varðar en líklega lýkur svona verkefni að eiga gamalt hús aldrei. Eins eru komnar upp hugmyndir um að endurgera Nýjahús/Vindheim en það var hús sem stóð á lóðamörkunum milli Hafnarbrautar 2 og 4 og var notað sem fiskverkunarhús og verbúð en það eina sem eftir er af því í dag er gamli hjallurinn sem stóð við Gömlubúð áður en hún var flutt á núverandi stað. Eins þarf að koma Hústíðindum út á ensku og líklega er það gott vetrarverkefni ásamt því að klára íbúaskrána og gera allt efni sem ekki komst í blaðið aðgengilegt á heimasíðunni okkar www.nyhofn.is

Margir lagt verkefninu liðOkkur langar að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa unnið með okkur bæði hvað varðar viðgerðir á sjálfu húsinu og þeirra sem komu að útgáfu Hústíðinda hvort sem það var í formi vinnu eða styrkja en Menningaráð Suðurlands, Vinir Vatnajökuls og Hornafjarðarsöfn studdu okkur í útgáfu blaðsins.

Menningarverðmæti og Hústíðindi

Minningar Halldórs ÁsgrímssonarHalldór Ásgrímsson, sonur kaupfélagsstjórahjónanna, var á sjötta aldursári þegar fjölskyldan flutti í húsið. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum af húsinu m.a. á eftirfarandi hátt; Vorið 1953 leit ég Kaupfélagshúsið fyrst augum. Við komum með Herðubreið frá Vopnafirði og eitt það fyrsta sem ég sá var húsið sem átti að verða okkar nýja heimili. Það blasti við frá höfninni, hátt og tígulegt og mér fannst það nema við himinn. Það stóð hærra en Kaupvangur á Vopnafirði þar sem ég er fæddur og átti heimili fyrstu ár ævinnar. Mér fannst skrítið að Kaupfélagið sjálft væri í lægra húsi og fannst það heldur lítið við hliðina á íbúðarhúsinu. Háaloftið var síðan mikill ævintýraheimur og var ég hálf hræddur við það. Ég lá stundum andvaka á kvöldin og hlustaði á einhvern eða einhverja ganga um loftið. Mér fannst að þetta væru draugar, en aðrir sögðu að svona brakaði í timburhúsum. Mér fannst umgangur undarlegt brak. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara og kíkja upp og horfast í augu við myrkrið. Háaloftið var tvískipt og innri hlutinn var þakinn torfi sem mér fannst skrítið og dró ekki úr trú minni að þarna væri kjörið

fyrir drauga að dveljast og gamna sér á nóttinni. Seinna var mér sagt að reimt væri í húsinu, þar hefði fólk kvatt þetta líf og margir ættu þaðan ljúfar minningar. Kjallarinn var mér meira að skapi. Þar varð ég ekki var við draugagang, en einstaka rotta var þar á ferð. Eitt sinn heyrðist skaðræðisöskur úr kjallaranum, en þá hafði Ingólfur bróðir stigið ofan á eina. Þetta mjúka undirlag framkallaði þetta mikla öskur og voru dagar hennar þar með taldir. Mikið afrek sem seinna varð til þess að veiðar með bambusstöngum voru hafnar og varð að miklu ævintýri nokkurra stráka í þorpinu. Er mér til efs að menn hafi skemmt sér betur við ljónaveiðar í frumskógum Afríku.

Þau koma við sögu verkefnisins ásamt fleirum; Sveinn Sighvatsson smiður, Hermann Hansson sem hóf þessa vegferð, Sigurður Hannesson ritstjóri Hústíðinda, Ari og María og Finnur Jónsson smiður.

Page 2: Eystrahorn 25. tbl. 2015

2 EystrahornFimmtudagur 25. júní 2015

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Fasteignasalan JaspisÞann 1. júlí mun Fasteignasalan Jaspis taka til starfa og um leið hættir Jaspis ehf. að vera umboðsaðili Fasteignasölunnar INNI ehf. Eigendur Jaspis ehf. eru Snorri Snorrason löggiltur fasteignasali og Heiða Dís Einarsdóttir hársnyrtimeistari. Jaspis ehf. rekur hársnyrtistofu, umboð fyrir TM, fasteignasölu og leigumiðlun. Símanúmer á Jaspis verður 478-2000 og netfang [email protected]. Starfsemin verður í Miðbæ verslunarmiðstöð að Litlubrú 1, 780 Höfn. Haft verður samband við þá aðila sem nú eru með fasteignir í sölumeðferð hjá Fasteignasölunni Inni ehf.

JASPISFasteignasala

Snorri Snorrasonlöggiltur fasteignasaliLitlubrú 1 780 Höfn478-2000 [email protected]

Áttu gamlar myndir sem tengjast Björgunarfélagi Hornafjarðar? Björgunarfélagið auglýsir eftir gömlum myndum úr starfi sveitarinnar. Þeir sem eiga myndir og eru tilbúnir að lána þær geta skilað þeim inn til Baldvins rakara eða í Rafhorn. Tilefnið er 50 ára afmæli sveitarinnar. Myndunum verður svo komið til eigenda þegar búið er að koma þeim á tölvutækt form.

F.h. Björgunarfélags Hornafjarðar, afmælisnefndin

Friðarhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem fram fer um allan heim. Tilgangur hlaupsins er að efla frið, vináttu og skilning manna á milli menningarheima. Það hefst í Reykjavík 1. júlí og verður komið hingað til Hafnar þann 6. júlí. Friðarhlaupararnir munu verða við Mánagarð kl. 11:00 og hvetjum við alla spræka hlaupara að mæta þangað og hlaupa með þeim að Sindravöllum. Þar mun verða lítil athöfn við friðartréð á Höfn og að því loknu halda friðarhlaupararnir áfram hringinn í kringum landið. Vonumst til að sem flestir sláist í hópinn og styðji þennan góða málstað sem varðar okkur öll.

Frjálsíþróttadeild Sindra

Tilbrigði við Humar

Sýning í Miklagarði yfir Humarhátíðina.Við hliðina á verbúðinni.

Föstudagur 14:00-17:00 og um kvöldiðLaugardagur 14:00-17:00 og eftir gönguna

Sunnudagur 14:00-17:00

Eyrún Axelsdóttir

Friðarhlaupið

Björgunarfélagið safnar myndum

Helgihald í Bjarnanesprestakalli sumarið 2015

28. júní Kvöldmessa í Hofskirkju kl. 20:00

5. júlí Kvöldmessa í Hafnarkirkju kl. 20:00

12. júlí Kvöldmessa í Bjarnaneskirkju kl. 20:00

29. júlí Ólafsmessa/tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju kl. 20:00

9. ágúst Kvöldmessa í Hafnarkirkju

16. ágúst Messa í Brunnhólskirkju kl. 14:00. Kirkjudagur. Kaffi og tónleikar eftir messu.

23. ágúst Guðsþjónusta í Stafafellskirkju kl. 14:00. Kirkjudagur. Kaffi í Fundarhúsi.

Kaþólska kirkjanHallooo! Halloooo!

Sunnudagur 28. júní Skriftir frá kl. 11:00. Hl. messa kl. 12:00.

Eftir messu er öllum gestum boðið að þiggja kaffiveitingar.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Ragnhildur Magnúsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir

verður með móttöku á heilsugæslustöðinni á Höfn 29. - 30. júní.

Tímapantanir í síma 470-8600.

Page 3: Eystrahorn 25. tbl. 2015

3Eystrahorn Fimmtudagur 25. júní 2015

Bókari – 50% starfIceland Pelagic óskar eftir að ráða bókara í 50% starf á starfsstöð félagsins á Höfn.

Starfssvið:- Bókun reikninga.

- Launaútreikningar.- VSK uppgjör.

Reynsla af bókhaldi er nauðsynleg. Reynsla af Navision er æskileg.

Upplýsingar veitir Hermann Stefánsson í síma 896-8578 og [email protected]óknir sendist á [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2015.

Skrautrunnar, tré, fjölær blóm, sumarblóm, matjurtir og krydd.

Tilboðsbakkar stjúpur 10 plöntur á 1390 kr.

20 stjúpur að eigin vali áður 3700 kr. nú 2900 kr.

Tóbakshorn áður 1190 kr. nú 990 kr.

Nellika áður 1490 kr. nú 1290 kr.

Ath. allar plöntur ræktaðar í ríki Vatnajökuls.

Opið virka daga í júní og júlí kl. 13:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 – 15:00. Opnunartími í ágúst eftir samkomulagi.

Verið velkomin

Gróðrarstöðin Dilksnesi

Rakarastofan verður lokuð 13. júlí - 10. ágúst vegna sumarleyfis

Rakarastofa Baldvins

Bon appeti t!

Föstudag og laugardag (26. og 27. júní)Humarsúpa með brauði.

Kalt humarsalat á stóru blinisGrillaður humar í langloku

og bagettisbrauði.

Frjálsar í sumarÆfingatímar frjálsra íþrótta sumarið 2015 verða sem hér segir:11 ára og eldri- mánudaga og miðvikudaga kl. 20:00- þriðjudaga og fimmtudaga kl. 7:30Æfingar fyrir 10 ára og yngri verða frá 1. – 30. júlí mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl.12:00 -13:00Koma svo - allir í frjálsar!Þessir tímar eru settir upp með fyrirvara um breytingar

Frjálsíþróttadeild Sindra

PKH verður með spil í Miklagarði á HumarhátíðFimmtudagur kl. 20:00 1000 kr. kennslumót, gjafarar á öllum borðum, tilvalið fyrir þá sem aldrei hafa spilað póker.

Föstudagur - opið hús.

Laugardagur kl. 16:00 5000 kr. multi entry.

Hægt að skrá sig til kl 18:00

Sjá nánar á DAGSKRÁ HUMARHÁTÍÐAR

Page 4: Eystrahorn 25. tbl. 2015

4 EystrahornFimmtudagur 25. júní 2015

Nýlega úthlutaði Kvískerjasjóður styrkjum ársins 2015. Tíu umsóknir bárust og hlutu öll verkefnin styrk að þessu sinni.Verkefnin eru:• Minnismerki um strönduð skip meðfram Suðausturströndinni• Gamla smiðjan á Sléttaleiti• Uppgræðsla með staðargróðri á Skaftafellsheiði í Öræfum• Búskaparhættir Nesjamanna fyrr og nú• Tengsl einstaklinga við náttúruna• Dagbækur á Kvískerjum• Framtíðin er NÚNA!• Hámarksútbreiðsla Kvískerjajökla í lok litlu ísaldar• Svartijökull – flóðfarvegur jökulhlaups í kjölfar Öræfajökulgoss

1727• Áhrif beitarfriðunar á vöxt, blómgun og fræframleiðslu plantna á

SkeiðarársandiHlutverk Kvískerjasjóðs er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningu í Austur-Skaftafellssýslu. Frá upphafi hefur sjóðurinn stutt við margvísleg metnaðarfull verkefni sem bæði eru mikilvægt framlag inn í vísindaheiminn en ekki síður munu þau geta gagnast til að styrkja framþróun byggðar í Austur-Skaftafellssýslu. Á heimasíðu Kvískerjasjóðs verður eftir því sem mögulegt er og í samráði við styrkþega hægt að nálgast upplýsingar um niðurstöður verkefna. Það er mat sjóðsstjórnar að Kvískerjasjóður hafi sannað gildi sitt, verið hvati að margvíslegum rannsóknum í Austur-Skaftafellssýslu og þannig stuðlað að framhaldi þess umfangsmikla vísindastarfs systkinanna á Kvískerjum eins og honum var ætlað við stofnun. Nánari upplýsingar um verkefnin má finna á vefsvæði Kvískerjasjóðs, www.kviskerjasjodur.is.

Stoltir Styrktaraðilar HumarHátíðar 2015

Kvískerjasjóður úthlutar styrkjum

SIGURÐUR ÓLAFSSON EHF

Þingvað ehfByggingarverktakar

HAFNARBÚÐðIN Veitingastaður  við  hofnina.  Restaurant  by  the  harbor.  

Humarlokan Hleininni

Næstu heimaleikir2. deild karla - Sindravellir

Föstudaginn 26. júní kl. 19:00 Sindri – Afturelding

4. deild karla - Mánavöllur Laugardaginn 27. júní kl. 16:30

Máni – Stokkseyri 4. deild karla - Mánavöllur

Laugardaginn 4. júlí kl. 16:00 Máni – Hamar

2. deild karla - Sindravellir Sunnudaginn 5. júlí kl. 16:00

Sindri – Njarðvík 1. deild kvenna - Sindravellir Mánudaginn 6. júlí kl. 20:00 Sindri – Fjarðarbyggð

Page 5: Eystrahorn 25. tbl. 2015

Humarhátíð 2015Dagskrá

Fimmtudagur 25. júní19:00 Mánagarður - Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar. Matur, glens og gaman að breskum sið. Sætaferðir frá N1 kl. 19:00 (pantanir í síma 861-6202). Húsið opnar kl.19:30 og dagskrá hefst kl. 20:0020:00 Mikilgarður efri hæð. Pokerklúbbur Hornafjarðar með kennslumót.22:00 - 01:00 Víkin - Pöbbastemning

FöStudagur 26. júní8:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 8:00 - 20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs – Upplýsingamiðstöð8:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – aðstaða fiskverkafólks9:00 - 16:00 Svavarssafn – Sýning „Sem kynda ofninn” fimm konur sýna verk sín9:00 - 16:00 Litli listaskálinn á Sléttunni - til sýnis og sölu eru verk eftir Gingó 10:00 - 21:00 Graðaloftið – Hlynur Pálmason ljósmyndasýning „10 KM í land”12:00 - 18:00 Huldusteinn - Steinasafn13:00 - 15:00 Húsasmiðjan Grillaðar pylsur í boði Húsasmiðjunnar14:00 Mikligarður efri hæð. Eyrún Axelsdóttir sýning „Tilbrigði við Humar“16:00 Sindrabær - barnadagskrá - Sveppi og Villi17:00 Íslandsmótið 5. flokkur karla Sindri - Skallagrímur

18:00 - 20:00 Humarsúpa um allan bæ19:00 Íslandsmótið 2. deild karla Sindri – Afturelding (Humarsúpa í boði fyrir leik)20:00 Opnun leiktækja og markaða á hátíðarsvæði20:00 - 1:00 Mikilgarður Hleinin opnar lifandi tónlist og Humarlokur20:00 - 1:00 Mikligarður Humarsúpa Kokksins20:00 Kartöfluhús - Tískusýning Millbör og Unu21:00 Mikligarður efri hæð. Pókerklúbbur Hornafjarðar með opið hús 21:00 - 22:30 Hátíðarsvæði - setning Humarhátíðar og hátíðardagskrá, Auddi Blö og Steindi JR. Stórkostleg Fimleikasýning, Villi og Sveppi.22:30 - 01:00 Íþróttahús - Stórtónleikar með hljómsveitinni Diktu. Kvennahljómsveitin Guggurnar hitar upp.23:00 - 02:00 Sindrabær – Gömludansaball - Karlakórinn Jökull syngur og leikur fyrir dansi 23:00 Víkin - Dansleikur með hljómsveitinni Parket

laugardagur 27. júní8:00 Silfurnesvöllur - Humarhátíðarmót – Humarsúpa eftir 9 holur fyrir kylfinga - glæsileg verðlaun í boði Skinney Þinganes8:00-20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs – Upplýsingamiðstöð8:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – aðstaða fiskverkafólks10:00 - 12:00 Sundlaug Hafnar - frítt í sund10:00 - 21:00 Graðaloftið – Hlynur Pálmason ljósmyndasýning „10 KM í land”11:00 Íþróttahúsið á Höfn - Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna

Page 6: Eystrahorn 25. tbl. 2015

11:00 - 12:00 Töfrafjör – Einar Mikael12:00 - 18:00 Huldusteinn - Steinasafn12:00 - 18:00 Litli listaskálinn á Sléttunni - Gingó12:30 - 13:30 Kassabílarallí í boði Landsbankans – Sveppi og Villi á svæðinu – Keppendur vinsamlegast skrá sig í bankanum fyrir keppnisdag og fá keppnisnúmer. 13:00 - 18:00 Kartöfluhúsið - Verslun Millibör opin 13:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 14:00 Opnun leiktækja og markaða á hátíðarsvæði,14:00 Hátíðarsvæði

• Harmonikkufjör – Haukur Þorvalds• Barnadagskrá• Tilraun til heimsmets í

humarlokugerð• Hestar fyrir börnin• Kúadellulottó• Mikligarður Humarsúpa Kokksins• Hleinin opnar í Miklagarði lifandi

tónlist og Humarlokur14:00 Mikligarður efri hæð. Eyrún Axelsdóttir sýning „Tilbrigði við Humar“14:00 - 16:00 Jeppasýning 4x4 klúbbsins við húsnæði Fallastakks við Víkurbraut16:00 - 23:00 Mikligarður efri hæð. Pokerklúbbur Hornafjarðar Multi entry17:00 Við Eimskiphúsið - Burn out keppni20:30 N1 - skrúðganga að hátíðarsvæði – Lúðrasveit Hornafjarðar undir stjórn Jóhanns Morávek leiðir gönguna ásamt Kvennakór HornafjarðarHátíðarsvæði – hátíðardagskrá hefst við komu skrúðgöngu, Auddi Blö og Steindi JR. Lúðrasveit Hornafjarðar, Einar Mikael Töframaður, Kvennakór Hornafjarðar, Villi og Sveppiásgarður - Kveikt á kyndli með undirleik og söng Hauks Þorvalds og Snorra Snorra24:00 - 04:00 Íþróttahús - stórdansleikur með Sálinni24:00 - 04:00 Víkin-pöbbastemning

Sunnudagurinn 28. júní8:00 - 20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs - Upplýsingamiðstöð8:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 8:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – Aðstaða verbúðarfólks fyrr á tímum10:00 - 12:00 Frítt í sund 10:00 - 21:00 Graðaloftið – Hlynur Pálmason ljósmyndasýning „10 KM í land”13:00 Sindravellir – Sindraleikarnir frjálsíþróttamót fyrir börn og unglinga13:00 - 18:00 Kartöfluhúsið Verslun Millibör opin14:00 Mikligarður efri hæð. Eyrún Axelsdóttir sýning „Tilbrigði við Humar“

ÞeSSi Fyrirtæki Styrkja eFtirtalin atriði og liStamenn:

SIGURÐUR ÓLAFSSON EHF

Nettó býður uppá Töfrafjör

Skinney-Þinganes hf., heimili á Höfn og Humarhátíð bjóða uppá humarsúpu

Sigurður Ólafsson ehf. og Hótel Höfn bjóða uppá „Tilraun til heimsmets í humarlokugerð“

Húsasmiðjan ehf. býður uppá grillaðar pylsur

atHygli Skal vakin á að SalerniSaðStaðan er í gömlubúð

Page 7: Eystrahorn 25. tbl. 2015

7Eystrahorn Fimmtudagur 25. júní 2015

Námsmenn læra vinnuferli í gerð myndlistaverka og framsetningu þeirra undir handleiðslu sem miðast við nýliða í skapandi starfi.

Lögð verður áhersla á undirstöðu þekkingu, leikni og hæfni fyrir nýliða á sviði sköpunar og framsetningu .

Námsmenn tileinka sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð auk þess að þeir efli samvinnu- og samskiptafærni sína.

Námsmenn ná færni með námi gegnum vinnu og að þeir afli sér þekkingar og leikni með vinnu sinni.

HAUST 2015

80 klst. Veisla fyrir skapandi fólk

Myndlistasmiðja

Hvar Vöruhús, Höfn

Hvenær Haust 2015, hefst í september

Leiðbeinendur Þiðrik Emilsson og fl.

Verð 28.000.- niðurgreitt af FA

Lengd 80 klukkustundir

Skráning og allar aðrar upplýsingar hjá Nínu Síbyl.

[email protected], 5602050, 8665114

Fræðslunetið hefur hug á að fara af stað með Myndlistasmiðju á Höfn næsta haust ef þátttaka fæst.

Um er að ræða heila önn, kennt tvisvar í viku, tvo tíma í senn + þrír langir laugardagar.

Námið verður skemmtilegt, fjölbreytt og sveigjanlegt.

Það geta allir verið með og ALLIR velkomnir!

LyfjaSjóváSBA-NorðurleiðVélsmiðja Hornafjarðar ehf.BókhaldsstofanVélsmiðjan Foss ehf.Funi ehf. sorphreinsunÖgmund ehf. verkstæðiMálningarþjónusta Hornafjarðar

MartölvanHúsgagnavalGistiheimilið HvammurNorðlenska ehf.G. Karlsson ehf.Jaspis og TMUggi SF 47Árnanes ferðaþjónustaÞrastarhóll

Þökkum eFtirtöldum góðan Stuðning vegna HumarHátíðar 2015

Sérstakar þakkir til allra sem lögðu til heimili sín og garða fyrir humarsúpu.

Eyst

raho

rn v

erðu

r í

sum

arfr

íi

fram

í m

iðja

n ág

úst.

Page 8: Eystrahorn 25. tbl. 2015

8 EystrahornFimmtudagur 25. júní 2015

ðssssssssss ssssssVsssssss Hsss

ssssssss ssssss sysssss ss s vinbudin.issssssssssssssss ss ss ss sss sss ssss sssss

ssssss sssssssssss ssssssssss ssss ssssssssss sssssssssssssss sssssssssssssssss s sss sssss

ÁTVR sssss ss Vsssssss ss ssss sssss ðsssss ÁTVR ss ss ssss ssð ss sssssss ðssssssssyssssæssss ssssssss ss syssssyss s sssss sssséssssssyssssss Fyssssæsss ssss ss ssssssssssssss sé ssssssss sssssssflssss ss sssssssssss ðss sss ssssssss ssssssssss ss sssssss ðsssssss ss ssyssss

Helstu verkefni og ábyrgððsssðs sssss s ðssssssss sssssssssss sssssssssss s ssssss ssssssðsss ss sssssss ssssss

Hæfniskröfurs rss ðsssssssssss s ðssssssss ss sssssssss ðssssssss ss sssssssss sssæssssss ðsss ss ssss sss ss sss ssssss s ðsssssðssss ss sssðss

Vsssssss Hsss sssss sftss sssssssssss s sflsyssssss ss tíssssssss

rssss Vsssssssss sss LIPsRÐ s ÞEKKIsr s ÁBYRrÐs Rssssssss s ssssss sss syssssæssss ssss ssss sss ss ðsssss ssssss

Stórdansleikur í Íþróttahúsinu með Sálinni

Laugardagskvöldið 27. júní kl 23:55 - 4:0018 ára aldurtakmark

Miðaverð kr.3500Forsala aðgöngumiða í Sundlaug Hafnar fimmtudag og föstudag

Verð í forsölu kr.3000

Knattspyrnudeild Sindra

Page 9: Eystrahorn 25. tbl. 2015

MÁNAGARÐI Húsið opnar kl.19:30 Sætaferðir frá N1 kl.19:00 A T H P A N A T F A R

8 6 1 6 2 2 0 Fyrir kl.15, 25.júní

HM í HMHeimsmeistaramótið í HornafjarðarMANNA

verður kl. 11:00 á laugardaginn í íþróttahúsinu

Útbreiðslustjóri

HumarHátíðartilboð beint frá býli

• Maríneraðargrísakótiletturverð1090kr./kg• Maríneraðurgrísahnakkiverð1090kr./kg• Maríneraðargrísalundir1290kr./kg• Minnumágrillkassannokkar10kgaf

blönduðumgrillsneiðumá8.900kr.• Frosnarkótilettur,hnakkar,lundirogfleiraOpiðföstudagfrákl.16:00-18:00oglaugardag13:00-16:00.

Þeirsemviljaverslautanopnunartímaervelkomiðaðhafasambandviðokkur.

Hlökkum til að sjá ykkur Miðskersbúið

Gleðilega Humarhátíð!

Hleinin hluti af Humarhátíð í 23 ár

Page 10: Eystrahorn 25. tbl. 2015

Mar

khön

nun

ehf

Tilboðin gilda 25. júní – 28. júní 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjör

kjúklingaupplæri m/beini, danpo, 1,5 kg

1.078 Áður 1.198 kr/pk

sætar kartöflur

189Áður 378 kr/kg

-50%frampartur grillsn.

frosinn

692Áður 989 kr/kg

-30%

grísakótilettur frosnar

899 Áður 1.798 kr/kg

kalkúnasneiðar m/sítrónugrasi

1.788 Áður 2.591 kr/kg

-31%

lambaborgarar fjalla, 120 gr x 10

1.598 kr/pk

bacon grísaborgari 115 gr x 10

958 Áður 1.198 kr/pk

-50%

Betty Crocker fjölskyldan 15% afsláttur!

kjúkl.bringa, fersk í miðjarðarhafsmarin.

1.883 Áður 2.384 kr/kg

10 stk

10 stk