30
Caption describing picture or graphic. Febrúar 2015 Skýjum ofar Fréttablað FFÍ

Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Fréttablað Flugfreyjufélags Íslands

Citation preview

Page 1: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

Caption describing

picture or graphic.

Febrúar 2015

Skýjum ofar Fréttablað FFÍ

Page 2: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

2

Um ellufuhundruð manns mættu á

afmælishátíð Flugfreyjufélags Íslands sem

haldin var í Listasafni Reykjavíkur

Hafnarhúsinu 30. desember síðastliðinn. Var

mætingin umfram öllum væntingum og

virkilega gaman að sjá hversu margir sáu sér

fært á að halda upp á þennan merka áfanga

félagsins.

Anna Margrét Jónsdóttir var

veislustjóri kvöldsins og fyrrum formaður

FFÍ Ásdís Eva Hannesdóttir hélt stutta ræðu.

Að henni lokinni fengu tveir fyrrum

formenn FFÍ gullmerki í

viðurkenningarskyni fyrir störf sín fyrir

félagið.

Baggalútur endaði hátíðina með

laginu ,,Ég fell bara fyrir flugfreyjum‘‘.

Stjórn Flugfreyjufélagsins vill þakka

félagsmönnum og öðrum gestum

afmælishátíðarinnar fyrir komuna.

60 ára afmæli

Flugfreyjufélags Íslands

Page 3: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

3

60 ára afmæli FFÍ

Page 4: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

4

60 ára afmæli FFÍ

Page 5: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

5

60 ára afmæli FFÍ

Page 6: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

6

Vinnan á skrifstofu FFÍ fyrrihluta árs 2014 snerust að mestu um

kjarasamningaviðræður við viðsemjendur okkar. Kjarasamningar allra

félaga voru lausir á svipuðum tíma. Kjaraviðræður við Flugfélag

Íslands hófust lok árs 2013 en fóru í raun ekki almennilega í gang fyrr

en eftir áramótin. Viðræður við WOW air hófust í febrúar 2014. Allar

viðræður við viðsemjendur okkar enduðu hjá ríkissáttasemjara. Náðist

að semja við öll félögin í lok maí og byrjun júni 2014.

Á aðalfundi Norræna flutningamannasambandsins, sem var

haldinn í maí 2014 urðu breytingar á fulltrúum frá Íslandi. Kjartan

Norðdahl sem hafði setið í stjórn flugdeildar NTF og einnig í

aðalstjórn NTF hætti eftir rúmlega tveggja ára setu. Núverandi

formaður, Sigríður Ása Harðardóttir er nýr fulltrúi Íslands í stjórn

flugdeildar NTF og Sigrún Jónsdóttir tók við sæti Kjartans í aðalstjórn

NTF.

Stjórn FFÍ samþykkti á stjórnarfundi í byrjun árs 2014 að halda

upp á 60 ára afmæli félagsins. Vinna hófst við að að leita tilboða hjá

viðburðafyrirtækjum. Við fengum tilboð frá þremur aðilum og var það

Gunnar Traustason hjá G-Event, sem varð fyrir valinu. Var öll sú

vinna hjá honum til fyrirmyndar og þökkum við honum fyrir frábæra

afmælisveislu.

Á aðalfundi FFÍ 27. maí 2014 var ósk stjórnar um að leigja eða

kaupa nýtt húsnæði samþykkt. Ákveðið var að byrja á því að leita að

leiguhúsnæði sem hentar betur, á móti á að leigja út Borgartún 22.

Búið er að finna húsnæði í Hlíðarsmára 15 og er ætlunin að flytja í

nýtt húsnæði í lok mars 2015. Þetta húsnæði er 205 fermetrar og gefur

okkur þann möguleika að halda félagsfundi þar. Leigusalinn sér um að

breyta húsnæðinu á þann hátt sem hentar okkar starfsemi. Fanney

Harðardóttir mun vinna með leigusala og okkur hvað varðar hönnun

innandyra.

Ný vefsíða leit dagsins ljós í nóvember og samhliða henni var

tekin í gagnið orlofsvefur FFÍ. Nú geta félagsmenn séð á

orlofsvefnum hvaða bústaðir eru lausir, pantað sjálfir og greitt fyrir. Á

vefsíðu FFÍ er spjallsvæði sem að við eigum að nýta okkur með

fyrirspurnir og umræður hvað varðar félagsmál. Spjall hópum á

Facebook verður lokað og ætlum við að nýta spjallsvæðið af

vefsíðunni betur. Það er eðlilegra að allar umræður um málefni sem

varða kjara- og stéttarfélagið séu á lokaðri vefsíðu en ekki á FB.

Í ágúst 2015 eru lausir samningar hjá Icelandair og mun

undirbúningsvinna samninganefndar fara af stað fljótlega í febrúar

2015. Samningar við Flugfélag Íslands verða einnig lausir í lok árs.

Allar ábendingar frá félagsmönnum eru vel þegnar og óskum við eftir

samstöðu í komandi kjaraviðræðum. Stjórn FFÍ þakkar öllum

félagsmönnum fyrir mikla samstöðu og stuðning í síðustu

kjaraviðræðum.

Sigríður Ása Harðardóttir

Kveðja frá formanni FFÍ

Page 7: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

7

Í tilefni 60 ára afmæli Flugfreyjufélags Íslands fannst

okkur tilvalið að hitta fyrstu stjórn félagsins en hana

skipuðu þær Andrea Þorleifsdóttir formaður, Guðrún

Steingrímsdóttir gjaldkeri, Ragnheiður Gröndal ritari og

Edda Snæhólm varamaður. Fyrsti fundur félagsins var

haldinn 30.desember 1954 heima hjá Hólmfríði

Mekkinósdóttur en hún var aðalhvatamaður þess að

félagið yrði stofnað. Í hinu nýstofnaða félagi voru 15

flugfreyjur, níu frá Flugfélagi Íslands og sex frá

Loftleiðum. Með stofnun félagsins var ætlunin að ná fram

betri samstöðu um kjaramál, þá helst að fá greiddar

flugstundir til viðbótar við föst laun líkt og flugmennirnir

fengu á þeim tíma. Önnur baráttumál voru orlofs- og

veikindaréttindi sem og almennt starfsöryggi.

Andrea Þorleifsdóttir, Ragnheiður Gröndal og

Guðrún Steingrímsdóttir mæltu sér mót við okkur á

kaffihúsi í miðborginni. Þær höfðu frá mörgu að segja, en

þær byrjuðu að fljúga á árunum 1952-54. Andrea segir

okkur að undirbúningurinn að stofnun félagsins hafi byrjað

strax árið 1953 en að það hafi ekki verið fyrr en 30.

desember 1954 sem fyrsti stofnfundurinn var haldinn.

„Þetta var ekki auðvelt og það gekk á ýmsu. Stjórnendum

fannst á þessum tíma þetta „óþarfa brölt“ að stofna félag

fyrir aðeins 15 flugfreyjur. En þetta tókst sem betur fer,"

segir Andrea og brosir. ,,Stærsti sigurinn að mínu mati var

þegar við fengum í gegn að fá greiddar flugstundir líkt og

flugmennirnir. Okkur fannst við ekkert síður mikilvægar

en þeir, þótt stjórnendum fyrirtækjanna tveggja væru

okkur ekki sammála. Þess vegna tók svona langan tíma að

stofna félagið,“ segir Andrea. Guðrún kemur því að

að þær hafi fengið lögfræðing til að tala þeirra máli því að

það hafi verið töluverð harka í samningaviðræðum.

Fyrsta stjórn

Flugfreyjufélags Íslands

,,Stjórnendum fannst á

þessum tíma þetta vera

„óþarfa brölt“ að stofna

félag fyrir aðeins 15

flugfreyjur“

Page 8: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

8

Fertugsaldur, ólétta og eða gifting jafngilti uppsögn

,,Þegar búið var að stofna félagið urðum við ein eining

innan VR og fengum þannig sömu réttindi og VR

félagar sem var okkur mikill stuðningur, en það tók

okkur samt tæp tvö ár að fá flugstundirnar okkar í gegn.

Við fengum þá 1.50 krónur fyrir hverja klukkustund á

meðan flugmenn fengu 6-7 krónur á tímann. Margar

freyjurnar voru óánægðar með þessa upphæð en ég

benti þeim á að þetta væri aðeins byrjunin,“ segir

Andrea. ,,Allt harkið og öll vinnan fór í að stofna

félagið. Þegar það varð loksins til kom margt af sjálfu

sér. Það varð allt auðveldara eftir að VR stóð með

okkur," útskýrir hún.

Andrea, sem vann hjá Loftleiðum segir okkur að

þegar hún byrjaði, var lítil sem engin þjálfun. Hún var

einungis send í tvö reynsluflug áður en hún hóf störf

sem flugfreyja en það var fyrst eftir að hún byrjaði að

vinna sem hún fékk þjálfun í öryggisatriðum.

Ragnheiður, sem var hjá Flugfélaginu, fékk aftur á móti

að fara í flugfreyjuskóla. „Ég var ein af fjórum sem

sendar voru á vegum SAS til Danmerkur í tvo mánuði.

Við tókum verkleg og skrifleg próf, meðal annars í

landafræði, veðurfræði og þjónustu. Kennt var bæði í

Kaupmannahöfn og í Svíþjóð. Þarna voru líka stúlkur

frá Noregi og Damörku. Þetta var æðislega gaman,“

segir Ragnheiður. Tíðarandinn var annar á þessum tíma.

Að ná þrítugsaldri gilti sama og uppsögn, það sama

gilti með giftingu og að verða barnshafandi. Ragnheiður

gifti sig nokkrum árum eftir að hún hóf stórf sem

flugfreyja og þar með lauk hennar flugferli. Guðrún

varð ófrísk og hætti því líka. Með tilkomu

Flugfreyjufélagsins urðu mál eins og þessi hægt og

bítandi úr sögunni.

,,Við fengum þá 1.50 krónur

fyrir hverja klukkustund á

meðan flugmenn fengu 6-7

krónur á tímann”

Page 9: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

9

12 klukkustundir til New York

Margt hefur breyst í fluginu á þessum langa tíma, en

álagið um borð í vélunum var þó engu minna þá en í

dag. Guðrún segir okkur að þær hafi þurft að sækja

farþegamatinn sjálfar á Skólavörðustíg eða í bragga á

Reykjavíkurflugvelli og þeim gert að koma honum

um borð. Maturinn var síðan hitaður upp í potti á

leiðinni. ,,Það var meðal annars boðið upp á pylsur

og kartöflusalat, spaghetti, kjötbollur eða spam,"

segir hún og allar kinka þær brosandi kolli þegar

minnst er á spamið. Stundum kom það fyrir að

einungis ein freyja var um borð frá Keflavík til New

York, líkt og Guðrún lenti einu sinni í, en yfirleitt

voru tvær freyjur með um 65 farþega. Þess ber að

geta að ferðin til New York tók mun lengri tíma en

hún gerir í dag eða um 12 klukkustundir með

millilendingu í Gander eða Goosebay. Sjö

klukkustundir tók að fljúga til Kaupmannahafnar. Á

þessum árum flaug Flugfélag Íslands innanlands, til

Grænlands og Evrópu en Flugleiðir flugu bæði til

Evrópu og Bandaríkjanna. „Það voru í raun lítil

samskipti okkar á milli en við áttum sameiginlegra

hagsmuna að gæta og þannig tókst okkur þetta,“ segir

Andrea.

Það var einstaklega ánægjulegt að fá að hitta

þær Andreu, Ragnheiði og Guðrúnu. Þær stöllur eru

heill hafsjór af fróðleik og reynslu. Þær voru jafn

forvitnar að vita um gang mála hjá

Flugfreyjufélaginu í dag eins og við vorum að fá að

vita um upphaf stofnun Flugfreyjufélags Íslands. Við

þökkum þeim kærlega fyrir spjallið.

,,Það var meðal annars boðið

upp á pylsur og kartöflusalat,

spaghetti, kjötbollur eða spam"

Stundum kom það fyrir að

einungis ein freyja var um

borð frá Keflavík til New

York

Page 10: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

10

Vissir þú að …...

Starfsmenntasjóður FFÍ styrkir félagsmenn Icelandair

og Flugfélags Íslands til náms og tómstunda.

Úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu FFÍ

www.ffi.is undir liðnum sjóðir og réttindi og eru allir

félagsmenn hvattir til að kynna sér starfsmenntasjóðinn.

Þú færð endurgreiddar sjúkrasokkabuxur á

hverju 24 mánaða tímabili, þó að hámarki

16.500 kr. og gegn framvísum kvittunar.

Flugliðar Icelandair sem eru 55 ára og

eldri skulu fá einn auka frídag á mánuði

og tvo auka frídaga á mánuði við 60 ára

aldur.

Að innan FFÍ eru starfandi öryggisnefnd og

vinnuverndarráð sem hafa eftirlit með því að

öryggi, aðbúnaður og hollustuhættir um borð í

flugvélum fullnægi settum kröfum.

FFÍ styrkir félagsmenn (50.000 kr) til þess að

fara í laseraðgerð á augum, hver er ekki til í

að geta sleppt gleraugum og linsum.

Nánari upplýsingar færðu á heimasíðu ffi.is

Page 11: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

11

Lífið eftir flugið

Við mæltum okkur mót við þær Steinunni Kristjánsdóttur, betur

þekkt sem Lillý, Önnu Kristjánsdóttur og Steinunni Sigurðardóttur

eða Steinu Sig. eins og hún er alltaf kölluð, en þær eru allar hættar

að fljúga eftir nær hálfa öld í háloftunum.

Það fyrsta sem okkur langar að vita er hvort þær hafi verið

sáttar við að hætta að fljúga. Lillý segist alveg hafa verið tilbúin, en

Steina hefði verið til í að vinna lengur enda heilsuhraust. Anna

segist hafa verið undir það búin að hætta en að hún hafi vel haft

heilsu til að halda áfram ,,Maður var samt farin að finna fyrir því

hvað maður var oft langelstur um borð," segir Anna, en Steina

kannaðist ekki við það. Anna rifjar upp þegar þær voru settar í

innanlandsflugið. ,,Þá vorum við um fertugt. Ég gleymi því ekki

þegar krakkaskrattinn kom um borð með móður sinni og sagði svo

ég heyrði til: ,,Ég hélt að flugfreyjur væru ekki gamlar konur" og

mamma hans sagði ekkert við krakkann. Ég átti ekki orð," segir

Anna sárhneyksluð. Þær eru sammála því að það hafi ætíð loðað við

stéttina að mega ekki eldast. Spurningar á borð við ,,ertu ennþá að

fljúga?" könnuðust þær allar við, en Steina leysti það mál með því

að spyrja á móti, ,,ert þú ennþá í bankanum?" Hún bætir við að þetta

sé bæði dónaskapur og lítilsvirðing á starfið þeirra og allar kinka

þær kolli við því. Hvað eftirlaunakjörin varða eru þær á því að þau

séu óásættanleg. Þær segja það ósanngjarnt að vera með sömu kjör

og þeir sem aldrei hafa unnið úti. ,,Til hvers hvers var maður að

þræla og strita og borga í þennan lífeyrissjóð í öll þessi ár þegar

maður hefur ekkert upp úr því?" spyr Anna, en hún byrjaði að fljúga

árið 1964. Lillý og Steina voru saman á námskeiði árið 1965. Anna

lét af störfum árið 2010 en þær Lillý og Steina árið 2011. ,,Maður er

búin að eyða allri starfsævinni í fluginu, frá tvítugu til sextíu og sjö

ára," segir Anna.

,,Ég gleymi því ekki

þegar krakkaskrattinn

kom um borð með

móður sinni og sagði

svo ég heyrði til: ,,Ég

hélt að flugfreyjur

væru ekki gamlar

konur"

Page 12: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

12

Eins og að taka skiptjóra í land eftir 47 ár

Anna segir sér hafi ekki þótt erfitt að hætta þar sem hún hafi

svo margt annað að gera. ,,Ég er í saumaklúbb, gönguklúbb,

golfi, syndi, spila scrabble, vist og bridds og svo er ég líka í

flugfreyjukórnum þannig að ég fæ enn að klæða mig í

skrúðann. Í raun var ágætt að ég hætti að vinna því nú get ég

sinnt þessu öllu almennilega, vinnan eiginlega flæktist fyrir,"

segir hún og hlær. Að öllu gríni slepptu telur Anna það

mikilvægt að hafa aðra hluti að grípa í þegar maður er komin

á eftirlaunaaldurinn. Hún segir það hafi auðveldað sér að

hætta að vinna. Steina segir að það hafi tekið sig um ár að

venjast því að þurfa ekki að mæta til vinnu. „Það fannst mér

eiginlega erfiðast, að ganga ekki að einhverju vísu. Mér

fannst ég hálfgerður ónytjungur þar sem ég er búin að vera í

vinna síðan ég var tólf ára. Þetta er svolítið eins og að taka

skiptstjóra í land eftir 47 ár,“ útskýrir hún. Steina er þó langt

frá því aðgerðalaus því hún stundar golf, syndir og er með

stöðugan gestagang. „Nú hef ég líka góðan tíma til að lesa

og hlusta á útvarpið. Ég kann orðið alla útvarpsdagsskrána

utan að,“ segir hún glottandi. Lillý hefur líka í nógu að

snúast, hún sinnir móður sinni mikið, spilar golf en segir það

jafnframt vanmetinn hæfileika að kunna að gera ekki neitt en

að eigin sögn er hún mjög góð í því.

Luxemburg eins og annað heimili

Þegar þær eru spurðar út í skemmtileg tímabil í fluginu er

ekki legið á svörunum. Lillý er á því að pílagrímaflugin hafi

verið mjög skemmtileg, sem og leiguflugin til Kúbu. Steina

segir að öll tilbreyting hafi verið góð eins og til dæmis

leiguflugin. ,,Svo voru það Norðurlandaferðirnar fyrir jólin,

en ég er eflaust ein af fáum sem naut þeirra. Þau flug fannst

mér ótrúlega gefandi, allir Íslendingarnir, börnin, kerrurnar

og snuddurnar. Fyrir mér var þetta partur af jólunum. Þetta

voru erfið flug en það var svo mikil jólastemmming," segir

hún.

„Þau flug fannst mér

ótrúlega gefandi, allir

Íslendingarnir, börnin,

kerrurnar og

snuddurnar. Fyrir mér

var þetta partur af

jólunum”

,,Ég er í saumaklúbb,

gönguklúbb, golfi, syndi, spila

scrabble, vist og bridds”

Page 13: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

13

Lillý segir þær hafa verið mikið í góðum

stoppum á Loftleiðatímabilinu og að ávallt hafi

verið gott að koma til Luxemburgar. ,,Maður fór

þangað einu sinni í viku. Þetta var orðið eins og

annað heimili manns," segir Anna. Þær bentu

okkur á að flugvélarnar voru ekki eins

hraðskreiðar og þær eru í dag. Það tók 14-15 klst

að fljúga til New York og 5-6 klst að fara til

Kaupmannahafnar. Þar af leiðandi voru færri

flug á skrá en er í dag þó flugtíminn hafi komið

út á það sama. ,,Svo var miklu rólegra yfir

vetratímann þannig að maður fékk andrými sem

ekki fæst í dag," bendir Anna á.

Svo búkstutt blessunin

Aðspurðar hvað hafi mest breyst í fluginu frá því

að þær byrjuðu talar Anna um hversu skrýtin

tilhugsunin sé að það hafi mátt reykja um borð,

bæði farþegar og áhöfn. ,,Þetta er algerlega

óhugsandi í dag," segir hún. Steina bætir við að

vinnuaðstaðan hafi mikið breyst. ,,Munið þið

stelpur, á monsanum og áttunni þegar við vorum

skríðandi inn í ísskápinn? Einu sinni lokaði ég á

eina, hún var svo búkstutt blessunin. Hún var að

teygja sig eftir matarkassa og ég bara lokaði,"

segir Steina og hópurinn springur úr hlátri. Lillý

segist í raun ekki skilja að þær séu í ekki verri í

líkamanum en þær eru, miðað við allan þann

burð og þær röngu líkamsstellingar sem þær

unnu við út af þrengslum. ,,Mesti lúxusinn var

þegar við fengum rúlluborðin, það var bylting.

Fyrir þann tíma þurfti að handbera allt," segir

Steina. Hún segir okkur líka að þegar þær

byrjuðu hefði það verið óhugsandi að ráða

skránni sinni sjálfur. ,,Ég fann það áður en ég

hætti að þær sem voru í skóla vildu aðallega

fljúga um helgar eða seinnipartsflug þannig að

við hinar vorum nánast eingöngu í

morgunflugunum. Það fannst mér óréttlátt."

Vel valið í starfið

Þegar þær eru beðnar um að lýsa starfinu þagnar boðið

og þær verða hugsi. ,,Það er skemmtilegt en erfitt,"

segir Anna. Lillý er á því að það hljóti að veljast gott

fólk í starfið því vinnuandinn hafi alltaf verið góður.

„Viðmót fyrstu og annarrar freyju hefur mikið að segja

hvernig vinnudagurinn verður," segir Lillý. Steina

rifjar upp sögu úr flugi sem átti sér stað ekki löngu

áður en hún hætti. ,,Ég mætti í morgunflug og tilkynnti

áhöfninni að ég yrði mögulega viðskotaill þennann dag

þar sem ég sé algerlega ósófinn. Þá segir ein: ,,Takk

fyrir að segja mér þetta, sonur minn er nefnilega búinn

að gráta í alla nótt," Þá bættist við sú þriðja og segist

líka vera ósofin. Ég sagði þá: ,,Stelpur, þetta verður

einn dýrðarinnar dagur," sem hann svo var. Þarna

opnaði ég mig og gaf því hinum kjark til að segja frá.

Það, að tala saman, skiptir svo miklu máli."

Hvað stéttarfélagsvitund varðar voru þær allar

sammála um að hún hafi verið meiri hér

í ,,denn." ,,Ekki spurning!" segir Steina. ,,Við vorum

miklu færri og auðveldara að halda utan um alla svona

hluti," segir Anna. Lillý bendir á að nú eru fleiri aðeins

með sumarráðningu og setji sig þar af leiðandi minna

inn í stéttarfélagsmál og kjarasamninga. Þegar þær

voru að byrja voru flestallar fastráðnar þannig að þessi

mál vörðuðu þær meira. Aðspurðar hvort flugliðar þá

hefðu staðið fast við kjarasamninga varðandi hvíld og

annað, svara þær að áður fyrr hafi þær ekki verið nýttar

í botn á hverri skrá eins og gert er í dag, þannig að það

var ekki áhyggjuefni að verið væri að brjóta á þeim. Að

sama skapi voru allir tilbúnir að vaða eld og

brennistein til að koma á móts við farþegann og

félagið. Steina er á því að verið sé að brjóta niður allan

stéttarfélagsanda, ekki bara hjá okkur heldur alls staðar

í þjóðfélaginu. ,,Svo er eitt, fólk í dag er aðallega að

hugsa um rassinn á sjálfum sér og sá hugsunarháttur

skemmir auðvitað fyrir líka," bætir hún við.

Page 14: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

14

,,Ég greip bara

klósettrúllu, rétti

hana inn í cockpit

og lokaði strax á

eftir mér”

Fljúgandi klósettrúlla

Þær segjast lítið hafa orðið orðið varar við stéttarskiptingu

milli flugfreyja og þeirra sem sitja í flugstjórnarklefanum,

nema þá helst í seinni tíð. ,,Þegar við byrjuðum talaði maður

bara um flugmenn, en nú má það ekki. Nú er bara einn

flugmaður en það má ekki kalla flugstjóra flugmann því

samkvæmt nýjum stöðlum er hann það ekki lengur. Það er

allt í einu orðið bannorð," segir Anna. Hvað varðar

andrúmsloft milli flugstjórnarklefans og farþegarýmis þá er

Steina alveg á því að það sé fyrsta freyjan sem stjórni því.

„En maður hefur nú lent í einum og einum," segja þær í kór.

,,Var ég búin að segja ykkur klósettrúllusöguna?" spyr

Steina. ,,Við vorum í New York í kæfandi hita og mikilli

seinkun og allir orðnir pirraðir. Það var engin loftkæling á

áttunni og flugstjórinn var eitthvað kvefaður. Hann hringir

fram í eftir flugtak og biður um „tissue”. Allar

klósettvörunar voru geymdar lengst inn í hliðarskáp þar sem

erfitt gat verið að ná í nokkurn hlut. Ég náði ekki alla leið

inn í skápinn þannig að ég greip bara klósettrúllu, rétti hana

inn í cockpit og lokaði strax á eftir mér. Eftir smá stund er

cock-pit hurðin rifin upp, ég sé í jakkaklæddan handlegg

með fjórum strípum teygja sig fram og svo er

klósettrúllunni kastað í mig fyrir framan alla farþegana með

orðunum: ,,Ég bað um tissue, ekki klósettpappír!" Ég gat

ekki annað en farið að skellihlæja og ef ég man rétt þá sagði

ég honum að hann skyldi bara sjúga upp í nefið."

Fljótar að gleymast

Þær stöllur eru duglegar að halda hópinn. ,,Það er mjög

mikilvægt að halda sambandi við þennan hóp því maður er

fljótur að gleymast. Svo eru þetta konur sem maður er búin

að vinna með alla starfsævina og því skiptir máli að henda

ekki þessum tengslum frá sér," segir Lillý.

,,Það er mjög

mikilvægt að halda

sambandi við þennan

hóp því maður er

fljótur að gleymast”

Page 15: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

15

Jón Örvar Gestsson, skurðhjúkrunarfræðingur og flugþjónn hjá

Icelandair, er mikill sundkappi. Hann æfir ekki bara sund með

íþróttafélaginu Styrmir tvisvar í viku heldur stingur hann sér

einnig til sjós eins oft og hann getur.

Aðspurður hvaðan allur þessi sundáhugi komi segist Jón

Örvar alla tíð hafa verið mikið í íþróttum. ,,Sem barn og unglingur

var ég í frjálsum, stundaði skíði og sund. Ég hætti þó þegar ég

byrjaði í menntaskóla og tók mér 10 ára hlé. Það var svo árið 2006

þegar ég hóf nám við háskólann sem ég byrjaði að synda aftur og

fór ég þá að æfa með sundfélaginu Styrmi hér í Reykjavík," segir

Jón Örvar. Hann segir félagsskapinn vera aðal ástæðuna fyrir því

að hann sæki í sundið, ,,og keppnisferðirnar," segir hann sposkur

en hann hefur keppt víðsvegar um heiminn með sundfélaginu sínu,

til að mynda í Seattle, Köln, Kaupmannahöfn og Rotterdam. Þegar

hann er spurður út í frammistöðu sína á þessum mótum kemur í

ljós að hann hefur ávallt komið heim með verðlaunapening.

Á sama tíma og Jón Örvar byrjaði að æfa með Styrmi tók

hann upp á því að iðka einnig sjósund. ,,Sú iðkun stóð nú frekar

stutt yfir, en það var svo núna fyrir síðustu jól sem ég fór að

stunda sjósund reglulega með nokkrum úr fluginu og við reynum

að fara tvisvar til þrisvar í viku. Við erum nú ekki mörg en við

höldum úti Facebook hóp þar sem við skipuleggjum ferðirnar

okkar. Hópurinn okkar heitir sjósundselskandi flugfólk og allir

eru velkomnir að slást í hópinn." Jón Örvar segir sjósundið vera

ögrandi en á sama tíma veita ótrúlega vellíðan. ,,Það einfaldlega

bætir, hressir og kætir," segir hann brosandi. Hann bætir við að ef

maður er almennt kulsækin þá endurræsir sjósund alltaf kerfið í

líkamanum og fólk finni minna fyrir kulda en áður. Líkt og með

hefðbundna sundið þá segir Jón Örvar félagsskapinn

mikilvægastan í sjósundinu. ,,Það er svo gaman að hlaupa í heita

pottinn eftir að hafa verið í sjónum og ræða um heima og geima."

Að lokum er hann spurður hvort það séu ákveðnar tegundir fólks

sem sæki í sjósund og svarið er einfalt: ,,Nei, það geta þetta allir."

Flugsyndur og fjölhæfur

Page 16: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

16

Til hvers eru lög og reglur

Meginhlutverk stéttarfélaga er að standa vörð um réttindi

félagsmanna og gæta hagsmuna þeirra. Felur það meðal annars í

sér að fylgjast með vinnuumhverfi félagsmanna og líkamlegri sem

og andlegri vellíðan. Til að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi og

tryggja öryggi starfsmanna höfum við vinnuverndarlög sem bæði

atvinnurekendum og starfsmönnum er skylt að fara eftir.

Vinnuverndarlögum (Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á

vinnustöðum, nr 46/1980) er ætlað tryggja öruggt og

heilsusamlegt starfsumhverfi á jörðu niðri og draga úr slysahættu

og líkamlegu heilsutjóni sem rekja má til starfa eða

vinnuumhverfis. Vinnueftirlitið tryggir að vinnuverndarlögum sé

framfylgt og hefur eftirlit með því. Um borð í flugvélum gilda

hins vegar önnur lög, þ.e. Lög um loftferðir (60/1998) og

Reglugerð um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu

flugverja (680/1999). Samgöngustofa sér um að lög og reglugerð

varðandi flugáhafnir sé framfylgt í íslenskum flugvélum og sinnir

eftirliti.

Samanburður á lögum og reglugerð leiðir í ljós að

flugáhafnir njóta ekki sömu almennu verndar eins og starfsmenn á

jörðu niðri þar sem áhafnir eru oft undanskildar almennri

vinnulöggjöf. Ólíkt loftförum þurfa allir vinnustaðir á jörðu niðri

að fara í gegnum áhættumat á vinnustað, gera áætlun um

heilsuvernd og forvarnir til úrbóta og fylgja þeim eftir.

Með því að greina áhættuþætti á vinnustað með kerfisbundnum

hætti má finna hvort eitthvað í vinnuumhverfinu,

vinnuskipulaginu eða við framkvæmd vinnunnar geti hugsanlega

valdið slysum, óhöppum, vanlíðan, meiðslum, álagi eða öðru sem

leitt getur til andlegs eða líkamlegs heilsutjóns. Meðal þess sem er

skoðað eru: álag á hreyfi- og stoðkerfi, umhverfisþættir (hávaði,

hiti, kuldi, titringur, dragsúgur, smitleiðir, lýsing og birtuskilyrði

o.fl.), félagslegir og andlegir vinnuverndarþættir (samskipti,

upplýsingaflæði, tímaþröng, einelti o.s.frv.), vélar og tæki auk

efna og notkun hættulegra efna á vinnustað.

Page 17: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

17

Ýmislegt vekur áhuga í reglugerð er varðar

heilsu- og vinnuvernd flugáhafna og þá

sérstaklega þeir kaflar er lúta að: skyldum

vinnuveitenda og skyldum starfsmanna. Í 5

grein segir til að mynda: „Ábyrgð

vinnuveitanda felst í því að hann skal gera

nauðsynlegar ráðstafanir er lúta að öryggi og

heilsuvernd flugverja, þar með taldar

forvarnir gegn áhættu í starfi, fræðsla og

þjálfun, svo og að séð sé fyrir nauðsynlegri

skipulagninu og viðbúnaði. Vinnuveitandi

skal vera vakandi fyrir því að laga þessa

ráðstafanir að breyttum kringumstæðum og

hafa að markmiði að bæta ríkjandi

aðstæður“. Leitað var til 25 flugfreyja- og

þjóna með tilviljanakenndu úrtaki til að kanna

hvað þau telja vinnuveitanda hafa gert til að

bæta öryggi og heilsu starfsmanna og

jafnframt hvort eitthvað mætti betur fara.

Meðal þess sem kom fram var ánægja með:

aukin metnað varðandi áhafnarmat, léttari

matar- og barvagna og möguleika á

flensusprautu. Það helsta sem mætti bæta var:

fræðsla varðandi heilsu og vellíðan í starfi,

sérstaklega fyrir nýliða og eldri starfsmenn.

Reglulegar rannsóknir til að fylgjast með

heilsu og líðan flugfreyja- og þjóna. Fræðsla

og ráðgjöf varðandi vinnutækni og

stoðkerfisvandamál. Upplýsingar um

geimgeislun og áhrif hennar á heilsu okkar og

sér í lagi áhrif geimgeislunnar á barnshafandi

flugfreyjur.

Aðferðir til þess að minnka streitu í

starfi. Gera heyrnarmælingu og draga úr

hávaða um borð. Fræðsla um áhrif truflunnar

á líkamsklukkuna og starfstengda

svefnerfiðleika. Bregðast við kulda og mæla

rakastig. Ráðgjöf fyrir þá sem eiga í

erfiðleikum með að samræma starf og daglegt

líf, til að halda lífsgæðum.

Í 9. grein segir: „Vinnuveitandi skal vinna

áhættumat varðandi öryggi og hollustu á vinnustað

er taki sérstakt mið af þeirri áhættu sem flugverjum

er búin. Ákveða hvaða verndarráðstafanir skal gera

og, ef nauðsyn krefur, hvaða hlífðarbúnað ber að

nota. Halda skrá yfir vinnuslys sem valda því að

flugverji er frá vinnu lengur en þrjá vinnudaga.

Taka saman skýrslur um vinnuslys sem flugverjar

verða fyrir í starfi...“ Ljóst er að efla þarf

skráningar á minniháttar slysum og óhöppum sem

verða um borð sem allt of sjaldan eru skráð vegna

tímaleysis og álags. Þar getum við tekið höndum

saman um að gera betur.

Samgöngustofa á að sinna eftirliti með

loftförum en lítið hefur farið fyrir því. Þegar leitað

var til Samgöngustofu fengust þau svör að ekki væri

talin þörf á aðgerðum þar sem engin kvörtun hefði

borist frá flugfreyju og þjónum um að öryggi þeirra

og heilbrigði væri ógnað í starfi. Trúlega hefur

starfsmaður Samgöngustofu haft í huga 11. grein í

kafla tvö sem hljóðar svo: „Flugverjar og eða

fulltrúar þeirra eiga rétt á að skjóta málum til

Samgöngustofu telji þeir að ráðstafanir þær sem

gerðar hafa verið og úrræði þau sem vinnuveitandi

notast við tryggi ekki öryggi og hollustu á vinnustað

svo viðunandi sé“. “ Fulltrúum flugverja ber að fá

tækifæri til að leggja athugasemdum sínar fyrir

fulltrúa Samgöngustofu þegar hann kemur til að

sinna eftirliti með loftfari“.

Page 18: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

18

Hafa flugfreyjur- og þjónar sofnað á verðinum?

Mögulega þegar haft er í huga að algeng

vandamál í okkar stétt eru: blöðrubólga,

heyrnaskaði og heyrnarsuð, stoðkerfisvandamál,

slit í liðum, krónískur þurrkur í augum, nefi og

öndunarvegi, atvinnutengd streita, þrálátar ennis-

og kinnholusýkingar síðan en ekki síst

svefntruflanir.

Samgöngustofa á að skipa vinnuverndarráð

sem hefur um árabil verið óvirkt en var

endurvakið fyrir tæpu ári en aðeins einn fundur

verið haldinn síðan það var endurvakið. Ráðið á

að vera ráðgefandi fyrir Samgöngustofu í málum

varðandi vinnuumhverfi um borð í flugvélum,

gera tillögur og veita umsagnir um nýjar reglur

eða breytingu á eldri reglum um vinnuumhverfi

um borð í flugvélum. Ráðinu er líka ætlað að

fjalla um einstök mál sem ráðherra eða

Samgöngustofa leggur fyrir það og eiga

frumkvæði að málum sem hafa áhrif á

vinnuumhverfi áhafna. Þarna er vettvangur sem

má reyna að nýta betur til að efla heilbrigði

flugfreyja- og þjóna, og koma í veg fyrir

líkamlegt heilsutjón. Til að svo megi verða þarf

ráðið hins vegar að koma oftar saman og huga að

þeim málum sem brýnustu eru hverju sinni.

Flugfreyjur- og þjónar þurfa að standa vörð um

þau lög og reglugerðir sem lúta að starfi þeirra

og vinnuumhverfi enda þeim í hag að eftir

þeim sé farið. Mikilvægt er að við þekkjum

réttindi okkar og látum í okkur heyra.

Mikilvægur liður í því er að gera reglulegar

rannsóknir á heilsu og líðan flugfreyja- og

þjóna þar sem niðurstöðurnar sýna með

óyggjandi hætti hvað sé brýnast að bæta.

Ásta Kristín Gunnarsdóttir, flugfreyja

Ásta Kristín er flugfreyja og

hjúkrunarfræðingur. Hún rannsakaði í

meistaranámi sínu heilsu og líðan flugfreyja

– og þjóna og greindi samband þreytu þeirra

við svefn, vinnuumhverfi, heilsufar og

fjölskylduaðstæður. Ásta hefur ritað fjölda

greina um þreytu, stoðkerfisvandamál og

flughræðslu ásamt fleirum áhugaverðum

greinum tengdum líðan flugliða. Við

hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu hennar

http://flugheilsa.blog.is/blog/flugheilsa/ en

þar er að finna greinar og rannsóknir sem

hún hefur gert. Við þökkum Ástu Kristínu

fyrir að hafa unnið svo ötullega að

rannsóknum í okkar allra þágu.

Page 19: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

19

Hinn hefðbundni vinnudagur WOW flugliða hefst fyrir

morgunflug um klukkan: 5:20 (p.u. á völlunum í

Hafnarfirði) en fyrir seinniparts flug er það um 14:00. Á

skránni eru yfirleitt 8-10 non-stop flug og 1-3 stby. I

vetur höfum við verið sirka 60-70 manns að fljúga,

síðan mun verða mikil aukning á komandi sumri þar

sem að hafa bæst við áfangastaðir í Evrópu sem og flug

til Bandaríkjanna.

Nú er nýafstaðin 230 manna frábærlega heppnuð

árshátíð WOW air sem haldin var 7.febrúar í

nýuppgerðu og huggulegu Gamla Bíói. Það var búin að

vera mikil tilhlökkun í flotanum og margir þræddu

janúar útsölurnar og fundu sér hið fullkomna dress.

Þetta var önnur árshátíðin sem haldin hefur verið hjá

WOW. Fyrsta árshátíðin var haldin í Turninum

Kópavogi þann 16. nóvember 2013, þar sem var hið

skemmtilega og margumtalað New York þema !

Reglulega stendur síðan Starfsmannafélgið MOM fyrir

hinum ýmsu viðburðum í gegnum árið svo fátt eitt sé

nefnt: jólaball fyrir börnin, fjölskylduhátíð, ratleikir og

jólahlaðborð.

WOW-arar eru einnig margir hverjir duglegir að

hreyfa sig og er hópur starfsfólks WOW sem hleypur

reglulega í hádeginu frá Katrínartúni. Þegar hlýrra er í

veðri er gengið á fjöll. Ekki má gleyma því að alltaf

hafa verið nokkur lið frá WOW air sem tekið hafa þátt í

því að hjóla í kringum landið í WOW Cyclothon

keppninni sem hefur verið árlegur viðburður frá 2012,

en markmið hennar er að safna fyrir góðu málefni.

Starfsfólk WOW air er ávallt að reyna að finna upp á

nýjum og skemmtilegum hlutum til þess að gera

saman. Hvort sem það sé tengt hreyfingu og útivist, eða

bara hittast á föstudegi á t.d. einhverjum nýjum og

skemmtilegum veitingastað og njóta félagsskapar hvors

annars.

WOW í leik og starfi

Page 20: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

20

Árshátíð WOW

Page 21: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

21

Allt sem kemur hjartanu

til að slá hraðar Berglind Hafsteinsdóttir flugfreyja hjá Icelandair er

ævintýramanneskja mikil. Hún fór tvær stórferðir á síðasta ári sem

voru að hennar mati ógleymanlegar. ,,Síðasta vor fór ég til Asíu

með tveimur vinkonum mínum. Við byrjuðum ferðalagið í

Tælandi, þræddum síðan Jövu alveg til Bali og Gili eyja í

Indónesíu. Þetta var fyrsta ferðin mín til Asíu og ég gjörsamlega

kolféll fyrir heimsálfunni," segir Berglind. Seinni ferðin var, að

sögn Berglindar, skyndiákvörðun. ,,Mig langaði i sól, sand og

jóga og áður en ég vissi af var ég komin upp í næstu vél til Bali

og stóð þar alein nokkrum dögum síðar”.

,,Lærðu af fortíðinni, lifðu í núinu”

,,Í seinni ferðinni minni dvaldi ég meðal annars í bænum Ubud og

fór svo þaðan í jógasetur á eyjuna Gili Air í viku. Það var ótrúlega

gefandi og lærdómsrík vika með hugleiðslu, núvitund og jóga.

Við hugleiddum, stunduðum jóga og hugleiðslu, nutum

náttúrunnar og borðuðum hollan mat. Í einn og hálfan sólarhring

vorum við svo í algerri þögn. Í fyrstu fannst mér þetta hálf

heimskulegt en eftir á þá var þetta mögnuð upplifun. Að setjast

niður, greina sjálfan sig og tiltekin mál til mergjar, gefa hverju

máli smá tíma og hugsa í lausnum. Þarna lærði ég hvað maður

getur gert mikið með því að tileinka sig algjörlega ákveðnu

málefni í smá tíma, skoða það frá öllum hliðum, meta af hverju

maður er á tilteknum stað, hvar maður vill vera og hverjar

hindranirnar eru að setti markmiði. Ég fór einnig og lærði um

Ayurveda en það eru 5000 ára gömul indversk læknisvísindi sem

má segja að sé systir jógafræðanna. Ayurveda er þekking um

hvernig lifa á lífinu. Ekki hvaða lífi sem er, heldur löngu og

heilbrigðu lífi," segir Berglind. Hún er sannfærð um að þessi ferð

hafi verið ein af betri skyndiákvörðun sem hún hefur tekið.

,,Maður hefur mjög gott af

því að læra að þurfa að stóla

á sjálfan sig”

Page 22: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

22

Aðspurð hvort hún hafi ekki verið hrædd að ferðast svona

langt ein svarar Berglind að hún hafi byrjað að ferðast ein

heimshorna á milli kornung. ,,Þegar ég var 16 ára fór ég sem

skiptinemi til Paraguay og hef gert nokkuð að því að ferðast

ein síðan. Allur er varinn góður og maður fer varlega. Maður

hefur rosalega gott af því að læra að þurfa að stóla á sjálfan

sig og engan annan. Svo reyni ég að lifa eftir lífsspekinni:

„Life begins at the end of your comfort zone“ Ef maður

heldur sig alltaf innan þægindarammans þá gerist mest lítið.

Eftirminnilegu hlutirnir eru oftast þeir sem gerast þegar farið

er út fyrir þægindarammann.

Syndir með fiskum og furðuverum

Berglind hefur svo sannarlega lifað eftir þessari lífsspeki sinni

því hún ferðast ekki bara heimshornanna á milli heldur

stundar hún líka fallhlífarstökk, sjósund og gengur fjöll. Í

fyrra bætti hún svo köfun við ævintýralistann sinn. ,,Það hefur

alltaf blundað í mér smá ævintýramennska, allt sem kemur

hjartanu til að slá aðeins hraðar," segir hún og brosir

breitt. ,,Þegar ég var með vinkonum mínum úti síðasta vor

vorum við á Gili eyjum, en sú eyja telst ,,mecca” kafara um

allan heim. Það var því ekkert annað í stöðunni en að læra

köfun úr því við vorum staddar þar. Þarna eru ein fallegustu

og fjölskrúðugustu kóralrif í heimi og fiskalífið er

ótrúlegt. Það að kafa er svakaleg upplifun, að synda meðal

allra þessara fiska og furðuvera. Þegar maður er komin undir

yfirborð sjávar verður allt svo kyrrt. Oft þegar ég vil sleppa

frá hinu daglega amstri sest ég á jógadýnuna mína og fer í

huganum aftur niður að kóralrifjunum og nýt kyrrðarinnar.

Þetta er minn griðarstaður."

Þegar hún er spurð hvort fleiri ævintýri séu í kortunum

segist Berglind vera á leið til Malasíu núna í febrúar að

heimsækja vinkonu sína. ,,Ég gríp hvert tækifæri sem gefst til

að prófa nýja hluti og fara út fyrir þægindarammann. Ég held

að þegar upp er staðið þá sjái maður ekki eftir því sem maður

gerði, heldur því sem maður gerði ekki."

„Eftirminnilegu hlutirnir

eru oftast þeir sem gerast

þegar farið er út fyrir

þægindarammann”

Page 23: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

23

,,Appið” sem allir ættu að hafa

Það getur oft verið erfitt að ná sér í leigubíl

bæði hér heima og ekki síður erlendis. Uber er

leigubílaþjónusta sem er að ryðja sér til rúms í

mörgum stórborgum erlendis. Með því að

hlaða niður “appi” frá Uber í símann sinn er

hægt að komast í samband við leigubíla hvar

og hvenær sem er á auðveldan og öruggan

hátt svo lengi sem Uber þjónustan er í boði í

viðkomandi borg. Greitt er með greiðslukorti

og óþarfi að vita nákvæmlega hvar maður er,

því forritið les staðsetningu símans.

Á ferð og flugi

Page 24: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

24

Ævintýri í Austurlöndum og Ítalíu

Katrín Magnúsdóttir eða Kata eins og hún er alltaf

kölluð, hefur verið viðloðandi flugið í rúman áratug.

Hún hefur unnið sem flugfreyja hjá Iceland Express og

Flugfélagi Íslands, þar sem hún er enn í dag. Kata er

ótrúlega fjölhæf og dugleg. Hún hefur búið víða

erlendis og verið frumkvöðull í fyrirtækarekstri hér á

landi.

Kata er heimsborgari mikill en hún kom í heiminn

í Þýskalandi og bjó þar fyrstu fimm ár ævi sinnar, en þá

flutti fjölskyldan heim. Næsta ævintýri bar svo að þegar

Kata var hálfnuð með háskólanám, en þá bauðst henni

að flytja til Mílanó og gerast fyrirsæta. Sú dvöl varð

lengri en áætlað var því ástin bankaði uppá. Það fór svo

að hún lærði ítölsku og hóf störf við rekstur og þjónustu

á kaffihúsi og naut lífsins. ,,Kærasti minn vann við

tískuna í Mílanó en einn daginn fékk hann tilboð um að

opna tískuvöruverslun í Kuwait með ítölskum hágæða

kvenfatnaði. Að sjálfsögðu var slegið til og bjuggum

við þar í ár,” lýsir Kata. Hún segir að það hafi verið

stórkostlegur skóli. ,,Þar kynntist maður umburðarlyndi

og góðu samstarfi við heimamenn." Eftir Kuwait

dvölina ákvað Kata að söðla um en hún var samt ekki

tilbúin að flytja strax heim, þannig að hún skella sér í

tungumálaskóla til fæðingarlandsins.

Eftir fjögur ár erlendis var komin tími til að taka

upp þráðin að nýju við HÍ. Katrín lauk B.A. prófi í

uppeldis- og menntunarfræði, með aukagrein í

atvinnulífsfræði. Árið 1999 hóf hún störf hjá Flugfélagi

Íslands.

Page 25: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

25

Athafnakonan Katrín stofnaði svo netfyrirtækið

BRUDKAUP.IS árið 2002, sem þá var alveg nýtt á nálinni

á Íslandi. Þessi nýjung auðveldaði fólki að leita sér

upplýsinga um allt sem tengdist brúðkaupi, veisluhöldum,

mat og skreytingaum. Í framhaldinu stofnaði hún

Partýbúðina. Á þessum tíma var hún komin með stóra

fjölskyldu. ,,Þetta var brjálæðsilega skemmtilegur tími í

nokkur ár en fjölskyldan stækkaði og það koma að því að

selja og segja skilið við búðarreksturinn, en ég hélt þó

áfram með lítinn heildsölurekstur”. Á þessum tíma var

Kata hætt hjá Flugfélagi Íslands og farin að vinna sem

flugfreyja hjá Express. Þegar því ævintýri lauk var hún ekki

lengi að sækja aftur um innanlands. ,,Þetta er málið,” segir

Katrín. ,,Ég var þarna búin að prufa millilandaflugið og

var með flotta reynsla þaðan. En innanlandsflugið á hug

minn allan í dag. Mér finnst þetta skemmtilegt og krefjandi

starf. Ég gæti ekki hugsað mér lífið öðruvísi í dag. Starfið

bíður uppá óendanlega breytileika og fjölbreytni en á sama

tíma er það formfast og skipulagt, sem hentar litla

Þjóðverjanum í mér mjög vel," segir hún og hlær.

Hefur lagt stund á hin ýmsu fræði

Katrín tekur enn að sér verkefni tengdum

Partýbúðarárunum. ,,Ég sé um blöðruskreytingar fyrir

veislur og aðrar uppákomur. Sem dæmi, þá var það einn

föstudag fyrir stuttu þar sem ég var nýlent frá Akureyri að

ég brunaði á skemmtistaðinn Spot til að skreyta salinn þar

með nokkur hundruð bleikum, stórum blöðrum fyrir Pál

Óskar. Þetta krefst mikils skipulags, skal ég segja þér, "

segir Katrín brosandi. Frítíma sínum ver hún í

Vatnsdalnum þar sem fjölskyldan á aðsetur eða skreppur í

heimsókn til vina og vandamanna erlendis. ,,Ég er samt enn

að reyna að átta mig á hvað ég ætla að verða þegar ég verð

stór. Ég er tryggur stuðningsaðili endurmenntunardeild HÍ

þar sem ég hef lagt stund á hin ýmsu fræði, til dæmis

kynfræði, lögfræði og kennslufræði fullorðna," segir hún

að lokum.

,,Ég var þarna búin að

prufa millilandaflugið

og var með flotta

reynsla þaðan. En

innanlandsflugið á hug

minn allan í dag”

Page 26: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

26

Norræna flutningamannasambandið, NTF, eru

samtök um fimmtíu stéttarfélaga í Danmörku,

Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð í

starfsgreinum á sviði flutninga. Innan vébanda

aðildarsamtakanna eru um það bil 400.000

meðlimir. Aðildarfélög samtakanna eru á öllum

sviðum flutningageirans; sjóflutningar,

almenningssamgöngur, vöruflutningar, vinna á

olíuborpöllum, járnbrautarvinnu og flestu sem

tengist flugi, svo eitthvað sé nefnt. Tilgangur

samtakanna er meðal annars sá að berjast, með

sameiginlegum styrk, gegn hvers kyns félagslegum

undirboðum, efnahagsbrotastarfsemi og árásum á

heildarsamninga og vinnurétt. Með sameiginlegum

ákvörðunum og aðgerðum, vilja þau einnig stuðla

að stéttarfélagslegri samstöðu innan

Norðurlandanna og styrkja hana ef kemur til

vinnudeilna. Flugfreyjufélagið hefur leitað til

stéttarfélaga innan NTF í kjarabaráttum

síðastliðnna ára og fengið mikinn stuðninginn

þaðan.

NTF

Page 27: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

27

Nýtt orlofshús tekið í notkun

Eins og flestir vita var nýtt orlofshús tekið í notkun

síðasta vor. Það er í Lækjarbrekku í landi Syðri Brúar í

Grímsnesi. Húsið fór beint í leigu og má segja að það

hafi ekki staðið autt síðan. Auk þessa húss eru

Húsafells bústaðirnir einnig mikið sóttir þó minna um

háveturinn. Akureyraríbúðin er einnig vel sótt bæði að

sumri og vetri.

Í haust var tekið í notkun nýtt orlofskerfi, svipað

og hjá Staff og FIA. Á ffi.is síðunni okkar er hlekkur á

sumarhúsin og hvetjum við ykkur eindregið til að fara

þar inn og skoða bæði myndir og kynna ykkur

dagatalið. Þar eru að finna allar upplýsingar um húsin

og hægt er að sjá hvenær þau eru laus. Viðkomandi

pantar sér tímabil og greiðir í gegnum vefinn. Eftir

sem áður eru lyklar bæði að Lækjarbrekkunni og

Akureyri afhentir á skrifstofu. Að vetri er dagatalið

opið og gildir fyrstur kemur fyrstur fær en

sumarúthlutun verður á svipuðum tíma og áður í apríl.

Reynt er að miða við að allir félagsmenn hafið

fengið úthlutað sumarleyfum áður en úthlutun fer

fram. Að þessu sinni er ætlunin til, reynslu, að hafa

einnig páskana í punktaúthlutun og verður opnað fyrir

umsóknir í febrúar og verður endanleg dagsetning

auglýst með góðum fyrirvara. Húsafellsbústaðirnir

hafa nokkuð dalað í útleigu undanfarin ár. Það verður

að segjast að þeir eru orðnir frekar lúnir þótt reynt hafi

að endurnýja reglulega það sem þarf, svo sem húsgögn

og tæki, en sú spurning hefur komið upp hvort selja

eigi t.d annan bústaðinn og kaupa nýrri, ef til vill nær

bænum. Þetta eru að sjálfsögðu aðeins vangaveltur

sem þarf að leggja fyrir félagsmenn á fundi og skoða

vel.

Með orlofskveðju Orlofshúsanefnd FFÍ

Page 28: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

28

Hver kannast ekki við troðfulla flugfreyjutösku fulla af bæði

óþarfa dótarí sem og algjörum nauðsynjum að sjálfsögðu!

Við fengum að kíkja í töskuna hjá henni Andreu Sif Don einn

kaldan mánudagsmorgun, gæddum okkur á ljúffengu tei og

kíktum á nauðsynjarnar. Andrea starfar sem flugfreyja hjá

flugfélaginu WOW air. Andrea hóf ferilinn sinn sem

flugfreyja hjá Iceland Express árið 2008 og fór í sitt fyrsta

flug sunnudaginn 18.maí til Berlínar. Hún byrjaði hjá WOW

air 1.júní 2013 og líkar einstaklega vel við starfið enda segir

hún að þar séu allir jákvæðir, hressir og hafi einstaklega

mikla trú á félaginu. Hópurinn sem starfar hjá WOW er mjög

samstíga um að ná markmiðum fyrirtækisins og maður

skynjar það hvað starfsfólkið er að vinna vinnuna sína með

hjartanu. ,,Það er alltaf gaman að mæta í vinnuna. Á meðan

manni finnst það þá er maður að gera það rétta í lífinu”

Hvað finnst þér nauðsynlegt að hafa í veskinu?

Minnisbókin mín (þar er allt skrifað samviskusamlega niður),

bleika peysan (fengum hana í haust og hef varla farið úr henni

síðan!), Otrivin menthol nefsprey (verst er að vera stíflaður í

flugi og það ættum við flest að þekkja). Það eru ansi margar

flugfreyjur og flugþjónar hjá WOW sem taka með sér Amino

orkuduftið í flug og er ég alveg með í því æði, bjargar manni

oft þegar vaknað er kl 4:00 ! Teljarinn er alltaf með í

farteskinu, c-vítamín, Babylibs varasalvi og mynta (því

enginn vill andfúla flugfreyju, það er bara þannig).

Handáburður ætti kannski að vera númer eitt á listanum hjá

mér yfir það sem ég get ekki verið án. Bláa Lóns

handáburðurinn hefur reynst mér vel upp á síðkastið. Í neyð

er svo fínt að hafa núðlur, hafragraut og bók í töskunni.

Við þökkum Andreu innilega fyrir að leyfa okkur að kíkja til

sín.

Kíkt í flugfreyjutöskuna

Page 29: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

29

“Hvor gammel er du ?”

Á heimleið frá Osló fyrir ekki svo löngu, var

ég að fara með barnamatinn. Frekar aftarlega

sátu ákaflega fallegar og nettar systur,

greinilega af indverskum uppruna. Yngri

systirin átti pantaðan mat, en sú eldri ekki,

enda leit hún út fyrir að vera á

fermingaraldri. En þar sem ég átti auka mat,

vildi ég endilega koma honum út. Ákvað því

að spyrja hana að aldri og ætlaði svo að bæta

því við að barnamatur væri bara fyrir 2 til 11

ára, en ég ætti mat ef hún kærði sig um. Ég

byrjaði á norsku: Hvor gammel er du? Ekkert

svar, fermingarstúlkan horfði bara undrandi á

mig. Ég prófaði á ensku og brosti. Þá tók hún

loks við sér og stundi: Trettisju!!! Ég leitaði

árangurslaust að gatinu í gólfinu. Stundi svo

loks upp að hún liti ansi vel út, áður en ég

fattaði að mann langar kannski ekkert að líta

út eins og 13 ára þegar maður er 37!!

Svo klár að reikna

Eftir tvo áratugi í fluginu er ég orðin frekar

lunkin við að reikna út flugstundir. Veit t.d. að

3:45 plús 2:15 eru 6 klukkustundir. Á Spáni í

fyrra var ég í kaupfélaginu þeirra að ná mér í

tvær rauðvínsflöskur. Hvor um sig kostaði

2.34 evrur. Ég skellti 5 evru seðli sem og 8

centum á borðið. Afgreiðsludaman tók bara

seðilinn, en skildi smámyntina eftir og bætti

við hana einum 32 centum! Ég varð afar

undrandi þangað til eiginmaðurinn minn benti

mér á að 2 x 2.34 væri bara 4.68

evrur. Flugstundareikningurinn á sko ekki

alltaf við.

Þórný Snædal Húnsdóttir, Icelandair

Skemmtilegar

sögur úr fluginu

Page 30: Skýjum ofar - fréttablað FFÍ - 1. tbl

30

Vala Oddsdóttir

Flugfélag Íslands

Kristin Thoroddsen

Icelandair

Klara Arndal

Icelandair

Björg Þorsteinsdóttir

Icelandair

Dagný Björk Erlingsdóttir

WOW air

Kveðja frá

ritstjórninni

Það er vel við hæfi í tilefni 60 ára afmælis

Flugfreyjufélags Íslands að endurvekja

fréttablað félagsins sem ekki hefur verið

gefið út um nokkurt skeið. Blaðið er gefið

út í formi netblaðs og verður það

aðgengilegt á heimasíðu FFÍ þar sem hægt

er að hlaða því niður. Blaðið verður gefið

út með reglulegu millibili ef áhugi verður

fyrir hendi.

FFÍ er ábyrgðaraðili blaðsins en að

blaðinu stöndum við, nokkrar flugfreyjur sem

störfum hjá Icelandair, WOW air og Flugfélagi

Íslands. Það verða vissir fastir liðir í

fréttablaðinu en allar hugmyndir um efni eru

vel þegnar, hvort sem það eru greinar tengdar

fluginu eða hugmyndir af viðmælendum eða

málefnum. Endilega sendið okkur tölvupóst á

[email protected].

Við völdum þetta fína nafn á blaðið

„SKÝJUM OFAR“, því það lýsir okkur öllum

svo vel. Það er von okkar að þetta fyrsta

fréttabréf verði ykkur skemmtileg lesning.