11
Ritstjóri: Unnsteinn Jóhannsson. [email protected] | Ábm: Hermann Sigurðsson | 1.tbl. 2013 1 Vetraráskorunin Crean er hafin! Vetrarfjallamenska með alþjóðlegu ívafi. Bandalag íslenskra skáta, Slysavarn- arfélagið Landsbjörg og Bandalag írskra skáta buðu í annað sinn upp á sameiginlegan, alþjóðlegan viðburð fyrir skáta og ungliða Landsbjargar á dróttskátaaldrinum (13 – 15 ára). Verkefnið er krefjandi útivistarævin- týri hóps sem samanstendur af ís- lenskum og írskum skátum og unglið- um frá Landsbjörgu. Á sunnudaginn 10. febrúar hófst Vetraráskor- unin þegar um 20 írskir skátar komu hingað til lands til að sækja viðburðinn. Hópur af samtals um 40 ungmennum kom sér fyrir á Útilífsmið- stöðina á Úlfljótsvatni, Hengilsvæðinu og Hellis- heiðinni þar sem krefjandi og spennandi verk- efni biðu þeirra sem tóku þátt. Hundasleðar og Vilborg Arnarsdóttir Þáttakendur fengu meðal annars að spreyta sig á gönguferðum, sigi og klifri, bátsferðir á Landsbjargarbátum, rathlaup, tjalda og gista í tjöldum um hávetur, skyndihjálp og rötun. Einnig hafa þau fengið fyrirlesara til að mynda frá Vilborgu Örnu Gissurardóttur pólfara, Ívari fjallaleiðsögumanni og fengið kynningu á hundasleðafélagi Íslands. Til að taka þátt í Crean hafa þáttakendur tekið þátt í undirbúnings námskeiðum yfir tvær helgar og ýmis verkefni hafa verið lögð fyrir hópinn. En einnig hefur íslenski hópurinn verið duglegur að hittast utan þess og hönnuðu til að mynda peysu fyrir Crean. Skemmta sér vel Þáttakendur hafa náð vel saman, eru búin að mynda vinabönd og hefur hópurinn sjálfur verið að hittast og skipuleggja ýmislegt þar á meðal að hanna Crean peysur. Markmiðið er að að loknu þessu ævintýri verði skátarnir og ungliðarnir betur í stakk búnir til að takast á við útivist að vetri og sumri hvar sem er í heiminum. Það sem skátarnir læra er meðal annars fjölbreytt þjálfun í vetrarfjallamennsku, rötun & öryggisatriðum. En einnig er markmiðið að brúa bil milli menningaheima og vinna með Landsbjörgu. Þeir sem taka þátt í Crean mynda vinaskap sem endist en hópurinn frá því í fyrra hefur verið í miklu samskiptum eftir viðburðinn sjálfan. Crean nær því að sameina skemmtun, athafnarnám og ögranir, en það er einmitt það sem skátastarf snýst um. Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari

Skátamál 1. tbl 2013

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Skátamál 2013

Citation preview

Page 1: Skátamál 1. tbl 2013

Rit

stjó

ri: U

nnst

einn

Jóh

anns

son.

unn

stei

nn@

skat

ar.is

| Á

bm: H

erm

ann

Sigu

rðss

on |

1.

tbl.

201

3

1

Vetraráskorunin Crean er hafin!

Vetrarfjallamenska með alþjóðlegu ívafi.

Bandalag íslenskra skáta, Slysavarn-arfélagið Landsbjörg og Bandalag írskra skáta buðu í annað sinn upp á sameiginlegan, alþjóðlegan viðburð fyrir skáta og ungliða Landsbjargar á dróttskátaaldrinum (13 – 15 ára). Verkefnið er krefjandi útivistarævin-týri hóps sem samanstendur af ís-lenskum og írskum skátum og unglið-um frá Landsbjörgu.

Á sunnudaginn 10. febrúar hófst Vetraráskor-unin þegar um 20 írskir skátar komu hingað til lands til að sækja viðburðinn. Hópur af samtals um 40 ungmennum kom sér fyrir á Útilífsmið-stöðina á Úlfljótsvatni, Hengilsvæðinu og Hellis-heiðinni þar sem krefjandi og spennandi verk-efni biðu þeirra sem tóku þátt.

Hundasleðar og Vilborg ArnarsdóttirÞáttakendur fengu meðal annars að spreyta sig á gönguferðum, sigi og klifri, bátsferðir á Landsbjargarbátum, rathlaup, tjalda og gista í tjöldum um hávetur, skyndihjálp og rötun.

Einnig hafa þau fengið fyrirlesara til að mynda frá Vilborgu Örnu Gissurardóttur pólfara, Ívari fjallaleiðsögumanni og fengið kynningu á hundasleðafélagi Íslands.

Til að taka þátt í Crean hafa þáttakendur tekið þátt í undirbúnings námskeiðum yfir tvær helgar og ýmis verkefni hafa verið lögð fyrir hópinn. En einnig hefur íslenski hópurinn verið duglegur að hittast utan þess og hönnuðu til að mynda peysu fyrir Crean.

Skemmta sér vel Þáttakendur hafa náð vel saman, eru búin að mynda vinabönd og hefur hópurinn sjálfur verið að hittast og skipuleggja ýmislegt þar á meðal að hanna Crean peysur. Markmiðið er að að loknu þessu ævintýri verði skátarnir og ungliðarnir betur í stakk búnir til að takast á við útivist að vetri og sumri hvar sem er í heiminum. Það sem skátarnir læra er meðal annars fjölbreytt þjálfun í vetrarfjallamennsku, rötun & öryggisatriðum. En einnig er markmiðið að brúa bil milli menningaheima og vinna með Landsbjörgu.

Þeir sem taka þátt í Crean mynda vinaskap sem endist en hópurinn frá því í fyrra hefur verið í miklu samskiptum eftir viðburðinn sjálfan. Crean nær því að sameina skemmtun, athafnarnám og ögranir, en það er einmitt það sem skátastarf snýst um.

Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari

Page 2: Skátamál 1. tbl 2013

Skátamiðstöðin hefur hafið þróun á nýjum inn-leiðingarnámskeiðum til að styðja við innleið-ingu nýja starfsgrunnsins í áföngum. Þau eru hugsuð til að fylgja eftir fyrri innleiðingarnám-skeiðum, þar sem vel var farið yfir heildarhug-mynda- og aðferðafræði starfsgrunnsins. Þessi nýja námskeiðsröð er hugsuð sem ódýrara og aðgengilegra form fræðslu sem félögin geta þá nýtt sér á heimavelli eitt eða fleiri saman. Þau eru einnig styttri, fjögurra klukkustunda kvöld-námskeið með tveggja klukkustunda eftirfylgni, nokkrum vikum eða mánuðum eftir námskeið-kvöldið sjálft, allt eftir þörfum og óskum hvers félags. Fyrsta námskeiðið í námskeiðsröðinni er um uppbyggingu skátasveitarinnar og það hvernig

flokkakerfi verði komið á í fálka- og drótt-skátasveitum félaganna. Leiðbeinendur á nám-skeiðinu eru Gísli Örn Bragason og Ingveldur Ævarsdóttir, starfandi skátaforingjar sem hafa náð frábærum árangri í því að koma á flokka-kerfi í sveitarstarfi. Seinni námskeið verða um táknræna umgjörð skátastarfs og gildagrunn, dagskrárhringinn, skátaaðferðina, fjölgun fullorðinna í skátastarfi, sérkunnáttukerfið og áfangamarkmið og þroskaferil skátans. Þau verða auglýst síðar en hugmyndin er að í fram-tíðinni geti hvert félag sótt sér námskeið á því stigi sem þau eru í innleiðingarferlinu. Byrj-unin lofar góðu og eru þrjú félög búin að nýta sér námskeiðstilboðið fyrir sveitarforingja sína, starfsmenn og stjórnir. Frekari upplýsingar um námskeiðin er að fá í Skátamiðstöðinni.

Uppbygging skátasveitarinnar: Flokkakerfið

Ný innleiðingarnámskeiðsröð: Innleiðing nýja starfsgrunnsins í 7 áföngum

Gleði og grín á flokkakerfisnámskeiði í Fossbúaheimilinu þar sem Fossbúar buðu Strók frá Hveragerði í heimsókn

Leiðbeinendurnir Gísli og Inga í Landnemaheimilinu

2

Page 3: Skátamál 1. tbl 2013

3

Gilwell – leiðtogaþjálfun gengur vel

Síðan síðastliðið sumar þegar Gilwell – leiðtoga-þjálfun hófst með nýju sniði hafa um 40 manns byrjað þjálfunina og er áætlað að fyrsti hópur-inn útskrifist í maí nú í vor. Áfangakerfið hefur gefist vel t.d. vegna þess að hægt er að raða niður áföngunum bæði saman eða hverjum fyrir sig eftir þörfum. Þannig verður t.a.m. 3., 4., 5. skref boðið saman á löngu 5 daga helgarnám-skeiði á Úlfljótsvatni í sumar en yfir veturinn eru

skrefin rekin í sitt hvoru lagi sem dags- og/eða helgarnámskeið. Þetta er spennandi þróunar-vinna sem mun vonandi skila fleira fólki inn í öll þau spennandi verkefni sem skátahreyfingin á fyrir höndum í sínu góða starfi að ala upp sífellt fleiri sjálfstæða, virka og ábyrga einstaklinga sem eru leiðtogar í eigin lífi. Nema hvað. Við erum á góðri leið.

Gleði á Gilwell

Page 4: Skátamál 1. tbl 2013

4

Nemar frá Tómstundafræði Háskóla Íslands kynna sér skátastarf

Árleg heimsókn tómstundafræðinema Háskóla Íslands tókst vel og sögðust nemarnir almennt vera hissa á því hvað skátastarf sé vel skipu-lagt og úthugsað uppeldiskerfi. Þeir prófuðu að vinna í flokkum og skemmtu sér vel við að finna upp flokkshróp á milli fyrirlestra um nýja

starfsgrunninn. Tinni Kári Jóhannesson, tóm-stundafræðinemi hefur einnig verið í vettvangs-námi í Skátamiðstöðinni að kynna sér skátastarf og hugmyndafræðina að baki þess. Það er mjög ánægjulegt að sjá hina jákvæðu þróun í sam-skiptum Háskóla Íslands og Skátanna.

Tinni í Skátamiðstöðinni

Nemarnir unnu í flokkum á kynningunni

TÓMSTUNDA- OG FÉLAGSMÁLAFRÆÐI

Page 5: Skátamál 1. tbl 2013

5

Nemar frá Tómstundafræði Háskóla Íslands kynna sérskátastarfTÓMSTUNDA- OG FÉLAGSMÁLAFRÆÐI

TÓMSTUNDA- OG FÉLAGSMÁLAFRÆÐI

Page 6: Skátamál 1. tbl 2013

6

Epli á dag kemur skapinu í lag!Þetta er gamall málsháttur sem á þó afskaplega vel við í nútíma þjóðfélagi. Þetta er ekki grein um heilbrigt mataræði og hreyfingu heldur lausn fyrir foringja sem eru jafnvel orðnir ráðþrota yfir því hvernig þeir eiga að ná athygli hjá skátunum sínum. Ég er búin að vera drekaskátaforingi síðan „sautjánhundruð og súrkál“ og í haust innritað-ist hjá mér í drekaskátana í Mosverjum öflugur og skemmtilegur hópur. En ég furðaði mig á því af hverju ég náði illa athygli hjá hópnum sem var á fundi á milli kl. 16 og 17. Taldi mig nú hafa það góða reynslu að ég ætti alveg að geta þetta eins og öll hin árin.... Haustið leið og enn var ég ekki búin að ná at-hyglinni næginlega vel til að vera ánægð með árangurinn og ég fór því að pæla í því hvað or-sakaði athyglisleysið hjá hópnum. Allt í einu datt mér í hug hvort það gæti ein-faldlega verið þannig að skátarnir væru svangir eða blóðsykurinn þeirra færi dvínandi á þessum tíma. Ég tók því ákvörðun um að gera tilraun

með að bjóða upp á niðurskorin epli í upphaf næsta fundar. Tveim dögum seinna frétti ég af öðrum þaulreyndum drekaskátaforingja sem hafði lent í sömu stöðu og ég. Hún notaði þá aðferð að bjóða hópnum upp á brauðsneið með smjöri.Árangurinn lét ekki á sér standa..... breytingin á hópnum var ótrúleg. Einstaklingar sem fram að þessu gátu aðeins haldið athyglinni á „gatinu á sokknum“ voru allt í einu farnir að hlusta, taka þátt og vera með af fullri athygli. Ég er búin að prófa þetta með tvo mismunandi hópa, annars vegar drekaskáta og hins vegar fál-kaskátadrengi. Þetta svínvirkar á báðum aldurs-bilunum. Eplastundin er ekki ónýt stund. Hún er frábær til innlagnar á upplýsingum til skátanna. Auk þess sem við kennum þeim hollustu og heilbrigt mataræði.

Gangi ykkur vel!Dagga drekatemjari í Mosverjum

Hópurinn Rödd ungra skáta var stofnaður með það markmið að fjalla um og skoða tækifæri ungs fólk til þess að hafa áhrif innan skátahreyf-ingarinnar, bæði í sínum skátafélögum og hjá bandalaginu. Hópurinn komst að niðurstöðu um það að skapa þyrfti vettvang þar sem ungir skátar geta haft raunveruleg áhrif á málefni sem snerta þeirra skátastarf. Eftir að hafa rætt málið og ráðfært okkur við skáta á aldrinum 16-25 ára ákváðum við að koma því til leiðar að stofnað

yrði nýtt fastaráð innan BÍS, Ungmennaráð, sem hefði það megin hlutverk að stuðla að því að þessi aldurshópur ætti sér málsvara innan stjórnar. Til þess að koma þessu til leiðar þarf að breyta lögum BÍS, þar sem þau tilgreina fjölda ráða og hlutverk þeirra. Staðreyndin er sú að flestar ákvarðanir sem tengjast reglulegri starfsemi skátahreyfingar-innar eru teknar af stjórn BÍS. Það ætti því að vera hið eðlilegasta mál, í æskulýðshreyfingu, að stjórn hefði sterka tengingu við grasrótina í gegnum aðila sem eru, eða hafa nýlega verið í virku starfi. Þannig stuðlum við að ennþá öfl-ugra starfi með áhugasvið og rödd skátanna okkar að leiðarljósi.

Við hvetjum alla til þess að kynna sér lagabreyt-ingartillöguna og hlökkum til að ræða þetta við ykkur á Skátaþingi 2013.

Vinnuhópurinn Rödd ungra skáta

Ungmennaráð

Page 7: Skátamál 1. tbl 2013

7

Viðhaldsátak hófst í KSÚ í ársbyrjun en hitaveitu-ofnar höfðu verið settir upp í byrjun desember í svefnálmunni. Herbergin í norðurhluta svefn-álmu voru pússuð og lökkuð, allar kojur skrúfaðar í sundur, pússaðar og lakkaðar. Í lok janúar var hafist handa við að skipta um glugga á suðurhlið svefnálmunnar og í framhaldinu var síðan málað og allt gert fínt og nýlakkaðar kojurnar settar upp aftur.Myndir segja meira en mörg orð – ég vona að meðfylgjandi myndir sýni hvernig herbergin í KSÍ líta út núna.

Gangurinn í svefnálmunni verður síðan tekinn í gegn – það verk er hafið. Þar næst taka við um-skipti á dyraumbúnaði inn í svefnálmuna og síðan verður veggurinn við útidyrnar lagfærður.Laugardaginn 16. febrúar mætir hópur sjálf-boðaliða austur – sagt verður seinna frá þeirri heimsókn og þeim viðhalds- og endurbótafram-kvæmdum sem eru í burðarliðnum.

Örfréttir frá Úlfljótsvatni

Page 8: Skátamál 1. tbl 2013

8

Niðurstöður rannsóknar hjá bresku skátasamtökunum benda til að allt að 77% þeirra sem ekki eru sjálfboðaliðar mundu veita aðstoð ef þeir væru beðnir beint. Til að ná uppeldismarkmiðum sínum þarf skátahreyfingin góðar leiðir til að ná og halda í nógu marga hæfa, fullorðna sjálf-boðaliða. Þet ta á jafnt við um sjálfboðastörf sem snúa beint að börnum og ungmennum sem og rekstur og önnur verkefni í skáta-starfi.

Af hverju vill fólk gerast sjálfboða-liðar?Algengasta ástæðan fyrir því að fólk vill gerast sjálfboðaliðar í Skátunum er áhug-inn á að láta gott af sér leiða fyrir sam-félagið en nokkrar fleiri ástæður eru til dæmis:

• Náin tengsl og vinskapur myndast meðal sjálfboðaliða

• Taka þátt í ævintýrinu

• Fá að hafa jákvæð áhrif á ungt fólk

• Auka leiðtogafærni sína

• Öðlast nýja færni sem nýtist annars staðar í lífinu

Skortur hefur verið á fullorðnum sjálf-boðaliðum í skátahreyfingunni, jafnvel upp að því marki að Alþjóðahreyfing skáta hefur síðustu 20 ár unnið markvisst að til-lögum að endurbótum varðandi umgjörð fullorðinna í skátastarfi og hvetur skáta-bandalög um allan heim til að taka upp nýja stefnu um „mannauðsstjórnun“.Skátafélög þurfa samkvæmt Alþjóða-hreyfingunni að skapa skýra stefnu um

„mannauðsstjórnun“ og er það meðal ann-arra hlutverka Bandalags íslenskra skáta að vera hverju skátafélagi á Íslandi innan handar við það verkefni. Nokkrar hindranir gegn því að fullorðnir bjóði sig fram til sjálfboðastarfa hjá Skát-unum eru:

• Sjálfboðaliðarnir vita ekki að þeir geti orðið að liði

• Skátafélagið hefur ekki skýra stefnu um sjálfboðastarf og hvernig á að taka á móti sjálfboðaliðanum

• Sjálfboðaliðarnir halda að allt sjálf-boðastarf sé til lengri tíma

• Þeir vita ekki um tímabundin, stutt verkefni (t.d. bara ein helgarútilega eða eitt landsmót)

• Þeir vilja ekki starfa með börnum og ungu fólki og vita ekki af öðrum verkefnum í Skátunum svo sem rekstri, fjáröflun, viðhaldi húsnæðis og útivistarsvæða o.fl.

• Þeir þora ekki að starfa með börnum og ungu fólki og vita ekki af leiðtogaþjálfuninni sem er í boði hjá Skátunum fyrir hvern þann sem þarf á henni að halda

• Þeir halda að aðeins skátar geti verið sjálfboðaliðar hjá Skátunum

Tillaga WOSMAllar þessar upplýsingar geta skátafélög nýtt sér til að skoða starf sitt. Skátafélög þurfa að vita hvers þau þarfnast. Þau þurfa að hafa góðan lista yfir hlutverk sem þarf að manna, verklýsingu fyrir hvert hlutverk, lista yfir færni sem kemur að gagni við að sinna því, ákveðið verklag við að bjóða hvern einasta sjálfboðaliða velkominn í hópinn þannig að honum finnist hann til-heyra, gera gagnkvæmt samkomulag við hvern og einn, viðurkenna störf sjálfboða-liðanna og stunda reglulega endurskoðun. Þetta er tillaga Alþjóðahreyfingar skáta WOSM að verkferli til að fjölga fullorðn-um sjálfboðaliðum og halda þeim lengur í starfi, sem þó nokkur skátabandalög um heiminn hafa þegar gert að sinni. Meðal þeirra skilaboða sem Skátarnir þ.m.t. öll skátafélög - þurfa að gefa út á við eru:

• Skátahreyfingin er kraftmikil upp-eldishreyfing

• Skátastarf býður upp á ævintýri, skemmtun og þroska

• Skátastarf býður upp á alhliða þroska fyrir börn og ungmenni á öllum sviðum lífsins

• Sjálfboðaliðinn er hluti af hópi

• Skátafélagið býður upp á sveigjan-leika í sjálfboðastarfi

• Ekki er krafist reynslu af skátastarfi til að gerast sjálfboðaliði heldur er öll nauðsynleg þjálfun í boði hjá skátafélaginu og Bandalagi ís-lenskra skáta

• Samfélagið viðurkennir þá þjálfun og reynslu sem sjálfboðaliðar öðlast í starfi

Ótal leiðir eru til að safna nöfnum á nafna-lista yfir allt árið, sem skátafélagið geymir hjá sér. Þegar vantar fullorðinn einstakling í tiltekið hlutverk er valið af nafnalistanum og haft samband við viðkomandi og við tekur ofangreint verkferli.

Skátarnir þurfa að láta vita af sérGóð umræða sem nefnd er hér á undan og góðar tillögur gera þó ekki gagn nema Skátarnir láti vita af sér! Fullorðnir sem ekki vita af skátastarfi á svæðinu vita ekki að þeir geta gert gagn. Langstærsti markhópurinn er foreldrar en jafnvel þeir vita ekki endilega að þeir geta gert gagn, jafnvel aðeins eina og eina kvöldstund eða eina sveitar- eða félagsútilegu. Það þarf að láta foreldra vita um skátastarfið á svæð-inu og að það sé líka í þeirra þágu að það sé öflugt. Skátafélagið þarf að sýna ákveð-ið frumkvæði, gefa upplýsingar um hvað felst í skátastarfi, kynna skátaaðferðina til sögunnar og spyrja foreldra hvort þeir vilji gera gagn og þá í hvaða formi helst. Bandalag íslenskra skáta vinnur um þessar mundir að gerð handbókar fyrir mögulegan „mannauðsstjóra“ skátafé-laga. Hugmyndin er að „mannauðsstjór-inn“ sé einfaldlega fullorðinn sjálfboða-liði í skátastarfi sem sér um nafnalista mögulegra sjálfboðaliða og heldur utan um ofangreint verkferli. Hann getur verið sérstakur sjálfboðaliði, einstaklingur í stjórn skátafélagsins eða foreldrafélags þess, allt eftir stærð og eðli hvers félags. Handbókin er hagnýt og einföld til að skátafélög geti nýtt sér hana við að skapa sér eigin stefnu um starf sjálfboðaliða.

Ása Sigurlaug Harðardóttir

Sjálfboðaliðar í skátastarfi

Page 9: Skátamál 1. tbl 2013

9

EuroMiniJam eru “smáþjóðaleikar” skátaenþarmætasttveirflokkarfráhverri smáþjóð evrópu og taka þátt í skemmtilegum skátaþrautum. Meðal annars sólarhringshike, stórri þríþraut og tugþraut (póstaleik).

Fyrsta mótið var haldið á Íslandi 2010 en þá tóku 7 smáþjóðir þátt (www.eurominijam.com).

Í sumar verður EuroMiniJam haldið í annað sinn. Mun það fara fram í Liechtenstein (http://www.euro-mini-jam.li/) dagana 27. júlí til 2. ágúst.

FyrirhöndÍslandsmunutveirflokkartakaþátt.Skátaflokkarnirsemtakaþátt eru frá Mosverjum og Ægisbúum.

Þemað í ár er “Dwarfs United - United we camp” sem vísar til stærðar þjóð-anna sem taka þátt.

Það verður gaman að fá að fylgjast meðskátaflokkunumtakastáviðþauverkefni sem fyrir þá verða lagðir.

Mun starfsfólk BÍS að sjálfsögðu senda fréttir frá mótinu á heimasíðu okkar og facebook síðunni okkar.

Euro Mini Jam 2013

Page 10: Skátamál 1. tbl 2013

10

Skátar sem fóru saman á World Moot í Kandersteg 1992 hittust á ný í Skátamiðstöðinni eftir 20 ár!

Laugardaginn 19. janúar var haldið World Moot 1992 reunion í Skátamiðstöðinni. Kvöldið heppnaðist einstaklega vel og var mikil gleði, söngur og spjall langt fram eftir kvöldi. Starfs-maður í Skátamiðstöðinni kallaði hópinn saman með góðri aðstoð nokkurra í hópnum, en undirbúningur og framkvæmd kvöldsins var Gilwell – verkefni hennar á stjórnunarlínu nýju Gilwell leiðtogaþjálfunarinnar. Hópurinn ætlar að halda áfram að vera í sambandi í gegnum fésbókina. Margir í hópnum eru virkir í skáta-starfi enn þann dag í dag, en lengra síðan aðrir skemmtu sér saman í góðra skátavina hópi. Það verður spennandi að sjá hvort við sjáum þá ekki fljótlega aftur í skátastarfi, því eitt sinn skáti

ávallt skáti, ekki satt? Gömlum skátahópum sem langar að rifja upp gömul og góð kynni er bent á að hafa samband við Skátamiðstöðina. Hver veit nema þinn gamli skátahópur hittist aftur?

World Moot - 20 ára reunion World Moot farar í fjallasal í Kandersteg 1992

Skemmtilegir munir frá ferðinni – matarmiðar, sérmerkt úr, appelsínugulir sjóhatta og margt fleira skemmtileg fannst í geymslum þátttakenda.

Skátastrákar gæða sér á hlaðborði af girnilegum veitingum sem allir slógu saman í.

Alltaf stuð þar sem skátar koma saman

Page 11: Skátamál 1. tbl 2013

11www.jamboree.is • www.skatamot.is

Landsmót 20.-27. júlí 2014 á Akureyri