29
Samkeppnisstaða Íslands Íslensk haglýsing Ásgeir Jónsson

Samkeppnisstaða Íslands

  • Upload
    janae

  • View
    54

  • Download
    2

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Samkeppnisstaða Íslands. Íslensk haglýsing Ásgeir Jónsson. Lögmálið um eitt verð. Verðmunur á skiptanlegum vörum ræðst af kostnaði við högnunarviðskipti á milli svæða eða þeim takmörkunum sem lagðar eru á slík viðskipti. Ef leiðrétt er fyrir... ...flutnings- og viðskiptakostnaði - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Samkeppnisstaða Íslands

Samkeppnisstaða Íslands

Íslensk haglýsingÁsgeir Jónsson

Page 2: Samkeppnisstaða Íslands

Lögmálið um eitt verð• Verðmunur á skiptanlegum vörum ræðst af kostnaði við

högnunarviðskipti á milli svæða eða þeim takmörkunum sem lagðar eru á slík viðskipti.

• Ef leiðrétt er fyrir... – ...flutnings- og viðskiptakostnaði – ...sköttum, tollum og opinberum gjöldum...

• ...ætti ekki að vera verðmunur á milli svæða þegar litið er til langs tíma þegar skipt hefur verið á milli gjaldmiðla.

• Fyrr eða síðar kemur að því að hagsýnir menn sjá sér hag í því að kaupa vörur þar sem þær er ódýrar og selja þær þar sem verð er hærra.

ErlendisHeima EPP

Page 3: Samkeppnisstaða Íslands

Lögmálið er brotið• Margir þættir er ráða verðmyndun á vörum eru staðbundnir og

ónæmir fyrir högnunarviðskiptum.

• Þættir eins og launastig, ríkisumsvif, stærð markaðar, náttúruauðlindir, hagstjórn og löggjöf.

• Verð banana á stórmarkaði ekki aðeins af verði ávaxtarins sjálfs í innkaupum heldur koma aðrir þættir einnig við sögu, s.s. leiga, laun og lánsfjármögnun, sem ráða álagningu verslunarfyrirtækisins.

• Markaðsaðstæður skipta miklu á hverjum á hverjum stað.

• Töluverður munur á verði samskonar vara í IKEA verslunum víða um heiminn sem ekki er hægt að skýra með neinum öðrum hætti en mismunandi samkeppnisaðstæðum, sjá Haskel og Wolf (2001) og Micheal M. Knetter (1989, 1993)

Page 4: Samkeppnisstaða Íslands

Verðlag innan OECD (Bandaríkin = 100) í

september 2003, Heimild: OECD

0

20

40

60

80

100

120

140

160

Japa

nSv

iss

Nor

egur

Dan

mör

kSv

íþjó

ðÍr

land

Ísla

ndFi

nnla

ndH

olla

ndB

retl

and

Frak

klan

dB

elgí

aÞý

skal

and

Aus

turr

íki

Ban

darí

kin

Ítal

íaÁ

stra

lía

Kan

ada

Spán

nG

rikk

land

Nýj

a Sj

álan

dPo

rtúg

alK

órea

Tyr

klan

dM

exík

óU

ngve

rjal

anT

ékkl

and

Póll

and

Slóv

akía

Page 5: Samkeppnisstaða Íslands

Frávik frá algeru jafnvirði verðs innan OECD

ef miðað er við Bandaríkin sem grunnpunkt.

-80%

-60%

-40%

-20%

0%

20%

40%

60%

Japa

nSv

iss

Nor

egur

Dan

mör

kSv

íþjó

ðÍr

land

Ísla

ndFi

nnla

ndH

olla

ndB

retl

and

Frak

klan

dB

elgí

aÞý

skal

and

Aus

turr

íki

Ban

darí

kin

Ítal

íaÁ

stra

lía

Kan

ada

Spán

nG

rikk

land

Nýj

a Sj

álan

dPo

rtúg

alK

órea

Tyr

klan

dM

exík

óU

ngve

rjal

anT

ékkl

and

Póll

and

Slóv

akía

Page 6: Samkeppnisstaða Íslands

Ástæður fyrir verðmun á milli landa

• Náttúruauðlindir. Aðgangur að náttúruauðlindum getur lækkað framleiðslukostnað.• Stærð markaðar. Stærri markaðir njóta stærðarhagkvæmni. Smæðin getur einnig

skapað nauðarval á milli stærðarhagkvæmni og fákeppni annars vegar og stærðaróhagræðis og samkeppni hins vegar. Í báðum tilvikum sitja neytendur uppi með hærra vöruverð.

• Launastig. Há laun hækka kostnað við framleiðslu. Há laun þýða einnig að launþegar geta látið meira eftir sér og eru ekki eins líklegir til að setja hátt verð fyrir sig og þeir sem minna bera úr býtum – kaupmáttur er meiri. Hátt launastig hefur því bæði áhrif á framleiðslukostnað og eftirspurn eftir vörum og þjónustu.

• Löggjöf. Stjórnvöld geta með lögum og reglum haft áhrif á verðmyndun á markaði. • Hagstjórn. Stjórn efnahagsmála getur ráðið miklu um verðþróun á markaði.

Stjórnvöld í einu landi geta t.d. ákveðið að leggja ofurkapp á stöðugt og lágt verðlag, en í öðru geta þau lagt meira upp úr litlu atvinnuleysi.

• Ríkisumsvif. Mikil ríkisafskipti geta dregið úr samkeppni á markaði og valdið því að verð verður hærra en ella. Að auki hefur rekstur ríkisfyrirtækja oft þótt óhagkvæmur og þjónusta þeirra of dýr.

Page 7: Samkeppnisstaða Íslands

Verðlag hærra á Íslandi• Lega Íslands og fámenni hefur löngum markað utanríkisviðskipti

landsins og valdið mikilli sérhæfingu, einkanlega í útflutningi. • Landsmenn flytja inn mest af neysluvörum sínum, ef

landbúnaðarvörur eru undanskildar, en flytja út fisk, ál og ferðamannaþjónustu.

• Önnur framleiðsla hérlendis er að mestu leyti í óskiptanlegum vörum (e. non-tradables) sem ekki er hægt að flytja á milli landa, s.s. þjónusta og orkuframleiðsla.

• Landfræðileg einangrun landsins gerir það að verkum að dýrt er að flytja vörur til landsins og skortur á samkeppni á mörgum mörkuðum hefur auðveldað fyrirtækjum að halda uppi verði á innflutningsvörum.

• Smæð íslenska markaðsins leggst á eina sveif með landfræðilegri einangrun til þess að hækka verðlag hér innanlands, en smæðin gerir það verkum að erfiðara er en ella að koma við vélvæðingu og stærðarhagkvæmni á mörgum sviðum.

Page 8: Samkeppnisstaða Íslands

Smæðin• Smæðin getur skapað nauðarval á milli stærðarhagkvæmni

og fákeppni annars vegar en stærðaróhagræðis og samkeppni hins vegar. Í báðum tilvikum sitja neytendur uppi með hærra vöruverð.

• Af þessum sökum er eðlilegt að verðlag hérlendis sé hærra en á hinum stærri og þéttari markaðssvæðum á meginlöndunum tveim fyrir austan og vestan.

• Á síðustu árum hefur þó orðið hreyfing í átt til aukinnar samkeppni í kjölfar þess að íslenskt efnahagslíf hefur opnast meira fyrir erlendum viðskiptum, bæði hvað varðar vörur og fjármagn, auk þess sem íslensk hagstjórn hefur færst í það horf er þekkist í öðrum þróuðum ríkjum.

• Af þeim sökum hefur því kerfisbundinn munur á verðlagi hér og erlendis minnkað og verð á mörgum vörutegundum nálgast það sem tíðkast í mörgum nágrannalöndum okkar.

Page 9: Samkeppnisstaða Íslands

Landsframleiðsla á mann (y-ás) og verðlag

einkaneyslu (x-ás) innan OECD.

y = 19,257e0,0154x

R2 = 0,7885

0

20

40

60

80

100

120

140

160

180

0 20 40 60 80 100 120 140 160

Ísland

Page 10: Samkeppnisstaða Íslands

Hlutfallslegt verðlag nokkurra vöruflokka árið

2001 – 15 ríki Evrópusambandsins = 100

0

50

100

150

200Brauð og kornvörur

Kjöt

Fiskur

Mjólk, ostar og egg

Olíur og feitmeti

ÁvextirGrænmeti

Sykur, súkkúlaði, sælgæti o.fl.

Aðrar matvörur

Kaffi, te og kakó

Gosdrykkir safar og vatn

Ísland

Page 11: Samkeppnisstaða Íslands

Danmörk - Ísland

0

50

100

150

200Brauð og kornvörur

Kjöt

Fiskur

Mjólk, ostar og egg

Olíur og feitmeti

ÁvextirGrænmeti

Sykur, súkkúlaði, sælgæti o.fl.

Aðrar matvörur

Kaffi, te og kakó

Gosdrykkir safar og vatn

Danmörk

Ísland

Page 12: Samkeppnisstaða Íslands

Ísland - Noregur

0

50

100

150

200Brauð og kornvörur

Kjöt

Fiskur

Mjólk, ostar og egg

Olíur og feitmeti

ÁvextirGrænmeti

Sykur, súkkúlaði, sælgæti o.fl.

Aðrar matvörur

Kaffi, te og kakó

Gosdrykkir safar og vatn

Ísland

Noregur

Page 13: Samkeppnisstaða Íslands

Raungengi

Page 14: Samkeppnisstaða Íslands

Hlutfallslegt PPP• Hlutfallslegt jafnvirði gerir einfaldlega ráð fyrir því að sá

mismunur sem er til staðar á verðlagi á milli landa ráðist af þeim takmörkunum á högnunarviðskiptum sem eru til staðar og getið var hér að ofan.

• Ef munurinn verður meira en nemur högnunarhindrunum hlýtur að skapast þrýstingur á verðlækkun. Þetta er oft útlagt sem raungengi, sem sést hér að neðan.

Erlendis

Heima

P

PE

%

%%

Erlendis

Heima

EP

Pq

Page 15: Samkeppnisstaða Íslands

Raungengi launa

• Raungengi er með öðrum þræði mælikvarði á samkeppnis-stöðu innlendra framleiðenda, hvort sem þeir selja innanlands eða utan. Raungengi er oft sett fram sem hlutfallsleg laun fremur en verðlag:

• Oft eru því kvarðar úr utanríkisviðskiptum notaðir til þess að meta raungengisstöðuna. Hægur vöxtur útflutnings, en hraður vöxtur innflutnings gæti því bent til þess að raungengi sé of hátt og innlend framleiðsla sé of kostnaðarsöm miðað við það sem gerist erlendis.

Erlendis

Heimaw

EW

Wq

Page 16: Samkeppnisstaða Íslands

Nafngengi og raungengi• Sveigjanlegt nafngengi ætti fræðilega séð að tryggja að verðjöfnun

innan þeirra marka sem hagkvæmni högnunarviðskipta setur. • Fyrir árið 1973, þegar Bretton-Woods fastgengiskerfið hrundi og

helstu gjaldmiðlar heimsins fóru á flot, var sveigjanlegt gengi fremur sjaldgæft í hinum vestræna heimi ef undan eru skilin stutt óróatímabil.

• Því var spáð af hagfræðingum eins og Milton Friedman (1953) að sveigjanlegt nafngengi myndi leiða til þess raungengið yrði mjög stöðugt við langtímajafnvægi vegna högnunarviðskipta í tengslum við jafnvirði verðs.

• Hins vegar kom hið gagnstæða í ljós eftir að gjaldmiðlar heimsins komust á flot eftir 1973 að hreyfingar nafngengisins mögnuðu fremur en lægðu sveiflur í raungengi.

• Ástæðan er einfaldlega sú að gjaldeyrismarkaðir eru eðli málsins samkvæmt eignamarkaðir og verðmyndun er oft í litlum tengslum við þjóðhagsstærðir, a.m.k. þegar til skemmri tíma er litið.

Page 17: Samkeppnisstaða Íslands

Raungengi nú er í sögulegu lágmarki!

Raungengi Íslands frá 1914 til 2011 á mælikvarða verðlags.

Page 18: Samkeppnisstaða Íslands

Laun á Íslandi eru lág í alþjóðlegum samanburði!

Page 19: Samkeppnisstaða Íslands

Íslenska gjaldeyrisbólan

Landsframleiðsla á mann á Íslandi, miðað við nafngengi krónunnar (blá lína) og PPP leiðrétt (svört lína)

Page 20: Samkeppnisstaða Íslands

Hin nýju síldarplön

• Á fyrri tíð gagnaðist lágt gengi krónunnar helst landsbyggðinni þar sem útflutningsframleiðslan, einkum sjávarútvegur, var staðsett.

• Að sama skapi var vann veik króna gegn höfuðborgarsvæðinu þar sem þjónustugreinarnar hafa verið staðsettar.

• Gengisfall krónunnar fól því í sér beina millifærslu frá neytendum á mölinni sem þurftu að borga hærra verð fyrir neysluvörur til landsbyggðarinnar sem fékk hærra verð fyrir sínar framleiðsluvörur.

• Vitaskuld mun lágt gengi hvetja áfram mörg byggðarlög úti á landi, einkum þau sem hafa lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi.

• Hins vegar eru þjónustugeirinn nú einnig orðinn útflutningsvegur, einkum hvað varðar ferðaþjónustu og ýmsa tæknigreinar.

• Miðbær Reykjavíkur gegnir nú sama hlutverki og síldarplönin á fyrri tíð; afmarkaður staður þar sem fjöldi fólks vann mikil verðmæti á afmörkuðum tíma. Ferðamenn eru nú komnir í hlutverk síldarinnar.

Page 21: Samkeppnisstaða Íslands

Innflutningur – útflutningur sem hlutfall af landsframleiðslu

Page 22: Samkeppnisstaða Íslands

Viðskiptahalli sem hlutfall af landsframleiðslu

Page 23: Samkeppnisstaða Íslands

Jöfnuður í vöru – og þjónustuviðskiptum, undirliggjandi viðskiptajöfnuður og þáttajöfnuður

og spá Seðlabankans til 2016

Spurningin með krónuna – hve lengur getur útflutningur staðið undir aukinni einkaneyslu?

23

Page 24: Samkeppnisstaða Íslands

Fjármagnsflutningar

Page 25: Samkeppnisstaða Íslands

Viðskiptahalli sem hlutfall af landsframleiðslu

Lánshæfi Íslands hjá Moody’s

Page 26: Samkeppnisstaða Íslands

Ísland hefur breyst úr fjármagnsinnflytjenda, í fjármagnsútflytjanda

Fjármagnsjöfnuður Íslands, í milljörðum króna

Page 27: Samkeppnisstaða Íslands

Erlendar skuldir Íslands sem hlutfall af landsframleiðslu án gömlu bankanna

!

Page 28: Samkeppnisstaða Íslands

Fjármagnsflæði, skuldabréfahreyfingar og eiginfjárhreyfingar

Page 29: Samkeppnisstaða Íslands

Lausafjárvandamál íslenska þjóðarbúsins

• Ísland á fyrst og fremst við lausafjárvandamál að etja:– Skortur á erlendu lausafé; Lægra lánshæfi gerir endurfjármögnun erfiðari og

bankarnir eru ekki lengur farvegur fyrir erlent fjármagn inn í landið.– Gnótt af innlendu lausafé: Of mikið var prentað af krónum í aðdraganda

hrunsins sem sitja nú fastar á bakvið höftin og bíða eftir að komast út. Vandamálið er bæði vegna innlendra og erlendra aðila!

• Síðustu 5 ár hefur stefnan verið sú að endurfjármagna landið í gegnum viðskiptajöfnuðinn

– Það hefur heppnast að standa straum af neikvæðum þáttatekjujöfnuði– Það hefur ekki heppnast að mæta neikvæðum fjármagnsjöfnuði

• Þessi stefna hefur ekki verið án fórna – – lágur kaupmáttur og lágt fjárfestingarstig hafa tryggt lágan innflutning.

• Gjaldeyrisjafnvægi þjóðarinnar er því mjög viðkvæmt og mikil aukning innlendrar eftirspurnar gæti hæglega stefnt því í voða.

29