10
Fimmtudagur 27. júní 2013 www.eystrahorn.is Eystrahorn 25. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús Íbúar Hafnar bjóða gestum og gangandi í humarsúpu föstudaginn 28. júní frá kl. 19:00-20:30. Súpan verður veitt á eftirtöldum stöðum: Rauðatorgið – Leirusvæði Hólabraut 18 – Unnur og Öddi Sandbakki – Miðbær Silfurbraut 31 – Jóga og Reynir Kirkjubraut 32 – Kristín og Kalli Hagatún 9 – Gunnhildur og Marta Eftir súpuna verður Hornafjarðarkvöld í Bárunni kl. 21:00 - 23:00 þar sem verður glæsileg dagskrá. Sjá nánar á humar.is. Aldrei hefur verið meiri ásókn í að fá sölubása á Humarhátíð og úrvalið af varningi verður ótrúlega fjölbreytt. Gestir hátíðarinnar geta fengið sér að borða, bæði humarlokur, humarsúpu, humarklær og konfekt frá Hólabrekku. Einnig verður ýmis fatnaður til sölu bæði á börn og á fullorðna og er fatnaðurinn að mestu unnin af heimafólki. Þá verða seldar ýmsar snyrtivörur og skart unnið úr náttúrunni. Meðal annars sem verður í sölubásum okkar: Siggi litli og Ingólfur - humar, heitar og kaldar samlokur, súpa. Linda steinastjakar - náttúrusteinar úr fjörunni Náttúrusnyrtivörur úr sjávarfangi www.andra.is Konfekt frá Hólabrekku Ullavörur frá Gallerý hjá Tótu, facebook: Galleryhjatotu Carters föt.barnaspil og vörur fyrir börn abcleikfong.is Allt Merkilegt sérmerktur fatnaður og margt fleira alltmerkilegt.is Kusk collection ull. roð.leður, Erna Postulín og skart fyrir börn og fullorðna Sjoppa Volare snyrtivörur Ágústa Arfleifð Ragnheiður Millibör Félagar frá Handraðanum Candyfloss Skartgripir og salt frá Saltverk Reykjanesi Heimamarkaður Hleinin humarlokur Finindi.is Elísabet Óli prik barnavörur www.oliprik.is Kozy by Alma www.kozywool.com Mikil eftirsókn er í sölubása á Humarhátíð Humarsúpa um allan bæ Eins og áður hefur komið fram í EH verður hópmyndataka úti í Óslandi þriðjudaginn 2. júlí kl. 19:03. Fólk er vinsamlegast beðið um að fara ekki akandi upp Óslandshraunið heldur leggja bílunum annarsstaðar. Sigurður Mar er ljósmyndari og Haukur Helgi tekur nokkur vel valin sjóaralög á nikkuna. Svanfríður Eygló Arnardóttir er hugmyndasmiður og hvatamaður að þessu verkefni sem hún segir sig hafa dreymt um lengi. Svanfríður sem býr erlendis er í heimsókn hér á æskuslóðum og henni fannst upplagt að kanna hvort þessi hugmynd væri ekki þess virði að láta á hana reyna. Skorað er á alla sem hafa tök á að mæta vel greiddir og vel búnir til fótanna og gera þennan atburð skemmtilegan og eftirminnilegan. Sjáumst hress og kát. Svanfríður Eygló Hópmynd af Hornfirðingum í Óslandi

Eystrahorn 25. tbl. 2013

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Eystrahorn 25. tbl. 2013

Citation preview

Page 1: Eystrahorn 25. tbl. 2013

Fimmtudagur 27. júní 2013 www.eystrahorn.is

Eystrahorn25. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús

Íbúar Hafnar bjóða gestum og gangandi í humarsúpu föstudaginn 28. júní frá kl. 19:00-20:30. Súpan verður veitt á eftirtöldum stöðum:

Rauðatorgið – Leirusvæði •Hólabraut 18 – Unnur og Öddi •Sandbakki – Miðbær •Silfurbraut 31 – Jóga og Reynir •Kirkjubraut 32 – Kristín og Kalli •Hagatún 9 – Gunnhildur og Marta •

Eftir súpuna verður Hornafjarðarkvöld í Bárunni kl. 21:00 - 23:00 þar sem verður glæsileg dagskrá. Sjá nánar á humar.is.

Aldrei hefur verið meiri ásókn í að fá sölubása á Humarhátíð og úrvalið af varningi verður ótrúlega fjölbreytt. Gestir hátíðarinnar geta fengið sér að borða, bæði humarlokur, humarsúpu, humarklær og konfekt frá Hólabrekku. Einnig verður ýmis fatnaður til sölu bæði á börn og á fullorðna og er fatnaðurinn að mestu unnin af heimafólki. Þá verða seldar ýmsar snyrtivörur og skart unnið úr náttúrunni. Meðal annars sem verður í sölubásum okkar:

Siggi litli og Ingólfur - humar, heitar og kaldar •samlokur, súpa.Linda steinastjakar - náttúrusteinar úr fjörunni•Náttúrusnyrtivörur úr sjávarfangi www.andra.is•Konfekt frá Hólabrekku•Ullavörur frá Gallerý hjá Tótu, •facebook: GalleryhjatotuCarters föt.barnaspil og vörur fyrir börn •abcleikfong.isAllt Merkilegt sérmerktur fatnaður og margt •fleira alltmerkilegt.is

Kusk collection ull. roð.leður, Erna•Postulín og skart fyrir börn og fullorðna•Sjoppa •Volare snyrtivörur•Ágústa Arfleifð•Ragnheiður •MillibörFélagar frá •HandraðanumCandyfloss•Skartgripir og •salt frá Saltverk ReykjanesiHeimamarkaður•Hleinin humarlokur•Finindi.is Elísabet•Óli prik barnavörur www.oliprik.is•Kozy by Alma www.kozywool.com•

Mikil eftirsókn er í sölubása á Humarhátíð

Humarsúpa um allan bæ

Eins og áður hefur komið fram í EH verður hópmyndataka úti í Óslandi þriðjudaginn 2. júlí kl. 19:03. Fólk er vinsamlegast beðið um að fara ekki akandi upp Óslandshraunið heldur leggja bílunum annarsstaðar. Sigurður Mar er ljósmyndari og Haukur Helgi tekur nokkur vel valin sjóaralög á nikkuna. Svanfríður Eygló Arnardóttir er hugmyndasmiður og hvatamaður að þessu verkefni sem hún segir sig hafa dreymt um lengi. Svanfríður sem býr erlendis er í heimsókn hér á æskuslóðum og henni fannst upplagt að kanna hvort þessi hugmynd væri ekki þess virði að láta á hana reyna. Skorað er á alla sem hafa tök á að mæta vel greiddir og vel búnir til fótanna og gera þennan atburð skemmtilegan og eftirminnilegan.

Sjáumst hress og kát. Svanfríður Eygló

Hópmynd af Hornfirðingum í Óslandi

Page 2: Eystrahorn 25. tbl. 2013

2 EystrahornFimmtudagur 27. júní 2013

Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Reiðhjól til söluNotað reiðhjól til sölu á kr. 15.000,-. Nánari upplýsingar í síma 891-6732. Ragnhildur

Eystrahorn

Vesturbraut25•Sími:862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN1670-4126

StafafellSfjöll í lóniTil sölu er 3.000m² lóðarréttindi ásamt eldra 25 m² sumarhúsi. Lóðin er innarlega í sumarhúsabyggðinni, afgirt með neysluvatnsborholu.

KirKjubrautGlæsilegt 2ja hæða 191,1 m² einbýlishús ásamt bílskúr 4- 5 svefnherb., tvennar svalir, vönduð eign.

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Litlabrú 1 • 780 Höfn • Sími 580 7915Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Garðarsbraut 5 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7902

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7907

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík, Sími 580 7925

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. fasteignasaliog lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum, Sími 580 7908

sumarfríFasteignasalan INNI, Umboð TM og Jaspis hársnyrtistofa verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 10.

Júlí, opna aftur mánudaginn 22. júlíVegna Fasteignasölu hafið samband

við INNI á Egilsstöðum 580-7905, vegna TM hafið samband við TM í

Reykjavík 515-2000.

Sigurður Jóhannsson var fæddur á Hnappavöllum þann 8. september 1924.Hann lést á hjúkrunardeild H e i l b r i g ð i s s t o f n u n a r Suðausturlands 14. júnísíðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir og Jóhann Ingvar Þorsteinsson. Sigurður var yngstur þriggja sona þeirra en hinir voru: Þorsteinn bóndi og kennari í Svínafelli í Öræfum og Jón bóndi á Hnappavöllum. Þeir eru báðir látnir. Sigurður bjó félagsbúi með Jóni bróður sínum og Guðlaugu konu hans og seinna Gísla syni þeirra í Vestur-Hjáleigunni á Hnappavöllum. Um árabil fór hann á vertíð á veturna og var fjórtán vertíðir í Vestmannaeyjum við fiskvinnslu hjá Vinnslustöðinni og eftir það nokkrar vertíðir á Höfn. Haustið 1998 hætti hann búskap og flutti til Hafnar í Hornafirði og bjó lengst af í íbúð fyrir aldraða í Ekru. Þá færði hann sig yfir á dvalarheimilið í Mjallhvít og þaðan fór hann svo síðastliðið haust á hjúkrunardeildina. Sigurður var ókvæntur og barnlaus. Útför hans fór fram frá Hofskirkju í Öræfum 25. júní síðastliðinn.

Andlát

Sigurður Jóhannsson

Kaþólska KirkjanSunnudaginn 30. júníBörnin hittast kl. 11:00Sunnudagsmessa kl. 12:00Allir velkomnir!

Sumarferð eldri Hornfirðinga um Norðurland. Brottför frá Ekru laugardaginn 29. júní kl. 9:00

Ferðanefndin

Sumarferðin

Bíll til söluSuzuki Grand Vitara. Árgerð 2009. Ekinn 86 þús. km. Sjálfskiptur með topplúgu. Verð 3,2 m.kr. Upplýsingar 892-8890.

Bátur til söluEjvinds plastbátur ásamt vagni til sölu ef viðunandi tilboð berst.Báturinn er með tvöfaldan byrðing 4,2maðlengd,1,6m.ábreidd.(Vélarvana)Upplýsingar í síma 897-1113.

Eystrahorn er farið í sumarfrí. Næsta blað kemur út 15. ágúst.

Lokum kl. 15:00 föstudaginn 28. júní

Gleðilega humarhátíð

Jaspis

Page 3: Eystrahorn 25. tbl. 2013

3Eystrahorn Fimmtudagur 27. júní 2013

Sigurður Sigurbergsson fæddist á Stapa í Hornafirði 6. apríl 1928. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn, mánudaginn 17. júní 2013. Foreldrar hans voru hjónin Björg Einarsdóttir húsfreyja á Stapa, f. 26. ágúst 1900, d. 11. desember 1977 og Sigurbergur Sigurðssonbóndi,f.4.apríl1896,d. 29. desember 1985. Sigurður var elstur þriggja systkina, en þau eru 1)Rannveig húsfreyja áDynjanda í Nesjum, f. 20. október 1929, búsett á Höfn, gift Jens Olsen frá Reyðarfirði og 2)Einarbóndi í Þinganesi, f. 28. júlí 1935, kvæntur Hönnu Jónsdóttur frá Akurnesi,búsettáHöfn.Sigurðurkvæntist24.nóvember1957,Guðnýju Valgerði Gunnarsdóttur húsfreyju, f. 24. október 1935,frá Vagnsstöðum í Suðursveit. Foreldrar hennar eru Sigríður Þórarinsdóttir, f. 28. febrúar 1893, d. 16. júlí 1969 frá Borgarhöfn ogGunnarJensGíslason,f.28.nóvember1904,d.12.september1992 frá Vagnsstöðum. Systkini Valgerðar eru Halldóra, f. 1930, búsett á Höfn og Þórarinn Guðjón, f. 1932, búsettur á Höfn. Börn Sigurðar og Valgerðar eru: 1. Sigurbjörg, f. 9. janúar 1956, lífeindafræðingur á Akureyri, maki Hjörleifur Einarsson. Börn þeirra: 1.1)Vala, f. 6. maí 1977, maki Angel Ruiz-Angulo. Börn:Fríða f. 12. ágúst 2008 og Alfonso f. 2. des.2010. 1.2)Anna, f.21. september 1986, sambýlismaður Arnar Marteinsson. 1.3)Einar, f. 28. ágúst 1988. 2. Sigríður Gunnþóra, f. 12. mars 1957, skrifstofumaður á Sauðárkróki, maki Ingimar Birgir Björnsson. Börn þeirra: 2.1)Ása Björg, f. 2. febrúar 1984, maki Grétar ÞórÞorsteinsson.BarnÁrelíaMargrét,f.4.ágúst2011.2.2)KatrínEir,f.9.júní1988.2.3)GunnarTjörvi,f.3.nóvember1992.3.Hallur,f. 20. apríl 1958, sjómaður á Höfn, maki Elínborg Hallbjörnsdóttir. Börn þeirra: 3.1)Kristín, f. 28. febrúar 1992, sambýlismaðurOlgeirHalldórsson.3.2)Hallmar,f.17.nóvember1993.3.3)GísliÞórarinn,f.15.ágúst1999.3.4)SigurðurGuðni,f.14.desember2000. 4. Sigurlaug Jóna, f. 6. maí 1962, læknaritari, Garðabæ,makiGuðniOlgeirsson.Börnþeirra:4.1)FinnurKári,f.16.maí1982, maki Guðný Halla Hauksdóttir. Barn: Margrét Hekla, f. 21.sept.2008.4.2)SignýHeiða,f.29.apríl1986,sambýlismaðurFriðrikGuðjónsson.4.3)Gerður,f.13.júní1993,unnustiSnæþórGuðjónsson. 5. Hulda Steinunn, f. 19. nóvember 1967, bóndi á Stapa,makiJónÁgústSigurjónsson.5.1)SigurðurÓskar,f.31.júlí1987.5.2)BjörnÁrmann,f.31.mars1992.5.3)GísliSkarphéðinn,f.24.maí1999. 6.GísliSkarphéðinn, f.10. febrúar1970,d.27.maí 1998, bifreiðarstjóri, maki Sædís Guðný Hilmarsdóttir. Barn þeirra:6.1)HaukurSmári,f.26.júní1996.Sigurður starfaði á yngri árum við vegagerð í Austur-Skaftafells-sýslu og tók síðar við búi foreldra sinna á Stapa. Þá starfaði hann um tíma í mötuneyti varnarliðsins á Stokksnesi. Söngur og tónlist áttu hug hans allan og var hann virkur í kirkjukórum og einn af stofnendum Karlakórsins Jökuls. Útför Sigurðar fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 28.júní kl. 14:00.JarðsettverðuríLaxárkirkjugarði.

Andlát

Sigurður Sigurbergsson

Eystrahorn

Fyrir nokkru fékk ég kynningu á úttekt eins bankans á rekstri og fjárhagslegri stöðu sveitarfélaga. Hún var í samræmi við ýmsar aðrar úttektir að undanförnu og sýnir fram á sterka fjárhagslega stöðu Hornafjarðar. Við erum í þriðja sæti af öllum sveitarfélögum á Íslandi. Bankinn greinir enginn veikleikamerki hjá Hornafirði. Það væri líka mikilvægt fyrir okkur að fá mælingar á öðrum þáttum sem skipta máli til að meta árangur af starfinu.Samtöksunnlenskrasveitarfélaga(SASS)buðunýveriðuppásamstarfum gerð atvinnustefnu. Tók ég því fagnandi og í næstu viku verða lögð drög að vinnunni. Sveitarfélagið hefur ráðist í fjölmörg verkefni til stuðnings atvinnulífi, frá ýmsum hliðum. Ég tók saman drög að minnispunktum til að undirbúa mig fyrir fund með starfsfólki SASS um málið. Í drögunum stendur m.a. um aðgerðir sveitarfélagsins á undanförnum árum:

Stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á svæðinu sem leiddi til stofnunar •Ríki Vatnajökuls ehf.Gerður var samningur við bændur um þróun í kornrækt sem leitt •hefur til þess að heildstæð drög liggja fyrir um landbúnaðarstefnu fyrir héraðið.Ráðist hefur verið í viðamiklar greiningar á stöðu sjávarútvegs og •áhrifum af fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.Komið hefur verið á tengslum við aðila sem þróa lausnir í nýtingu •sjávarstrauma, vatnsafls og vinds til orkunýtingar. Haldin var stór orkuráðstefna á Hornafirði.Sett var upp matarsmiðja á vegum Matís með stuðningi •sveitarfélagsins. Hugmyndir hafa verið unnar um eflingu og stækkun matarsmiðjunnar.Stofnun atvinnu- og rannsóknasjóðs og síðan eflingu á þeim sjóði. •Úthlutað hefur verið til tugi verkefna á margvíslegum sviðum atvinnulífs.Fyrir liggur stefnumörkun um uppbyggingu skapandi greina og •tekin hafa verið skref á grunni hennar með aðstöðusköpun og starfsemi í Vöruhúsi.Sett var á laggirnar Náttúrustofa Suðausturlands ses. undir forystu •Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samvinnu við Skaftárhrepp.Starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs hefur verið efld að frumkvæði •Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samvinnu við stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.Eignir hafa verið seldar undir atvinnustarfsemi á síðustu árum.•Í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð og Ríki Vatnajökuls ehf. •var efnt til ráðstefnu um hvernig nýta megi tækifærin sem stofnun þjóðgarðsins hefur í för með sér. Fjallamennskunám, frumkvöðlastarf í þeirri grein og markaðssetning svæðisins sem fjallahérað var eitt afsprengi þeirrar ráðstefnu.Gengið var til liðs við Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands sem síðar •rann inn í Samtök sunnlenskra sveitarfélaga til að efla stuðning við þróun atvinnulífs á svæðinu.Sveitarfélagið hefur lagt mikla vinnu í að tryggja áframhaldandi •rekstur starfsemi Nýheima og stofnana sem þar eru innan veggja.

www.hjaltithor.is

Af bloggi bæjarstjóra

ForeldrarLeggjum áherslu á að

Humarhátíðin er fjölskylduhátíð.Tökum tillit til barna og

ungmenna.

Page 4: Eystrahorn 25. tbl. 2013

4 EystrahornFimmtudagur 27. júní 2013

Auglýsing um umsóknir um skólavist í leikskólum

HornafjarðarÞeir foreldrar sem hyggjast sækja um leikskóladvöl fyrir börn sín skólaárið 2013 – 2014 eru vinsamlegast beðnir um að gera það fyrir 30. júní. Þetta á jafnframt við um börn sem fædd eru seinni hluta árs 2012.

Eyðublöð er hægt að nálgast í Ráðhúsi Hornafjarðar eða á vef sveitarfélagsins: http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/Umsoknir/

Fræðslustjóri

StuðningsfulltrúiLaus störf stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Hornafjarðar á yngra og eldra stigi.

Störf stuðningsfulltrúa felast í námsaðstoð við nemendur, almennum stuðningi og gæslu. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf 12. ágúst nk.

Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er á heimasíðu skólans. Umsóknarfrestur er til 22. október.

http://www2.hornafjordur.is/media/haust2009/starfsumsokn,-eydublad.pdf

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við stéttarfélög.

Frekari upplýsingar gefa skólastjórar í síma 8995609 og á netfanginu [email protected] og í síma 8644952 og á netfanginu [email protected]

Skólastjórar

Menningar -og tónlistarhúsið Sindrabær er 50 ára. Vígsluhátíðin fór fram í febrúar 1963 með kaffi og kruðiríi og balli um kvöldið þar sem Kalli, Berta og Gunnlaugur Þröstur spiluðu. Þetta menningarhús var mikil lyftistöng fyrir íbúana og hafa ófáir menningarviðburðir farið þar fram þó segja megi að dansleikir, kvikmyndir og leikstarfsemi hafi haft þar yfirhöndina. Enn þann dag í dag er Sindrabær með stórt hlutverk en starfsemi Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu er þar með höfuðstöðvar sínar. Annað slagið er slegið upp böllum og bíóum og er þannig viðhaldið að hluta til þeim þáttum sem voru nær allsráðandi í starfseminni eins og fyrr segir. Mér persónulega er Sindrabær kær sem og vonandi mörgum Hornfirðingnum, þar hef ég leikið fyrir dansi, séð um húsið í fjarveru Ragga Björns sem var framkvæmdastjóri Sindrabæjar í fjölda ára. Þar var félagsmiðstöðin Þrykkjan með sína starfsemi meðan ég kom að málefnum hennar og minnisstæðar eru mér leiksýningarnar sem þar fóru fram. Nú veit ég ekki hvað sveitarfélagið hugsar sér að gera til að minnast þessara tímamóta en allavega verður afmælisball í afmælisbarninu á föstudagskvöldið á Humarhátíðinni og koma þar við sögu tvær hljómsveitir. Annarsvegar Smáfuglarnir sem er skipuð drengjum sem komið hafa við sögu dansleikja í Sindrabæ þeim Ragga Meysa, Bróa, Gulla Sig, Bjössa Gylfa og Hauki Helga. Hin hljómsveitin er Hljómsveit Hauks og Bjartur sem Hornfirðingar kannast eitthvað við . Þá ætlar StániHauxsöngvariParketsaðstígaásvið.Nokkurhljómsveitarnöfnskjóta upp kollinum við þessi skrif s.s. Gustuk, Ringulreið, PAN quintett, Forhúð, Svartar sálir, Kalli og Berta, Þokkabót, Hljómsveit GrétarsÖrvars,Ítrekun,Mammaskilurallt,Kormákur,Koxofl.ofl.Gaman hefði verið að geta náð saman einhverju af því fólki sem stóð í menningunni í Sindrabæ saman og rifja upp bæði gamla takta og söguna. Við stöndum í þakkarskuld við það fólk og félagasamtök sem beittu sér fyrir byggingu Sindrabæjar og margir eiga minningar og voru þátttakendur í því sem þar fór fram bæði í nútíð og fortíð. Til hamingju afmælisbarnið og gleðilega Humarhátíð

Haukur H. Þorvaldsson

Sindrabær 50 ára

Heimamarkaður á MiðskeriHeimamarkaðurinn á Miðskeri verður

opinn í sumar eftir samkomulagi. Þú gerir boð á undan þér, hringir í síma

863-0924 eða 478-1124.

Grillkjöt, beikon, egg og fleira.

Verslið beint frá býli.Velkomin í sveitina, Pálína og Sævar Kristinn

Page 5: Eystrahorn 25. tbl. 2013

Fimmtudaginn 27.júní til sunnudagsins 30. júníLónsöræfi : „Í fótspor formæðranna“, Ganga, jóga og prjónaskapur, ferð á vegum Ferðafélags Austur-Skaftfellinga.

Fimmtudaginn 27. júní10:00 - 18:00 Kartöfluhús-Aldrei meira úrval af flottum fatnaði og fylgihlutum framleiddum á Hornafirði og Djúpavogi19:30 Mánagarður -Þjóðakvöld kvennakórsins 20:00 Hafnarkirkja -Pascal Pinon ásamt blásaratríói. Efniskrá - klassísk verk í bland við frumsamið efni. Markmið tónleikanna er að gestir og gangandi geti hlýtt á fallega tóna í fallegu umhverfi sér að kostnaðarlausu.23:00 - 02:00 Víkin dansleikur - Hljómsveitin DJ Hrönn Tooth

Föstudagur 28. júní06:45 - 12:00 Sundlaug Hafnar - Frítt í sund08:00 - 20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs – Upplýsingamiðstöð08:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 08:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – Aðstaða verbúðarfólks 09:00 - 16:00 Svavarssafn – Sýning á verkum Svavars Guðnasonar13:00 Mikligarður – Eyrún Axelsdóttir verður með opna vinnustofu Litli listaskálinn á Sléttunni - Gingó13:00 - 16:00 Grillaðar pylsur í boði Húsasmiðjunnar16:00 Sindrabæ - Barnadagskrá - Leikararnir Rúnar Freyr og Jóhannes Haukur skemmta18:00 - 21:00 Veiðarfærahús Sigurðar Ólafssonar - Ásmundur Friðriksson verður með sýningu á pastelverkum og málverkum . Öll pastelverkin á sýningunni eru í nýútkominni bók sem kynnt verður á sama stað. Bókin fjallar um æsku hans, Heimaeyjargosið og skemmtilega samferðamenn í lífi hans og verður til sölu á staðnum.17:00 Mótokrossbraut við Drápskletta - Mótokrosssýning 18:30 Opnun leiktækja og markaða á hátíðarsvæði19:00 - 20:30 Humarsúpa um allan bæ21:00 - 23:00 Hornafjarðarkvöld í Bárunni – Opnunaratriði: The Bankura band leikur afróbeat. Setning Humarhátíðar – Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri setur hátíðina Leikararnir Rúnar Freyr og Jóhannes Haukur sjá um kynningar og eru skemmtilegir milli atriða Tískusýning - Arfleifð og Millibör Stakir Jakar - Stjórnadi er Guðlaug Hestnes Hljómsveitin ALOCOLA Þórdís Imsland og Kolbrún Ólafsdóttir taka lagið – Meðleikarar Ármann og Birkir Kvennakór Hornafjarðar Ungir leikarar úr Greese bregða á leik23:00 Pakkhúsið - Hljómsveitin Horny Stones24:00 Víkin - Hljómsveitin Tandoori Johnsson 23:00 Sindrabær - 50 ára afmælisball. 23:00-00:30 Smáfuglarnir leika eldridansana, síðan tekur hljómsveit Hauks Þorvaldssonar við ásamt Bjarti Loga Finnssyni. Gestasöngvari er Stjáni í Parket. Ekta Sindrabæjarstemning

Laugardagurinn 29. júní08:00 - 20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs - Upplýsingamiðstöð08:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 08:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – Aðstaða verbúðarfólks fyrr á tímum13:00 - 17:00 Svavarssafn – Sýning á verkum Svavars Guðnasonar10:00 - 18:00 Kartöfluhús – Arfleifð og Millibör - Aldrei meira úrval af flottum fatnaði og fylgihlutum framleiddum á Hornafirði og Djúpavogi.09:00 Silfurnesvöllur - Humarhátíðar golfmót10:00 - 12:00 Sundlaug Hafnar - Frítt í sund11:00 Íþróttahúsið á Höfn - Hornafjarðarmanni 10:00 - 12:00 Sindrabær - Æfing fyrir söngvakeppni12:00 - 13:00 Sindrabær - Einar Mikael töframaður með töfranámskeið fyrir börn

13:00 Kassabílarallí í boði Lí13:00 - 17:00 Veiðarfærahús Sigurðar Ólafssonar - Ásmundur Friðriksson verður meðsýningu á pastelverkum og málverkum . Öll pastelverkin á sýningunni eru í nýútkominni bók sem kynnt verður á sama stað. Bókin fjallar um æsku hans, Heimaeyjargosið og skemmtilega samferðamenn í lífi hans og verður til sölu á staðnum.13:00 Mikligarður – Eyrún Axelsdóttir verður með opna vinnustofu Litli listaskálinn á Sléttunni - Gingó13:00 Opnun leiktækja og markaða á hátíðarsvæði13:30 Nýheimar: Fyrirlestur “Vinir í vestri” . Atli Ásmundsson fyrrverandi ræðismaður í Winnipeg segir frá lífi og starfi meðal Vestur-Íslendinga14:00 Barnadagskrá á hátíðarsviði Söngvarakeppni barna 15:00 Heillgrillað lamb í boði sauðfjárbænda Hornafjarðarhöfn - Gaman við sjávarsíðuna Harmonikka við Pakkhúsið Tilraun til heimsmets í Humarlokugerð14:00 Sindravellir Sindri - Afturelding - 2. deild karla - Boðið uppá Humarsúpu Kúadellulottó16:30 Sindravellir Sindri - Grindavík í 1 deild kvenna - Boðið upp á Humarsúpu17:00 Burn out 20:30 N1 Skrúðganga að íþróttavellinum – Lúðrasveit Hornafjarðar leiðir gönguna Glens og gaman á íþróttavellinum undir stjórn Kvennakórs Hornafjarðar Dagskrá á hátíðarsviði Rúnar Freyr og Jóhannes Haukur leikarar og kynnar halda áfram með stuðið Eyþór Ingi skemmtir Einar Mikael töframaður töfrar enn Verðlaun veitt fyrir best skreytta húsið, fyrirtækið og hverfið Afhending Umhverfisverðlauna Hornafjarðar Brenna við Óslandsveginn - Skemmtarar spila af fingrum fram 21:30 Pakkhús – Jazz Combo Hornafjarðar leikur jazz og blues23:30 Pakkhúskjallari - Hljómsveitin Parket 23:00 Víkin - Pöbbastemning24:00 - 04:00 Íþróttahús - Stórdansleikur með Eyþóri Inga og Hljómsveitinni Arthur

Sunnudagurinn 30 júní10:00 - 12:00 Frítt í sund 12:00 - 16:00 Markaðir og leiktæki opna12:00 - 16:00 Kartöfluhús – Arfleifð og Millibör 08:00 - 20:00 Gamlabúð – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs - Upplýsingamiðstöð08:00 - 20:00 Skreiðarskemma - Sjóminjasýning 08:00 - 20:00 Mikligarður – Verbúð – Aðstaða verbúðarfólks fyrr á tímum13:00 - 17:00 Svavarssafn – Sýning á verkum Svavars Guðnasonar13:00 - 18:00 Veiðarfærahús Sigurðar Ólafssonar - Ásmundur Friðriksson verður með sýningu á pastelverkum og málverkum.13:00 Sindraleikarnir á Sindravöllum (frjálsíþróttamót)

DAGSKRÁ HUMARHÁTÍÐAR Á HÖFN 27. - 30. júní

Page 6: Eystrahorn 25. tbl. 2013

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Viðburðir í júlí 2013

Júlí

Júlí

Júlí

2. júlíBarnastarf Menningarmiðstöðvarinnar fer í bátsferð um Hornafjörðinn. Skráning á Bókasafninu í síma 4708050. Hlökkum til að sjá ykkur!

Alla daga nema sunnudagaGönguferð um Heinabergssvæði – alla daga nema sunnudaga til 15.ágúst. Mæting kl. 10:00 við Heinabergsafleggjara austan Kolgrímu.Nánari upplýsingar á www.vjp.is.

SumarfríRauða Kross búðin við Víkurbraut er komin í sumarfrí.

5., 6. og 7. júlíLitlir Landverðir í Skaftafelli. Rannsóknarleiðangrar með landverði fyrir 6-12 ára. Mæting kl. 16:00 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu).

Sumarlestur BókasafnsinsSumarlesturinn er byrjaður fyrir alla skólakrakka. Skráning á Bókasafninu .Veglegir vinningar í boði fyrir duglega lestrarhesta!

5., 6. og 7. júlíLitlir Landverðir í Skaftafelli. Rannsóknarleiðangrar með landverði fyrir 6-12 ára. Mæting kl. 16:00 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu).

9. júlíBarnastarf Menningarmiðstöðvarinnar ætlar í fjöruferð að Horni og skoða Víkingaþorpið.Skráning á Bókasafninu í síma 4708050.Sjáumst!

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Viðburðir í júlí 2013

Júlí

Júlí

Opið allar helgarListasafn Hornafjarðar – Svavarssafn er opið allar helgar í sumar milli kl. 13:00 – 17:00.Verið velkomin.

16. júlíSafnaferð með Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar. Skráning á Bókasafninu í síma 4708050.Hlökkum til að sjá ykkur!

30. júlíBarnastarf Menningarmiðstöðvarinnar ætlar í pottana í Hoffelli.Skráning á Bókasafninu – 4708050.Munið sundfötin!

23. júlíBarnastarf Menningarmiðstöðvarinnar heimsækir Dýragarðinn í Hólmi. Skráning á Bókasafninu – 4708050.Sjáumst!

Opið alla dagaSkreiðarskemman er opin alla daga frá kl. 8:00 – 20:00.Verið velkomin.

Sumaropnun BókasafnsinsBókasafnið er opið alla virka daga milli kl. 10:00 og 16:00.Verið velkomin!

2. júlí – Hópmyndataka í ÓslandiÞriðjudaginn 2. júlí kl. 19:00Fjölmennum og tökum þátt í skemmtilegri uppákomu. Munið að leggja ekki bílnum uppi á Óslandshrauninu.

Menningarmiðstöð HornafjarðarViðburðir í júlí 2013

Geymið auglýsinguna!

Page 7: Eystrahorn 25. tbl. 2013

7Eystrahorn Fimmtudagur 27. júní 2013

Ítalskt kvöld með Kvennakór Hornafjarðar

Í Mánagarði 27. júní kl. 19:30 Aðgangseyrir 4.000,-

Sætaferðir frá N1 kl. 19:00Miðapantanir hjá Nínu 866-5114 og Luciu 866-8030

Sunnudaginn 30.júní ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að vera með sína árlegu Sindraleika. Þar verður keppt í aldursflokkunum 8ára og yngri, boltakast, langstökk og 60m hlaup, 9-10 ára, boltakast, langstökk, 60m og 600m hlaup, 11-12 ára, langstökk, spjótkast, kúluvarp, 60m og 800m hlaup, 13-14 ára og 15-16 ára,langstökk, spjótkast, kúluvarp, 100m og 800m hlaup. Sindraleikarnir hefjast stundvíslega kl 13:00 og gott er að vera mættur hálftíma fyrr til að hita upp. Þátttökugjald er kr. 1000.- og greiðist við skráningu. Vonumst til að sjá sem flesta á sunnudaginn kl 13:00.

Frjálsíþróttadeild Sindra

Sindraleikarnir

Áhöfnin á Húna II, Slysavarnafélagið Landsbjörg og RÚV kynna sumarævintýri í sjávarbyggðum Íslands í sumar – Áhöfnina á Húna.Húni II siglir í kringum landið í júlí og Áhöfnin rokkar í hverri höfn! Áhöfnin er hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni. Hljómsveitin kom fram í fyrsta sinn í söfnunarþætti fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg á RÚV föstudagskvöldið 31. maí.Hugmyndin um að sigla hringinn í sumar og halda tónleika í sjávarbyggðum kviknaði í vetur í samtölum tónlistarmannanna og Jóns ÞórsÞorleifssonar.Straxvarákveðið látagottafsér leiða í ferðinniog var Slysavarnafélaginu Landsbjörg boðið að selja inn á tónleikana og safna peningum í starfsemi sína. RÚV hefur ákveðið að fylgja túrnum eftir með sjónvarps- og útvarpsþáttagerð í allt sumar. Gerðir verða 6 tuttugu mínútna sjónvarpsþættir þar sem fylgst verður með ævintýrum áhafnarinnar á leiðinni. Sá fyrsti fer í loftið 28. júní. Að auki verða 3 beinar útsendingar frá Reyðarfirði, Stykkishólmi og Akureyri. Það verða klukkutíma langir skemmtiþættir sem Margrét Blöndal og FelixBergssonleiða.HúniIIer50áragamalleikarbátur,smíðaðurí skipasmíðastöð KEA á Akureyri. Hann var gerður út frá Hornafirði í mörg ár og hét þá Haukafell. Margir þekkja þennan fallega bát sem gjarnan liggur við Torfunesbryggju í miðbæ Akureyrar. Hann hefur aldreiáðurgegnthlutverkirokkbáts. Felixsagðiumheimsóknina;„Við erum að fá bæjarfélögin með okkur í að búa til skemmtilega móttöku. Sumir ætla að mæta með börnin og veifa fánum, sumir bjóða Áhöfninni í léttan mat, sumir ætla að syngja þegar þau koma í höfn og sumir ætla að sigla bátum (já eða synda) á móti skipinu.Möguleikarnir eru ótæmandi og við erum opin fyrir öllu sem er skemmtilegt. Mugison hefur sagt að það sem hann vill fyrst og fremst sjá útúr þessu verkefni er að fólk komi SAMAN, vinni saman og hafi það skemmtilegt saman.“

Tónleikarnir á Hornafirði verða laugardaginn 6. júlí kl. 20:00

Ráðhúsið verður lokað frá kl. 12:00

föstudaginn 28. júní

Áhöfnin á Húna II kemur til Hafnar

Page 8: Eystrahorn 25. tbl. 2013

8 EystrahornFimmtudagur 27. júní 2013

BÍLAHJÁLP VÍS BJARGAR MÁLUNUM!

560 5000SÍM

I

VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS

Krakkar græið

kassabílinnKassabílarall

Landsbankans laugardaginn 29. júní kl 13:00. Keppendur

mæta kl.12:30 Skráning er hafin

í útibúi Landsbankans.Hvetjum alla krakka á

aldrinum 6-12 ára að skrá þátttöku sína.

Kassabílarall landsbankans

Humarhátíð 2013 • Föstudagur 28.júní

50 ára afmælisball SindrabæjarSmáfuglarnir ásamt Bróa leika eldridansana

frá kl. 23:00 til 00:30

Síðan tekur hljómsveit Hauks og Bjartur Logi við stuðinu til kl. 03:00

Gestasöngvari er Stjáni í Parket

Ekta SindrabæjarstemningAldurstakmark 18. ár • Miðaverð kr. 1.500,-

Page 9: Eystrahorn 25. tbl. 2013

9Eystrahorn Fimmtudagur 27. júní 2013

„Góður júnímánuður“, sagði Einar Jóhann hjá Fiskmarkaðnum. „Hvanney sem er á snurvoð hefur landað góðum afla m.a. ýsu, steinbít og kola. Færabátarnir sem eru með kvóta hafa sömuleiðis aflað vel, aðallega ufsa“. Ásgeir hjá Skinney-Þinganesi hafði þetta að segja um aflabrögð og vinnslu; „Góður gangur hefur verið íhumarveiðum. Skipin hafa verið nær eingöngu í Skeiðarárdýpi undanfarnar vikur og hefur humarinn verið óvenju stór og góður. Góð ýsu og kolaveiði hefur verið í snurvoðina hjá Hvanney. Steinunn er búinn með kvóta sinn á þessu fiskveiðiári og er að gera sig klára á makrílveiðar. Uppsjávarskipin eru búin að landa tvisvar sinnum makríl og norsk- íslenskri síld. Þannig að það má segja að verkefnin séu næg þessa stundina.“

Fiskirí og vinnsla

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 ......................dragnót ........ 9 ... 163,0 ..blandaður afli

SigurðurÓlafssonSF44 ......humarv ....... 1 ....... 6,1 ..blandaður afliSkinney SF 20 .......................humarv ....... 5 ... 102,6 ..humar43,2Þórir SF 77 ............................humarv .......4 ..... 67,1 ..humar 19,2

Steinunn SF 10 ......................botnv ...........4 ... 316,5 ..blandaður afliÞinganes SF 25 ..................... rækjuv ......... 2 ..... 58,2 ..rækja24,0

Benni SU 65 .......................... lína ............. 13 ..... 88,6 ..þorskur 71,3Guðmundur Sig SU 650 ....... lína ............. 15 ..... 91,3 ..þorskur 80,9Ragnar SF 550 ....................... lína .............14 ... 105,1 ..þorskur 96,5

AuðunnSF48 .......................handf ........... 6 ....... 4,4 ..ufsi 2,3Dögg SU 118 .........................handf ........... 8 ..... 36,6 ..ufsi 30,0Dögg SU 229 .........................handf ........... 9 ....... 2,6 ..þorskur 2,9Hafsól KÓ 11 .........................handf ........... 9 ....... 4,6 ..þorskur 2,9Halla Sæm SF 23 ..................handf ........... 7 ..... 13,6 ..ufsi11,4Haukafell SF 111 ..................handf ......... 10 ..... 14,3 ..ufsi 7,8Herborg SF 69 ......................handf ........... 8 ....... 5,7 ..ufsi 3,1Hulda SF 197 ........................handf ......... 11 ....... 9,7 ..ufsi 7,5Húni SF 17 ............................handf ........... 8 ....... 2,9 ..þorskur/ufsiJökull SF 75 ...........................handf ........... 6 ....... 3,4 ..þorskur 2,0KalliSF144 ...........................handf ......... 10 ..... 10,1 ..þorskur/ufsiLundi SF 12 ...........................handf ........... 1 ....... 0,5 ..þorskur 0,5Siggi Bessa SF 97 .................hanf ........... 12 ..... 38,8 ..ufsi 31,5Silfurnes SF 99 .....................handf ........... 8 ..... 12,6 ..þorskur/ufsiStaðarey SF 15 ......................handf ........... 2 ....... 0,8 ..þorskur/ufsiStígandi SF 72 .......................handf ........... 6 ....... 3,8 ..þorskur/ufsiSæunn SF 155 .......................handf ........... 9 ....... 5,8 ..ufsi/þorskurSævar SF 272 ........................handf ......... 10 ..... 22,8 ..ufsi 19,5UggiSF47 ............................handf ........... 8 ....... 6,9 ..þorskur/ufsiÖrn II SF 70 ..........................handf ......... 10 ....... 8,5 ..ufsi 5,0

Ásgrímur Halld. SF 270 .......flotv .............. 1 ....235 t ..makríll/síld

Jóna Eðvalds SF 200............flotv .............. 1 ....840t ..makríll/síld

Aflabrögð í júní

Næstu heimaleikir SindraLaugardaginn29.júníkl.14:00Sindri-Aftureldingí2.d.ka.•Laugardaginn29.júníkl.14:00Sindri–Grindavík1.d.kv.•Þriðjudaginn 2. júlí kl. 20:00 Sindri – Höttur 2. d. ka.•Sunnudaginn7.júlíkl.14:00Sindri-Grótta2.fl.ka.•Sunnudaginn28.júlíkl.14:00Sindri-Snæfellsnes2.fl.ka.•Laugardaginn 13. júlí kl. 16:30 Sindri ÍR 2. d. ka.•Laugardaginn 27. júlí kl. 16:00 Sindri – KR 1. d. kv.•Miðvikudaginn 31. júlí kl. 20:00 Sindri – Dalvík/Reynir 2. d. ka.•Laugardaginn 10. ágúst kl. 16:00 Sindri Njarðvík 2. d. ka.•Sunnudaginn 11. ágúst kl. 11:00 Sindri – Keflavík 1. d. kv.•

HM í HMHeimsmeistaramótið í HornafjarðarMANNA

verður kl. 11:00 á laugardaginn í íþróttahúsinu

1. verðlaunFlug með Flugfélaginu Örnum fyrir tvoPeningaverðlaun 25.000- kr. - Landsbankinn 2 kg. humaraskja - Skinney-Þinganes

2. verðlaunSigling á Jökulsárlóni fyrir tvoPeningaverðlaun 15.000- kr. - Sparisjóðurinn Hlaðborð á Smyrlabjörgum fyrir tvo2 kg. humaraskja - Skinney-Þinganes

3. verðlaunVeisla fyrir tvo á Hótel Höfn (10.000 kr.)Peningaverðlaun 10.000- kr. - Sparisjóðurinn 2 kg. humaraskja - Skinney-Þinganes

4.– 9. verðlaunMeðal vinninga: kjötlæri og lambahryggur frá Norðlenska,gæða saltfiskur og humar frá Skinney – Þinganesi og úttekt í Nettó. Að lokum eru svo nokkrir vinningar dregin úr öllum skorkortum svo allir eiga möguleika á verðlaunum.

Útbreiðslustjóri

Það var hart barist þegar Sindrastrákar í 2. flokki unnu Grindavík 4 - 0. Ljósmynd: Valdemar Einarsson.

Ljósmynd: Runólfur Hauksson

Page 10: Eystrahorn 25. tbl. 2013

Tilboðin gilda 27. - 30.júníTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

BLÁBERJAKRYDDAÐ LAMBALÆRI

ÁÐUR 1.698 KR/KG

1.392

KJÚKLINGAVÆNGIRTEX MEX

ÁÐUR 598 KR/KG

389

KARAMELLUTERTAKRISTJÁNSBAKARÍ

ÁÐUR 899 KR/STK

692

EMERGE ORKUDRYKKUR250 ML

ÁÐUR 119 KR/STK

69

42% AFSLÁTTUR

BAGUETTE 280 GRBAKE OFF

ÁÐUR 229 KR/STK

115

50% AFSLÁTTUR

BAGUETTE 440GRBAKE OFF

ÁÐUR 398 KR/STK

199

VATNSMELÓNA

89ÁÐUR 178 KR/KG

50% AFSLÁTTUR

DAZ ÞVOTTAEFNI2.58 KG

ÁÐUR 1.498 KR/PK

1.198JUBBLY FROSTPINNAR

COLA/APPELSÍNU/JARÐARBERJA

ÁÐUR 359 KR/PK

197

LAMBALÆRISSNEIÐARFERSKAR

ÁÐUR 2.298 KR/KG

1.999RJÓMAÍS 1 LVANILLA/SÚKKULAÐI

ÁÐUR 698 KR/STK

349

35% AFSLÁTTUR

LAMBAGRILLSNEIÐAR SALT & PIPAR

ÁÐUR 2.566 KR/KG

1.976GRÍSAHNAKKIHUNANGS

1.999ÁÐUR 2.352 KR/KG

37% AFSLÁTTUR

FOLALDAVÖÐVARKRYDDLEGNIR

ÁÐUR 2.998 KR/KG

1.889

50% AFSLÁTTUR

Kræsingar & kostakjör