10
Fimmtudagur 23. júní 2016 www.eystrahorn.is Eystrahorn 25. tbl. 34. árgangur Nanna Halldóra Imsland og Sólveig Sigurðardóttir halda tónleika í Hafnarkirkju þriðjudaginn 28. júní. Þær stöllur sungu saman í kór frá 7 ára aldri, fyrst í Barnakór Hornafjarðar og síðan í sönghópnum Vox Luminae. Árið sem þær fermdust fóru þær að syngja með Samkór Hornafjarðar og sungu þar oft einsöng auk þess að spila á hljóðfæri við ýmsar athafnir í kirkjunni. Þær hafa báðar lagt stund á söngnám og sungið víða, bæði einar og með ýmsum hópum. Síðastliðinn vetur söng Nanna Halldóra með Kammerkór Egilsstaðakirkju, en Sólveig með Sönghópnum Fjárlaganefnd sem einmitt tók þátt í afmælishátíð hjá Hafnar- og Bjarnaneskirkju í síðasta mánuði. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir kr. 1.500. Söngtónleikar Nönnu Halldóru og Sólveigar Fiskur og Fólk Nanna Halldóra og Sólveig nýbúnar að syngja á tónleikum fyrir 15 árum Ljósmyndasýning Steinars Garðarssonar Fiskur & Fólk er fyrsta ljósmyndasýning hans og eru myndirnar teknar á níunda áratug síðustu aldar á Höfn. Steinar er borinn og barnfæddur Hornfirðingur eins og áður hefur komið fram í blaðinu. Aðal ljósmyndaefni Steinars hafa ætíð verið mannlífsmyndir og allt sem þeim viðkemur. Það er óhætt að segja að myndirnar eru sérstaklega áhugaverðar og ekki síður skemmtilegar. Sýningin er í Stúkusalnum í austurenda Miklagarðs og verður opin til 10. júlí. Undanfarið hefur Ungmennaráð Hornafjarðar unnið framkvæmd skuggakosninga fyrir ungmenni, þær fyrstu á Íslandi. Munu þær fara fram þann 25. júní, samhliða alvöru forsetakosningunum. Kosningarétt hafa einstaklingar með lögheimili í sveitarfélaginu fæddir á árunum 1998-2003. Markmið verkefnisins er að auka dvínandi kosningaþátttöku ungs fólks, að kenna ungmennum sveitarfélagsins að kjósa, mynda sjálfstæðar skoðanir og auka áhuga á samfélagslegum málefnum, þar á meðal pólitík. Unnið verður úr niðurstöðunum og mun Ungmennaráð Hornafjarðar senda frá sér ítarlega skýrslu um allt ferlið sem önnur ungmennaráð um land allt geta nýtt sér við framkvæmd skuggakosninga í framtíðinni. Sem ungmenni tel ég ástæður fyrir dvínandi kosningaþátttöku ekki vera leti eða áhugaleysi, heldur er kunnáttan og fræðslan ekki til staðar. Fræðsla um pólitík er mikilvæg fyrir alla, en sérstaklega fólk sem er að kjósa í fyrsta skipti. Ekki að það eigi að gefa ungmennum allt upp í hendurnar, heldur reyna að höfða til okkar og vekja áhuga áður en flokkar, og einstaklingar, til dæmis forsetaframbjóðendur þurfa á atkvæði okkar að halda. Ungt fólk verður að læra að taka upplýsta og sjálfstæða ákvörðun, og koma henni til skila með því að nýta kosningaréttinn til fulls. Við erum næsta kynslóð sem mun koma til með að taka þátt í allskonar kosningum í framtíðinni, og tel ég það mjög mikilvægt og í samræmi við fullkomið lýðræði að við kunnum og getum nýtt okkur kosningaréttinn okkar til hins ýtrasta. því sögðu hvet ég alla unglinga Hornafjarðar til að mæta á kjörstað á laugardaginn, á milli 12:00 og 20:00 (kjörstaðir í sveitunum opnir á öðrum tíma, auglýst seinna)og hjálpa okkur að setja gott fordæmi og sýna Íslandi að okkur er ekki sama, við höfum svo sannarlega rödd og við ætlum að láta í okkur heyra. Þitt atkvæði skiptir miklu máli! Virðingarfyllst, Þórdís María Einarsdóttir Formaður kjörstjórnar Skuggakosninga 2016 og aðalmaður ungmennaráðs Hornafjarðar Skuggakosningar á Hornafirði

25.tbl 2016

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: 25.tbl 2016

Fimmtudagur 23. júní 2016 www.eystrahorn.is

Eystrahorn25. tbl. 34. árgangur

Nanna Halldóra Imsland og Sólveig Sigurðardóttir halda tónleika í Hafnarkirkju þriðjudaginn 28. júní.

Þær stöllur sungu saman í kór frá 7 ára aldri, fyrst í Barnakór Hornafjarðar og síðan í sönghópnum Vox Luminae. Árið sem þær fermdust fóru þær að syngja með Samkór Hornafjarðar og sungu þar oft einsöng auk þess að spila á hljóðfæri við ýmsar athafnir í kirkjunni. Þær hafa báðar lagt stund á söngnám

og sungið víða, bæði einar og með ýmsum hópum. Síðastliðinn vetur söng Nanna Halldóra með Kammerkór Egilsstaðakirkju, en Sólveig með Sönghópnum Fjárlaganefnd sem einmitt tók þátt í afmælishátíð hjá Hafnar- og Bjarnaneskirkju í síðasta mánuði.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir kr. 1.500.

Söngtónleikar Nönnu Halldóru og Sólveigar

Fiskur og Fólk

Nanna Halldóra og Sólveig nýbúnar að syngja á tónleikum fyrir 15 árum

Ljósmyndasýning Steinars Garðarssonar Fiskur & Fólk er fyrsta ljósmyndasýning hans og eru myndirnar teknar á níunda áratug síðustu aldar á Höfn. Steinar er borinn og barnfæddur Hornfirðingur eins og áður hefur komið fram í blaðinu. Aðal ljósmyndaefni Steinars hafa ætíð veriðmannlífsmyndir og allt sem þeim viðkemur. Það er óhætt að segja að myndirnar eru sérstaklega áhugaverðar og ekki síður skemmtilegar.

Sýningin er í Stúkusalnum í austurenda Miklagarðs og verður opin til 10. júlí.

Undanfarið hefur Ungmennaráð Hornafjarðar unnið að framkvæmd skuggakosninga fyrir ungmenni, þær fyrstu á Íslandi. Munu þær fara fram þann 25. júní, samhliða alvöru forsetakosningunum. Kosningarétt hafa einstaklingar með lögheimili í sveitarfélaginu fæddir á árunum 1998-2003. Markmið verkefnisins er að auka dvínandi kosningaþátttöku ungs fólks, að kenna ungmennum sveitarfélagsins að kjósa, mynda sjálfstæðar skoðanir og auka áhuga á samfélagslegum málefnum, þar á meðal pólitík. Unnið verður úr niðurstöðunum og mun Ungmennaráð Hornafjarðar senda frá sér ítarlega skýrslu um allt ferlið sem önnur ungmennaráð um land allt geta nýtt sér við framkvæmd skuggakosninga í framtíðinni.

Sem ungmenni tel ég ástæður fyrir dvínandi kosningaþátttöku ekki vera leti eða áhugaleysi, heldur er kunnáttan og fræðslan ekki til staðar. Fræðsla um pólitík er mikilvæg fyrir alla, en sérstaklega fólk sem er að kjósa í fyrsta skipti. Ekki að það

eigi að gefa ungmennum allt upp í hendurnar, heldur reyna að höfða til okkar og vekja áhuga áður en flokkar, og einstaklingar, til dæmis forsetaframbjóðendur þurfa á atkvæði okkar að halda. Ungt fólk verður að læra að taka upplýsta og sjálfstæða ákvörðun, og koma henni til skila með því að nýta kosningaréttinn til fulls. Við erum næsta kynslóð sem mun koma til með að taka þátt í allskonar kosningum í framtíðinni, og tel ég það mjög mikilvægt og í samræmi við fullkomið lýðræði að við kunnum og getum nýtt okkur kosningaréttinn okkar til hins ýtrasta.

Að því sögðu hvet ég alla unglinga Hornafjarðar til að mæta á kjörstað á laugardaginn, á milli 12:00 og 20:00 (kjörstaðir í sveitunum opnir á öðrum tíma, auglýst seinna)og hjálpa okkur að setja gott fordæmi og sýna Íslandi að okkur er ekki sama, við höfum svo sannarlega rödd og við ætlum að láta í okkur heyra.

Þitt atkvæði skiptir miklu máli!

Virðingarfyllst, Þórdís María Einarsdóttir

Formaður kjörstjórnar Skuggakosninga 2016 og aðalmaður ungmennaráðs Hornafjarðar

Skuggakosningar á Hornafirði

Page 2: 25.tbl 2016

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 23. júní 2016

HofskirkjaSunnudaginn 26. júníMessa kl 20:00

Prestarnir og sóknarnefndin

Kaþólska kirkjan- messuhaldMessur verða haldnar á eftirtöldum dögum:26. júní 10. júlí 31. júlí 14. ágúst, David biskup messar 28. ágústHlökkum til að hittast saman. Og gleðilegt sumarfrí öllum sem fara.

Salat, krydd, matjurtir, sumarblóm, trjáplöntur, skrautrunnar, fjölær blóm og fl.

Tilboð10 daggarbrár áður 1950 kr. nú 1490 kr.10 stjúpur áður 1950 kr. nú 1490 kr.Tóbakshorn áður 1290 kr. nú 990 kr.

Glæsitoppur áður 2450 kr. nú 1950 kr.

Ath. allar plöntur ræktaðar í Dilksnesi.

Opið virka daga í júní og júlí kl. 13:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 – 15:00. Opnunartími í ágúst eftir samkomulagi.

Gróðrarstöðin Dilksnesi

Verktaki í heyskap

Sláttur, rakstur og rúllubinding/plöstunNýjung í heyskap, plast í stað nets/garns

Get boðið bleikt rúlluplast til styrktar baráttu gegn brjóstakrabbameini

Hafið samband tímanlega í síma 861-1029

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Tjörvi ÓskarssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Helgihald í Bjarnanesprestakalli sumarið 2016

26. júní Kvöldmessa í Hofskirkju kl. 20:00

3. júlí Kvöldmessa í Hafnarkirkju kl. 20:00

10. júlí Messa kl. 11:00 á RÚV Rás1 Kvöldmessa í Bjarnaneskirkju kl. 20:00

29. júlí Ólafsmessa/tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju kl. 20:00

14. ágúst Kvöldmessa í Hafnarkirkju kl. 17:00

21. ágúst Messa í Brunnhólskirkju kl. 14:00. Kirkjudagur. Kaffi og tónleikar eftir messu.

28. ágúst Guðsþjónusta í Stafafellskirkju kl. 14:00. Kirkjudagur. Kaffi í Fundarhúsi.

Snorri Snorrasonlögg. fasteignasali Litlubrú 1780 HöfnSími [email protected]

BUGÐULEIRAFullbúinn 137,6 m² eignarhluti á annarri hæð í atvinnuhúsnæði. Húsnæðið skiptist í 3 herbergi, ásamt starfsmannaaðstöðu.

VESTURBRAUTUm er að ræða gott og vel skipulagt steypt 145,1 m²einbýlishús, ásamt 57,5, m² hlöðnum bílskúr, samtals 202,6 m². 4 svefnherbergi, nýtt þak, stór steypt verönd við húsið. Verð: 32 millj.

VÍKURBRAUTTil sölu góð 79,8 m², 2ja herb.íbúð með sólstofu, íbúðin hentar vel þeim sem eru að minnka við sig.

NÝTT Á SKRÁNÝTT Á SKRÁ NÝTT Á SKRÁ

JaspisFasteignasala

Sólstöðublót

Sólstöðublót verður við Heinaberg laugardagskvöldið 25. júní kl. 22:00

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur mætir á blótið og spjallar við áhugasama um blótsiði en hún hefur skrifað um blót í bókum sínum, m.a. um ambáttina Korku og landsnáms-konuna Auði djúpúðgu.

Öll hjartanlega velkomin, Svínfellingagoði.

Page 3: 25.tbl 2016

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 23. júní 2016

Framtíðarstarf í ræstingum á HSU Hornafirði

Laus 60% staða við ræstingar á Skjólgarði hjúkrunardeild. Laun samkvæmt kjarasamningum

launanefndar sveitarfélaga og Afl starfsgreinafélags. Upplýsingar um starfið veitir Ásgerður Gylfadóttir, hjúkrunarstjóri, [email protected] eða Matthildur

Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri, [email protected].

Umsóknafrestur er til og með 30. júní. Viðkomandi getur hafið störf strax.

Ragnhildur Magnúsdóttirkvensjúkdómalæknir verður með móttöku á

heilsugæslustöðinni á Höfn 4. - 5. júlí.

Tímabókanir í síma 470-8600.

Umhverfisviðurkenning Umhverfisnefnd auglýsir eftir tilnefningum, einstaklingi (um), félagasamstökum, stofnun, fyrirtæki og lögbýlum til sveita, sem hefur með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru og umhverfi að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hefur á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis. Frestur til að tilnefna er til 9. ágúst, tilnefningum skal skila á skrifstofu Ráðhússins Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði eða á netfangið [email protected]

Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi

Skuggakosningar og kosningaþátttakaAf hverju ekki? er ein af þeim stóru spurningum sem illa fæst svarað þegar rætt er um kosningaþátttöku ungs fólks. Ekki bara á Íslandi heldur í heiminum öllum fer kjörsókn ungs fólks dvínandi og því ekki nema von að fólk spyrji um ástæður.Af hverju mætir ungt fólk ekki á kjörstað? Að kjósa er ekki aðeins mikilvægur réttur hvers og eins heldur er það einnig ábyrgð sem lögð er á herðar allra landsmanna sem náð hafa kjöraldri. Margir halda því fram að atkvæði þeirra skipti ekki máli. Sumir segja að þeir viti ekki nægilega mikið um hvað málefnið snýst eða hvaða frambjóðenda þeir ættu að kjósa, á meðan aðrir afsaka laka kjörsókn með algjöru vantrausti á þeim frambjóðendum sem í kjöri eru hverju sinni. Hver svosem ástæðan er, afsakar ekkert að gefa frá sér þann mikilvæga lýðræðislega rétt sem kosningar eru. Til að stuðla að þeim breytingum sem við viljum sjá í landinu, þurfum við að tala og láta raddir okkar heyrast. Það er því mikilvægt að hver og einn

nýti kosningarétt sinn og hafi þannig áhrif á þau fjölbreyttu málefni sem varða samfélagið okkar allra. Þitt atkvæði er þín rödd. Til að auðvelda hornfirskum ungmennum sín fyrstu skref í kosningum hefur ungmennaráð Hornafjarðar útbúið bækling þar sem hver forsetaframbjóðandi kynnir sig og sínar hugmyndir er varða forsetaembættið. Bæklingnum hefur nú verið deilt á alla helstu samfélagsmiðla bæjarfélagsins auk þess að hægt er að nálgast hann í Miðbæ, Nýheimum og Sundlaug Hafnar. Ég vil því hvetja öll ungmenni, auk þeirra sem eldri eru og hafa ekki gert upp hug sinn fyrir komandi kosningar að ná sér í eintak, kynna sér frambjóðendur og taka vel upplýsta ákvörðun um hver leiða eigi þjóðina næsta kjörtímabil. Og lýðræðisins vegna, þið sem tilheyrið þeim 33,5 prósentum þjóðarinnar sem ekki kusuð í sveitastjórnarkosningum árið 2014, ungir sem aldnir. Drífið ykkur á kjörstað þann 25. júní og kjósið.

Með von um góða kosningaþátttöku, Dagbjört Ýr Kiesel

Fráfarandi tómstundafulltrúi

Atvinna - Lönguhólar Auglýst er eftir leikskólakennurum eða leiðbeinendum á Leikskólann Lönguhóla. Leikskólinn er útileikskóli og hefur stuðst við hugmyndafræði Reggio Emilia.

Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.Einstaklingar eru hvattir til að hafa samband til að kynna sér launakjörBæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 6. júní s.l. reglur um afslátt til handa starfsfólki með börn á leikskólunum sem er 50 % afsláttur af leikskólagjaldi auk þess að börn starfsmanna hafa forgang að leikskólaplássi.Nánari upplýsingar hjá Margréti leikskólastjóra í síma 470-2490 eða netfangið [email protected], umsóknir berist til Margrétar.

Page 4: 25.tbl 2016

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 23. júní 2016

RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is

Rafvirki á Höfn í Hornafirði

Starfssvið

● Umsjón með orkumælum ● Tenging nýrra viðskiptavina ● Samskipti við rafverktaka ● Þjónusta við viðskiptavini ● Gagnaskráningar ● Undirbúningur verkefna

Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um, nánari upplýsingar veitir Finnur Freyr Magnússon, deildarstjóri rekstrarsviðs á Austurlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 12. júlí n.k. og skal skila umsóknum með ferilskrá á netfangið [email protected].

RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið.

RARIK ohf. auglýsir eftir rafvirkja með aðsetur á Höfn í Hornafirði. Hér er um fjölbreytt starf að ræða sem felur í sér mælaumsjón, undirbúning verkefna og gagnaskráningu fyrir dreifikerfi RARIK á Suðausturlandi.

Hæfniskröfur

● Sveinspróf í rafvirkjun ● Öryggisvitund ● Hæfni í mannlegum samskiptum ● Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt ● Almenn tölvukunnátta

Morgunblaðið 25.-26.06.2016:

TIL LEIGU

Eitt eða tvö herbergi til leigu til langs tíma í húsi á besta stað á Höfn. Fullt aðgengi að þvottahúsi,

tveimur baðherbergjum og tveimur eldhúsum og stofu. Vinnuskipti eru í boði gegn

frírri leigu.

Vinsamlegast hafið samband í netfangi:

[email protected].

Rakarastofan verður í sumarfríi eftirtaldar

vikur í sumar:

27. júní - 1. júlí11. - 15. júlí25. - 29. júlí

Rakarastofa

Baldvins

Að hjóla er góð æfing fyrir börn. Það þjálfar vöðva barnsins, samhæfingu handa og fóta og jafnvægi. Börn eiga hins vegar erfitt með að meta hraða, fjarlægð og hvaðan hljóð berast. Þau eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað ökumenn bíla hyggjast gera. Eins eiga þau erfitt með að sjá aðstæður í heild eða samhengi á milli smáatriða. Ung börn eiga sérstaklega erfitt með að einbeita sér að mörgum atriðum í einu. Miðað við almennan þroska og getu barna er barnið fyrst tilbúið til að hjóla í umferðinni við 10-12 ára aldur. Fram að þeim aldri er fjarlægðarskynið ekki fullþroskað þannig að barninu finnst hlutirnir vera lengra í burtu en þeir í rauninni eru. Yngri börn hafa heldur ekki eins góða hliðarsýn og þau sem eldri eru. Heyrn barna yngri en 8 ára er ekki fullþroskuð og geta þau því ekki greint úr hvaða átt hljóð kemur. Við 10 ára aldur hafa þau náð fullum jafnvægisþroska. Það er því fyrst við 10-12 ára aldur sem þau hafa þroska til að meðtaka allt sem fer fram í kringum þau þar sem þau hjóla.Áður en barnið fer út á nýju hjóli þarf að velja svæði sem eru örugg fyrir barnið að hjóla á. Gatan fyrir framan heimilið er alls ekki rétti staðurinn, þó að íbúðahverfið teljist vera rólegt hverfi. Brýnið fyrir

barninu að hjóla aldrei á götunni. Ekki er nóg að fara yfir þetta einu sinni með barninu heldur verða foreldrar sífellt að hafa eftirlit með því. Tilvalið er að nota tímann til að vera úti með barninu og fylgjast þannig með því og leiðbeina á jákvæðan og góðan hátt.Æskilegt er að hjóla frekar á gangstéttum og göngustígum en á götum, en þar hafa gangandi vegfarendur forgang. Hringja skal bjöllu tímanlega þegar komið er aftan að gangandi fólki. Á sambyggðum gang- og hjólastígum skal fylgja merkingum um hvoru megin eigi að hjóla.Hjólreiðamaður þarf að gefa merki um ætlun sína í umferðinni. Aðallega er um tvenns konar merkjagjöf. Annars vegar að rétta út hendi til vinstri eða hægri ef ætlunin er að beygja. Hins vegar að setja höndina upp þegar stöðvað er. Ætlast er til að merkið sé gefið tímanlega og hafa báðar hendur á stýri á meðan beygt eða stöðvað er, svo ekki sé hætta á að hjólreiðamaðurinn missi stjórn á hjólinu. Áður en barninu er leyft að hjóla í umferðinni er mikilvægt að fara vel yfir umferðareglur hjólreiðamanna.

Hverjar eru helstu orsakir reiðhjóla-slysa hjá börnum yngri en 10 ára?

• Börn beygja skyndilega fyrir bíla.• Börn víkja ekki fyrir bílum.• Börn eru annars hugar.• Börn stytta sér leið.• Börn hjóla á rangri akrein.• Börn fara ekki eftir umferðarskiltum.• Börn hafa lélegt jafnvægi.

Heimildir: www.barn.is, www.6h.is, www.heilsugaeslan.is og www.msb.is

F.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Ólöf Árnadóttir Hjúkrunarstjóri

heilsugæslunnar í Rangárþingi

Hjólað í umferðinni

Page 5: 25.tbl 2016

Humarhátíð 2016

Dagskrá

FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ8:00 - 22:00 Skreiðarskemman - Hornafjarðarsöfn 8:00 - 22:00 Verðbúðin Miklagarði - Hornafjarðarsöfn 8:00 - 22:00 Ljósmyndasýning „Fiskur og fólk” í Miklagarði - Hornafjarðarsöfn 19:00 Sindrabær- Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar. Húsið opnað kl.19:30 og dagskrá hefst kl. 20:00

FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ8:00 - 22:00 Skreiðarskemman

8:00 - 22:00 Verbúðin Miklagarði

8:00 - 20:00 Ljósmyndasýning „Fiskur og fólk” í Miklagarði - Hornafjarðarsöfn

9:00 - 15:00 Listasafn “Global Raft”

13:00 - 15:00 Húsasmiðjan - Grillaðar pylsur í boði Húsasmiðjunnar

14:00 - 18:00 Kartöfluhúsið - Millibör, Töfra Tröll og Kristei. Heitt á könnunni

18:00 - 20:00 Humarsúpa um allan bæ. Sjá kort.

18:00 Jógaflæði í Hornhúsinu

19:30 Mjúkt slakandi jóga í Hornhúsinu

21: 00 Af fingrum fram - Tónleikar með Jóni Ólafsyni, Páli Óskari og Róberti Þórhalls bassaleikara í Íþróttahúsinu. Frítt inn.

STOLTIR STYRKTARAÐILAR HUMARHÁTÍÐAR 2016

Þjóðakvöld Kvennakórsins

Fimmtudaginn 23. júní í SINDRABÆ.Þema kvöldsins er KANADA.Húsið opnað kl. 19:30 og herlegheitin hefjast kl. 20:00Verð: kr. 4000, matur og skemmtun.

Kvennakór Hornafjarðar.

HumarTónleikar föstudagskvöldið 24. júní

í íþróttahúsinu.

Páll Óskar, Jón Ólafs píanó og Róbert Þórhalls bassiÞessi ógleymanlega kvöldstund er í raun

uppistand með tónlist.

“Af fingrum fram”

FRÍTT INN

SIGURÐUR ÓLAFSSON EHFSIGURÐUR ÓLAFSSON EHFSIGURÐUR ÓLAFSSON EHF

Page 6: 25.tbl 2016

LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ6:15 Góðan dag, einfaldlega jóga í Hornhúsinu

8:00 - 22:00 Skreiðarskemman

8:00 - 22:00 Mikligarður – Verbúð

8:00 - 22:00 Ljósmyndasýningin „Fiskur og fólk” í Miklagarði

9:30 Heimsmeistaramót í Hornafjarðamanni í Nýheimum

10:00 Humarhátíðarmót í golfi

10:00 - 12:00 Sundlaug Hafnar - frítt í sund

10:00 - 22:00 Forsetakosningar í Heppuskóla

12:00 - 20:00 Skuggakosningar í Heppuskóla

12:00 - 18:00 Kartöfluhúsið - Millibör, Töfra Tröll og Kristei. Heitt á könnunni

12:00 - 18:00 4x4 bílasýning á íþróttasvæðinu

12:00 - 18:00 Litli listaskálinn á Sléttunni - Gingó

12:00 Skrúðganga frá N1 vesturbraut

12:00 Hlussu bolti (bubble ball)

13:00 Kassabílarallí í boði Landsbankans

13:00 - 17:00 Listasafn „Global Raft”

13:00 - 17:00 Hoppukastalar á íþróttasvæði

13:30 Heimsmet í humarlokugerð á íþróttasvæði

14:00 Liðleiki og sveigjanleiki í Hornhúsinu

14:00 Söngvakeppni í íþróttahúsinu.

15:00 Kúadellulottó

15:00 Söngvaborg í íþróttahúsinu

15:30 Páll Óskar með barnaskemmtun í íþróttahúsinu

15:30 Mjúkt, slakandi jóga í Hornhúsinu

16:00 Knattspyrnuleikur á Sindravelli, boðið upp á humarsúpu

22:00 - 00:00 Ungmennadansleikur í Nýheimum, Emmsjé Gauti kemur fram.

00:00 Dansleikur með Páli Óskari í íþróttahúsinu

HM í HMHeimsmeistaramótið í HornafjarðarMANNA

verður kl. 9:30 á laugardaginn í Nýheimum

Útbreiðslustjóri

STOLTIR STYRKTARAÐILAR HUMARHÁTÍÐAR 2016

Sjóvá almennarSBA-NorðurleiðVélsmiðja Hornafjarðar ehfDeloitte ehfFuni ehf. SorphreinsunÖgmund ehf verkstæðiMálningarþjónusta Hornafjarðar

MartölvanGistiheimilið HvammurG. Karlsson ehfGlacier Trips ehfSterna (Bílar og fólk)Húsgagnaval Jaspis

ÞÖKKUM EFTIRTÖLDUM GÓÐAN STUÐNING VEGNA HUMARHÁTÍÐAR 2016

Sérstakar þakkir til allra sem lögðu til heimili sín og garða fyrir humarsúpu.

Page 7: 25.tbl 2016

SUNNUDAGURINN 28. JÚNÍ6:15 Góðan dag, einfaldlega jóga í Hornhúsinu

8:00 - 22:00 Skreiðarskemman

8:00 - 22:00 Mikligarður – Verbúð

8:00 - 22:00 Ljósmyndasýningin „Fiskur og fólk” í Miklagarði

10:00 - 12:00 Frítt í sund

12:00 - 16:00 Kartöfluhúsið - Millibör, Töfra Tröll og Kristei. Heitt á könnunni

12:00 Íþróttaálfurinn á Sindravelli

13:00 Frjálsar íþróttir

13:00 - 17:00 Listasafn „Global Raft”

13:00 - 15:00 Hoppukastalar

14:00 Jafnvægi - Hornhúsið

15:30 Mjúkt slakandi jóga í Hornhúsinu

Sjálfboðaliðar óskast !Óskum eftir sjálfboðaliðum yfir Humarhátíðarhelgina.

Áhugasamir hafið samband við Gunnar Inga í síma 899-1988

Þingvað ehfByggingarverktakar

HAFNARBÚÐðIN Veitingastaður  við  hofnina.  Restaurant  by  the  harbor.  

SIGURÐUR ÓLAFSSON EHF

1

2

3 4

5 NÝIBÆR

RAUÐATORG

HLÍÐARTÚN 12

HLÍÐARTÚN 21

SILFURBRAUT 31

1

2

3

4

5

STOLTIR STYRKTARAÐILAR HUMARHÁTÍÐAR 2016

STOLTIR STYRKTARAÐILAR HUMARHÁTÍÐAR 2016

Page 8: 25.tbl 2016
Page 9: 25.tbl 2016

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 23. júní 2016

KJÖRFUNDIRKjörfundir vegna forsetakosninganna 25. júní 2016 verða sem hér segir:

Kjördeild I Öræfi Hofgarður Frá kl. 12:00*Kjördeild II Suðursveit Hrollaugsstaðir Frá kl. 12:00*Kjördeild III Mýrar Holt Frá kl. 12:00*Kjördeild IV Nes Mánagarður Frá kl. 12:00 - 22:00Kjördeild V Höfn Heppuskóla Frá kl. 09:00 - 22:00 *) Kjörfundi á viðkomandi stöðum lýkur strax og unnt er skv. 89.gr laga nr.24/2000 um kosningar til alþingis.Kjósendur úr Lóni greiða atkvæði í Mánagarði.Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Sindrabæ á kjördag.Kjósendur geta átt von á að verða krafðir um skilríki á kjörstað.Höfn 14 júní 2016

Yfirkjörstjórn:Vignir Júlíusson

Zophonías TorfasonReynir Gunnarsson

Bon appeti t!

Opið föstudag, laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 19:00

í NýheimumHumarsúpa og humarbrauð.Smurbrauð, tertur og kökur

Tek ekki kort.

Kjörstaðir skuggakosninga Eftirfarandi kjörstaðir verða opnir yfir þau ungmenni sem kjósa í skuggakosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hofgarður kl. 13:00 - 13:30Hrollaugsstaður kl. 14:30Holt kl. 15:30 Heppuskóli kl. 12:00 - 20:00 Nes, Lón og Höfn kjósa í Heppuskóla.Þau ungmenni sem eru fædd á árinu 2003 til 1998 (þau sem ekki hafa kosningarétt)og eru með lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði frá 4. júní 2016 hafa rétt til að kjósa.Sömu reglur gilda á kjörstað og við almennar kosningar.Ekki skal vera með háreisti né áróður á kjörstað.

Kjörstjórn Ungmennaráðs.

Humarhátíð á Hótel HöfnHumarloka 1.290 kr.Humarsúpa 1.990 kr.

12“ Humarpizza 2.990 kr.Humar í orly 1.290 kr.

Gildir á Ósnum dagana 24. - 26. júní frá kl. 12:00-17:00

Page 10: 25.tbl 2016