35
22/05/22 Steinn Jóhannsson 1 Stjórnskipun landsins Vika 3. Leiðsöguskólinn Íslenskt samfélag – ÍSA 101 [email protected] http://staff.ru.is/steinn/isa101 .htm

Stjórnskipun landsins Vika 3

  • Upload
    karlyn

  • View
    52

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Stjórnskipun landsins Vika 3. Leiðsöguskólinn Íslenskt samfélag – ÍSA 101 [email protected] http://staff.ru.is/steinn/isa101.htm. Lýðveldi og lýðræði. Ísland hefur verið lýðveldi með þingbundinni stjórn frá 17. júní 1944. Æðsti maður ríkisins er forseti sem er þjóðkjörinn á 4 ára fresti. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 1

Stjórnskipun landsinsVika 3.

LeiðsöguskólinnÍslenskt samfélag – ÍSA [email protected]://staff.ru.is/steinn/isa101.htm

Page 2: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 2

Lýðveldi og lýðræði. Ísland hefur verið lýðveldi með

þingbundinni stjórn frá 17. júní 1944. Æðsti maður ríkisins er forseti sem er

þjóðkjörinn á 4 ára fresti. Með þingbundinni stjórn er átt við að

ríkisstjórnin sé ábyrg gerða sinna fyrir löggjafarþingi sem er Alþingi.

Ísland er lýðræðisríki, þ.e. landsmenn hafa rétt til að stjórna sér sjálfir með aðstoð þjóðkjörinna fulltrúa (fulltrúalýðræði).

Page 3: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 3

Stjórnarskráin. Íslendingar fengu fyrst stjórnarskrá árið

1874 (1000 ára afmæli Íslandsbyggðar). Árið 1903 varð mikilvæg breyting á henni

með ákvæði um heimastjórn sem tók gildi 1904.

Árið 1915 urðu talsverðar breytingar á stjórnarskránni þegar konur fengu kosningarétt til Alþingis og kosningaréttur var rýmkaður.

Page 4: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 4

Stjórnarskráin. Ný stjórnarskrá gekk í gildi 1920 eftir að

Ísland varð fullvalda ríki 1918. Hún breyttist lítið þar til Ísland varð lýðveldi

17. júní 1944. Helstu breytingar á stjórnarskránni eftir það

hafa verið vegna kjördæmaskipunar og jöfnun atkvæðisréttar.

Mikilvæg breyting var gerð 1995 á mannréttindarkafla stjórnarskrárinnar og hann aðlagaður að alþjóðasáttmálum.

Page 5: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 5

Stjórnarskráin. Til að breyta stjórnarskránni þarf að leggja

tillöguna fyrir Alþingi. Fáist hún samþykkt skal rjúfa þing og

stofna til alþingiskosninga. Sama tillagan er þar næst lögð fyrir nýkjörið

þing og fáist hún aftur samþykkt er hún lögð fyrir forseta landsins til undirskriftar.

Eftir þetta ferli verður hún gild stjórnskipunarlög.

Page 6: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 6

Stjórnarskráin. Grunnhugmyndir stjórnarskrárinnar eru

eftirfarandi: Ríkið er lýðveldi. Ríkisvaldið er þrískipt. Löggjafinn fær vald sitt frá þjóðinni í

lýðræðislegum kosningum. Vegna þingræðisskipunar er framkvæmdavaldið

háð löggjafanum. Dómsvaldið er óháð. Sveitarfélögin eiga að hafa ákveðið sjálfstæði. Mannréttindi skulu tryggð.

Page 7: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 7

Þrískipting ríkisvaldsins. Alþingi og forseti Íslands fara með

löggjafarvaldið. Alþingi setur reglur og lög og forseti Íslands verður að samþykkja þau með undirskrift sinni.

Forseti og önnur stjórnvöld, þ.e. ríkisstjórnin, fara með framkvæmdavaldið. Ríkisstjórnin á að framfylgja reglum og ákvörðunum Alþingis í umboði forseta Íslands.

Dómsvaldið liggur hjá óháðum dómstólum og Hæstiréttur fer með æðsta dómsvaldið í landinu.

Page 8: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 8

Þrískipting ríkisvaldsins? Í raun er valddreifingin í landinu ekki

fullkomlega þrískipt þar sem löggjafarvald og framkvæmdavald skarast.

Ráðherrar eru einnig alþingismenn, þ.e. þeir koma bæði við sögu framkvæmdavalds og löggjafarvalds.

Einnig er forsetinn nefndur sem æðsti handhafi framkvæmdavalds og annar aðalhandhafi löggjafarvalds þó svo að í raun séu völd hans ekki eins mikil og ætla mætti samkvæmt stjórnarskránni.

Page 9: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 9

Forsetinn. Forsetinn er handhafi framkvæmdavaldsins

og er ætlað að skipa ráðherra, ákveða fjölda þeirra og skipta með þeim störfum.

Vegna þingræðisreglunnar verður enginn ráðherra nema hann hafi stuðning (eða hlutleysi) meirihluta þingmanna.

Í raun eru það því ríkisstjórnarflokkarnir hverju sinni sem ákveða skiptinguna.

Page 10: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 10

Forsetinn. Forseti er annar aðalhandhafi

löggjafarvaldsins ásamt Alþingi. Hann verður að staðfesta lög með undirskrift sinni svo að þau fái fullt gildi.

Ef forseti neitar að undirrita lög (fjölmiðlalögin og IceSave 2x) taka þau samt gildi en þá verður strax að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Eftir kosningar ræður forseti hvaða stjórnmálaforingja hann veitir umboð til að mynda ríkisstjórn.

Page 11: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 11

Forsetinn.

Hann er ekki bundinn af neinum reglum varðandi þetta hlutverk. Þó er hefð fyrir því að forsetinn gefi ,,sigurvegara” kosninganna fyrst umboð til að reyna að mynda ríkisstjórn.

Forsetinn hefur vald til að skipa utanþingsstjórn ef hann telur að stjórnmálaflokkarnir geti ekki myndað starfhæfa ríkisstjórn.

Forsetinn er sameiningartákn þjóðarinar og geta áhrif hans því verið veruleg.

Page 12: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 12

Forsetar landsins.

Sveinn Björnsson 1944-1952. Ásgeir Ásgeirsson 1952-1968. Kristján Eldjárn 1968-1980. Vigdís Finnbogadóttir 1980-1996. Ólafur Ragnar Grímsson 1996-?

Page 13: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 13

Alþingi – löggjafarvald. Alþingi er þjóðkjörin stofnun og fer með

æðstu völd í þjóðfélaginu. Fundir Alþingis eru opnir almenningi og

öllum er heimill aðgangur að þingpöllum. Kjörtímabil þingmanna eru 4 ár og þá eru

haldnar nýjar kosningar nema þing hafi verið rofið áður. Þingrof þýðir að kjör þingmanna er gert ógilt og boðað er til nýrra kosninga. Forsætisráðherra tekur venjulega ákvörðun um þingrof en hann þarf að fá staðfestingu forsetans til að það sé gilt.

Page 14: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 14

Alþingi Alþingi kemur saman til fundar 1. október

ár hvert og starfar fram í maí. Fyrsta verk á hausti er að kjósa forseta

Alþingis (og 6 varaforseta). Hlutverk hans er að sjá um að ákvæði stjórnarskrárinnar um Alþingi séu haldin, sem og reglur um skipulag og vinnubrögð þingsins.

Forseti Alþingis er einn af handhöfum forsetavalds í fjarveru forsetans. Hinir tveir handhafarnir eru forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar.

Page 15: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 15

Forseti Alþingis. Þingforseti stjórnar fundum Alþingis. Hann hefur rétt til að taka þátt í umræðum

líkt og aðrir þingmenn og gegnir þá einhver varaforsetanna fundarstjórninni á meðan.

Forseti Alþingis hefur atkvæðisrétt í þingsalnum.

Þingflokkarnir hafa vanalega komið sér saman um val varaforsetanna fyrir fram.

Page 16: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 16

Helstu verkefni og störf Alþingis Setja ný lög og fella úr gildi gömul. Setja fjárlög, þ.e. að ákveða tekjur og

útgjöld ríkisins. Hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu, þ.e.

ríkisstjórn og stjórnsýslu. Leggja fram þingsályktanir. (Viljayfirlýsing

þingsins í ákveðnum málum sem framkvæmdavaldinu ber að fylgja eftir.)

Á Alþingi eiga 63 þjóðkjörnir þingmenn sæti.

Page 17: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 17

Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi

Þingnefndir Alþingis

Page 18: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 18

Kjósendur og kjörsæti

Page 19: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 19

Vægi atkvæða er misjafnt

Page 20: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 20

Kosningaþátttaka

83,6% árið 2007 og 87,7% í alþingiskosn. Árið 2003 og 85,1% árið 2009

82% í sveitastjórnarkosn. 2002 – greidd atkvæði voru 168.913 (216 þús. á kjörskrá 2006)

Til samanburðar greiddu 134.374 í forsetakosn. 2004

Kosn. 2009 227.843 kjósendur á kjörskrá til alþ.kosn.

Page 21: Stjórnskipun landsins Vika 3

Úrslit alþingiskosninga 2009

21/04/23 Steinn Jóhannsson 21

Page 22: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 22

Ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis Ríkisendurskoðun heyrir nú undir Alþingi en var áður

undir fjármálaráðuneytinu. Hennar hlutverk er að fylgjast með því hvort opinberu fé sé skynsamlega varið og í samræmi við samþykktir og forsendur Alþingis.

Hlutverk umboðsmanns Alþingis er að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum. Einstaklingar sem telja að stjórnvöld hafi brotið á sér geta lagt fram kvörtun til embættisins. Umboðsmaður ákveður hvort málið verði tekið til meðferðar.

Page 23: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 23

Ríkisstjórn - framkvæmdavald Formlega er forseti Íslands æðsti handhafi

framkvæmdavaldsins en skv. íslenskri stjórnskipan fara ráðherrar með framkvæmdavaldið. Þeir bera ábyrgð á gerðum sínum gagnvart Alþingi.

Ríkisstjórnin er verkstjóri stjórnsýslunnar, stýrir öllum opinberum framkvæmdum og hefur eftirlit með lægra settum stjórnvöldum.

Ríkisstjórnin gegnir leiðtogahlutverki í stjórnmálum og hefur mikil áhrif á það hvaða mál eru tekin fyrir á Alþingi.

Page 24: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 24

Ríkisstjórnir Íslands

Page 25: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 25

Forsætisráðherra Forsætisráðherra er forsvarsmaður

ríkisstjórnar og talsmaður hennar út á við. Hann hefur úrslitavald í öllum mikilvægum málum og ber ábyrgð á athöfnum hennar.

Ef forsætisráðherra segir af sér verður öll ríkisstjórnin að gera það líka.

Engin ákvæði eru í stjórnarskrá landsins um hversu margir ráðherrarnir eigi að vera. Þeir skipta með sér málaflokkum og stundum fer sami ráðherrann með fleiri en eitt ráðuneyti.

Page 26: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 26

Ráðuneyti og ráðherrar Forsætisráðuneyti – Jóhanna Sigurðardóttir (S) Fjármálaráðuneyti – Steingrímur J.

Sigfússon(VG) Velferðarráðherra – Guðbjartur Hannesson(S) Iðnaðarráðuneyti – Katrín Júlíusdóttir(S) Efnahags- og viðskiptaráðuneyti – Árni Páll

Árnason (S)

Page 27: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 27

Ráðuneyti og ráðherrar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti – Jón

Bjarnason (VG) Menntamála- og menningamálaráðuneyti –

Katrín Jakobsdóttir (VG) Innanríkisráðuneyti – Ögmundur Jónasson(VG) Umhverfisráðuneyti – Svandís

Svarvarsdóttir(VG) Utanríkisráðuneyti – Össur Skarphéðinsson (S)

Page 28: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 28

Stjórnmálaflokkar Sjálfstæðisflokkurinn – Bjarni Benediktsson Framsóknarflokkurinn – Sigmundur Davíð

Gunnlaugsson Samfylkingin – Jóhanna Sigurðardóttir Vinstri-Grænir – Steingrímur J. Sigfússon Frjálslyndi flokkurinn – Sigurjón Þórðarson Hreyfingin

Page 29: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 29

Kjördæmaskipting Árið 1999 staðfesti Alþingi breytingar á

stjórnarskránni sem fela m.a. í sér breytingar á kjördæmaskipan landsins.

Síðustu 40 árin hefur landinu verið skipt í 8 kjördæmi en í nýju kosningalögunum eru 6 kjördæmi.

Þau eru: Reykjavík norður, Rvk. suður, Suðvesturkjördæmi, Suðurkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi.

Page 30: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 30

Íslensk sveitafélög

Voru 229 árið 1950 en voru 76 árið 2010

Kosningar í sveitarfélögum; tvær aðferðir: Bundin hlutfallskosning. Fer fram í sveitarfélögum með

yfir 300 íbúa. Flokkar eða kosningabandalög bjóða fram. Óbundin hlutfallskosning. Fer fram þar sem íbúar

sveitarfélaga eru færri en 300. Allir íbúar (sem ekki eru undanþegnir kjöri) eru í framboði.

Page 31: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 31

Mannréttindi stjórnarskrár (helstu ákvæðin).

Almenn jafnræðisregla gildir fyrir alla þegna þjóðfélagsins.

Bannað er að svipta mann ríkisborgararétt nema hann hafi öðlast ríkisfang í öðru ríki.

Óheimilt er að svipta menn ferðafrelsi. Sá sem sviptur er frelsi á rétt á að vita strax

um ástæður þess. Sá sem er handtekinn skal tafarlaust

leiddur fyrir dómara sem úrskurðar hvort beita þurfi gæsluvarðhaldi.

Page 32: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 32

Mannréttindi (frh.) Bannað er að beita pyntingum eða annarri

ómannúðlegri refsingu. Dauðadómur er bannaður. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu er mikilvæg. Ákvæði eru um tjáningarfrelsi sem einungis

má takmarka til að tryggja öryggi ríkisins og almannaheill.

Félagafrelsi ríkir, þ.e. réttur manna til að standa utan félaga.

Page 33: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 33

Mannréttindi (frh.) Atvinnufrelsi er tryggt, þ.e. réttur manna til

að semja um ýmis réttindi tengd vinnu, eins og starfskjör.

Félagsleg réttindi eru tryggð, þ.e. réttur til aðstoðar vegna örorku, sjúkleika, atvinnuleysis, elli og örbirgðar.

Einnig er talað um réttinn til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi.

Enga skatta má leggja á fólk nema þá sem mælt er fyrir um í lögum.

Page 34: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 34

Heimildir Garðar Gíslason 2001. Félagsfræði:

Einstaklingur og samfélag. Reykjavík: Mál og menning.

Jóhannes Nordal og Valdimar Kristinsson (ritstj.) 1996. Iceland: The Republic. Seðlabanki Íslands.

Jón Ólafur Ísberg og Ólafur Gränz (ritstj.) 2000. Ísland: The New Millennium Series. Reykjavík: Carol Nord ehf.

Page 35: Stjórnskipun landsins Vika 3

21/04/23 Steinn Jóhannsson 35

Vefheimildir

http://www.althingi.is/ http://www.haestirettur.is/ http://www.stjr.is/