50
Staðan og það sem framundan er í efnahagsmálum Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur og bankamaður

Staðan og það sem framundan er í efnahagsmálum

  • Upload
    norm

  • View
    83

  • Download
    4

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Staðan og það sem framundan er í efnahagsmálum. Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur og bankamaður. Um frjálshyggju og siðferði. Efnahagur og viðskipti eru ekki markmið í sjálfu sér, heldur er leiðir að markmiði . Gott mannlíf er markmið, viðskiptalífið á að vera þjónn mannlífsins. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan og það sem framundan er í efnahagsmálum

Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur og bankamaður

Page 2: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Efnahagur og viðskipti eru ekki markmið í sjálfu sér, heldur er leiðir að markmiði.

Gott mannlíf er markmið, viðskiptalífið á að vera þjónn mannlífsins.

Gildi okkar og stærstu hagsmunir, s.s. velferð og menning, mættu afgangi.

Allt siðferði byggist á að til séu dyggðir og lestir, við þurfum að vinna með þessi hugtök.

2

Page 3: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Frelsi er skynsamlegasta og besta leiðin í viðskiptum, enda séu markaðir frjálsir í raun og háðir samkeppni og siðareglum. Ríkið verður að sinna þessu, en hefur ekki gert það.

Hér eru varla frjálsir markaðir, fákeppni er allsráðandi og lítill hópur manna hefur ráðskast með okkur í eiginhagsmunaskyni.

Frjálshyggjan miðast við viðskipti og viðskiptalíf, en var því miður yfirfærð í stærra samhengi.

3

Page 4: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Stjórnmálamenn okkar hrifust með, misstu dómgreind á þróunina. Lífsreynsla og starfsreynsla er það sem helst getur tryggt dómgreind.

Stjórnmálin eru að breytast til hins verra, verða sérgrein. Ungt fólk hlýtur starfsþjálfun inni á Alþingi. Sumir nýliðar virðast ekki átta sig á flækjustiginu og nánast týnast inni á Alþingi.

Þetta sýnir að starfsreynsla og lífsreynsla þurfa á ný að vera fengin áður en sóst er eftir þingsæti.

4

Page 5: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Ríkið á að tryggja að ákveðnir hlutir séu gerðir, og stunda eftirlit. Að menn virði t.d. lög og rétt, ógni þ.á.m. ekki almannaheill.

Frjálshyggjan hefur haft mikil áhrif, menn hafa dregið úr réttmætum umsvifum ríkisins, og veikt margar mikilvægrar stofnanir.

Menntun, menning, heilbrigði og löggæsla eru málaflokkar sem ekki má vanrækja og ekki er unnt að fela markaðnum að annast.

5

Page 6: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Gáleysi stjórnmálamanna í góðærinu var áberandi, oftrú á lögmál markaðarins og þau sett í of vítt samhengi. Menn unnu ekki eftir réttum leiðum.

Áföll og hagsveiflur eiga ekki að vera stóráföll, aðeins úrlausnarefni. Þeir sem léku mikilvægustu hlutverkin njóta ekki lengur trausts. Persónur skipta ekki máli, þeir sem gegndu stöðum axli ábyrgð.

Ójöfnuður hefur aukist og valdaójafnvægi ríkti. Fáir auðmenn réðu för, náðu völdum af hinum réttkjörnu.

6

Page 7: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Menntun er veitt sem samfélagsþjónusta, þeir sem þiggja hana eiga að vera skuldbundnir samfélaginu og eiga að taka ábyrgð, vera ábyrgir.

Eiginhagsmunasemi réð samt för, hver sá aðeins um sig.

Gengur ekki upp, það er ekki meirihluti fyrir slíku samfélagi.

7

Page 8: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Samþjöppun auðs er hagrænt vandamál. Við þurfum að efla jöfnuð og jafnræði á öllum sviðum, endurvekja gamlar og góðar hugmyndir.

Þurfum að leggja rækt við gamlar hefðir, söguna og landið, endurnýja okkur á þessu sviði.

Við þurfum að endurreisa hugmyndafræði okkar á nýjan hátt. Tryggja að hlutirnir fari ekki aftur í sama farið.

8

Page 9: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Um frjálshyggju og siðferði

Hugsunarhátturinn sem var, frjálshyggjan, leiddi ekki til þess sem við viljum,

... við leitum því að öðru menningarlegra, manneskjulegra, siðferðilegra góðæri.

Setjum hugmyndir um velferð og farsæld í öndvegi, þar á meðal í hagstjórn.

9

Page 10: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Ríkissjóður var ekki rekinn með

nægum afgangi í góðærinu, þess vegna þarf að skera niður núna.

Hann á að safna til mögru áranna í góðærinu og ekki að þurfa að skera svona mikið niður og auka með því á kreppuna.

Skuldirnar eru nú tvöföld þjóðarframleiðslan. Erfitt, nema nýtt góðæri komi. Það kemur, en seinna en við viljum.

10

Page 11: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Efnahagsástandið er enn að versna í

veröldinni, eignaverð er að lækka og þar með eftirspurn almennings.

Fiskverð gefur eftir. Hugsanlegt er að forsendur þjóðhagsáætlunar og fjárlaga bresti.

11

Page 12: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Við sjáum nú kosti þess að vera með

krónuna, snögg gengisaðlögun heldur okkur á mottunni í einkaneyslu, kominn er jákvæður viðskiptajöfnuður. Í augna-blikinu er landið sjálfu sér nógt.

Smærri ESB ríkin, ríkin á jaðrinum, kveljast vegna þess að þróun evrunnar tekur ekkert tillit til þarfa þeirra, þar er engin gengisaðlögun, hún miðast við stóru hagkerfin í miðjunni.

Lærum af þessu, förum vel með krónuna !

12

Page 13: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Allir bankar heimsins reyna nú að

vernda eiginfjárhlutfall sitt með því að lána ekki, allir nauðhemla á sama tíma, stútfullir af lausafé.

Þjóðfélag án lánsfjármiðlunar getur ekkert framkvæmt. Þetta er vandamál um allan heim á sama tíma og er stór hluti af kreppunni.

Atvinnuástandið fer hratt versnandi. 13

Page 14: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Lífeyrissjóðirnir tryggja nýmyndun

sparnaðar og byggja þar með undir fjárhagslegt sjálfstæði landsins.

Ríkisgjaldþrot er varla í spilunum. Þjóðargjald-þrot er ekki til sem hagfræðihugtak.

Eignarrétturinn er sterkur, fasteignir og lóðir (land) eru verðmæti sem ekki verða tekin af fólki sem ekki skuldar. 14

Page 15: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Fasteignabólur, hlutabréfabólur,

hrávörubólur, lánabólur, skuldabréfabólur, og vogunarsjóða-bólur springa nú samtímis um allan heim, í keðjuverkun eins og púðurkerlingar.

Kvótabólan íslenska er að springa.

15

Page 16: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Frekari lækkun eignaverðs er helsta

hættan hér heima eins og í veröldinni. Nýju bankarnir gætu farið aftur á hausinn. Spái því samt ekki.

Enn er ekki búið að yfirfæra eignir í nýju bankana, enn er unnt að koma raunhæfu mati að.

16

Page 17: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Nafnvextir (óverðtryggðra liða)

verða áfram háir en stýrivextir byrja að lækka í vor og lækka jafnt og þétt út árið með lækkandi verðbólgu.

Raunvextir munu fara hækkandi vegna lánsfjárskorts og verða í sögulegu hámarki á næstu misserum og árum.

17

Page 18: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Hugsanlegt er að Kreppan verði lík

þeirri sem Japan glímdi við eftir að bólurnar sprungu þar um 1990 en hún fól í sér vítahring samdráttar og verðhjöðnunar.

Við slík skilyrði borgar sig fyrir alla að fresta framkvæmdum, sem læsir samdráttinn inni.

Heimskreppa af því tagi hófst 1859 og stóð í nær 20 ár. 18

Page 19: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Innlán eru ekki í bráðri hættu. Þau eru helsta uppspretta lánsfjár,

auk lífeyris-sjóðanna, þar sem erlend lán fást ekki.

Við getum ekki verið án sparifjáreigenda og innlána þeirra.

19

Page 20: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Staðan í efnahagsmálum Stjórnvöld þurfa að meta stöðuna og

bregðast við Verði það ekki gert með skipulögðum

og skilvirkum hætti kann að fara mjög illa

Gera leiðtogar okkar sér ekki grein fyrir alvöru málsins ?

,,Ákvarðanastol“ virðist vera vandamál

20

Page 21: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Gerir fólk sér grein fyrir því í

hvaða stöðu viðerum komin ? Það er tálsýn að halda að vandinn

verði skamm-vinnur, kreppan verður löng og ströng.

Í gamalli táknmálsfrásögn Biblíunnar um draum Faraós táknuðu horuðu kýrnar sjö jafnmörg erfið ár. Þær átu feitu kýrnar, sem táknuðu góðærið.

Góðærið er oft nálægt sjö ár, heimskreppur líka.

21

Page 22: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Ekki trúa fagurgala og loforðum

stjórnmála-manna. Ekkert verður gert sérstaklega fyrir þá sem skulda t.d. myntkörfulán.

Íbúðarhúsnæði landsmanna er ein varanlegasta eign þjóðarinnar, með verðtryggðum veðlánum hefur fjármálakerfið akkerisfestu í þessum eignum.

Ekki er unnt að sleppa þessari akkerisfestu

22

Page 23: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Ekki verður hróflað við verðtryggingu.

Hún hindrar eignatilfærslu frá eldra fólki og einnig óhóflega seðlaprentun þar sem henni yrði óðara velt út í verðlagið.

Við getum ekki gengið í sjóði sparifjáreigenda, þeir eru ein mikilvægasta uppspretta lánsfjár í landinu.

Óhætt er að þrengja að notkun verðtryggingar með því að áskilja að lánstími skuli vera minnst t.d. 7 ár og að vextir skuli vera fastir.

23

Page 24: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Raunvextir geta hækkað í 8-9% á

sparifé, 11-12% á lánsfé. Gríðarlega háir raunvextir eru framundan, endurskoðun vaxta húsnæðislána banka í haust og áfram er áhyggjuefni.

Hugsanlegt er að ekki sé rétti tíminn til að áskilja að vextir verðtryggðra lána skuli vera fastir, nema miðað verði við upphafsvextina.

24

Page 25: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Lífeyrissjóðir munu skerða

bótagreiðslur, etv. um 25-30% á næstu tveimur árum.

Almennar launalækkanir og/eða skerðing starfshlutfalla ?

Ef verðhjöðnun gerir vart við sig þarf þó líklega að banna launalækkanir, etv. um allan heim.

25

Page 26: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Þúsundir íslenskra fyrirtækja stefna í

gjaldþrot á næstu tveimur árum. Tugþúsundir einstaklinga verða

gjaldþrota og eignalausir. Atvinnuleysi eykst til muna á næstu

vikum og mánuðum. Þjóðin skiptist meira og meira í tvo

hópa, eignalausa og eignafólk.

26

Page 27: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Hvað er framundan ? Eignatilfærslur hafa verið stórfelldar Þjóðfélagið verður ekki það sama,

þegar upp er staðið. Nýja Ísland verður ekki jafn

huggulegur staður að búa á og áður. Félagslegur óróleiki og átök eru

framundan.

27

Page 28: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Tryggja þarf Alþjóðagjaldeyrissjóðnum aðgengi að lánsfé frá öllum löndum sem eru með jákvæðan viðskiptajöfnuð og lága skuldastöðu, til að miðla áfram til þeirra landa sem eru með halla, gegn eðlilegum skilmálum.

28

Page 29: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Nýjar alþjóðlegar reglur vantar um ríkisfjármál og stjórn peningamála.

Frjálshyggja á ekki erindi í hagstjórn.

Hagstjórn þarf framvegis að taka mið af þróun eignaverðs (verðbólum) og samþjöppun auðs.

Skattlagning hátekna og stóreigna verði helstu liðir í samstilltu alþjóðlegu átaki gegn auðokun.

29

Page 30: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Stjórnvöld hvarvetna þurfa að veita bein lán til fyrirtækja, gegn lögbundnum veðleyfum (lögveðum) fram fyrir lán banka sem ekki lána.

Lönd sem vel standa þurfa að auka opinberar framkvæmdir

30

Page 31: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Stemma þarf stigu við nauðungaruppboðum

Gera fólki þess í stað kleift að setja eignir sínar inn í búseturéttarfélög og fasteignaleigufélög með aðkomu banka og sveitarfélaga.

Fólkið fái kauprétt að íbúðunum.31

Page 32: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Samræma þarf innlánatryggingar um víða veröld svo hafið sé yfir vafa að innlán séu hvarvetna trygg.

Um leið ætti að lækka kröfur um eiginfjárhlutföll banka tímabundið.

Seðlabankar þurfa að lækka vexti áfram og veita lausafé til banka sem þora að lána 32

Page 33: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Efnahagsþróunin í veröldinni ræður mestu:

Samstillt alþjóðlegt átak við endurnýjun regluverks og siðferðis á fjármálamörkuðum.

33

Page 34: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Látum skynsemina ráða ! Óhjákvæmilegt er að hækka skatta.

Notum breiða og fjölbreytta skattstofna.

Hinir tekju- og efnameiri þurfa að borga. Þeir sem fóru varlega og ollu ekki tjóninu !

Mikilvægt er að leggja ekki þyngri byrðar á fólk og fyrirtæki en unnt er að komast af með. 34

Page 35: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Látum skynsemina ráða ! Eignarskattur hefur verið lagður af og

erfðafjár-skattur lækkaður niður í næstum ekkert.

Er eftirsjón að eignarskatti? Erfiður skattstofn og óvinsæll. Var kallaður ,,ekknaskattur“.

Noregur er með eignarskatt, samt eru ekkjur þar.

Eignarskattur vinnur stöðugt gegn auðokun. Sama er að segja um erfðafjárskattinn. Tímabundinn eignarskattur er skynsamlegur.

35

Page 36: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Látum skynsemina ráða ! Verjum undirstöðuatvinnuvegi og

fyrirtæki áföllum með því að Seðlabankanum verðið veitt heimildir til að lána þeim og fái lögveð fyrir framan lán annarra.

Tryggja þarf matvælaöryggi landsins, innflutningur á landbúnaðarvörum er mikilvægur til að halda framfærslukostnaði niðri, en ekki má ganga svo langt að framleiðslugeta landbúnaðarins og vinnslustöðva hans verði sett í hættu.

36

Page 37: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Látum skynsemina ráða ! Eflum búseturéttarfélög og

fasteignaleigufélög, með aðkomu banka og sveitarfélaga. Fólkið fái endurkaupsrétt að íbúðunum.

Skapað verði samkeppnisumhverfi á þessu sviði með því að fólk geti framselt kauprétt sinn og fært sig milli félaga, fáist hagstæðara boð þar síðar. 37

Page 38: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Getum við unnið úr þessu ?

Látum skynsemina ráða ! Höldum forystu í grænni og

endurnýjanlegri orku, veröldin öll þarf hana.

Til þess verðum við að halda áfram að virkja.

Skilgreinum fleiri ósnertanleg svæði, þjóðgarða, til framtíðar.

Leyfum síðan framkvæmdir og virkjanir annars staðar, komi á annað borð upp tækifæri til slíks.

38

Page 39: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Framseljanlegar aflaheimildir hafa leitt

til hagræðingar og samruna. Hagræðingin var grundvöllur sterkrar krónu. Almenningur naut þess, þetta voru góð ár.

Óleystur siðferðisvandi er fólginn í gróða þeirra sem hætta rekstri. Ef menn hefðu ekki getað yfirgefið greinina og hesthúsað gróða hefði umræðan verið önnur.

Sjávarútvegurinn hefur margar hliðar, kvótinn er aðeins ein þeirra.

39

Page 40: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Sjávarútvegsfyrirtækin afla

gjaldeyrisins og tryggja nú sjálfstæði landsins, ásamt lífeyris-sjóðunum. Fjalla verður af ábyrgð um þennan undirstöðuatvinnuveg landsins.

Fiskibyggðirnar eru þegar byrjaðar að skapa atvinnu, á meðan þarf að SV-hornið jafna sig.

Við misstum engan mann í hafið árið 2008. Veigamikil rök gegn smábátum hafa fallið.

40

Page 41: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Olían hefur verið dýr að undanförnu,

innkaup hennar eru álag á gjaldeyrisforða landsins.

Olíunotkun á hvert kíló fisks sem veiddur er á kyrrstæð veiðarfæri er aðeins um fjórðungur þess sem er á dregin veiðarfæri.

Sjávarútvegurinn bindur mikinn útblásturskvóta (Kyoto), einkum með veiðum í troll.

41

Page 42: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Fiskveiðar okkar hafa verið

fjármagnsfrekar hátækniveiðar. Ekki munu fást erlend lán á næstu árum.

Munu framleiðslutækin úreldast í kreppunni eða munum við aðlaga okkur ?

Minni notkun fjármagns á tímum þegar erfitt verður að afla lánsfjár verður lykilatriði. 42

Page 43: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Tillaga um breytingu á reglunni um að

12 mílna línan umhverfis landið loki strandsvæðum, auk flóa og fjarða, fyrir togveiðum. Stærri ,,strandhelgi“.

Hugmyndin er sú að byggðir landsins fái aukna strandhelgi fyrir kyrrstæð veiðarfæri. Togveiðar þoki utar í þekktum og varfærnum skrefum.

Sjávarútvegsfyrirtækin fái að vita stefnuna og byrji strax að aðlaga sig þessu.

43

Page 44: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Sjávarútvegurinn er undirstaðan

Látum skynsemina ráða ! Við eigum einn besta

smábátasmíðaiðnað veraldar-innar og getum sjálf endurnýjað framleiðslutækin á hagkvæman hátt.

Ísland væri um leið að skapa venju, etv. lögbundna eða jafnvel stjórnarskrárbundna reglu, um strandhelgi sem ESB verði að viðurkenna, ef við gerumst aðilar.

Hver á hlutabréfin í fyrirtækjunum sem stunda strandveiðarnar skiptir ekki öllu máli.

44

Page 45: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Auðokun er hagrænt vandamál

Kreppur verða á ca. 70 ára fresti Undanfari þeirra er jafnan

samþjöppun auðs, háir raunvextir, verðbólur og yfirtökuæði

Græðgi mannsins er arftekin, - og minnið ekki gott.

45

Page 46: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Auðokun er hagrænt vandamál

Samþjöppun auðs leiðir til félagsleg óróa, jafnvel uppreisna og stöku sinnum byltinga ...

... og síður en svo til friðar og framfara Franska byltingin Rússneska byltingin Valdataka nasista í Þýskalandi Íranska byltingin

Undanfari djúpra efnahagslægða er undantekningarlaust samþjöppun auðs46

Page 47: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Auðokun er hagrænt vandamál

Ríkjandi stefnur í hagstjórn láta allar auðokun eiga sér

stað: Handstýringarstefnan (Keynes) Afskiptaleysisstefnan (Friedman) Reykjanomics (Reaganomics)Samþjöppun auðs er alltaf undanfari

kreppu. Eftirspurnarbrestur neytenda Spákaupmennska, verðbólur,

yfirtökuæði, eignatilfærslur47

Page 48: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Siðbót í bankastarfsemiNokkur atriði sem þarf að taka á varðandi

bankareglur: Eigendur banka þurfa að vera alvöru

fjárfestar Ekki spákaupmenn eða féflettar. Hverjir

kaupa næst ? Eigendur mega ekki vera jafnframt stærstu

skuldarar Varast að farið sé á svig við reglur

Spákaupmennska er ekki verkefni banka Bannað verði að fjármagna sig stutt og

lána langt Afleiðuviðskipti á eingöngu að nota til að

eyða áhættu Lán til hlutabréfakaupa þurfa að vera

gegn traustu fasteignaveði

48

Page 49: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Siðbót í bankastarfsemi Eigið fé fyrirtækja má ekki vera lánsfé í

raun Kross-eignartengsl fjárfestingarfélaga

sem ,,gíruð” eru upp Stjórnarmenn banka þurfa að vera ábyrgir

menn Siðblindir eru um 1% af hverri þjóð en

3-5% í viðskiptalífinu Stjórnendur þurfa að vera á rétt hvetjandi

launum Setja þarf reglur og hafa eftirlit með

umbun til stjórnenda49

Page 50: Staðan og það sem framundan er  í  efnahagsmálum

Takk !

Spurningar ?

50