16
Mýtur og Staðreyndir um augabrúnir 4 Þykkari augabrúnir strax! 5% afsláttur og kaupauki í boði ef pantað er í forsölu! Tölublað nr. 1 6 Silk Fibre Brow Enhancer Einföld og góð ð til þess að þykkar augabrúnir. 9 Lausn við ofplokkuðum augabrúnum Það getur reynst mjög erfitt að fá fullkomnar augabrúnir. Hér förum við yfir helstu mýturnar þegar kemur að því að móta þær og lita. Fyrsta tölublaðið er tileinkað öllu því sem viðkemur augabrúnum. Hér færð þú svör við öllum þeim spurningum sem þú hefur varðandi mótun, litun og förðun Snyrtir.is Klúbburinn Allt um augabrúnir + Innblástur, Heimamaskar og fleira.

Snyrtir.is Blaðið - nr.1

Embed Size (px)

DESCRIPTION

www.snyrtir.is

Citation preview

Page 1: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

Mýtur og Staðreyndir um augabrúnir

4

Þykkari augabrúnir strax! 5% afsláttur og kaupauki í boði ef pantað er í forsölu!

Tölublað nr. 1

6

Silk Fibre Brow Enhancer

Einföld og góð ráð til þess að fá þykkar augabrúnir.

9

Lausn við ofplokkuðum augabrúnum

Það getur reynst mjög erfitt að fá fullkomnar augabrúnir. Hér förum við yfir helstu mýturnar þegar kemur að því að móta þær og lita.

Fyrsta tölublaðið er tileinkað öllu því sem viðkemur augabrúnum. Hér færð þú svör við öllum þeim spurningum sem þú hefur varðandi mótun, litun og förðun

Snyrtir.is Klúbburinn

Allt um augabrúnir

+ Innblástur, Heimamaskar og fleira.

Page 2: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

2

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Silk Fibre Lash Mascara Lengir augnhárin stax um 150%

 Fáðu Silk Hair and Skin Treatment Serum 12ml í kaupæti ef þú pantar Fibre Lash Mascara ásamt Fibre Brow Enhancer! Sendu okkur póst á

[email protected] eða hafðu samband á Facebook til þess að nýta þér afsláttinn!

Fæst í vefverslun Snyrtir.is: www.snyrtir.is

Page 3: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

3

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Tölublað nr. 1

Silk Fibre Brow Enhancer Trefjabursti fyrir augabrúnir

Tryggðu þér eintak úr fyrstu sendingu og 5% afslátt með því að panta í forsölu gegn 1500kr staðfestingargjaldi. Sendu okkur póst á [email protected]

eða hafðu samband á Facebook til þess að panta.

Page 4: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

4

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Mýtur og staðreyndir um augabrúnir

1. Augabrúnirnar vaxa misjafnlega eftir því hvort er vaxað eða plokkað. Í báðum tilfellum er hárið fjarlægt með rótinni. Þó ég kjósi að vaxa frekar en plokka, þá vex hárið ekkert öðruvísi, hvorki hraðar eða hægar. Báðar aðferðir losa okkur við hárin í 3-4 vikur. 2. Augabrúnir eiga að vera í sama lit og hárið. Sérðu Marilyn Monroe fyrir þér með hvítar augabrúnir ? Nei, það geri ég ekki heldur. Litur á augabrúnum getur, og ætti að vera breytilegur. Td. fer það Asískum konum betur að hafa mjúkan dökkan lit á brúnum, ekki biksvartan eins og hárið á höfðum þeirra. Ágætis þumalputtaregla er að meta hvaða undirtón höfuðhárið hefur, hlýjan, hlutlausan eða kaldan, og nota þá lítt áberandi lit í þeim tón. Horfa á heildar yfirbragðið svo brúnirnar verði mátulega áhrifaríkar.

Eitt það erfiðasta í bjútí bransanum er að forma hinar fullkomnu augabrúnir. Það sem fer einni manneskju vel er skelfilegt á þeirri næstu. Konur hafa venjulega mjög ákveðna hugmynd um hvernig þær vilja hafa sínar brúnir mótaðar, og stundum eru hugmyndirnar ekki alveg í takt við hvað raunverulega er hægt að gera. Það eru nokkrar langlífar mýtur til um hvernig skal snyrta augabrúnir, og hér koma þær 4 stærstu:

Page 5: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

5

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

3. Aldrei fjarlægja hár fyrir ofan brúnina. Sumir halda því fram að aldrei megi plokka eða vaxa fyrir ofan brúnirnar aðeins fyrir neðan. Ef þú ætlar að fara eftir þessu þá liti út fyrir að augabrúnin hefði verið hálfkláruð. Aðal mótunin er gerð fyrir neðan brúnina til að lyfta henni, ef of mikið er tekið að ofan, virkar brúnin flöt. Þetta þarf að vega og meta hverju sinni, en alltaf að hreinsa allt í kring. 4. Ef þú hefur ofplokkað vex það ekki aftur. Þær vaxa aftur. Þó þú hafir óvart plokkað of mikið þá er það ekki endanlegt. Sjá greinina um ofplokkaðar brúnir á síðu 8. Aðal tilgangur augabrúna (og augnhára) er að koma í veg fyrir að saltur sviti, rigningarvatn og rusl fari í augun, en þær eru líka mikilvægar þegar kemur að mannlegum samskiptum með svipbrigðum. MIT, eða Tækniháskólinn í Massachusetts, stóð fyrir rannsókn þar sem þáttakendur voru beðnir um að bera kennsl á frægar persónur þar sem annars vegar var búið að taka burt augabrúnirnar, og hins vegar augun. Í 46,3 % tilvika þekktu þeir viðkomandi með engar augabrúnir, en 55,8 % án augna. Niðurstöðurnar gefa til kynna mikilvægi augabrúna fyrir persónuleika einstaklings. http://web.mit.edu/bcs/sinha/papers/sinha_eyebrows.pdf Vissir þú að þú lyftir óafvitandi brúnum þegar þú talar við manneskju sem þú laðast að ? Að dreyma vel lagaðar og loðnar augabrúnir er fyrir velgengni og auðsæld.

Höfundur: Elín Ólafsdóttir

Elín er 48 ára lærður snyrtifræðingur og á og rekur vefverslunina Snyrtir.is.

Page 6: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

6

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Trefjaburstinn fyrir Augabrúnir

Ertu í vandræðum með augabrúnirnar? Of þunnar, stuttar eða mjóar? Vantar inn í þær? VÆNTANLEGT! Silk Fibre Brow Enhancer (Trefjabursti fyrir augabrúnir) er það heitasta í bransanum í dag!

♦ Það tekur þig 60 sek. að fá fullkomnar augabrúnir! ♦ Bætt með hreinum steinefnum og náttúrulegum jurtum. ♦ Inniheldur örfínar náttútulegar trefjar og steinefnapúður. ♦ Fullkomið fyrir mótun. ♦ Fullkomið til að þykkja. ♦ Fullkomið til að lengja. ♦ Fullkomið til að bæta inn í göt. ♦ Auðvelt í notkun - hægt að nota eitt og sér. ♦ Fæst í 4 litum. ♦ Endist í 120 ásetningar. ♦ Fyrningartími - 4 ár eða 48 mánuðir eftir opnun.

Page 7: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

7

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Til að tryggja þér eintak úr fyrstu sendingu og fá 5% afslátt þarf að greiða 1500 kr. staðfestingagjald. ATH. Við erum ekki komnar með verð, en Brow Enhancer verður þó ódýrari en SILK Fibre maskarinn. Sendu okkur póst á [email protected] ef þú vilt tryggja þér eintak KAUPAUKI! Silk Hair And Skin Treatment Serum 12 ml. ef þú kaupir saman trefja maskarann (SILK Fibre Mascara) og trefja augabrúna burstann (SILK Eye Brow Enhancer).

3 4 2 1

1. Latte 2. Coffee 3. Chocolate 4. Espresso

Page 8: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

8

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Pure Argan olían frá SILK getur gert kraftaverk fyrir Acne vandamálahúð, ör, slit og margt fleira!

Fæst í vefverslun Snyrtir.is hér!

Page 9: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

9

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Lausn við ofplokkuðum augabrúnum

Geymdu plokkarann: Fyrir það fyrsta er nauðsynlegt að sleppa alveg að plokka/vaxa í amk 1-2 mánuði. Í mesta lagi máttu plokka hárin fyrir ofan brúnina og á milli, en ekkert annað ! Vítamín: Annað ráð er að taka vitamin, A, B6, C, E og Biotin eru allt vitamin sem eru góð fyrir hár-og naglavöxt. Þú getur auðveldlega fengið þessi vitamin úr fæðunni eins og gulrótum, spínati, ávöxtum, hnetum og brúnum hrísgrjónum. Nudd: Nei, því miður þá hjálpar þægilegt líkamsnudd ekkert í baráttunni við ofplokkaðar augabrúnir, svo þar fór sú afsökun (það hjálpar við ýmislegt annað en það er efni í aðra grein). En það er gott ráð að nudda svæðið upp úr laxerolíu. Dýfðu augnbrúnabursta í olíuna og nuddaðu henni síðan í augabrúnina í þá átt sem hárið vex. Gerðu þetta á hverjum degi til að auka og styrkja vöxtinn. (þetta hef ég persónulega sannreynt að virkar, bæði fyrir brúnir og augnhár.) Blekkja: Algengasta og auðveldasta leiðin til að laga augabrúnir sem hafa verið ofplokkaðar og eru gisnar er að nota farða. Hér mælum við með Silk Fibre Brow Enhancer, trefjaburstanum fyrir augabrúnir en hægt er að panta

Ef þú ákvaðst einhverntíma að örmjóar augabrúnir væru flottar og plokkaðir þínar í öreindir, þá ertu sennilega búin að vera að leita að lausn til að fá þinar gömlu til baka. Það er til fullt af góðum ráðum fyrir þá sem hafa farið offari með plokkarann svo ekki örvænta, það er hægt að finna lausn. Ég lagðist í smá grúsk og fann nokkur einföld ráð handa plokkaraglöðum konum og körlum.

Page 10: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

10

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Hann í forsölu með því að senda póst á [email protected].

Prótín: Ein einföld leið til að auka hárvöxtinn er að passa upp á að fá nægt prótín úr fæðunni. Hárið er að upplagi prótín svo þá er um að gera að pumpa upp prótínneysluna. Mikil neysla á koffíni, sykri og fitu getur hindrað hárvöxtinn svo reyndu að draga úr því á meðan þú ert að koma þessu í lag.

Eitt eggjandi: Eitt nokkuð áhugavert ráð sem ég rakst á innihélt eggjarauðu. Þú nærð þér í egg og skilur rauðuna frá, pískar hana, tekur bómullarhnoðra og gegnbleytir hann í eggjarauðunni, berð síðan á augabrúnina og lætur vera í 10-15 mín. Þú getur líka notað mjólk og safa úr hráum lauk á sama hátt til að auka hárvöxt og styrkja hárrótina. Ég hef ekki sannprófað þetta ráð en forvitnilegt að vita hvort einhver hefur prófað þetta.

Farðu í apótekið: Rogane er notað af mörgum til að auka hárvöxt á höfði, en það er líka hægt að nota það til að auka vöxtinn á ofplokkuðum brúnum. Taktu lítinn tannbursta, barnatannbursti væri fínn, og dýfðu honum í flöskuna og strjúktu létt yfir á einum eða tveimur stöðum á augabrúninni. Það er auðvelt að ofgera þetta og enda með samvaxnar augabrúnir, svo farðu varlega þegar þú notar þetta ráð.

Höfundur: Elín Ólafsdóttir

Elín er 48 ára lærður snyrtifræðingur og á og rekur vefverslunina Snyrtir.is.

Page 11: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

11

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Innblástur Þykkar og dramatískar augabrúnir.

Hún Cara Delevingne er ein mest eftirsóttasta fyrirsætan í dag en hennar helsta einkennismerki er einmitt þykku augabrúnirnar hennar. Þetta lúkk er orðið gríðarlega vinsælt og eru þær margar sem ákveðið hafa að taka það upp og leyfa augabrúnunum að njóta sín.

Það getur þó verið gott að hafa í huga að þó þú veljir að hafa þykkar og dramtískar augabrúnir þá má ekki gleyma að snyrta þær regluega því annars er hætta á að enda með tvo þykka frumskógi yfir augunum, sem er jú ekkert sem við kvenmenn sækjumst eftir.

Munið einnig þumalputtaregluna að meta hvaða undirtón höfuðhárið hefur, hlýjan, hlutlausan eða kaldan, og nota þá lítt áberandi lit í þeim tón. Horfa síðan á heildar yfirbragðið svo brúnirnar verði mátulega áhrifaríkar.

Chris Pine er einn myndarlegasti leikarinn í Hollywood í dag og er gott dæmi um mann með þykkar og miklar augabrúnir. Chris passar samt vel upp á að halda þeim snyrtilegum enda geta fallegar augabrúnir gert mikið fyrir heildar útlitið.

Page 12: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

12

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Látlausar augabrúnir í þykkari kanntinum.

Jennifer Lopez og Kate Winslet þykja báðar einar af fallegustu konum í heimi, enda báðar stórglæsilegar og miklir dugnaðarforkar.

Þær hafa báðar valið að hafa augabrúnirnar í þykkari kantinum en í látlausum litum. Með þessu móti er hægt að leyfa augunum og augnförðuninni njóta sín betur.

Einnig hafa báðar passað upp á að móta brúnirnar þannig að þær passi þeirra andlitslagi en það er mjög mikilvægt að þvinga ekki brúnirnar til þess að hafa annað en þeirra náttúrulega lag. Gott er að styðjast við myndina á síðu 4 þegar móta skal brúnirnar eða láta fagmanneskju um það.

Munið að betra er að plokka minna heldur en meira ef þið eruð í vafa enda er ekkert mála að láta fagmanneskju laga það sem þarf, en lengri tíma tekur fyrir brúnirnar að vaxa í sitt fyrra horf.

Page 13: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

13

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Mótaðar og áberandi augabrúnir.

Megan Fox og Charlize Theron hafa báðar valið að móta augabrúnirnar í mjórri kantinum og passa í staðin upp á að hafa þær ábernadi svo brúnirnar setji góðan svip á andlitið.

Hér þarf að passa að alls ekki plokka eða vaxa of mikið þannig að augabrúnirnar verði of mjóar og minni á hana Pamelu Anderson okkar. Hér gildir aftur að plokka minna en meira og leyfa náttúrulegu lagi brúnanna að njóta sín.

Þumalputtareglan um val á lit á brúnum á síðu 4 á einnig að hafa í hávegum hér enda er ekkert að sækjast eftir að hafa brúnir sem að öskra langleiðis að þær hafi verið litaðar. Hafa þarf heildar útlitið í huga og velja ljósari eða dekkri lit eftir því.

Page 14: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

14

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Það sem varast þarf

Ofplokkaðar og teiknaðar “Pamelu” augabrúnir.

Að eyðileggja náttúrlegt lag brúnanna.

Unibrow. Hér er hin fallega Salma Hayek í hlutverki hinnar merku Fridu Kahlo. Þó hún hafi verið merkilega kona þá held ég að við getum verið flestar sammála að samvaxnar augabrúnir ætti að varast með öllu móti.

Page 15: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

15

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet

Heima-andlistmaski

Leirmaski fyrir feita húð.

1 msk. Grænn leir (fæst í heilsubúðum) 1 tsk. Aprókósukjarna olía Nokkrir dropar Palmarosa ilmkjarnaolía Blandið öllu saman með nokkrum dropum af volgu vatni þar til maskinn er eins og þykkt krem. Berið á andlitið og látið liggja í 10 - 15 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni og mjúkum klút.

Page 16: Snyrtir.is Blaðið - nr.1

Issue #: [Date] Dolor Sit Amet