8
- TVÖ BYGGINGARSTIG - KOMA Í EFNISPÖKKUM - FORSNIÐIN AÐ HLUTA RAMMAHÚS

Rammahús BYKO

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Rammahús BYKO

- Tvö byggingarsTig- KOMa í efnispöKKuM- fOrsniðin að hluTa

Rammahús

Page 2: Rammahús BYKO

Forsniðin rammahúsBylting á byggingavörumarkaði í gerð sumarhúsaAldrei hefur verið jafn auðvelt að byggja sumarhús og með nýju rammahúsunum frá BYKO sem koma að hluta forsniðin.

Húsin eru hönnuð í samræmi við íslenskar byggingareglu­gerðir og er hönnuður þeirra, Magnús H. Ólafsson, arkitekt FAÍ hjá Markstofu ehf reyndur hönnuður á sviði eininga­ og sumarhúsa. Allar bygg inganefndarteikningar fylgja og margar gerðir teikninga eru í boði. Efnið í húsin er framleitt eftir ströngustu gæða kröfum sem við gerum til sumarhúsa­bygginga á Íslandi.

Innifalið er gerð aðalteikninga, skráningartöflu og burðar­þolsteikninga (ekki raf­ og pípulagnir) því gefnu að fyrir liggi samþykkt deili skipulag eða ígildi þess og afstöðumynd til notkunar við gerð aðalteikninga.

Efnispakkann má fá í mörgum stærðum, allt frá 31,4m² upp í 160,3 m² rammahús. Þau byggja öll á sömu grinda­reiningunni og eru því öll jafn breið. Auðvelt er að stækka

við húsin sem einnig getur verið spennandi valkostur í ferðaþjónustu þar sem hægt er að hafa húsin sem lengju minni gistirýma með 2­12 íbúðum.

Raflagnir og pípulagnaefni er ekki innifalið í efnispökkum.

Frábær nýjung hjá BYKO

Nánari upplýsingar veita sölumenn timburverslunar BYKO í síma 515-4000 eða með tölvupósti á [email protected].

Page 3: Rammahús BYKO

Nánari upplýsingar veita sölumenn timburverslunar BYKO í síma 515-4000 eða með tölvupósti á [email protected].

EFnispakkarVeldu þitt byggingarstigBurðarviður í húsin kemur tilsniðinn í réttum stærðum og lengdum ásamt festingum með greinargóðum leiðbeiningum (sperrur og gólfbitar koma samsett). Auk þess að geta fengið húsin í fjölmörgum stærðum þá er hægt að kaupa 2 mis­munandi efnispakka fyrir hvert og eitt hús sem helgast þá af því hversu langt er farið í byggingu sumarhússins.

Efnispakki 1 miðast við allt efni til að gera húsið tilbúið að utan, fokhelt að innan og að auki einangrun í gólf og gólf­spónaplötur. Efnispakki 2 að gera húsið tilbúið að utan og innan með innihurðum, gólfefnum, sturtu klefa, baðskáp og salerni. Sölumenn reikna pallaefni og skjólgirðingar eftir óskum hvers og eins.

stig 1 grunnstig

­ Dregarar undir gólfbita ­ Burðargrind tilsniðin og forboruð fyrir festingar ­ Sperrur og gólfbitar samsett ­ Krossviður í botni er tilsniðinn ­ Gluggar og hurðir með gleri ­ Allar festingar vegna grindar og klæðningar (þak og veggir) ­ Krossviður utan á hús ­ Loftunargrind ­ Borðaklæðning, þakpappi og þakjárn á þak ­ Þakrennur ­ Utanhússklæðning, bandsöguð 21x120 mm, eða kúpt vatnsklæðning ­ Vatnsbretti og gerefti í kringum glugga ­ Einangrun í gólf og 22 mm gólfspónaplötur

Samsett efnisgrind

stig 2

Allt í stigi 1 og að auki ­ Einangrun í loft og veggi ­ Panell, áfellur og gerefti inn í húsið ­ Innveggjagrindur ­ Panell á innveggi ­ Einangrun ­ Innihurðir ­ Gólfefni (plastparket) ­ Baðtæki: Sturta, salerni, handlaug og skápur undir handlaug ­ Blöndunartæki fylgja ekki

TIMBURVERSLUN

Page 4: Rammahús BYKO

Rammahús BYKO – Gerð 31 31,4 m2

Rammahús BYKO – Gerð 36 36,6 m2

Rammahús BYKO – Gerð 41 41,1 m2 Rammahús BYKO – Gerð 46 45,9 m2

Fjölmargir möguleikarHér eru nokkur dæmi um skipulag á ýmsum húsum

Page 5: Rammahús BYKO

Rammahús BYKO – Gerð 55 55,6 m2Rammahús BYKO – Gerð 51­A

Rammahús BYKO – Gerð 59

50,8 m2

58,6 m2 Rammahús BYKO – Gerð 63 63,4 m2

Page 6: Rammahús BYKO

Rammahús BYKO – íbúðarhús 71,2 m2 90,9 m2

Rammahús BYKO – íbúðarhús 160,3 m2

Page 7: Rammahús BYKO

­ Rétta rammahúsið fundið hjá BYKO, stærð og útfærsla ákveðin af kaupanda.­ Húsagerð borin undir viðkomandi byggingarfulltrúa.­ Kaup á húsi staðfest við BYKO með 15% staðfestingargjaldi.­ Kaupandi útvegar eftirfarandi upplýsingar til hönnuðar (Magnús H. Ólafsson):

Hvar verður væntanlegt hús byggt Lóðarheiti Landnúmer Sveitarfélag Nafn Heimilisfang og kennitala lóðarhafa - ekki endilega verkbeiðanda.

­ Hönnuður leggur inn teikningar til byggingarfulltrúa og afrit til kaupanda.­ Kaupandi útvegar sérteikningar af raf­ og pípulögn.­ Áður en byggingarleyfi er gefið út þarf að vera komið með byggingarstjóra og iðnmeistara á húsið.­ Kaupandi gengur frá fullnaðargreiðslu áður en húsið er afhent.­ Efnispakkinn er afgreiddur til kaupanda frá lagersvæði BYKO breidd.

Ferli við kaup á BYKO rammhúsi:

Rammahús BYKO – kennslustofa

83,6 m2

Page 8: Rammahús BYKO

Nánari upplýsingar veita sölumenn timburverslunar BYKO í síma 515-4000 eða með tölvupósti á [email protected].

Heppileg rammahús fyrir ferðaþjónustuSýnishorn af skipulögðu frístundahúsasvæði. Húsunum má fjölga eftir því sem starfsemin vex. Hægt er að byrja smátt og svo má bæta við. Allt frá þjónustuhúsnæði fyrir tjaldsvæði upp í stærri ferðaþjónustuþyrpingar. 23,3 m2x4 = 93,7 m2