15
Námsmat á grunnskólastigi: Hver er staðan? Hvert stefnir? „Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“ Stúlka í 10. bk. vorið 2006 Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson [email protected]

Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson [email protected]

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Námsmat á grunnskólastigi: Hver er staðan? Hvert stefnir? „Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“ Stúlka í 10. bk. vorið 2006. Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson [email protected]. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Námsmat á grunnskólastigi: Hver er staðan? Hvert stefnir?

„Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“ Stúlka í 10. bk. vorið 2006

Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006Meyvant Þórólfsson

[email protected]

Page 2: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Skúffureglan (Pigeonhole principle)Reglan um „dúfnahólfin“

• n hólf og m>n dúfur. Hér er n=9 og m=25

Page 3: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

„Dúfnahólf“ og einkunnadreifing

A B C D E

280 960 1520 960 280

• Samræmd próf í 9. bekk 1977-1984 (n=5 og m≈4000). Tíðnidreifing löguð að normaldreifingu:

1,0 1,5 2,0 … 5,0 … 9,0 9,5 10,0

146 169 190 … 306 … 237 180 49

3,2% 3,7% 4,2% … 6,8% … 5,3% 4,0% 1,1%

• Samræmdar einkunnir í stærðfræði vorið 2006 (n=19 og m=4508

Page 4: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

„Dúfnahólf“ og viðmiðatöflur (Rubrics)

John A. Van de Walle 2001

SuperClear understanding.

Communicates concept in multiple representations...

Sally Latania + Greg Sal

On TargetUnderstands or is

developing well. Uses designated models.

Lavant Tanisha Julie Lee George J. B. Maria John H.

Not YetSome confusion or

misunderstands. Only models idea with help

John S. Mary

Page 5: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006Helstu heimildir og uppsprettur upplýsinga:• Umsjón með námskeiðum í nokkrum grunnskólum 2003-2006 (MÞ/JK/IS

o.fl.)

• Rannsókn IS/JK/MÞ á stöðu námsmats (Stendur yfir)

• Rannsókn Ernu I. Pálsdóttur Námsmat í höndum kennara (Meistaraprófsritgerð við HA vorið 2006)

• Þóra Björk Jónsdóttir o.fl. – Evrópskt samstarfsverkefni um námsmat í skóla fyrir alla (Skýrsla væntanleg)

• B.Ed.-verkefni Maríu Lapas – viðtöl við foreldra barna sem hafa þreytt samræmd próf í 4., 7. og 10. bekk. (Ekki komið til birtingar)

• Skýrsla starfshóps um tónlistaruppeldi – Niðurstöður könnunar á fyrirkomulagi tónmenntakennslu í grunnskólum Reykjavíkur 2003

• B.Ed.-verkefni Sigríðar Rafnsdóttur – Innan eða utan rammans 2005

• Opinberar námskrár, starfsáætlanir, reglugerðir, skólanámskrár o.fl. gögn

Page 6: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006• Mat er að stórum hluta byggt á skriflegum verkum

nemenda (próf, verkefni...)

• Kennarar segja samræmd próf stýra matsaðferðum að miklu leyti, skrifleg próf virðast því vega þungt og einnig verkefni sem miða að undirbúningi fyrir samræmd próf

• Hin megindlega (kvantítatífa) sýn á námsmat birtist m.a. í upplýsingum um vægi: Árseinkunn 40%, lokapróf 60%...

• Hugtakið símat kemur mjög víða fyrir, en sjaldnast nógu vel útskýrt hvað í því felst

Page 7: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006

• Algengt er að kennarar tilgreini vinnubrögð, virkni, framfarir og iðni sem grundvöll námsmats, einkum í list- og verkgreinum og yngri stigum

• Skv. könnun á tónmenntakennslu 2003 er námsmat í tónmennt mjög fjölbreytilegt, sums staðar ekkert, símat, mat á verkefnum, virkni, félagsfærni, áhugi, samvinna, hegðun, frumkvæði. Skrifleg próf stöku sinnum nefnd

• Munur er eftir aldursstigum á hugmyndum kennara um námsmat og fyrirkomulag þess

Page 8: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006• Námsmat í skóla fyrir alla með virkri blöndun (inclusion)

vefst fyrir mörgum. Svipað er að segja um einstaklingsmiðað nám (differentiation) og sveigjanlega kennsluhætti

• Í samantekt um Norðurlönd kemur fram að þátttaka nemenda og foreldra í námsmati gefist vel, virk tjáskipti, samskipti og samvinna (collaboration) skipti máli

• Svolítil umræða fer fram um aðkomu annarra en kennara að mati (sbr. sjálfsmat, jafningjamat, foreldramat...), en tregða að stíga það skref, þekking og reynsla e.t.v. of lítil

Page 9: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006• Í viðtölum við foreldra kemur m.a. í ljós undrun vegna

einhæfra kennsluaðferða og matsaðferða á unglingastigi. Ein móðir leggur til að nemendur séu „látnir kynna og kenna“. Þannig læri þeir betur en við stöðuga miðlun frá kennara

• Slakur nemandi í 10. bekk vorið 2006 setti þessa yfirskrift á spjallsíðu á Netinu: „Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“

• Mjög sterkur nemandi sem valdi öll prófin sagðist ekki sjá tilgang með sjálfum samræmdu prófunum, hún væri ekki að læra til að ná háum einkunnum á þeim, heldur vegna áhuga á að læra efnið og vegna inntökuskilyrða framhaldsskóla

Page 10: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006• Í viðtölum við foreldra koma fram áhyggjur af því að

skipulag náms og námsmats sé kerfismiðað og staðlað, ekki nemendamiðað þrátt fyrir umræðu um einstaklingsmiðað nám

• Kennari nefnir í viðtali að svokölluð geislabaugsáhrif (halo effect) og skyld áhrif vegi talsvert í námsmati. Það virðist stundum skipta máli hvaða nemandi eigi í hlut þegar ákveðið sé í hvaða „hólfi“ hann lendir

Page 11: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Samandregið...

• Skólinn hefur nokkuð skýran tilgang og markmið skv. lögum og námskrám. Námsreynsla sem nemendur gangast undir á vegum skólans er margbreytileg, þótt ákveðnir drættir virðist meira áberandi þar en aðrir og svipaða sögu er að segja um kennsluhætti/kennsluaðferðir

• En kennarar virðast að einhverju leyti ráðvilltir þegar fella á námsmat að öllum þessum markmiðum, námsreynslu og kennsluháttum. Þess vegna vakna spurningar um réttmæti þegar námsmat er annars vegar

Page 12: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Hvert stefnir?Enn betri skóli. Þeirra réttur-okkar skylda 1998:

• Kröfur um undirbúning nemenda úr grunnskóla hafa nær eingöngu miðast við árangur í bóklegum greinum, þ.e. íslensku, erlendum tungumálum og stærðfræði, enda er stærstur hluti náms sem völ hefur verið á í framhaldsskóla fólginn í fræðilegu námi sem að mestu leyti er sett fram á óhlutlægan hátt.

Sett verða inntökuskilyrði á námsbrautir framhaldsskóla og þannig reynt að tryggja að nemandi hafi öðlast nægjanlegan undirbúning til að takast á við það nám sem hann innritast í. Inntökuskilyrði miðast við einkunnir á samræmdum prófum og skólaeinkunnir við lok grunnskóla. (Bls. 21-22)

Page 13: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Hvert stefnir?

Samkeppni mun halda áfram um sæti í

eftirsóknarverðum „hólfum“ sem hlýtur að leiða til:

• ...prófkennslu og ytri stýringar á hugsun nemenda, sem getur sljóvgað eðlilegt vitsmunastarf

• ...að nemendur forðast að taka áhættu í námi sínu, enda eru samræmd próf áhættupróf (high-stake tests)

• ...aukinnar hættu á áhugaleysi nemenda gagnvart raunverulegu námi, orkan fer í að leita leiða til að lenda í réttu „hólfunum“, ekki í að brjóta hugmyndir til mergjar eða leit að vitrænni merkingu og samhengi

Page 14: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Hvert stefnir?Þrátt fyrir vaxandi umræðu um aðrar leiðir í námsmati

en þær hefðbundnu (próf, skrifleg verkefni...)

þarf meira til:

• ... Gagngera „jarðvegsvinnu“ til að þessar leiðir skili sér í skólastarf (menntun kennara, jafningjakennsla um „best practices“ o.fl.)

• ...Tekið verði mið af kenningum um nám og hvaða þýðingu þær hafa fyrir námsmat

• ...Rækileg umræða fari fram um tilgang námsmats, hvað eigi að meta, hvernig og hverjir o.s.frv.

Page 15: Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson meyvant@khi.is

Hvert stefnir?

• ... Möguleikar eigindlegs (kvalítatífs) mats verði reyndir og því VONANDI BEITT TIL AÐ RÆKTA OG LAÐA FRAM MARGBREYTILEGA HÆFILEIKA BARNA Í STAÐ ÞESS AÐ SKIPA ÞEIM Í HÓLF EFTIR ÞRÖNGUM VIÐMIÐUM

• ... Jón Gunnar Kristinsson (Jón Gnarr): Mér fannst skólar leiðinlegir...hef alltaf átt erfitt með að einbeita mér að einhverju sem ég hef ekki beinan áhuga á...Ég hef sjálfmenntað mig...stundað fjarnám í gegnum Google...Wikipedia hefur líka reynst mér haukur í horni...Það er hræðileg líðan að hafa eitthvað að segja en kunna ekki að segja það. -Fréttablaðið 6. júlí 2006