Click here to load reader
Upload
nordlingaskoli
View
222
Download
1
Embed Size (px)
DESCRIPTION
pizzasmidja
Citation preview
Pizzasmiðja í 3. og 4. bekk
vorið 2011
Kennarar í smiðjunni:
Hjördís, Oddný, Þórey, Elvar og Selma.
norðlingaskóli
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 1
ATVINNUAUGLÝSING
Undirbúningur:
Kennarar sömdu atvinnuauglýsingu og lásu hana
fyrir nemendur. Þar kemur fram að til standi að
opna nýjan pizzastað í nágreninu og nú sé verið
að auglýsa eftir starfsfólki.
Efni og gögn:
Harður pappír fyrir persónuna, blaðaúrklippur,
pappír fyrir persónulýsingu, litir, skæri og lím.
Vinna nemenda:
Hver og einn býr til sína persónu sem ætlar að sækja um starf á pizzastaðnum. Nemendur
kippa út búk og útlimi og teikna svo höfuð og bakgrunn á myndina. Nemendur skrifa einnig
persónlýsingu sem passar við persónuna þeirra.
Þetta verkefni var unnið á foreldraskóladegi sem kom vel út.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 2
VÖRUMERKI
Undirbúningur:
Kennarar skiptu nemendahópnum í minni
hópa þannig að hver kennari var með 18 - 20
nemendur. Nemendur fengu nokkuð frjálsar
hendur með að raða sér í hópa þegar þeir
voru komnir til smiðjukennarans. Þannig voru
3 til 5 vinnuhópar hjá hverjum kennara.
Efni og gögn:
Blöð til að gera uppkast af merki staðarins.
Blað til að teikna merki staðarins á. Trélitir og
tússlitir. Hver hópur fékk að auki einn
pizzakassa til að safna verkefnum sínum í á
meðan á smiðjunni stóð.
Vinna nemanda:
Hver vinnuhópur settist saman til að finna nafn og vörumerki á pizzastaðinn sinn.
Vörumerkin voru teiknum upp á A3 blað.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 3
MATSEÐILL
Undirbúningur:
Hver tími byrjaði á því að hóparnir kynntu pizzastaðinn
sinn og þá starfsmenn sem þar starfa fyrir hinum
hópunum. Kynningin fór fram í upphafi hvers tíma.
Verkefni dagsins var að gera metseðil. Nemendur áttu
sumir hverjir erfitt með að skipuleggja þessa vinnu og í
þeim tilfellum er gott fyrir kennarann að deila niður
verkefnum þannig að einn nemandi geri
pizzamatseðilinn, annar gerir drykkina og eitt verkefni
gæti verið að gera eftirréttamatseðil.
Efni og gögn:
Pappír í matseðla, málingalímband til að líma blaðsíðurnar í matseðlinum saman. Skriffæri.
Vinna nemenda:
Þegar verkaskiptingin var orðin klár voru nemendur duglegir að finna sér verkefni. Nokkrir
gerðu barnamatseðil og tilboð fyrir hópa. Einnig voru gerðir símar, pizzubílar og tölvur til að
afgreiða pizzurnar.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 4
AFGREIÐSLA PANTANA
VINNA MEÐ VERÐ Á MATSEÐLINUM
Undirbúningur:
Útbúnar pantanir sem nemendur vinna úr. Pantanahefti
útbúið fyrir hvern nemanda, þ.e. lituð forsíða með 4
hvítum blöðum. Heft saman og brotið.
Efni og gögn:
Pantanahefti, skriffæri og vasareiknir.
Vinna nemenda:
Nemendurnir hjálpuðust að en hver og einn átti að skrá útreikninga sína í bókina. Það var
misjafnt hversu margar pantanir hver nemandi skráði og því gott fyrir kennarann að setja
einhverjar kröfur, t.d. að hver nemandi skrái 4 pantanir.
Þegar nemendur höfðu unnið með tilbúnar pantanir fóru þeir í hópum um skólann með
matseðlana sína og tóku niður pantanir hjá starfsfólki skólans og reiknuðu út hvað pöntunin
kostaði.
Það var gaman að fylgjast með misjöfnum áherslum hjá nemendum í þessu verkefni.
Nemendur náðu að aðlaga pantanirnar að sínum matseðli og mæltu með tilboðum sem pössuðu við pöntunina. Nemendur gáfu afslátt ef pizzan var sótt eða rukkuðu aukagjald ef
viðkomandi vildi fá pizzuna senda heim. Sumir nemendur svöruðu hverri pöntun eins og um
leikþátt væri að ræða. Öðrum fannst mikilvægt að taka niður símanúmer hjá öllum sem sem
þeir afgreiddu.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 5
PIZZUR ÚR PAPPÍR
Undirbúningur:
Umræður í heimakrók
um girnilegar pizzur með
ýmiss konar áleggjum.
Hringlaga skapalón gert
til að spora eftir þegar
pizzan var teiknuð á
karton sem nemendur
fengu.
Efni og gögn:
Hver nemandi fékk eitt karton í ljósbrúnum lit. Pappír og efni sem hægt var að nota sem
álegg. Litir, skæri og lím. Aðgangur að ljósritunarvél, bæði lit og svart hvít.
Vinna nemanda:
Nemendur byrjuðu á því að fletja út deigið sem þeir fá (ljósbrúnt karton), spora svo stóran
hring á kartonið og búa til uppáhaldspizzuna sína. Nemendur notuðu til þess rauðan trélit
(sósan), klipptu og límdu álegg á pizzuna. Síðan voru pizzurnar ljósritaðar tvisvar sinnum.
Gaman var að fylgjast með hamingjusömum nemendum þegar þeir tóku á móti volgum
pizzum út úr ljósritunarvélinni. Allar pizzurnar voru klipptar út.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 6
STÆRÐFRÆÐIBROT
Undirbúningur:
Kennari fjallaði um brot í stærðfræði. Unnið var með hálfan,
þriðju hluta, fjórðu hluta, sjöttu hluta og áttundu hluta. Klippa
þarf niður hvít spjöld til að merkja stærðina á
pizzasneiðunum.
Efni og gögn:
Skæri og skriffæri. Stærðfræðibækur nemendanna.
Vinna nemenda:
Nemendur taka þátt í umræðum. Nemendahóparnir skoða ljósritin sín og ákveða hvernig á
að skipta pizzunum. Hver hópur þarf að ná öllum brotunum sem kennarinn lagði upp með.
Ljósritin eru kippt niður og merkt með hvítum miðum. Að því loknu finnur hver og einn
brotablaðsíður í stærðfræðibókunum sínum til að vinna.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 7
BÚA TIL KLUKKU
Undirbúningur:
Kennari talaði við nemendur um
tímann og rifjaði upp og kenndi
nemendum á klukku. Finna þarf til
hvítan pappír sem nemendur nota
í verkefninu.
Efni og gögn:
Nokkrar ólíkar gerðir af klukkum
til að hafa við hendina í
umræðunum og til að teikna eftir.
Hvítur pappír til að teikna klukku á. Tússlitir. Stærðfræðibækur nemendanna.
Vinna nemenda:
Nemendur taka þátt í umræðum. Þeir teikna klukku á blað eins nákvæma og þeir geta.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 8
AFGREIÐA PANTANIR
Undirbúningur:
Útbúnar pantanir sem nemendur vinna úr þar sem reynir á tímaútreikninga.
Vinna nemenda:
Nemendur reikna út hve langan tíma það tekur að afgreiða pizzur. Nemendur vinna með
pantanirnar eins og þeir gerðu í upphafi smiðjunnar. Þeir eiga að hjálpast að en hver og einn
skráir niðurstöður í pantanaheftið sitt.
Verkefni 9
MUNNLEG KÖNNUN HJÁ KENNARA
Undirbúningur:
Kennarar sömdu spurningar til að nota í munnlegri könnun. Til að finna tíma til að ná öllum
nemendum á smiðjutíma var spiladagur hjá nemendum þar sem þeir komu með spil að
heiman. Gott er að tala við allan hópinn í einu þegar verið var að ræða um samvinnu hópsins
en þegar kemur að stærðfræðihlutanum er betra að hafa tvo nemendur í einu. Notaðar eru
stærðfræðibækurnar Sprota í þessari könnun.
Vinna nemenda:
Nemendur útskýra hvernig samvinna hópsins var og færa rök fyrir sínum þætti þar að lútandi.
Sýna fram á þekkingu á stærðfræðihluta smiðjunnar.
Dæmi um námsmat frá kennara:
NN var í fjögra manna hóp þar sem samvinnan gekk vel. Hann var hugmyndaríkur og tók
virkan þátt í hópavinnunni. NN var áhugasamur og lét til sín taka í ákvarðanatökum hópsins.
Hann gat fundið út verð á matseðlinum með því að nota samlagningu. Í munnlegri könnun átti
NN auðvelt með að vinna með stærðfræðibrot. Hann var öruggur þegar að hann las af skífu-
og tölvuklukku.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 10
HÁTÍÐ
Undirbúningur:
Farið í innkaupaleiðangur til að kaupa pizzabotna, pizzasósu, pepperóní, skinku, rauða
papriku, ananas og ost. Finna til hanska, ofnplötur, smjörpappír, bretti og hnífa. Reiknað er
með að fjórir til fimm séu um hverja pizzu. Hita ofna til að baka allar pizzurnar.
Vinna nemenda:
Nemendur þurftu að laga hópana aðeins til þannig að þeir væru fjórir til fimm saman.
Nemendur skáru niður álegg og bjuggu til sínar pizzu sem þeir borðuðu í stofunni sinni.
Þannig var til pizzahátíð í smiðjulok.
Unnið af kennurum í 3. og 4. bekk Norðlingaskóla skólaárið 2010 - 2011.
Verkefni 11
VATNSLITAMYNDIR Í LISTUM Í LUNDI
Á smiðjutímabilinu gerðu nemendur eitt verkefni í Listum í Lundi sem tengja má við
pizzasmiðjuna. Þar fengu þeir fyrirmæli um að teikna uppáhalds matinn sinn. Úr því kom
skemmtileg viðbót þar sem margir nemendur teiknuðu pizzur.