139
Náms- og kennsluáætlanir II 2010 - 2011

Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

Embed Size (px)

DESCRIPTION

náms- og kennsluáætlanir Hvassaleitisskóla 2010-2011

Citation preview

Page 1: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

Náms- og kennsluáætlanir

II

2010 - 2011

Page 2: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

Efnisyfirlit1. bekkur . ........................................................................................................ 12. bekkur. ....................................................................................................... 133. bekkur. ....................................................................................................... 254. bekkur. ....................................................................................................... 365. bekkur. ....................................................................................................... 476. bekkur . ...................................................................................................... 627. bekkur . ...................................................................................................... 758. bekkur. ....................................................................................................... 889. bekkur. ..................................................................................................... 10310. bekkur. ................................................................................................... 120

Page 3: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

1Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

1. bekkur Íslenska

8 kennslustundir á vikuMarkmiðAð nemandi:

• þjálfi undirstöðuatriði lestrar og skriftarnáms, svo sem heyrnar- og sjónskyn, gróf- og fínhreyfingar

• þekki lestrar- og skriftarátt• brúi bilið milli talmáls og ritmáls• auki orðaforða sinn og efli málskilning• þjálfi talað mál og hlustun• efli lesskilning sinn• auki lestrarhraða sinn • nái góðri lestrarhæfni• fái tækifæri til að lesa bækur við hæfi bæði að eigin vali og sem kennari velur• taki lesskimunarpróf sem spá fyrir um hvort þeir geti átt í lestrarerfiðleikum og fái viðeigandi

lestrar- og málþjálfun í kjölfarið • þjálfi talað mál og hlustun og sýni flytjendum texta tillitssemi• þjálfist í að tjá sig fyrir framan bekkinn• æfist í að halda rétt á skriffærum• þjálfi ritun málsins• örvi málnotkun• þjálfist í grunnatriðum stafsetningar s.s. stór, lítill stafur• læri að draga rétt til stafs og noti ítalska skrift með tengikrók• fái tækifæri til að semja sögur og ljóð og skrifi sjálfur eða með aðstoð• kynnist þekktum íslenskum þjóðsögum og ævintýrum• átti sig á mun á sérhljóðum og samhljóðum• þekki hugtökin bókstafur, hljóð, orð og setning• kynnist hugtökunum samheiti, andheiti, sérnafn, samnafn

Námsþættir/NámsefniMálörvunHlustunarleikir, rím, setningar og orð, samstöfur og hljóð.

NámsefniMarkviss málörvun – hlustun, tal og tjáning.

LesturBókstafir og hljóð þeirra, hljóðgreining.

HljóðlestraraðferðStafainnlögn - tveir stafir/hljóð á viku. Þegar fjögur hljóð hafa verið kennd er lögð mikil áhersla á tengingu.

Page 4: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

2 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

L T G vinnuaðferð í lestri og fleiri aðferðir.• Atburðablöð.• Bókagerð.• Sameiginleg textagerð.• Vinna með texta t.d. ákv. stafi, orð, lengd orða, stóran og lítinn staf o.s.frv.• Sögubók. Hér er byrjað á sögugerð. Mynda-, reynslu- og atriðasögur. Börnin• skrifa sögurnar heima með aðstoð foreldra. Nemendur lesa sögurnar upphátt• fyrir bekkinn.• Sögur, kvæði, frásagnir, þulur, leikir, leikræn tjáning, brúðuleikir o.fl.

NámsefniVið lesum AVeiði- og tengiblöð ásamt blöðum sem æfa stafagerð. Listin að lesa og skrifa ásamt vinnubókum.Orðasafnið mittLeikur að orðum 1. hefti.Það er leikur að læra 1 og 2Léttlestrarbækur og vinnubækur eru eftir getu hvers og eins.Námið er einstaklingsmiðað svo hvert barn vinnur með sínum hraða.

Kennslutilhögun/ kennsluhættirÞulunám, endurtekningaræfingar, skriflegar æfingar, vinnubókakennsla, vinnublaðakennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, yfirferð námsefnis, tvenndarvinna, hópavinna, námsleikir, námspil, upprifjanir, þemanám, söguaðferðin, sýnikennsla, skoðunarferðir, hlustunarefni, sagnalist, hugarflug með leiðsögn, leikræn tjáning, myndsköpun-myndræn tjáning, tónlist, söngur, hreyfing, skrifleg tjáning, ritun.

SkriftÍtölsk skrift.

NámsefniForskriftarblöð tengd hverju hljóði fyrir sig.

HeimanámLestur og markmiðsvinnubók -Nemendur lesa daglega heima fyrir foreldra sína. Foreldrar kvitta fyrir hlustun á þar til gert eyðublað. Einnig vinna nemendur heima í “markmiðsvinnubókum”. Nemendur áætla sjálfir í samráði við foreldra sína hversu mikið/margar bls. þeir ætla að vinna yfir vikuna. Lámarksvinna er 1 bls. á viku. Skila á markmiðsbókum einu sinni í viku til kennara. Stílabók með forskrift kennara unnin heima og einnig samdar sögur stöku sinnum.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Markmið• að þjálfa ritun tölustafa.• að þjálfa hugtakamyndun.• að þjálfa meðferð talna.

Page 5: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

3Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að þjálfa hugarreikning.• að þekkja sundur form og geta flokkað þau og ýmsa aðra hluti eftir lögun, lit og stærð.

KennslutilhögunLögð verður áhersla á að nota sem mest af reynslu og umhverfi nemendanna til að þjálfa hugtakanotkun og meðferð talna, t.d. með því að skoða og skrá upplýsingar úr nærumhverfi nemenda. Unnið verður með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Hlutbundin vinna verður notuð sem forvinna fyrir skrifleg verkefni. Kenndir verða grunnþættir sem teknir verða upp með ákveðnu millibili og þá jafnframt skilningurinn dýpkaður og nýjum atriðum bætt við.Kennari leggur inn ný viðfangsefni fyrir nemendur, t.d. með því að sýna verkefni á töflu, á hlutbundinn hátt. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota þau stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem talnagrindur, kennslupeninga, kubba og fleiri hjálpargögn.

KennsluaðferðirSýnikennsla, Samræður, verklegar æfingar, vinnubókar og vinnublaðakennsla, töflukennsla, námspil, námsleikir, hópavinna, þrautavinna. Lögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum.

Námsþættir• Ýmis hugtök tengd stærð og staðsetningu s.s. lítið, stórt, fyrir framan, fyrir aftan, undir, við

hliðina á, ofan á, ofan í.• Fullyrðingar: sannar og ósannar.• Flatarformin: hringur, ferhyrningur og þríhyrningur og fl.• Hugtök: mengi, hlutmengi, tómamengi, stak.• Tákn: tölur, fjöldi, samlagning, frádráttur, jafnt og, minna en, stærra en.• Klukkan: heil og hálf klukkustund.• Hugarreikningur, ýmis konar dæmi úr daglega lífinu.• Þrautalausnir.• Vasareiknir kynntur.

NámsefniSproti 2a , Valdar blaðsíður úr Einingu 1 og 2, Viltu reyna, Í undirdjúpunum, frádráttur og samlagning, Sigma-verkefni, þrautalausnir, ýmis aukaverkefni. Ýmis hjálpartæki t.d. talnagrindur, kubbar, smáhlutasafn, spil, teningar, kennslupeningar, málbönd, reglustikur, vasareiknar, myndvarpi, áhöld til að mæla rúmmál vökva og speglar.

NámsmatSímat sem byggist á vinnu í tímum, áfangaverkefnum og heimavinnu að viðbættum miðsvetrar og vorprófum.

HeimavinnaForeldrar setja vikuleg markmið þar sem þeir taka tillit til getu og þarfa barnsins. Ákveðnar vinnubækur eru unnar og markmiðin skráð í hefti sem fylgja með. Heimavinnu er skilað einu sinni í viku.

Page 6: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

4 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Samfélagsfræði2 kennslustundir á viku

Almenn markmiðNemandi:

• geri sér grein fyrir sérkennum íslensks samfélags, heimabyggðar sinnar jafnt sem þjóðfélagsins í heild

• fjalli um samfélög manna í hnattrænu samhengi með tilliti til fjölmenningar og alþjóðavitundar

• þekki einkenni íslenskrar menningar, breytingar sem orðið hafa á henni í• gegnum aldirnar og áhrif sem aukin fjölmenning hefur í samtímanum• átti sig á hvernig landið og náttúruauðlindir þess, til lands og sjávar, hafa• mótað samfélagið og menninguna; einnig hvernig samfélagið hefur haft• áhrif á landið og auðlindir þess• fái tilfinningu fyrir og skilning á framvindu tímans• kynnist möguleikum nútímaupplýsingatækni til öflunar og framsetningar• samfélagslegra, sögulegra og landfræðilegra gagna• geti beitt í samhengi þeirri grunnþekkingu sem hann hefur aflað sér og beitt gagnrýninni

hugsun til að leita orsaka og greina afleiðingar; að skiptast á skoðunum og færa rök fyrir máli sínu

• geti unnið sjálfstætt að verkefnum, bæði samkvæmt fyrirmælum og að eigin frumkvæði• verði fær um að koma þekkingu sinni og viðhorfum á framfæri með fjölbreyttum hætti, svo

sem munnlega eða skriflega, á myndrænan hátt og• með leikrænni tjáningu, á tölvu og Neti, einn sér eða í samstarfi við aðra

Markmið: Sjá Aðalnámsskrá bls. 11 – 14http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/adalnamskra_grsk_samfelagsgreinar.pdf

NámsþættirÁ yngsta stigi fléttast samfélagsfræðin oft saman við aðrar námsgreinar. Viðfangsefnin eru þá hinn nálægi heimur barnsins, barnið sjálft, fjölskyldan, skólinn og heimabyggðin. Einnig er litið til fjarlægari staða til að fá samanburð og viðmið og leggja þannig grunn að heimsmynd barnsins.

1. – 4. bekkur• Sjálfsmynd og félagslegt umhverfi• Skóli og heimabyggð• Land og þjóð• Umheimurinn og nánasta umhverfi• Heimsbyggð• Fornsaga• Tími• Rýni og tjáning

KennslutilhögunLögð er áhersla á fjölbreytta vinnu og stuðlað að því að nemendur nálgist efnið á mismunandi hátt. Lesið, spurt og spjallað, skriflegar æfingar, vinnublöð, sýnikennsla, skoðunarferðir, umræðuhópar, spurnaraðferðir, myndbands-upptökur, þemanám, þjálfunarforrit, heimildakönnun, myndsköpun,

Page 7: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

5Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

myndræn tjáning, tónlist, söngur, hreyfing, skrifleg tjáning, hermileikir, hlutverkaleikir.

NámsefniFjölskyldan, heimilið og nánasta umhverfi.Söguaðferðin – verkefnið: Skólinn minn og Risaeðlur

NáttúrufræðiMarkmið úr eðlisvísindumNemendur:

• þekki og vinni með hugtökin hiti, kuldi og frost• fylgist með breytingum á eiginleikum vatns og velti fyrir sér orsökum, s.s. þegar pollar

frjósa og snjór bráðnar• geri athuganir sem sýna rúmmál lofts• skoði steina og flokki þá eftir ólíkum eðliseiginleikum, s.s. stærð, lögun, þyngd og áferð

Markmið úr jarðvísindumNemendur:

• ræði um áhrif sólarljóssins á nánasta umhverfi, hitastig lofts og vatns, hitastig í skugga og í sólarljósi og á líkamann

• skoði og fjalli um fjölbreytileika steinaríkisins• fjalli um og skoði árstíðaskipti

Markmið úr lífvísindumNemendur:

• kannist við eftirfarandi trjátegundir birki, ösp, reyni, hlyn, greni, furu og lerki• viti að plöntur búa til súrefni sem er dýrum lífsnauðsynlegt• geri sér grein fyrir að barn verður til vegna samruna efna frá báðum foreldrum• skoði útlitseinkenni og velti fyrir sér hvaða einkenni hafa erfst frá föður og hver frá móður• þjálfist í að beita heitum og hugtökum yfir sjáanlega líkamshluta• þekki helstu líffæri og starfsemi þeirra, s.s. hjarta, maga og lungu

Markmiðin eru flest þrepamarkmið fyrsta bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði (1999:27-30).

NámsþættirHiti, kuldi, frost, eiginleikar vatns, rúmmál lofts, steinar, áhrif sólarljóss, árstíðir, helstu trjátegundir í nærumhverfinu, súrefnisframleiðsla plantna, getnaður, líkamshlutar, líffæri mannsins.

NámsefniKomdu og skoðaðu umhverfið, Komdu og skoðaðu líkamann, verkefnablöð og Ships-verkefni.

NámsmatNámsmatið á einkum við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í náttúrufræði í 1. bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennsluaðferðirÍ fyrsta bekk er lítið um flókið lesmál í þekkingarleit nemenda. Kennslan byggir því mikið á nánasta umhverfi barnsins, leik, upplifun, spurningum, umræðu, frásögnum, hlustun, myndrænni

Page 8: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

6 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

tjáningu, ákveðnum vinnubrögðum (tilraunir), forvitni og leit. Í náttúrúfræðinni er lögð áhersla á að nemendur njóti náttúru og útivistar.

HeimanámEkkert heimanám er að staðaldri í náttúrufræði í fyrsta bekk en einstaka samvinnuverkefni milli heimila og skóla eru send heim.

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• kynnist kristinni sköpunartrú• kynnist frásögunum af fæðingu Jesú, læri einfalda jólasálma og kynnist íslenskum

jólasiðum• kynnist afstöðu Jesú til barna, m.a. með frásögunni Jesús blessar börnin• fái tækifæri til leikrænnar tjáningar á atburðum úr biblíusögunum• þekki tilefni páskanna• geri sér ljóst hvað bæn er • heyri Faðir vor og kannist við kvöld- og morgunbænir og borðbænir• fáist við siðræn viðfangsefni sem tengjast vináttu og merkingu orðanna rétt og rangt, mitt

og þitt og fyrirgefning• geri sér ljóst að engir tveir eru eins, t.d. með frásögn af börnum með ólíkan bakgrunn

(Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 2007:12).

NámsþættirSköpunartrú, jólaguðspjallið, einfaldir jólasálmar, jólasiðir, afstaða Jesú til barna, biblíusögur, píslarsagan, bænir, vinátta, rétt og rangt, mitt og þitt, fyrirgefning, ólíkur bakgrunnur barna.

NámsefniRegnboginn, Sögustund, Undrið og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í kristnum fræðum í fyrsta bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennslutilhögunHlustun, umræður , verkefnavinna, hópavinna,föndurvinna, skoðun myndbanda og skyggnumynda, leikræn tjáning og söngur.

Upplýsingamennt, tölvur/bókasafn2 kennslustundir á viku

Til að takast á við síbreytilegan heim tækni, upplýsinga og samskipta, er í vaxandi mæli lögð áhersla á upplýsingalæsi. Það er sú þekking og færni sem þarf til að afla, flokka, vinna úr og miðla upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Upplýsingalæsi er kjarni upplýsingamenntar. Lögð er rík áhersla á að hver nemandi verði fær um að afla upplýsinga á sjálfstæðan hátt.

TölvurMarkmið

Page 9: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

7Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Tæknilæsi:• að nemendur temji sér ákveðnar reglur varðandi umgengni í tölvustofunni.• að nemendur geti náð í þau forrit sem verið er að vinna í.• geti beitt tölvumús við tölvuvinnslu.• að nemendur læri staðsetningu stafa og talna á lyklaborði samhliða færni í lestri og

stærðfræði.• að nemendur geti notað teikniforrit• að nemendur læri að prenta út skjal

Upplýsingalæsi:• að nemendur komi reglulega á safnið og viti hvar það er í skólanum.• að nemendur læri meðferð bóka og annarra gagna• fái lánuð gögn og kynnist útlánakerfi safnsins.

Menningarlæsi:• að nemendur geti hlustað, einbeitt sér og rakið efni sögu í stórum dráttum

NámsþættirNemendum kennt að nota og umgangast tölvuna með kennsluforritum og einföldum ritvinnslu- og teikniforritum.

NámsefniFrá A-Ö, Glói geimvera, Bogi blýantur, Snót og Snáði auk ýmissa kennsluforrita og bókasafnsverkefna. Hvassaleitisskóli 1 6 Skólanámsskrá

KennslutilhögunRitvinnsluforritið Word og teikniforritið Paint. Ýmis kennsluforrit við hæfi nemenda. Ritfinnur, verkefni fyrir þjálfun á lyklaborð tölvu.

NámsmatVinnusemi í tímum

TímamagnBókasafn 1 kennslustundTölvunotkun 1 kennslustund

SkólasafnMarkmiðað nemendur kynnist bókasafninu og starfsmönnum þess og viti hvar bækur við þeirra hæfi eru á safninu.

Inntak námsNemendur fá kynningu á meðferð bóka. T.d. vera með hreinar hendur, nota bókamerki, fara ekki með bækurnar út nema í poka eða tösku, ekki skrifa í bækurnar.

NámsefniEkkert formlegt námsefni

Reglur á bókasafni• ekki hafa hátt.• að bækur eiga að vera á ákveðnum stöðum á safninu.

Page 10: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

8 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að taka tillit til annarra sem eru að vinna eða lesa á safninu.Nemendur fá sögustundir og verkefni við þeirra hæfi. Sögustundabækur búnar til.Bókamerkjagerð. Allir gera bókamerki.

KennslutilhögunNemendur koma einu sinni í viku á bókasafnið yfir veturinn.Allir geta haft eina bók í láni í einu.

Myndmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið• að nemendur þjálfist í að tjá sig á myndrænan hátt.• að nemendur fái að kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum.• að nemendur fái að kynnast fjölbreyttu efni.• að nemendur fái hvatningu við sjálfstæð vinnubrögð.

Námsþættir/námsefni• Frjáls barnateiknun.• Meðferð lita.• Formfræði.• Lestur mynda og tákna.• Myndbönd, bækur og heimasíður listamanna

Lífsleikni4 kennslustundir á viku

Lífsleikni á að stuðla að því að byggja upp alhliða þroska nemandans. Margir námsþættir fléttast þar saman, sem meðal annars eiga að auka sjálfsþekkingu nemandans, að þeir móti með sér ábyrgan lífsstíl og lífsgildi og fái þjálfun í samskiptum.

MarkmiðNemandinn á að:

• kunna skil á umferðarreglum og umferðarmerkjum vegfarenda• geta greint og lýst ýmsum tilfinningum t.d. hamingju, sorg, gleði, reiði.• hafa lært leiðir til að efla samskiptafærni sína sem felur m.a. í sér• færni til samvinnu• að sýna tillitssemi• að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum• að setja sig í spor annarra• að hlusta á aðra og sýna kurteisi• geta gert sér grein fyrir mismunandi fjölskyldugerðum og stöðu einstaklinga innan þeirra• vita hvað er átt við með markmiðum og hvernig fólk notar markmið til að ná því sem að er

stefnt• geta bent á slysagildrur í umhverfinu, á heimilum og þekki varasöm efni sem þar kunna að

vera geymd

Námsþættir

Page 11: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

9Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Umferðarreglur, tilfinningar, samskipti, mismunandi fjölskyldugerðir, slysagildrur, markmiðssetning

NámsefniSpor 1, Gaman saman

Íþróttir 2 kennslustundir á viku og 18 kennslustunda námskeið í sundi

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur taki þátt í skapandi hreyfingu og leikrænni tjáningu með eða án tónlistar• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á samspil skynfæra eins og

jafnvægiskyn, sjónskyn, heyrnarskyn, snertiskyn, vöðva- og liðamótaskyn.• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á grófhreyfingar og fínhreyfingar.• að nemendur taki þátt í leikjum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf.• að nemendur taki þátt í leikjum og leikrænum æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð

og kraft.• að nemendur þjálfist í æfingum sem efla liðleika, líkamsreisn og líkamsstöðu.• að nemendur skilji mikilvægi líkamsræktar.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd

Námsþættir/námsefniNemendur:

• læra að þekkja helstu líkamsheiti eins og höfuð, bolur, brjóst, bak, fótleggir og armar.• Læra merkingu orða í sambandi við helstu hreyfingar t.d beygja- rétta- snúa- teygja-

kreppa.• Læra helstu magn- og afstöðu- hugtök eins og fleiri- færri- lengri- styttri- hægri- vinstri

undir-yfir.• Læra að tileinka sér skipulagsform eins og röð, lína, hringur og hópur.• Læra að taka við fyrirmælum varðandi hreyfingar og reyna að framkvæma þær.• Læra að tileinka sér helstu umgengisreglur í íþróttamannvirkjum eins og að ganga frá fötum

og handklæði, þvo sér og þurrka sér.• Læra að tileinka sér samskiptafærni eins og að hlusta, tjá skoðun sína og bíða. Fá leikræn

verkefni sem krefst samskipta, s.s. að taka tillit til annarra og vinna í fámennum hópum.• Smáleikir, fimleikar, frjálsar íþróttir, hreyfitjáning og heilsuvernd.• Læra grunnhreyfingar eins og að hlaupa, ganga, skríða, hoppa, stökkva, klifra, hanga,

sveifla, kasta, grípa, rekja, rúlla, snerta og velta sér.• Læra að nota ýmis áhöld eins og gjarðir, sippubönd, bolta, bekki , baunapoka, prik, keilur,

kassa og bönd.

Sundkennsla fer fram í sundlaug Breiðagerðisskóla á skólatímaNámsmatGefið er í bókstöfum fyrir eftirfarandi þætti

• Áhugi

Page 12: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

10 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Virkni • Hegðun • Færni • Samvinna

A þýðir ágættB þýðir gottC þýðir sæmilegtD þýðir ábótavant

HeimilisfræðiKennslan er í námskeiðsformi

Inntak námsNemendur læra:

• um bakteríur á höndum og mikilvægi handþvottar• almenna kurteisi og borðsiði.• að mæla í desilítrum og skeiðum• að þekkja algengustu eldhúsáhöld• að fara eftir uppskriftum í myndaformi

NámsefniUppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar.Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

Hönnun og smíði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið / námsþættir• Að þroska hug og hönd til að tjá eigin hugmyndir.• Að nemendur kynnist umhverfi og hugmyndafræði hönnunar og smíði.

Lagður verður grunnur að því sem nemandinn lærir næstu ár. Þetta verður gert með því að kynna þeim efnisheiminn og hvernig hlutir verða til. Áhersla lögð á að kenna rétt vinnubrögð.Verkefni verði af einföldum toga sem henti getu og færni.Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

KennslutilhögunKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Page 13: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

11Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Textílmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinn.

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemanda, kenna þeim að vinna úr mismunandi efni og

þjálfa tilfinningu þeirra fyrir því.• efla hugmyndaflug, sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemenda • að nemendum sé gerð grein fyrir notagildi vefjarefna og viti hvað skilur þau frá öðrum

efnum. • að nemendur fái verkefni við hæfi, einföld og fljótleg svo þeir fái innsýn í hvernig textílverk

verður til á einfaldan hátt.

NámsþættirNemendur þjálfist í að klippa, teikna, mála, lita og líma í tengslum við textílverkefni, þræða grófa nál, búa til hnút á enda, sauma þræðispor í grófan jafa eða í annað efni, þjálfist í einföldum vefnaði, snúa snúrur, hekla með fingrunum og búa til dúsk.

NámsefniUnnið og útbúið af kennara.

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Tónmennt 2 kennslustundir á viku

MarkmiðAð nemendur:

• þjálfist í að syngja í hóp, fjölbreytt sönglög og þulur• læri að umgangast skólahljóðfæri• þjálfi taktskyn með púls, einföldu hrynmynstri og áherslu gegnum• hreyfingu• kynnist algengum nótnagildum • vinni markvisst með tónlistarhugtök s.s. veikt og sterkt, háir tónar og• djúpir tónar, hratt og hægt, bjart og dimmt• upplifi hinar ýmsu hliðar tónlistar

Námsþættir• Söngur og raddbeiting

Page 14: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

12 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Hljóðfæranotkun• Lestur og ritun• Hreyfing• Hlustun og sköpun

NámsefniStuðst verður við fjölbreyttar bækur í kennslunni, t.d. – Það var lagið, Leikum og syngjum, Töfrakassinn og ýmsar söngbækurLeikir verða mikið notaðir til að þjálfa hlustun, hreyfingu og örva sköpun Vinnubækur frá kennara sem innihalda einföld lög og tónlistartákn Fjölbreytt úrval hljómdiska

NámsmatSímat á ástundun, þroska og framförum

Page 15: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

13Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

2. bekkurÍslenska

8 kennslustundir á vikuKennslutilhögunSýnikennsla, myndmiðlar, þulunám, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, vinnublaðakennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, tvenndarvinna, námsleikir, þjálfunarforrit, leikræn tjáning, framsagnaræfingar, skoðunarferðir, hópvinnubrögð.

MarkmiðAð nemandi:

• auki orðaforða sinn og efli málskilning.• efli lesskilning sinn.• auki lestrarhraða sinn.• nái góðri lestrarhæfni.• fái tækifæri til að lesa bækur við hæfi bæði að eigin vali og sem kennari velur.• taki lesskimunarpróf sem spáir fyrir um hvort þeir geti átt í lestrarerfiðleikum og fái

viðeigandi lestrar- og málþjálfun í kjölfarið.• þekki hugtökin bókstaf, hljóð, orð og setning.• þjálfi talað mál og hlustun og sýni flytjendum texta tillitssemi.• þjálfist í að tjá sig fyrir framan bekkinn.• æfist í að halda rétt á skriffærum.• þjálfi ritun málsins.• örvi málnotkun.• þjálfist í grunnatriðum stafsetningar s.s. stór, lítill stafur.• læri að draga rétt til stafs og noti ítalska skrift með tengikrók.• fái tækifæri til að semja sögur og ljóð og skrifi sjálfur eða með aðstoð.• kynnist þekktum íslenskum þjóðsögum og ævintýrum.• átti sig á mun á sérhljóðum og samhljóðum.• kynnist hugtökunum samheiti, andheiti, sérnafn, samnafn.• læri vísur og ljóð utanbókar• fái tækifæri til að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar.• kynnist hugtökum eins og persóna, söguhetja og rím.

Lestur og ritunNámsþættirUpplestur, hlustun, lesskilningur, orðaforði, vísur og þulur. Greinamerkin komma, punktur, spurningarmerki. Orða- og stafabil, hugtökin bókstafur, hljóð, orð, setning/málsgrein, persóna, söguhetja. Sérhljóðar, samhljóðar, andheiti, samheiti, sérnöfn, samnöfn, eintala, fleirtala, lítill og stór stafur, samsett orð og rím. Mánaðaheiti og vikudagarnir.

NámsefniVið lesum B, Bras og þras, Davíð og fiskarnir, Lesum og lærum, Hvíti kjóllinn. Ýmsar léttlestrarbækur við hæfi hvers og eins úr stofubókasafni og af skólabókasafni.

Page 16: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

14 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

VinnubækurStafróf dýranna, Við lesum B, Davíð og fiskarnir, Bras og þras á Bunulæk, Pínulitla Ritrún, Græni blýanturinn, Blái blýanturinn, Borgarmúsi og Sveitamúsi, Ásinn, Leikur að orðum, Orðaskyggnir, Sín ögnin af hverju, Sitt af hverju. Einnig ýmis önnur vinnuhefti. Sögur, frásagnir, gátur og brandarar rituð í sögubók.

Ljóð og framsögnNámsþættirLéttar vísur og þulur kenndar. Einföld ljóðagerð og rím.Nemendur æfðir í að tjá sig fyrir framan hóp.

HugtökinErindi, ljóðlína, fyrirsögn, ljóðaheiti, höfundur, viðlag og rím. NámsefniLjóðsprotar og valin ljóð úr öðrum bókum. Markviss málörvun og Að leika oglátast.

SkriftNámsþættirAð draga rétt til stafs, vanda skrift og frágang. Skrifað er eftir forskrift og fínhreyfingar æfðar. Ítölsk stafagerð með tengikrók.

NámsefniGóður betri bestur 2A, Skrift 2, Stafróf dýranna. Heimavinna í íslensku- Lestur og markmiðsvinnubók -Nemendur lesa daglega heima fyrir foreldra sína í um 15 mínútur á dag. Foreldrar kvitta fyrir hlustun á þar til gert eyðublað. Einnig vinna nemendur heima í “markmiðsvinnubókum”. Nemendur áætla sjálfir í samráði við foreldra sína hversu mikið/margar bls. þeir ætla að vinna yfir vikuna. Lámarksvinna er 2 bls. á viku. Skila á markmiðsbókum einu sinni í viku til kennara. Einnig læra nemendur nokkur ljóð yfir veturinn og vinna í sögubók.

Stærðfræði 6 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að námið veiti nemendum þekkingu til að mæta kröfum daglegs lífs.• að undirbúa áframhaldandi nám.• að nemendur nýti þekkingu sína og finni lausnir á stærðfræðiþrautum og rökstyðji þær.• að nemendur temji sér að beita ímyndunarafli sínu og frumkvæði.

KennslutilhögunLögð verður áhersla á að nota sem mest af reynslu og umhverfi nemendanna til að þjálfa hugtakanotkun og meðferð talna, t.d. með því að skoða og skrá upplýsingar úr nærumhverfi nemenda. Unnið verður með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Hlutbundin vinna verður notuð sem forvinna fyrir skrifleg verkefni. Kenndir verða grunnþættir sem teknir verða upp með ákveðnu millibili og þá jafnframt skilningurinn dýpkaður

Page 17: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

15Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

og nýjum atriðum bætt við.Kennari leggur inn ný viðfangsefni fyrir nemendur, t.d. með því að sýna verkefni á töflu, á hlutbundinn hátt. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota þau stærðfræðigögn sem komið geta að gagni, svo sem talnagrindur, kennslupeninga, kubba og fleiri hjálpargögn.

KennsluaðferðirSýnikennsla, samræður, verklegar æfingar, vinnubókar og vinnublaðakennsla, töflukennsla, námspil, námsleikir, hópavinna, þrautavinna. Lögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum.

NámsþættirTalnaskilningur, Tölustafir 0 - 100, samlagning, frádráttur, plúsheiti, margföldun, lausnamengi, rúmfræði, flatarmál, ummál, tölfræði (súlurit), klukkan, tími, mánuðir, vika, ár, brot (helmingur 1/2, 1/3, 1/4 ), sætisgildi, mælingar, þökun, speglun og uppsetning dæma.

NámsefniEining 3 og 4. Ljósrituð æfingahefti, Viltu reyna? Í undirdjúpunum, frádráttur og samlagning, Tíu og tuttugu, Lína 3 og 4 Verkefni fyrir vasareikna 1 og 2, ýmis stærðfræðiforrit, aukaverkefni og spil tengd námsefninu.

NámsmatSímat sem byggist á vinnu í tímum, áfangaverkefnum og heimavinnu að viðbættum miðsvetrar og vorprófum.

Heimavinna í stærðfræðiForeldrar setja vikuleg markmið þar sem þeir taka tillit til getu og þarfa barnsins. Ákveðnar vinnubækur eru unnar og markmiðin skráð í hefti sem fylgja með. Heimavinnu er skilað einu sinni í viku.

Samfélagsfræði2 kennslustundir á viku

Almenn markmiðNemandi:

• geri sér grein fyrir sérkennum íslensks samfélags, heimabyggðar sinnar jafnt sem þjóðfélagsins í heild

• fjalli um samfélög manna í hnattrænu samhengi með tilliti til fjölmenningar og alþjóðavitundar

• þekki einkenni íslenskrar menningar, breytingar sem orðið hafa á henni í gegnum aldirnar og áhrif sem aukin fjölmenning hefur í samtímanum

• átti sig á hvernig landið og náttúruauðlindir þess, til lands og sjávar, hafa mótað samfélagið og menninguna; einnig hvernig samfélagið hefur haft áhrif á landið og auðlindir þess

• fái tilfinningu fyrir og skilning á framvindu tímans• kynnist möguleikum nútímaupplýsingatækni til öflunar og framsetningar• samfélagslegra, sögulegra og landfræðilegra gagna• geti beitt í samhengi þeirri grunnþekkingu sem hann hefur aflað sér og beitt gagnrýninni

hugsun til að leita orsaka og greina afleiðingar; að skiptast á skoðunum og færa rök fyrir máli sínu

• geti unnið sjálfstætt að verkefnum, bæði samkvæmt fyrirmælum og að eigin frumkvæði• verði fær um að koma þekkingu sinni og viðhorfum á framfæri með fjölbreyttum hætti, svo

Page 18: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

16 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

sem munnlega eða skriflega, á myndrænan hátt og• með leikrænni tjáningu, á tölvu og Neti, einn sér eða í samstarfi við aðra

MarkmiðSjá Aðalnámsskrá bls. 11 – 14 http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/adalnamskra_grsk_samfelagsgreinar.pdf

NámsþættirÁ yngsta stigi fléttast samfélagsfræðin oft saman við aðrar námsgreinar. Viðfangsefnin eru þá hinn nálægi heimur barnsins, barnið sjálft, fjölskyldan, skólinn og heimabyggðin. Einnig er litið til fjarlægari staða til að fá samanburð og viðmið og leggja þannig grunn að heimsmynd barnsins.

1. – 4. bekkur• Sjálfsmynd og félagslegt umhverfi• Skóli og heimabyggð• Land og þjóð• Umheimurinn og nánasta umhverfi• Heimsbyggð• Fornsaga• Tími• Rýni og tjáning

Námsefni• Komdu og skoðaðu hafið• Fjölskyldan og bíllinn• Blómin á þakinu• Álfar og tröll• Umferðarbókin• Skyndihjálp

KennslutilhögunLögð er áhersla á fjölbreytta vinnu og stuðlað að því að nemendur nálgist efnið á mismunandi hátt. Lesið, spurt og spjallað, skriflegar æfingar, vinnublöð, sýnikennsla, skoðunarferðir, umræðuhópar, spurnaraðferðir, myndbandsupptökur, þemanám, þjálfunarforrit, heimildakönnun, myndsköpun, myndræn tjáning, tónlist, söngur, hreyfing, skrifleg, tjáning, hermileikir, hlutverkaleikir.

NámsmatNámsmat á yngsta aldursstigi er símat þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda án þess að leggja fyrir hefðbundin skrifleg próf.

Náttúrufræði Markmið úr eðlisvísindumNemendur:

• geri athuganir með skugga, s.s. teikni útlínur af skugga• geri athuganir með skugga sem sýna að skuggar eru svæði sem ljós nær ekki til og lögun

skugga breytist yfir daginn• athugi ýmis ólík fyrirbæri með tilliti til mismunandi lita, s.s. regnbogann, olíubrák, þrístrent

gler

Page 19: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

17Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geri athuganir sem sýna áhrif veðurs og vinda á efni, t.d. að þvottur þornar fyrr og að pollar gufa upp þegar sólin skín eða vindur blæs

• geri tilraunir með hvað verður um efni sem leyst hafa verið upp í vatni, s.s. salt, sykur og kaffi

• geri tilraunir um áhrif mismunandi hitastigs á leysni, t.d. með því að setja sykur, salt eða tepoka í kalt vatn og heitt

Markmið úr jarðvísindumNemendur:

• skoði og ræði um afleiðingar árstíðabreytinga í íslenskri náttúru og nánasta umhverfi• geti tengt dægra- og árstíðaskipti við hreyfingu sólar og jarðar• skoði og fjalli um fjölbreytileika steinaríkisins• skoði og fjalli um strandlengju m.a. með tilliti til munar á flóði og fjöru og fjölbreytileika

Markmið úr lífvísindumNemendur:

• þjálfist í að flokka lífverur eftir ytri einkennum og skyldleika• þjálfist í að beita heitum og hugtökum yfir sjáanlega líkamshluta• geri athuganir þar sem fylgst er með einföldum lífsferlum, s.s. fræ verður planta og

myndbreyting skordýra• geti flokkað dýr eftir því hvað þau éta, þ.e. hvort þau nærast á plöntum eða öðrum dýrum• þekki og geti nafngreint algeng smádýr í nánasta umhverfi• Markmiðin eru flest þrepamarkmið annars bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði

(1999:27-30).

NámsþættirSkuggi, sólargangur, ljós og litir (regnbogi, olíubrák, þrístrent gler), áhrif veðurs og vinda á efni, leysni efna, dægra- og árstíðaskipti, mismunandi strandlengjur, flóð og fjara, flokkun lífvera, líkamshlutar, lífsferill fræs, jurtaætur, kjötætur, smádýr í nánasta umhverfi, myndbreyting.

NámsefniSöguramminn Margt býr í moldinni, (Komdu og skoðaðu fjöllin), Komdu og skoðaðu hafið, Komdu og skoðaðu eldhúsið, verkefnablöð og Ships-verkefni.

NámsmatNámsmatið á einkum við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í náttúrufræði í 2. bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennsluaðferðirÍ öðrum bekk er lítið um flókið lesmál í þekkingarleit nemenda. Kennslan byggir því mikið á nánasta umhverfi barnsins, leik, upplifun, spurningum, umræðu, frásögnum, hlustun, myndrænni tjáningu, ákveðnum vinnubrögðum (tilraunir), forvitni og leit. Með aukinni lestrarfærni og ritun aukast námskröfurnar og lesmálið. Í náttúrufræðinni er lögð áhersla á að nemendur njóti náttúru og útivistar.

HeimanámEkkert heimanám er að staðaldri í náttúrufræði í öðrum bekk en einstaka samvinnuverkefni milli heimila og skóla eru send heim.

Page 20: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

18 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• kynnist frásögunum af ættfeðrunum Abraham, Ísak og Jakobi og frásögunni af Jósef • auki við þekkingu sína á atburðum tengdum jólum• kynnist kjörum landflótta barna• þekki valdar frásögur úr Nýja testamentinu• þekki atburði pálmasunnudags, skírdags, föstudagsins langa og páskadags• kynnist frásögum af atburðum sem áttu sér stað eftir upprisu Jesú, t.d. förinni til Emmaus

og himnaför Jesú• viti hvað kristniboð er• skoði kirkju og heyri af því sem þar fer fram• fáist við siðræn viðfangsefni sem tengjast vináttu og merkingu orðanna rétt og rangt, mitt

og þitt og fyrirgefning• fái þjálfun í að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum með því að fást við efni sem tengjast

jafnrétti, jafngildi og kjarki til að fylgja sannfæringu sinni(Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 2007:13).

NámsþættirÆttfeður gyðinga, frásagan af Jósef, jólaguðspjallið, frásögur úr Nýja testamentinu, píslarsagan, kirkja, safnaðarstarf, kristniboð, kjör landflótta barna, rétt og rangt, mitt og þitt, fyrirgefning, sjálfsvirðing, jafnrétti, jafngildi, kjarkur, sannfæring.

NámsefniStjarnan og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í kristnum fræðum í öðrum bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennslutilhögunHlustun, umræður , verkefnavinna, hópavinna, föndurvinna, skoðun myndbanda og skyggnumynda, leikræn tjáning, vettvangsferð í kirkju og söngur.

Upplýsingamennt: Tölvur/ Skólasafn 2 kennslustundir á viku

Til að takast á við síbreytilega heim tækni, upplýsinga og samskipta, er í vaxandi mæli lögð áhersla á upplýsingalæsi. Það er sú þekking og færni sem þarf til að afla, flokka, vinna úr og miðla upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Upplýsingalæsi er kjarni upplýsingamenntar. Lögð er rík áhersla á að hver nemandi verði fær um að afla upplýsinga á sjálfstæðan hátt.

Markmið• að nemendur kynnist tölvunni, umgengni við hana og helstu ílags-og frálagstækjum• að nemendur þjálfist í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu• að nemendur vinni með kennsluforrit sem hæfa aldri og þroska

Page 21: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

19Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemendur vinni með kennsluforrit til nánari þjálfunar námsefnis• að nemendur kunni að nota ákveðna sérlykla á lyklaborði s.s. eyða texta, leiðrétta texta og

rita stóra stafi• að nemendur átti sig á hvernig lyklaborð skiptist í hægri og vinstri hluta• að nemendur geti notað tölvu til að skrifa og prenta út eigin texta

NámsþættirNemendum kennt að nota og umgangast tölvuna með kennsluforritum og einföldum ritvinnslu og teikniforritum. Nemendur vinna með forrit/vefefni sem tengist námsefni bekkjarins s.s. hljóðgreiningu, lestri, lesskilningi, samlagningu, frádrætti. Einnig eru nemendur þjálfaðir í nokkrum grunnatriðum ritvinnslu s.s. leiðréttingu, að skrifa stóra stafi og því hvernig lyklaborðið skiptist í hægri og vinstri hluta

KennslutilhögunNemendur vinna einstaklingslega hver á sinni tölvu.

NámsefniRitvinnsluforritið Word og teikniforritið Paint og síðari hluta vetrar Ritfinnur sem þjálfar fingrasetningu á lyklaborði. Nemendur vinna með ýmis kennsluforrit við hæfi t.d. Glói geimvera. Einnig vinna nemendur vefverkefni t.d. á www.nams.is

NámsmatVinnusemi í tímum

TímamagnTölvukennsla 1 kennslustund - Skólasafn 1 kennslustund

SkólasafnMarkmiðKynnast bókasafninu betur. Tengja frjálsan lestur og lestrarkennslu. Nemendur byrja að vinna með orðabækur fyrir börn.

Inntak námsUpprifjun á umgengni á safninu og meðferð bóka.Verkefni úr Orðaskyggni og Barnaorðabókinni. Nemendur vinna í bókinaÍ skólasafninu I.Auðveld stafrófsverkefni.Sögustundir af og til.Nemendum kennt að finna bækur við sitt hæfi.Skólanámsskrá 2 7 HvassaleitisskóliKennt um muninn á skáldsögum og fræðibókum. Einnig kennd heiti á helstu hlutum bókar, t.d. kápa, kjölur, titilsíða.

NámsgögnBarnaorðabókin. 1988. Reykjavík, Iðunn.Helga Kristín Möller. 1994. Í skólasafninu I. Fræðsluskrifstofa Reykjanesumdæmis.Orðaskyggnir. 1989. Reykjavík, Bjallan.

KennsluskipanNemendur koma vikulega á bókasafnið allan veturinn.

Page 22: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

20 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Nemendur geta fengið 3 bækur að láni í einu. Útlánstími er tvær vikur. Nemendur eru hvattir til að skila bókunum þegar þeir eru búnir að lesa.

Myndmennt2 kennslustundir á viku

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda.• að vekja nemendur til vitundar um getu sína og hæfni sem verður þeim síðan eðlileg

hvatning til frumkvæðis og sjálfstæðrar sköpunar í öllu námi.• að nemendur fái að kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum.• að nemendur fái að kynnast fjölbreyttu efni.

Námsþættir/námsefni• Frjáls barnateiknun.• Meðferð lita.• Formfræði.• Lestur mynda og tákna.• Klippimyndir• Myndbönd, bækur og heimasíður listamanna

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni1 kennslustund á viku

Lífsleikni á að stuðla að því að byggja upp alhliða þroska nemandans. Margir námsþættir fléttast þar saman, sem meðal annars eiga að auka sjálfsþekkingu nemandans, að þeir móti með sér ábyrgan lífsstíl og lífsgildi og fái þjálfun í samskiptum.

MarkmiðNemandinn á að:

• kunna skil á umferðarreglum og umferðarmerkjum vegfarenda• geta greint og lýst ýmsum tilfinningum t.d. hamingju, sorg, gleði, reiði.• hafa lært leiðir til að efla samskiptafærni sína sem felur m.a. í sér færni til samvinnu• að sýna tillitssemi• að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum• að setja sig í spor annarra• að hlusta á aðra og sýna kurteisi

NámsþættirUmferðarreglur, tilfinningar, samskipti.

NámsefniAðgát í umferðinni, Zippý, Spor 2.

Íþróttir2 kennslustundir á viku og 18 kennslustunda námskeið í sundi

Page 23: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

21Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur taki þátt í skapandi hreyfingu og leikrænni tjáningu með eða án tónlistar• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á samspil skynfæra eins og

jafnvægiskyn, sjónskyn, heyrnarskyn, snertiskyn, vöðva- og liðamótaskyn.• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á grófhreyfingar og fínhreyfingar.• að nemendur taki þátt í leikjum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf.• að nemendur taki þátt í leikjum og leikrænum æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð

og kraft.• að nemendur þjálfist í æfingum sem efla liðleika, líkamsreisn og líkamsstöðu.• að nemendur skilji mikilvægi líkamsræktar.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/námsefniBörnin læra að þekkja helstu líkamsheiti eins og höfuð, bolur, brjóst, bak, fótleggir og armar.Læra merkingu orða í sambandi við helstu hreyfingar t.d beygja- rétta- snúa- teygja-kreppa.Læra helstu magn- og afstöðu- hugtök eins og fleiri- færri- lengri- styttri- hægri- vinstri undir- yfir.Læra að tileinka sér skipulagsform eins og röð, lína, hringur og hópurLæra að taka fram og ganga frá áhöldum á réttan og öruggan hátt.Læra að skilja hvað er rétt eða rangt í leikjum og fái að tjá skoðun sína.Læra að tileinka sér helstu umgengisreglur í íþróttamannvirkjum eins og að ganga frá fötum og handklæði, þvo sér og þurrka sér.Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir og ratleikir.Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup, jafnvægisganga á bita eða bekk og klifur.Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.Grunnþjálfun: Alhliða líkamsbygging með áherslu á hreyfingar og þjálfun í hreyfifærni.Sund: Bringusund, baksund, skriðsund o.fl.Heilsuvernd: Í kennslunni verður leitast við að fræða nemendur um hreinlæti, áhrif íþróttaiðkunar á líkamann og starfsemi hans.

Námsmat:Gefið er í bókstöfum fyrir eftirfarandi þætti

• Áhugi • Virkni• Hegðun• Færni• Samvinna

A þýðir ágættB þýðir gottC þýðir sæmilegtD þýðir ábótavant

Page 24: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

22 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• kynnist eldhúsinu, tækjum og áhöldum í því og þeim vinnureglum sem þar gilda• læri að hreinlæti er forsenda allrar matreiðslu• tileinki sér gildi hollra lífshátta• tileinki sér tillitssemi og kurteisi í allri samvinnu• læri að útbúa holla og einfalda rétti

Inntak námsNemendur læra:

• um bakteríur á höndum og mikilvægi handþvottar• um góðar og slæmar örverur• um fæðuhringinn og skólanestið• um vini og óvini tannanna• um umhverfi okkar (flokka rusl)• um hvaðan maturinn kemur• um störfin á heimilinu• að þvo upp eftir matinn og ganga frá• að nota einföld eldhúsáhöld• að mæla í desilítrum og skeiðum, þekki dl. mál, msk. og tsk.• að útbúa einfalda rétti sem þeir borða saman• að gera sér grein fyrir því að hnífar og önnur eggjárn geta verið hættuleg

NámsgögnHollt og gott, kennslubók gefin út fyrir 2. bekk með uppskriftum og verkefnum.Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar .Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 2. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.

Hönnun og smíði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið /námsþættir• Að efla sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemandans.• Að nemendur nái að mynda sér hugmyndir um hlut og geti fært hann yfir í efni frá einfaldri

teikningu. Rætt verður um efnisheiminn og spáð í hvernig verkfæri hafi orðir til. Enn fremur að nemandi geti tjáð sig um útlit og umhverfi á einfaldan hátt út frá hlutum sem smíða skuli.

• Áhersla á rétt vinnubrögð og vinnustellingar.• Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

Page 25: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

23Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

KennslutilhögunKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 kennslustundir á viku, hálfan veturinn

Markmið• að þroska huga og hönd nemandans til að tjá eigin hugmyndir, þekkingu og reynslu í

margskonar efnivið með viðeigandi vinnubrögðum.• að efla hugmyndaflug, sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemandans.• að rækta með nemandanum félagshyggju og samstarfsvilja.

NámsþættirNemendur fá þjálfun í að sauma þræðispor og einföld útsaumsspor í jafa eða striga, þræða nál, binda hnút, byrja sjálf að sauma og ganga frá enda, vefa, flétta og hnýta snúrur og bönd, búa til dúsk, lita, mála, þrykkja og líma á vefjarefni, klippa út form og sauma saman efni í höndunum. Áhersla lögð á að vinna eftir eigin teikningum og hugmyndum.Íslenska ullin kynnt og unnið með þæfingu á ullarkembum eða ullarefni. Saumavélin kynnt og nemendur fá að sauma með aðstoð kennarans.

NámsefniUnnið og útbúið af kennara.

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Page 26: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

24 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Tónmennt2 kennslustundir á viku

MarkmiðAð nemendur:

• þjálfist áfram í að syngja í hóp, fjölbreytt sönglög og þulur• læri að umgangast skólahljóðfæri og geti greint á milli þeirra eftir heyrn, sjón og nafni • þjálfi taktskyn með púls, einföldu hrynmynstri og áherslu gegnum hreyfingu• kynnist grunnatriðum í skrift- og nótnalestri• vinni áfram með tónlistarhugtök s.s. veikt og sterkt, háir tónar og djúpir tónar, hratt og

hægt, bjart og dimmt• geti hlustað á fjölbreytta tónlist með athygli, sýni viðbrögð við henni og• greini notkun efnisþátta, s.s. tónhæðar, tónlengdar, hryns og áherslu

NámsþættirSöngur og raddbeitingHljóðfæranotkunLestur og ritunHreyfingHlustun og sköpun

NámsefniStuðst verður við fjölbreyttar bækur í kennslunni, t.d. – Það var lagið, Tónmennt 1, Töfrakassinn og ýmsar söngbækur.Leikir verða mikið notaðir til að þjálfa hlustun, hreyfingu og örva sköpun. Vinnubækur frá kennara sem innihalda einföld lög og tónlistartákn Fjölbreytt úrval hljómdiska

NámsmatSímat á ástundun (virkni), samvinnu, frumkvæði, hegðun og framförum

Page 27: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

25Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

3. bekkurÍslenska

8 kennslustundir á vikuMarkmiðAð nemandi:

• auki orðaforða sinn og efli málskilning.• nái góðri lestrarhæfni.• auki lestrarhraða sinn og efli lesskilning• fái tækifæri til að lesa fyrirmæli og fara eftir þeim.• þjálfist í upplestri.• þjálfi talað mál og hlustun og að sýni flytjendum texta tillitssemi.• þjálfist í að tjá sig fyrir framan bekkjarfélaga. • þjálfist í að stafsetja rétt með margvíslegum verkefnum. • æfist í að semja sögur og ljóð• fái tækifæri til að lesa ýmsar tegundir texta við hæfi.• auki færni í læsilegri og áferðarfallegri skrift.• dragi rétt til stafs og noti ítalska skrift með tengikrók• þekki hugtökin bókstafur, orð, setning• þjálfist í að þekkja og greina samheiti, andheiti, sérnöfn og samnöfn.• geri sér nokkra grein fyrir orðflokkunum nafnorð, sagnorð og lýsingarorð.• átti sig á hvernig orð geta verið samsett úr tveimur eða fleiri orðum.• átti sig á að nafnorð fallbeygjast.

Lestur og ritun NámsþættirUpplestur, framsögn, lesskilningur, hugtakaskilningur, frásagnir frá eigin brjósti, hugtökin bókstafur, hljóð, orð, setning. Samheiti, andheiti, sérhljóðar, samhljóðar, samsett orð, nafnorð, sérnöfn , samnöfn, sagnorð, lýsingarorð, stór og lítill stafur, kyn orða, ng og nk reglan, n og nn í greini.

NámsefniLestrarbækur: Lesum saman, Litla Ljót, Lesum meira saman, Sumardvöl í sveit, Við lesum C, Sögusteinn. Nemendur velja bækur til heimalestrar.Vinnubækur: Lesum saman, Litla Ljót, Lesum meira saman, Sumardvöl í sveit, Sumar í borg, Við lesum C, Tvistur, Litla Ritrún, Ritrún, Málið mitt, Orðaskyggnir, Orðaspil, Dagblaðabókin mín, Sögusteinn.Nemendur skrifa sögur, frásagnir og ljóð frá eigin brjósti og léttan texta eftir upplestri.

Ljóð og framsögn NámsþættirLéttar vísur og þulur, erindi, ljóðlína, ljóðaheiti, höfundur, viðlag, einföld ljóðagerð og rím. Nemendur velja sér ljóð og æfa framsögn fyrir framan hóp. Þeir skrifa upp ljóð í vinnubók og myndskreyta.

Page 28: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

26 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniLjóðsprotar, Vísnabókin, Litlu skólaljóðin.

SkriftNámsþættirSkrifað eftir forskrift. Ítölsk stafagerð með tengikrók. Dregið rétt til stafs, frágangur og vandvirkni.

NámsefniSkrift 3.Góður betri bestur 3.

Helstu kennsluaðferðirTöflukennsla, sýnikennsla, skriflegar æfingar, verklegar æfingar, vinnubókarkennsla, þulunám, námsleikir, leikræn tjáning, framsagnaræfingar, lesið spurt og spjallað, tvenndarvinna, hópvinnubrögð, skoðunarferðir.

NámsmatVinnusemi og virkni í tímum, vandvirkni við verkefni, hegðun og framför hvers nemanda er tekin til athugunar.Staða nemenda í íslensku er einnig athuguð reglulega yfir veturinn ýmist með hraðlestrarprófum, skriftarprófum og málfræði- og lesskilnings könnunum.

Heimavinna í íslenskuLestur og markmiðsvinnubók:Nemendur lesa daglega heima fyrir foreldra sína. Foreldrar kvitta fyrir hlustun á þar til gert eyðublað. Einnig vinna nemendur heima í “markmiðsvinnubókum”. Nemendur áætla sjálfir í samráði við foreldra sína hversu mikið/margar bls. þeir ætla að vinna yfir vikuna. Skila á markmiðsbókum einu sinni í viku til kennara.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að námið veiti nemendum þekkingu til að mæta kröfum daglegs lífs.• að undirbúa áframhaldandi nám.• að nemendur temji sér að beita ímyndunarafli sínu og frumkvæði.• að nemendur nýti þekkingu sína og finni lausnir á stærðfræðiþrautum og rökstyðji þær.

KennslutilhögunLögð verður áhersla á að nota sem mest af reynslu og umhverfi nemendanna til að þjálfa hugtakanotkun og meðferð talna, t.d. með því að skoða og skrá upplýsingar úr nærumhverfi nemenda. Unnið verður með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Hlutbundin vinna verður notuð sem forvinna fyrir skrifleg verkefni. Kenndir verða grunnþættir sem teknir verða upp með ákveðnu millibili og þá jafnframt skilningurinn dýpkaður og nýjum atriðum bætt við.Kennari leggur inn ný viðfangsefni fyrir nemendur, t.d. með því að sýna verkefni á töflu, á hlutbundinn hátt. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota þau stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem talnagrindur, kennslupeninga, kubba og fleiri hjálpargögn.

Page 29: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

27Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

KennsluaðferðirSýnikennsla, Samræður, verklegar æfingar, vinnubókar og vinnublaðakennsla, töflukennsla, námspil, námsleikir, hópavinna, þrautavinna. Lögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum.

NámsþættirTalnaskilningur, samlagning, plúsheiti, frádráttur, tugakerfi, margföldun, faldheiti, deiling, sætiskerfi, verðgildi, aflestur, súlurit, rúmfræði, mælingar, hnitakerfi, líkindi, flatamál, ummál, speglun, almenn brot, uppsetning dæma, vasareiknar, peningar.

Námsefni Eining 5 og 6, Stærðfræði 3A Helga Sig. Við stefnum á margföldun, Viltu reyna? Í undirdjúpunum, margföldun, Lína 3,4,5 og 6 Ýmis heimaverkefni. Verkefni fyrir vasareikni 3 og 4, Ýmis verkefni og spil.

NámsmatSímat sem byggist á vinnu í tímum, heimavinnu og áfangaverkefnum. Þar að auki eru miðsvetrar- og vorprófum ásamt öðrum skriflegum prófum.

HeimavinnaForeldrar setja vikuleg markmið þar sem þeir taka tillit til getu og þarfa barnsins. Ákveðnar vinnubækur eru unnar og markmiðin skráð í hefti sem fylgja með. Heimavinnu er skilað einu sinni í viku.

Náttúrufræði Markmið úr eðlisvísindumNemendur:

• geri athuganir á því hvað gerist þegar ýmis efni eru leyst upp í vatni• geri athuganir á því hvað gerist þegar hlutir af mismunandi gerð og lögun eru settir í vatn• skoði rafmagnstæki sem t.d. gefa hljóð, hita eða ljós og ræði um hvaða tilgangi þau þjóna

í lífi okkar• kanni orkuþörf ýmissa tækja

Úr jarðvísindumNemendur:

• skoði og fjalli um áhrif vatns á ýmis jarðefni, s.s. myndun polla og útlit fjallshlíða• ræði um ólík birtingarform vatnsins í náttúrunni, s.s. jökla, ár og læki, rigningu og

snjókomu• skoði og fjalli um áhrif vinda á ýmis jarðefni, s.s. uppblástur og sandöldur• skoði og fjalli um áhrif mannsins á jarðefni, t.d. byggingar, vegavinnu og námugröft• beri saman landsvæði af mismunandi gerð og stærð með tilliti til jarðvegs, gróðurs og

möguleika til ræktunar• skilji mikilvægi landgræðslu• þekki hvað er jarðhitasvæði• ræði um núverandi og mögulega nýtingu fallvatna• búi til eigin steingervinga, t.d. með því að móta í gifs

Úr lífvísindumNemendur:

Page 30: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

28 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• átti sig á hvað það er sem einkennir lifandi verur og greinir þær frá lífvana hlutum, s.s. hreyfing, næringarnám, vöxtur og æxlun

• átti sig á að allar lífverur þurfa vatn, loft, fæðu og búsvæði til að lifa• þekki og geti nafngreint íslensk spendýr á landi • ræði um hvernig eiginleikar ákveðinna lífvera henta vel umhverfinu sem þær búa í• þekki hvernig dýr annast afkvæmi sín samanborið við manninn

Markmiðin eru flest þrepamarkmið þriðja bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði (1999:31-32).

NámsþættirLeysni efna í vatni, fljóta, sökkva, rafmagnstæki, orkuþörf, áhrif vatns á jarðefni, mismunandi form vatns, uppblástur, sandöldur, áhrif mannsins á jarðefni, mismunandi landsvæði, landgræðsla, jarðhitasvæði, nýting fallvatna, steingervingar, lifandi verur (hreyfing, næringarnám, vöxtur, æxlun), lífsnauðsynlegir þættir fyrir lífverur, íslensk spendýr, aðlögun dýra að búsvæði, umönnun afkvæma.

NámsefniÍ sveitinni með Æsu og Gauta, Komdu og skoðaðu fjöllin, (Risaeðlur), Ships-verkefni og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið á einkum við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í náttúrufræði í þriðja bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennsluaðferðirÍ þriðja bekk vegur þáttur lesturs og ritunar meira í náttúrufræðináminu miðað við annan bekk. Kennslan byggir því minna á nánasta umhverfi barnsins en meira á bókum, spurningum, umræðu, frásögnum, hlustun og ákveðnum vinnubrögðum (tilraunir). Til að færa námsefnið nær börnunum er notast við myndbönd og netið. Einnig er myndrænni tjáningu, leik og upplifun, forvitni og leit fléttað inn í námið. Í náttúrufræðinni er lögð áhersla á að nemendur njóti náttúru og útivistar.

HeimanámEkkert heimanám er að staðaldri í náttúrufræði í þriðja bekk en einstaka samvinnuverkefni milli heimila og skóla eru send heim.

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• kynnist frásögunum af Móse, dvöl Ísraelsmanna í Egyptalandi og brottförinni þaðan og öðlist skilning á merkingu páskahátíðar Ísraelsþjóðarinnar

• kannist við jólaguðspjall Lúkasar• kannist við táknræna merkingu og siði tengda aðventukransinum og jólatrénu• kynnist enn frekar frásögum úr Nýja testamentinu• auki þekkingu sína á dauða og upprisu Jesú• þekki frásöguna af atburðum hvítasunnudags og merkingu fyrir kristna kirkju• skoði kirkju og heyri af því sem þar fer fram

Page 31: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

29Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• fræðist um nokkur trúarleg tákn og athafnir s.s. guðþjónustuna, skírn, fermingu, hjónavígslu og útför

• fræðist um búddatrú, hindúatrú, islam og gyðingdóm.• þroski með sér tillitssemi og nærgætni í samskiptum við aðra• öðlist hæfni til að hrósa og uppörva aðra

( Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 2007:14).

NámsþættirFrásögur af Móse, dvöl Ísraelsmanna í Egyptalandi og brottförin þaðan, páskahátíð gyðinga, jólaguðspjallið, merking og siðir tengdir aðventukransi og jólatré, frásögur Nýja testamentisins, píslarsagan, hvítasunnuhátíðin, kirkja, safnaðarstarf, trúarleg tákn og athafnir, búddatrú, hindúatrú, islam, gyðingdómur, tillitssemi og uppörvun í samskiptum.

NámsefniBirtan, Trúarbrögðin okkar og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Engin formleg einkunn er gefin í kristnum fræðum í þriðja bekk en kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram í átt til framfara.

KennslutilhögunHlustun, umræður , verkefnavinna, hópavinna, föndurvinna, skoðun myndbanda og skyggnumynda, leikræn tjáning, vettvangsferð í kirkju og söngur.

Upplýsingamennt: tölvur / skólasafn 2 kennslustundir á viku

TölvurMarkmiðNemendur:

• kynnist tölvunni, umgengni við hana og helstu ílags- og frálagstækjum• þjálfist í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu og kunni að nota ákveðna

sérlykla á lyklaborði í stað músar• vinni með kennsluforrit sem hæfa aldri og þroska• kynnist uppbyggingu lyklaborðs og öðlist grunnfærni í fingrasetningu.

NámsþættirNemendum kennt að nota og umgangast tölvuna með kennsluforritum og einföldum ritvinnslu- og teikniforritum. Kynnt og æfð ný hugtök: Ritvinnsla, skrá, opna, vista, prenta og örvalyklar. Fingrasetning kennd með ritvinnsluforritinu Ritfinni.

NámsefniWord og Ritfinnur, auk ýmisa annars vefefnis.

KennslutilhögunWord, Publisher,Power Point. Ýmis kennsluforrit við hæfi nemenda. Ritfinnur, verkefni fyrir þjálfun á lyklaborð tölvu.

NámsmatVinnusemi í tímum

Page 32: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

30 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

SkólasafnMarkmiðAð tengja frjálsan lestur og lestrarkennslu. Nemendur kynnist uppröðunarreglum safnsins. Læri betur að nota orðabækur sér til gagns. Læri að fletta upp í fræðibókum fyrir börn.

Inntak námsUpprifjun um meðferð bóka og reglur á bókasafninu.Undirstöðuatriði í uppbyggingu safnkosts svo sem muninn á skáldsögum og fræðiritum.Nemendur vinna í bókina Í skólasafninu II.Erfiðari verkefni úr Orðaskyggni og Barnaorðabók.Stafrófsæfingar t.d. kennt að raða eftir öðrum staf þegar orð byrja á sama staf.

NámsefniÍ skólasafninu 2, auk ýmiskonar fjölritaðs efnis frá bókaverði.

KennsluskipanNemendur koma vikulega á bókasafnið allan veturinn.Nemendur fá fyrirlestra og vinna í verkefnabækur.

Nemendur geta fengið 3 bækur lánaðar heim.

Myndmennt 2 kennslustundir á viku

Markmið• Að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda.• Að vekja nemendur til vitundar um getu sína og hæfni sem verður þeim síðan eðlileg

hvatning til frumkvæðis og sjálfstæðrar sköpunar í öllu námi.• Að nemendur fái að kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum.• Að nemendur fái að kynnast fjölbreyttu efni.

Námsþættir/námsefni• Frjáls barnateiknun.• Meðferð lita.• Formfræði.• Lestur mynda og tákna.• Klippimyndir• Myndbönd, bækur og heimasíður listamanna

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni3 kennslustundir á viku

MarkmiðSjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll.Að nemandi:

Page 33: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

31Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• sé fær um að túlka mismunandi tilfinningar.• öðlist góða sjálfsmynd• geti bent á og nefnt ýmsa þætti í umhverfinu sem hafa áhrif á líðan hans.• virði leikreglur í hópleikjum.• sé fær um að setja sér markmið að eigin frumkvæði.• geti sett sig í spor ólíkra persóna til að finna samkennd með þeim.• eflist í samskiptahæfni.• sýni frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum.• þekki líkamlegar þarfir sínar svo sem næringu, hvíld, hreyfingu og hreinlæti.

Samfélagið, umhverfið, náttúra og menningAð nemandi:

• kunni umferðarreglur fyrir gangandi, hjólandi og skautandi vegfarendur.• læri að lesa leiðbeiningar og skilaboð af skiltum.• þekki helstu umferðarmerki.• læri að forðast hættur á heimili, við skóla og í nánasta umhverfi.• læri gildi þess að ganga vel um náttúruna.

NámsþættirTilfinningar, samskipti, vinátta, hjálpsemi, slysagildrur og umferðarreglur.

NámsefniGóða ferð, Spor 3 og Gaman saman.

Íþróttir2 stundir á viku og 18 kennslustunda námskeið í sundi

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur taki þátt í skapandi hreyfingu og leikrænni tjáningu með eða án tónlistar• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á samspil skynfæra eins og

jafnvægiskyn, sjónskyn, heyrnarskyn, snertiskyn, vöðva- og liðamótaskyn.• að nemendur taki þátt í æfingum og leikjum sem reyna á grófhreyfingar og fínhreyfingar.• að nemendur taki þátt í leikjum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf.• að nemendur taki þátt í leikjum og leikrænum æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð

og kraft.• að nemendur þjálfist í æfingum sem efla liðleika, líkamsreisn og líkamsstöðu.• að nemendur skilji mikilvægi líkamsræktar.• að nemendur öðlist meiri félagsþroska.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/námsefni• Læra að taka fram og ganga frá áhöldum á réttan og öruggan hátt.• Læra að skilja hvað er rétt eða rangt í leikjum og fái að tjá skoðun sína.

Page 34: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

32 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Læra að taka sigri og ósigri• Læra markvissa öndun við slökun.• Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reipitog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir,

Tarsanleikur, brennó, kíló og hanaslagur.• Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup,

jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu.

• Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.• Stöðvaþjálfun og Hringþjálfun.• Grunnþjálfun: Alhliða líkamsbygging með áherslu á hreyfingar og þjálfun í hreyfifærni.• Sund: Bringusund, baksund, skriðsund o.fl.• Heilsuvernd: Í kennslunni verður leitast við að fræða nemendur um hreinlæti, áhrif

íþróttaiðkunar á líkamann og starfsemi hans.

NámsmatGefið er í bókstöfum fyrir eftirfarandi þætti

• Áhugi • Virkni• Hegðun• Færni• Samvinna

A þýðir ágættB þýðir gottC þýðir sæmilegtD þýðir ábótavant

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• þekki algeng eldhúsáhöld og viti til hvers þau eru notuð• læri um mikilvægi hreinlætis við matreiðslustörf (hendur, matvæli, áhöld, borðklútar)• tileinki sér tillitssemi og kurteisi í allri samvinnu• geti mælt í heilum og hálfum dl og geti notað allar mæliskeiðarnar• geti farið eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum• læri að elda og baka holla og einfalda rétti

Inntak námsNemendur læra:

• um hollan og óhollan morgunverð og hvað skólanestið kostar• um góðar matarvenjur og reglulegar máltíðir• um geymslu matvæla• um örverur og matarsýkingar• um mjólkurvörur, næringarefnin í mjólkinni, lesið á umbúðir

Page 35: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

33Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• um matargerð fyrri tíma• að útbúa einfalda rétti sem þeir borða saman

NámsgögnHollt og gott, kennslubók gefin út fyrir 3. bekk með uppskriftum og verkefnum.Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar. Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 3. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun

Hönnun/ smíðar2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið / námsþættirAð efla hugmyndaflug og sjálfstæði nemenda. Einnig að efla samstarf þeirra á milli.Nemendur geri sér grein fyrir verðmæti hluta og hvað eiginleikar hvers hlutar eru mikilvægir gagnvært notagildi og endingu. Rætt verður um endurvinnanlega þætti í umhverfi þeirra og verkefni jafnvel unnin eftir því. Hlutir að heiman jafnvel fengnir sem oftast er hent og gerðir úr þeim einfaldir hlutir. Frekari vangavelta um verkfæri og efni frá fyrri árum studd með umræðum og skoðun flóknari verkfæra. Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinn.

MarkmiðAð nemendur geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar í einföldum útfærslum, s.s. vefnað, saum, þrykk og tóvinnu, kunni að nota áhöld og efni sem tengjast textílmennt. Koma til móts við mismunandi áhugamál og hugarheim nemandans, til að stuðla að vinnugleði og frumkvæði.

NámsþættirSauma krosssaum í jafa, læra að byrja og að ganga frá enda. Farið yfir helstu hluta saumavélar,

Page 36: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

34 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

sauma einfaldar línur í saumavél, sauma saman efni í saumavél. Klippa út efni eftir sniði, sauma saman í höndunum. Kynning á íslensku ullinni, þæfa kembur, búa til myndir eða bolta. Sýna myndbandið: Íslenska ullin.

NámsefniBókin: hannyrðir í 3. – 6. bekk.Myndbandið: Íslenska ullin.

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum og sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, kennari sýnir ákveðin vinnubrögð og aðferðir, sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.Verkefni löguð að hæfni og getu hvers einstaklings.

HeimavinnaVinnan fer aðallega fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Tónmennt2 kennslustundir á viku

MarkmiðAð nemendur:

• þjálfist áfram í að syngja í hóp, fjölbreytt sönglög og þulur• þjálfist í söng einfaldra keðjusöngslaga sem gera vaxandi kröfur til tækni og túlkunar• læri að umgangast skólahljóðfæri og öðlist leikni í meðferð þeirra• þjálfi taktskyn með púls, einföldu hrynmynstri og áherslu gegnum hreyfingu• þjálfist í nótnalestri, hryn- og formgreiningu• vinni áfram með helstu hugtök tónlistarinnar• geti hlustað á fjölbreytta tónlist með athygli, sýni viðbrögð við henni og greini notkun

efnisþátta, s.s. tónhæðar, tónlengdar, hryns og áherslu• spinni og semji einfalt tónverk sem sýnir greinilegt form og vaxandi skilning á efnisþáttum

tónlistarinnar• geti greint á milli algengustu hljóðfærategunda, s.s. blásturs- og strengjahljóðfæra, eftir

heyrn og sjón og þekki sum þeirra með nafni

NámsþættirSöngur og raddbeitingHljóðfæranotkunLestur og ritunHreyfingHlustun og sköpunAðaláhersla er lögð á að börnin læri að njóta tónlistar með því að syngja, hlusta, hreyfa sig eftir

Page 37: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

35Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

tónlist og kynnast hljóðfærum í sjón og reynd. Einnig verður unnið að skriflegum verkefnum í vinnubók

NámsefniTónmennt 2, kennslubók Tónmennt 2 – vinnubókÞað var lagið, Töfrakassinn og ýmsar söngbækur Það er gaman að hlusta á hermitónlist – kennslubók og hlustunarefniFjölbreytt úrval hljómdiska

NámsmatSímat á ástundun (virkni), samvinnu og frumkvæði, ásamt skriflegum verkefnum.

Page 38: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

36 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

4. bekkurÍslenska

8 kennslustundir á vikuMarkmið

• að efla málskilning.• að þjálfa talað mál og hlustun.• að auðga orðaforða.• að efla lesskilning.• að þjálfa skýran og áheyrilegan lestur.• að auka áhuga á lestri bóka.• að nemendur læri og lesi ljóð.• að nemendur þjálfist í að skrifa frumsaminn texta.• að æfa nemendur í tengiskrift.• að nemendur temji sér snyrtilega uppsetningu texta.• að kynna fyrir nemendum grundvallaratriði í málfræði.• að nemendur tileinki sér einfaldar stafsetningarreglur.

Lestur, 4 kennslustundir á vikuNámsþættirLestrarhraði, lesskilningur og framsögn.

NámsefniKóngar í ríki sínu, Kóngar í ríki sínu og prinsessan Petra, Kóngar í ríki sínu og krumminn á skjánum og vinnubækur. Litlu landnemarnir og verkefnablöð. Sögusteinn, Óskasteinn. Lesum meira saman:lesbók og vinnuhefti. Frjálsar lesbækur.

Ljóð: 1 kennslustund á viku:NámsþættirErindi, ljóðlína, rím, höfundur, stuðlar og höfuðstafir. Nemendur lesa ljóð, syngja þau, skrifa þau upp og myndskreyta í vinnubók. Mörg ljóðanna eru einnig lærð utanbókar. Nemendur eru hvattir til að semja ljóð.

NámsefniLjóðsprotar og valin ljóð úr öðrum bókum. (Vísnabókinni,Vísur, kvæðabrot og þulur. Litlu skólaljóðin. Skólaljóð.

Stafsetning og ritun: 2 kennslustundir á viku

NámsþættirNemendur eru þjálfaðir í sögugerð með tilliti til upphafs, meginmáls og endis. Einfaldar stafsetningarreglur kenndar t.d. stór og lítill stafur, ng og nk reglur, n eða nn í greininum og y regla kynnt. Undirstöðuatriði málfræði kennd t.d. röðun í stafrófsröð, sérhljóðar og samhljóðar, fallbeyging, et. og ft., sérnöfn og samnöfn, samheiti, andheiti, nútíð og þátíð og helstu orðflokkar.

NámsefniSkinna I. Þristur. Orðaskyggnir. Mál og iðja. Iðunn og eplin. Ormurinn í Lagarfljóti. Verkefnahefti.

Page 39: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

37Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Skrift, 1 kennslustund á vikuNámsþættirStafagerð, tengiskrift, frágangur og uppsetning texta.

NámsefniGóður, betri, bestur 4a, Skrift 4 og æfingablöð (renningar).

NámsmatVinnusemi og virkni í tímum, vandvirkni við verkefni, hegðun og framför hvers nemanda er tekin til athugunar.Staða nemenda í íslensku er einnig athuguð reglulega yfir veturinn ýmist með hraðlestrarprófum, stafsetningarprófum, skriftarprófum og málfræði- og lesskilnings könnunum.

Heimavinna- Lestur og markmiðsvinnubók -Nemendur lesa daglega heima fyrir foreldra sína. Foreldrar kvitta fyrir hlustun á þar til gert eyðublað. Einnig vinna nemendur heima í “markmiðsvinnubókum”. Nemendur áætla sjálfir í samráði við foreldra sína hversu mikið/margar bls. þeir ætla að vinna yfir vikuna. Skila á markmiðsbókum einu sinni í viku til kennara.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að nemendur geri sér grein fyrir að stærðfræðin er tæki til notkunar í daglegu lífi.• að nemendur byggi ofan á áður lærða efnisþætti og tileinki sér námsþætti vetrarins með

reglubundinni þjálfun.• að nemendur temji sér að beita ímyndunarafli sínu og frumkvæði.• að nemendur nýti þekkingu sína og finni lausnir á stærðfræðiþrautum og rökstyðji þær.

KennslutilhögunLögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum, setja sér markmið og meta eigin framvindu og árangur. Unnið er með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Lögð er áhersla á skilning á stærðfræðinni og að nemendur séu vakandi fyrir því að þroska þann skilning. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota sérhver stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem vasareikni, brotaspjöld og kennslupeninga. Nánari upplýsingar má finna í Kennsluáætlun sem nemendum hefur verði fengin.

NámsþættirNáttúrulegar tölur: stærð, röðun, sætisgildi, talnalína, hundrað, þúsund, námundun, samlagning, frádráttur, margföldun, deiling, sléttar tölur, oddatölur.Algebra.Tölfræði: töflur, súlurit, líkindareikningur.Mælingar: lengdarmælingar, þyngdarmælingar.Hnitakerfi.Almenn brot.Rúmfræði: form, flatarmál, speglun, horn, hyrningar.

Page 40: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

38 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Hugtök: summa, mismunur, plúsheiti, mínusheiti, faldheiti, deiliheiti.

NámsefniEining 7 og 8, Verkefni fyrir vasareikni 4 og 5, Við stefnum á deilingu, Merkúríus, Venus, Lína 6, 7 og 8.

NámsmatSímat sem byggt er á vinnu í tímum, heimavinnu og áfangaverkefnum að viðbættum miðsvetrar og vorprófum. Á vorprófi er prófað úr öllum námsþáttum vetrarins.

HeimavinnaNemendur setja vikuleg markmið. Ákveðnar verkefnabækur eru unnar og markmiðin skráð á spjald sem fylgir með. Heimavinnu er skilað einu sinni í viku á ákveðnum degi.

Samfélagsfræði2 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur skilji að sérhver maður er einstakur en jafnframt hluti af heild s.s. fjölskyldu,

skólasamfélagi, bæjarfélagi og þjóðfélagi• að nemendur geri sér grein fyrir að ekki eru allir eins og tileinki sér virðingu fyrir sérstöðu

annarra• að nemendur átti sig á tilgangi leikreglna í mannlegum samskiptum og tileinki sér þær að

nemendur geri sér grein fyrir að í umhverfinu eru margvísleg áreiti, jákvæð og neikvæð, sem geta haft áhrif á líf þeirra

• að nemendur þekki þarfir líkamans fyrir næringu, hvíld, hreyfingu og hreinlæti og leitist við að koma til móts við þær

• að nemendur þjálfist í að flytja mál sitt í heyranda hljóði, rökræða niðurstöður og taka gagnrýni

• að þjálfa nemendur í að vinna með hnattlíkön og kort• að nemendur geti borið saman ólík menningarsvæði í heiminum, t.d. í heitu og köldu

loftslagi• að nemendur þekki íslenskar þjóðsögur og lesi úr þeim fróðleik um þjóðtrú og þjóðhætti

fyrr á öldum• að nemendur þekki nokkrar valdar persónur og atburði í íslendingasögum• að nemendur öðlist skilning á því hvað hafið og lega landsins hefur haft að segja um

lífsafkomu þjóðarinnar fyrr og nú• að nemendur kanni og útskýri af hverju er þéttbýlt á sumum stöðum en ekki öðrum • að nemendur kannist við helstu jarðhræringar sem verða á Íslandi s.s. eldgos og

jarðskjálfta.

NámsþættirKortalestur, landafræði, íslenskir þjóðhættir, ólík menningarsvæði.

NámsefniÍsland landið okkar, Kostuleg kort og gröf, landakort. Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhættiKomdu og skoðaðu sögu mannkyns

Page 41: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

39Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

KennslutilhögunLögð er áhersla á fjölbreytta vinnu og stuðlað að því að nemendur nálgist efnið á mismunandi hátt. Lesið, spurt og spjallað, skriflegar æfingar, vinnublöð, sýnikennsla, skoðunarferðir, umræðuhópar, spurnaraðferðir, myndbands-upptökur, þemanám, þjálfunarforrit, heimildakönnun, myndsköpun, myndræn tjáning, tónlist, söngur, hreyfing, skrifleg tjáning, hermileikir, hlutverkaleikir.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf.

NámsmatNámsmat á yngsta aldursstigi er símat þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda án þess að leggja fyrir hefðbundin skrifleg próf.

NáttúrufræðiÚr eðlisvísindumNemendur:

• fjalli um hvers vegna það er mikilvægt að spara orku og endurvinna hluti• geri sér grein fyrir hvernig við spörum orku með einangrun, s.s. lofti, sæng, úlpu, steinull,

frauðplasti

Úr jarðvísindumNemendur:

• þekki muninn á sól og reikistjörnum• geri athuganir á útliti tunglsins í einn tunglmánuð• ræði um lífsskilyrði á öðrum reikistjörnum og tunglinu• ræði um geimferðir• athugi efni sem ekki sundrast í náttúrunni og fjalli um afleiðingar þess og gildi endurvinnslu

og endurnýtingar• þekki tilvist og tilgang veðurtungla á sporbaug um jörðu

Úr lífvísindumNemendur:

• ræði hvað verður um laufblöð og dauðar lífverur í náttúrunni• þekki hvaða eiginleikar auka lífslíkur lífveru og hverjir ekki með tilliti til mismunandi

eiginleika í sama umhverfi, t.d. hvít/dröfnótt rjúpa• skoði hvernig mismunandi einkenni lífvera henta því umhverfi sem þær búa í, t.d. fætur og

goggar fugla• þekki og geti nafngreint helstu fugla í heimabyggð• geri sér grein fyrir að ýmis utanaðkomandi efni eru skaðleg líkamanum og geta borist á

ólíka vegu gegnum húð, með innöndun og með fæðu• ræði um ýmiss konar sjúkdóma og mögulegar smitleiðir, varnir og lækningar

Úr umhverfismenntNemendur:

• kannist við efni sem eru skaðleg náttúrunni og nauðsyn þess að gera þau óvirk• skilji tilgang endurvinnslu og hugtaksins sjálfbær þróun• þroski með sér lífssýn sem byggist á skilningi á heilbrigði eigin líkama og ábyrgð innan

samfélagsins

Page 42: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

40 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Markmiðin eru flest þrepamarkmið fjórða bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði (1999:33-35).

NámsþættirOrkusparnaður, endurnýting, endurvinnsla, efni sem sundrast ekki í náttúrunni, skaðleg efni, sjálfbær þróun, einangrun, sólir (fastastjörnur), reikistjörnur, veðurtungl, geimferðir, rotnun, hringrás lífrænna efna, hringrás vatns, aðlögun að búsvæði, felulitir, smitleiðir, heilbrigði og ábyrgð.

NámsefniNáttúran allan ársins hring, Komdu og skoðaðu himingeiminn, Komdu og skoðaðu hringrásir, (Komdu og skoðaðu fjöllin), Delta-námsefnið um tunglið, Sorpið okkar námsefniskassi frá Námsgagnastofnun og Sorpu, Ships-verkefni og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið er símat þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda og á það við frágang, vinnusemi, vandvirkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er fyrst gefin í náttúrufræði að vori í fjórða bekk og nú taka nemendur hefðbundið skriflegt próf. Einkunnin tekur mið af ástundun nemenda í tímum, vinnubókum, veggspjöldum, tímaverkefnum, heimavinnu og skriflegu prófum.

KennsluaðferðirÍ fjórða bekk er lestur og ritun orðin veigamikill þáttur í náttúrufræðináminu. Spurningar og umræður hafa meira vægi ásamt frásögnum, hlustun og ákveðnum vinnubrögðum (tilraunir). Til að færa námsefnið nær börnunum er notast við myndbönd og netið. Einnig er myndrænni tjáningu, leik og upplifun, forvitni og leit fléttað inn í námið. Á þessu aldursári fléttast umhverfismenntin meira inn í náttúrufræðinámið en áður. Í náttúrufræðinni er lögð áhersla á að nemendur njóti náttúru og útivistar.

HeimanámNemendur þurfa fyrst núna að lesa heima valda kafla í náttúrufræði, vinna tilraunir og leysa skrifleg verkefni.

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku.

MarkmiðNemendur:

• leiki jólaguðspjall Lúkasar• kannist við táknræna merkingu og siði tengda aðventukransinum og jólatrénu• kynnist enn frekar frásögum úr Nýja testamentinu• auki þekkingu sína á dauða og upprisu Jesú• öðlist skilning á merkingu páskahátíðar gyðinga og á merkingu páskahátíðar kristinna

manna• þekki frásöguna af atburðum hvítasunnudags og merkingu fyrir kristna kirkju• skoði kirkju og heyri af því sem þar fer fram• fræðist um kristnar trúarlegar athafnir s.s. guðþjónustuna, skírn, fermingu, hjónavígslu og

útför• þroski með sér tillitssemi og nærgætni í samskiptum við aðra• öðlist hæfni til að hrósa og uppörva aðra

Page 43: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

41Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

( Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 2007:14).

NámsþættirJólaguðspjallið, merking og siðir tengdir aðventukransi og jólatré, frásögur Nýja testamentisins, páskahátíð gyðinga og kristinna, píslarsagan, hvítasunnuhátíðin, kirkja, safnaðarstarf, trúarleg tákn og athafnir, tillitssemi og uppörvun í samskiptum.

NámsefniBirtan, Trúarbrögðin okkar og verkefnablöð.

NámsmatNámsmat á yngsta aldursstigi hefur hingað til verið símat þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda án þess að leggja fyrir hefðbundin skrifleg próf. Nú bætast þau við. Formleg einkunn er fyrst gefin í kristnum fræðum að vori í fjórða bekk. Hún tekur mið af virkni og félagsfærni nemenda í tímum, vinnubókum, tíma-verkefnum, prófum og heimavinnu.

KennslutilhögunHlustun, umræður , verkefnavinna, hópavinna, föndurvinna, skoðun myndbanda og skyggnumynda, leikræn tjáning, vettvangsferð í kirkju og söngur.

HeimanámHingað til hefur heimanám ekki verið í kristin-, sið- og trúarbragðafræði en þennan vetur vex það. Kennarinn færir það inn í Mentor.

UpplýsingamenntTölvur/bókasafn 2 kennslustund á viku

TölvurMarkmið

• að nemendur læri einföldustu aðgerðir í tölvuvinnslu.• að nemendur þjálfi rétta líkamsbeitingu við tölvu.• að nemendur nýti sér kennsluforrit til náms.• að nemendur þjálfi rétta fingrasetningu.• að nemendur leiti upplýsinga á bókasafni og á vefnum.

NámsþættirÞjálfun í notkun ritvinnslu og kennsluforrita.Leturgerðir, leturstærðir, undirstrikanir, feitletrun, leiðréttingar, myndir settar í skjal, vista skjal, einföld glærugerð og hönnun bæklings.

NámsefniRitvinnsluforritið Word, umbrotsforritið Publisher og glærugerðarforritið Power Point. Ritfinnur, verkefni fyrir þjálfun á lyklaborð tölvu. Ýmis kennsluforrit við hæfi nemenda og gagnvirkt efni á vefnum.

KennsluskipanNemendur æfa tölvunotkun í eina kennslustund á viku. Upplýsingaöflun og vinnubrögð æfð á bókasafni í eina kennslustund á viku.

SkólasafnMarkmið

• Nemendur þekki uppröðunarreglur skáldrita.

Page 44: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

42 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Fái áframhaldandi kennslu í notkun fræðibóka og handbóka fyrir börn. • Kynnist almenningsbókasafni.

Nemendur byrja að vinna heimildavinnu. Læra að gera spurningar úr efni og afla heimilda. Byrja að vinna úr upplýsingum og gera samfelldan texta.

NámsgögnBarnaorðabókin. 1988. Reykjavík, Iðunn. Helga Kristín Möller. Í skólasafninu II. 1994, Fræðsluskrifstofa Reykjanesumdæmis.Orðaskyggnir. 1989. Reykjavík, Bjallan.

Kennsluskipan:Nemendur koma vikulega á bókasafnið allan veturinn. Nemendur fá fyrirlestra og vinna í verkefnabækur.Nemendur geta fengið 3 bækur lánaðar heim.

Myndmennt2 kennslustund á viku

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda• að nemendur geti sett fram á sjónrænan hátt eigin upplifun eða ímyndun• að nemendur fái að kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum og fjölbreyttu efni• að nemendur temji sér vönduð vinnubrögð

Námsþættir / Námsefni• Nemendur athuga samspil ljóss og skugga. • Þeir vinna með rými í myndum og liti s.s. andstæðaliti og heita og kalda liti. • Þeir læra um grunnformin og að breyta tvívíðu formi í þrívítt. • Nemendur læra að ganga frá verkefnum, efnum og áhöldum og gera sér grein fyrir verðmæti

efna og áhalda sem unnið er með hverju sinni. • Myndbönd og bækur sem fjalla um listasöguna og heimasíður listamanna skoðaðar.

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni 2 kennslustundir á viku

MarkmiðSjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll.Að nemandi:

• sé fær um að túlka mismunandi tilfinningar.• öðlist góða sjálfsmynd• geti bent á og nefnt ýmsa þætti í umhverfinu sem hafa áhrif á líðan hans.• virði leikreglur í hópleikjum.• sé fær um að setja sér markmið að eigin frumkvæði.• geti sett sig í spor ólíkra persóna til að finna samkennd með þeim.

Page 45: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

43Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• tileinki sér virðingu fyrir sérstöðu annarra hvað varðar útlit, klæðaburð og smekk.• geri sér grein fyrir mismunandi fjölskyldugerðum.• eflist í samskiptahæfni.• sýni frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum.• þekki líkamlegar þarfir sínar svo sem næringu, hvíld, hreyfingu og hreinlæti.

Samfélagið, umhverfið, náttúra og menningAð nemandi:

• kunni umferðarreglur fyrir gangandi, hjólandi og skautandi vegfarendur.• læri að lesa leiðbeiningar og skilaboð af skiltum.• þekki helstu umferðarmerki.• læri að forðast hættur á heimili, við skóla og í nánasta umhverfi.• læri gildi þess að ganga vel um náttúruna.

NámsþættirTilfinningar, samskipti, vinátta, hjálpsemi, slysagildrur, fjölskyldugerðir og umferðarreglur.

Námsefni:Góða ferð, Spor 3 og Gaman saman. Verkefnin: Tilfinningar eftir Kristínu Gísladóttur og Konungskommóðan eftir Aldísi Yngvadóttur.

Íþróttir2 stundir á viku og 18 kennslustunda námskeið í sundi

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur efli hæfileika sína til tjáningar og sköpunar.• að nemendur taki þátt í leikjum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf.• að nemendur taki þátt í leikjum og æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð og kraft.• að nemendur skilji mikilvægi reglubundinnar líkamsræktar og finni til þess leiðir við sitt

hæfi.• að nemendur öðlist meiri félagsþroska.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/námsefni• Læra að skilja hvað er rétt eða rangt í leikjum og fái að tjá skoðun sína.• Læra að taka sigri og ósigri• Læra markvissa öndun við slökun.• Nemendur þjálfist í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og

körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, hafnarbolta og blak.• Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reipitog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir,

brennó, kíló, bland í poka, Tarsanleikur og hanaslagur.• Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup,

jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu.

Page 46: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

44 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.• Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.• Grunnþjálfun: Alhliða líkamsbygging með áherslu á hreyfingar og þjálfun í hreyfifærni.• Sund: Bringusund, baksund, skriðsund o.fl.• Heilsuvernd: Í kennslunni verður leitast við að fræða nemendur um hreinlæti, áhrif

íþróttaiðkunar á líkamann og starfsemi hans.

NámsmatGefið er í bókstöfum fyrir eftirfarandi þætti

• Áhugi • Virkni• Hegðun• Færni• Samvinna

A þýðir ágættB þýðir gottC þýðir sæmilegtD þýðir ábótavant

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• þjálfist í að nota mælitæki og kunni að velja hentug áhöld• þjálfist í að taka til hráefni í uppskriftir• geti þvegið upp og gengið frá á sínu vinnusvæði• geti sýnt umburðarlyndi og tekið tillit til annarra

Inntak námsNemendur læra:

• um eldhússtörfin og mikilvægi þeirra• um heilbrigt líf, borða reglulega holla fæðu og hafa nægan svefn• um hreint umhverfi og endurvinnslu• um persónulegt hreinlæti• um næringarefnin í fæðunni• um kornflokkinn, korntegundir, byggingu hveitikornsins og trefjaríka fæðu• um öryggisatriði eldhússins og slysahættur á heimilinu• að til eru mismunandi örverur• að lesa uppskriftir• að útbúa einfalda rétti sem þeir borða saman

NámsgögnHollt og gott, kennslubók gefin út fyrir 4. bekk með uppskriftum og verkefnum.

Page 47: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

45Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar .Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 4. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.

Hönnun / smíðar2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið og námsþættirNú hafa nemendur kynnst hugmyndafræði hönnunar og smíði all vel og geta sjálf tilgreint hin ýmsu verkfæri. Notfært sér og skilið umtal um hluti og tekið þátt í vangaveltum um umhverfi sitt. Smærri og fíngerðari hlutir verða smíðaðir þar sem hreyfiþroski nemenda er nú mun meiri. Hús og víðara umhverfi rædd og hvernig stærðir eru ákvarðar í nánasta umhverfi okkar. Skipulag og uppsetningar ásamt niðurröðun hluta gert að umræðuefni.Frá og með 4. bekk er nýsköpun eitt af viðfangsefnunum.Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

KennslutilhögunKynning, þar sem verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðMiða skal að markvissri þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að nemendur verði sjálfbjarga í verki og geti lagt mat á handverk.Að viðhalda algengum vinnubrögðum, sem haldist hafa með þjóðinni en jafnframt laga þau að kröfum nútímans.Að verkefni höfði til áhuga og getu nemandans, með tilliti til aldurs og þroska.

NámsþættirLæra undirstöðuatriði í prjóni, fitja upp, prjóna garðaprjón, sauma saman prjónaða hluti og ganga frá endum. Útbúa einfalda hluti að eigin vali.Vinna með saumavél, sauma beinar línur og ákveðin form. Sauma bangsa.

NámsefniBækur: Hannyrðir í 3. - 6. bekk og Á prjónunum.

Page 48: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

46 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir og skriflegar leiðbeiningar til að vinna eftir ásamt handbókum.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum, en þegar unnið er með prjóna- eða útsaumsverkefni geta nemendur einnig unnið heima.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Tónmennt2 kennslustundir á viku

Markmið• Að nemendur:• þjálfist áfram í að syngja í hóp, fjölbreytt sönglög frá ólíkum tímum og menningarheimum• þjálfist í söng einfaldra keðjusöngslaga sem gera vaxandi kröfur til tækni og túlkunar• öðlist færni í söng og leik á skólahljóðfæri• öðlist vaxandi færni í flutningi á tónlist, lögum og stefjum eftir minni, heyrn og

nótnatáknum• spinni og semji einfalt tónverk sem sýnir greinilegt form og vaxandi skilning á efnisþáttum

tónlistarinnar• þekki og geti greint hugtök, s.s. háir tónar og djúpir tónar, hratt og hægt, bjart og dimmt,

langt og stutt, púls og hrynur, sterkt og veikt, endurtekning og andstæður, hljóð og þögn, einn tónn eða fleiri og hendingar

• þekki og geti greint helstu hljóðfæraflokka og raddgerðir

Námsþættir• Söngur og raddbeiting• Hljóðfæranotkun• Lestur og ritun• Hreyfing• Hlustun og sköpun

Aðaláhersla er lögð á að börnin læri að njóta tónlistar með því að syngja, hlusta, hreyfa sig eftir tónlist og kynnast hljóðfærum í sjón og reynd. Einnig verður unnið að skriflegum verkefnum í vinnubók

NámsefniTónmennt 3, kennslubók, Tónmennt 3 – vinnubók, Það var lagið, Töfrakassinn og ýmsar söngbækur Það er gaman að hlusta á framandi tónlistFjölbreytt úrval hljómdiska

NámsmatSímat á ástundun, virkni, samvinnu og frumkvæði, ásamt skriflegum verkefnum.

Page 49: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

47Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

5. bekkurÍslenska

8 Kennslustundir á vikuMeginmarkmið

• að nemendur geti lesið og ritað texta sér til gagns og ánægju.• að máltilfinning þeirra þroskist og þekking þeirra á málinu aukist.• að nemendur þjálfist í að hlusta á aðra og geti tjáð skoðanir sínar, hugmyndir og tilfinningar

á skýru og góðu máli, töluðu og rituðu.

Bókmenntir, 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• að nemendur kynnist bókmenntafræðilegum hugtökum.• að nemendur kynni sér og skrifi mismunandi gerðir texta.• að nemendur læri að gera persónulýsingar.• að nemendur læri að gera útdrátt.• að nemendur þjálfist í leshraða og lesi af öryggi og með áherslum.• að nemendur þjálfist í að lesa sér til gagns, ánægju og upplýsingaöflunar.• að nemendur öðlist góðan lesskilning, orðaforða og málskilning.• að nemendur flytji undirbúnir eigin frásagnir.• að nemendur hlusti á umræður, taki þátt í þeim og haldi athygli í töluverðan tíma.

NámsþættirUnnið verður með persónulýsingar, útdrætti, uppbyggingu texta, mismunandi texta, leiklestur og framsögn. Eftirfarandi bókmenntafræðileg hugtök verða kynnt: inngangur, meginmál, niðurlag, atburðarrás, ris, persónugerving, aðal-og aukapersónur, tími sögu, sjónarhorn, söguhetja, söguþráður og sögulok.

NámsefniBlákápa, Vetur, Grannar og frjáls lestur. Vinnublöð unnin.

HeimanámNemendur lesa sögur og svara spurningum sem þeim fylgja

NámsmatSkrifleg próf, símat auk þess sem vinna nemenda er metin

Stafsetning, 2 kennslustundir á vikuMarkmiðað nemendur æfi sig í að skrifa almenna texta rétt eftir upplestri.að nemendur öðlist færni í að beita stafsetningarreglum.að nemendur þjálfist í að nýta sér orðabækur og önnur hjálpargögn við ritun.

NámsþættirReglur um ng og nk, stóran og lítinn staf, n og nn, tvöfaldan samhljóða. Nemendur geti skipt orðum milli lína og notað greinamerki rétt.

Námsefni

Page 50: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

48 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

(Stafsetning Á. Þ. og G. G. .) Mál til komið og æfingahefti. Verkefni við réttritunarorðabók. Ljósrituð viðbótarverkefni.

HeimanámNemendur vinna verkefni í bókum og af blöðum

NámsmatÆfingar í tímum og vinna nemenda

Móðurmál/Málfræði, 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• að nemendur nýti sér málfræðiþekkingu sína í almennri ritun og talmáli.• að nemendur temji sér skýrt og skorinort ritmál og forðist óþarfa málalengingar.• að nemendur þekki nafnorð, geti greint sérnöfn, samnöfn, kyn, tölu, greini og föll.• að nemendur þekki lýsingarorð og geti fallbeygt þau og stigbreytt.• að nemendur þekki sagnorð og geti greint þau í nútíð og þátíð.

NámsþættirNafnorð: sérnöfn, samnöfn, samsett orð, eintala, fleirtala, greinir, kyn, fallbeyging, stafrófið, setning, málsgrein, andheiti, samheiti, sérhljóðar, samhljóðar og notkun orðabóka, atkvæðaskipting.Lýsingarorð: fallbeyging og stigbreyting.Sagnorð: beyging í nútíð og þátíð.

NámsefniMálrækt 1. hefti. Skræða1 og Skinna 2

NámsmatNámsmat er í formi prófa auk þess fer fram símat og sjálfsmat á vinnu nemenda.

KennslutilhögunBein kennsla, hlustun, lestur og greining texta, skriflegar æfingar, vinnublöð, sýnikennsla, þemanám, þjálfunarforrit, heimildakönnun, myndsköpun, myndræn og skrifleg tjáning.

HeimanámNemendur ljúka við verkefni heima sem þeir hafa byrjað á í skólanum.

Ljóð, 1 kennslustund á vikuMarkmið

• að veita nemendum innsýn í bundið mál.• að nemendur læri valin ljóð utanbókar.• að nemendur kynnist völdum skáldum og verkum þeirra.• að nemendur þjálfist í eigin ljóðagerð.• að nemendur þekki hugtökin rím, stuðlar og höfuðstafir.

NámsþættirUnnið með mismunandi form og einkenni ljóða. Flutningur þjálfaður á lærðum og frumsömdum ljóðum. Ljóðaskýringar og höfundar kynntir.

NámsefniLjóðspor.Vinnubók unnin.

Page 51: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

49Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

HeimanámNemendur læra ljóð utanbókar, skrifa upp, myndskreyta og svara efnislegum spurningum

NámsmatVinnubók metin sem og vinna nemenda og próf

Skrift, 1 kennslustund á vikuMarkmið

• að nemendur vandi öll vinnubrögð.• að nemendur þrói með sér læsilega og hraða rithönd.• að nemendur noti tengiskrift.• að nemendur með atburðarás og yrki ljóð.• Námsþættir

Tengiskrift, uppsetning og vönduð vinnubrögð.

NámsefniSkrift 5. Æfingatextar af blöðum og renningum. Sögubók með margbreytilegum verkefnum unnin. Uppsetning ljóða í ljóðavinnubók og sagna á blöðum.

NámsmatNámsmat er í formi prófa auk þess fer fram símat og sjálfsmat á vinnu nemenda.

KennslutilhögunSkriflegar æfingar, vinnublöð og sýnikennsla

HeimanámEinstaka sinnum skrifa nemendur texta heima, t.d. ljúka við verkefni sem þeir hafa byrjað á í skólanum.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að nemendur nái það góðum tökum á völdum sviðum stærðfræðinnar að hún nýtist þeim

í daglegu líf.• að nemendur temji sér nákvæm vinnubrögð, vandaða uppsetningu og frágang.• að nemendur æfist í að tala um stærðfræðileg viðfangsefni á skipulegan hátt.• að nemendur þjálfist í rökhugsun og tjáskiptum við stærðfræðiúrlausnir.• að nemendur byggi ofan á áður lærða efnisþætti og tileinki sér námsefni vetrarins með

reglubundinni þjálfun.

Námsþættir• Reikningur • Talnafræði• Algebra• Tölfræði• Rúmfræði og mælingar• Brot

Page 52: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

50 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Nánari upplýsingar má finna í Náms- og kennsluáætlun sem nemendum hefur verið fengin.

NámsefniGeisli 1A og 1B. Námsbókaröðin Hringur 1. Aukaverkefni eftir þörfum. Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter. Þemaheftin Dýrin í Afríku og Töfrar.Stærðfræðiþrautir og leikir til þjálfunar.

NámsmatNámsmat fer fram nokkrum sinnum yfir skólaárið eftir hvern efnisþátt, verður það í formi prófa, verkefna, kynninga eða þess háttar. Símat og sjálfsmat verður á almennri vinnu nemenda. Á miðsvetrarprófi er prófað úr námsþáttum haustannar og á vorprófi er prófað úr námsþáttum vorannar.

KennslutilhögunLögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum, setja sér markmið og meta eigin framvindu og árangur. Unnið er með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Lögð er áhersla á skilning á stærðfræðinni og að nemendur séu vakandi fyrir því að þroska þann skilning. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota sérhver stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem vasareikni, brotaspjöld og kennslupeninga.

HeimanámNemendur setja vikuleg markmið. Ákveðnar verkefnabækur eru unnar og markmiðin skráð í náms- og kennsluáætlun (sem á alltaf að vera í skólatösku). Heimavinnu er skilað einu sinni í viku á ákveðnum degi.

Enska3 kennslustundir á vikuMarkmiðLögð er áhersla á að nemendur skilji einfalt mál, bæði talað og ritað. Þeir þjálfist í að hlusta á hljómsnældur og æfist í að tjá sig.

• að nemendur kynnist og fái tilfinningu fyrir tungumálinu.• að nemendur fái innsýn í erlent tungumál og tileinki sér einföld grunnatriði.• að nemendur lesi og skilji einfaldan texta.• að nemendur geti skrifað einfaldan texta.• að nemendur geti myndað auðveldar setningar á ensku er tengjast nemendunum sjálfum

og þeirra daglega lífi.• að nemendur kynnist siðum og venjum í enskumælandi löndum.

NámsþættirHlustun, tal og framburðaræfingar. Nemendur læra að glósa á skipulegan hátt og leita í orðabók. Nemendur lesa léttan texta, aðallega í formi smásagna og vinna samhliða í verkefnabók. Farið er í stafrófið, vikudaga, árstíðir, mánuði, heiti á klæðnaði, heiti líkamshluta, kyn, nafnorð, eintölu og fleirtölu, óákveðna og ákveðna greininn og persónufornöfn, nútíð og þátíð lítillega kynntar.

Námsefni“English is fun” eftir Valgerði Eiríksdóttir og Portfolio (Work Out og Speak Out) vinnubók. Aukaverkefni og krossgátur

Page 53: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

51Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

KennslutilhögunÞulunám, þemanám, endurtekningaræfingar, skriflegar æfingar, vinnubókakennsla, vinnublaðakennsla, töflukennsla, yfirferð námsefnis, námsleikir, námspil, boðnámsaðferðir, þjálfunarforrit, hópavinna, tvenndar vinna, myndræn tjáning, tónlist, hreyfing, söngur, skrifleg tjáning, ritun, hlustunarefni, myndmiðlar, sýnikennsla, spurnaraðferðir og ofl.

HeimanámLestur, ritun og vinnublöð.

NámsmatVið námsmat leggur kennarinn áherslu á að nemendurnir hafi tileinkað sér það sem kennt hefur verið um veturinn. Einkunnir byggjast ekki eingöngu á einstökum prófum (75%-85%)heldur einnig heimavinnu og frammistöðu nemenda í kennslutímum(15%-25%) . Í lok skólaárs fá nemendur vetrareinkunn sem er heildareinkunn fyrir allan veturinn.

Samfélagsfræði 3 kennslustundir á viku

MarkmiðAð nemandi:

• kunni sögur af landnámi Íslands• hafi nokkra þekkingu á gæðum lands við landnám, enn fremur trú og siðum, • atvinnuháttum og stjórnskipan fyrstu aldir íslandsbyggðar.• komi sögukunnáttu sinni á framfæri munnlega, í ritgerð, á myndrænan hátt og eða með

leikrænni tjáningu• geri sér grein fyrir hvers vegna og hvernig landið byggðist• öðlist skynbragð á trú og siði fyrir kristnitöku• kynnist hefðbundinni sögu af kristnitöku á Alþingi• viti hvernig kristni festi rætur á Íslandi• kynnist landi og þjóð• læri að lesa landakort• greini aðalatriði í erfiðum texta

NámsþættirFyrir jól:Tímabilið 874 - 930, lífshættir á landnámsöld, fundur Íslands, upphaf byggðar á Íslandi og trúarbrögð víkinga. Kristintakan.Eftir jól: Innviðir jarðar, jarðsaga Íslands, umhverfi og auðlindir.Landshlutar Íslands, höfuðborgarsvæðið og hálendið.Kortalestur og kortagerð.

NámsefniFyrir jól: Íslenskir þjóðhættir. Landnámsmennirnir okkar . Leifur Eiríksson – á ferð með Leifi heppna ásamt vinnubókum. Vettvangsferð: Þjóðminjasafn Íslands og Landnámsbærinn við Aðalstræti

Page 54: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

52 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Eftir jól: Ísland veröld til að njóta og vinnubók.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni nemenda í tímum, mánaðarverkefnum, vinnubók, kynningu og kaflaprófum.

KennslutilhögunLögð er áhersla á fjölbreytta vinnu og stuðlað að því að nemendur nálgist efnið á mismunandi hátt. Einnig er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsvinnu og hópvinnu. Auk námsbóka og verkmöppu er stuðst við veraldarvefinn og unnin verefni í PowerPoint og Publisher Lesið, spurt og spjallað, skriflegar æfingar, vinnublöð, sýnikennsla, skoðunarferðir, umræðuhópar, spurnaraðferðir, myndbandsupptökur, þemanám, þjálfunarforrit, heimildakönnun, myndsköpun, myndræn tjáning, tónlist, söngur, hreyfing, skrifleg tjáning, hermileikir, hlutverkaleikir, hreyfimyndir.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf.

NáttúrufræðiMarkmið úr eðlisvísindumNemendur:

• framkvæmi tilraunir með ljós og endurskin• skilji að til að hlutir sjáist þarf ljós að berast frá þeim til okkar• geri athuganir þar sem notaðar eru linsur og stækkunargler• ræði um hvað er líkt með stöðurafmagni og seglum• tengi saman straumrás• framkvæmi tilraunir þar sem segull er búinn til með rafstraumi• búi til áttavita• fjalli um mismunandi hlutverk segla

Markmið úr jarðvísindumNemendur:

• geri sér grein fyrir að reikistjörnur snúast í kringum sólina eftir sporbaug líkt og jörðin• þekki ýmsar myndir tunglsins• þekki að tunglið veldur sólmyrkva á ákveðnu tímabili• tengi sjávarföll við aðdráttarafl tungls og sólar• geri sér grein fyrir helstu ástæðum breytilegs veðurfars • fjalli um einkennandi veðurfar fyrir heimabyggð• þekki hvernig jörðin er uppbyggð: kjarni, möttull, jarðskorpa, haf og lofthjúpur• fjalli um eldvirkni og jarðhræringar á Íslandi og geri sér grein fyrir orsökum og mögulegum

afleiðingum• æfi viðbrögð við jarðskjálfta• þekki þekktar virkar eldstöðvar á Íslandi og í heimabyggð sinni

Page 55: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

53Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• þekki að hraun rennur yfir eldri jarðlög• skoði og fjalli um hvernig steingervingar myndast• þekki myndunarsögu Surtseyjar• skoði jarðmyndanir í heimabyggð og þekki myndun þeirra, s.s. landmótun, setlög,

malarnámur, hraun og eldstöðvar

Markmið úr lífvísindumNemendur:

• þekki íslenskar trjátegundir og helstu innfluttu skógartrén• lesi í skóginn og velji við• taki þátt í athugunum á lífríki á landi og kanni mismunandi þætti. s.s. fjölbreytni lífvera,

einkennisplöntur, fæðukeðjur, áhrif umhverfisþátta og áhrifa mannsins• geti skýrt hvað ljóstillífun er• geti flokkað lífverur í framleiðendur, neytendur og sundrendur og lýst mikilvægi hvers fyrir

sig • skilji mikilvægi og taki þátt í landgræðslu• geti gróðursett trjáplöntu

Markmiðin eru flest þrepamarkmið fimmta bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði (1999:47-49)

NámsþættirLjós, endurskin, linsur, stöðurafmagn, segulsvið, straumrás, áttaviti, seglar, reikistjörnur, kvartilaskipti tungls, sólmyrkvi, tunglmyrkvi, sjávarföll, veðurfar, uppbygging jarðar, jarðskorpuflekar, eldvirkni og jarðhræringar á Íslandi, viðbrögð við jarðskjálfta, steingervingar, myndunarsaga Surtseyjar, Vestmannaeyjagosið, hraun, jarðlög, setlög, landmótun, malarnámur, eldstöðvar, trjátegundir, viður, fæðukeðjur, umhverfisþættir, fjölbreytni lífvera, einkennisplöntur, ljóstillífun, framleiðendur, neytendur, sundrendur, landgræðsla.

NámsefniAuðvitað 1, Tré, Ég greini tré og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af ástundun nemenda í tímum, vinnubók, tímaverkefnum s.s. veggspjöldum, kynningum, könnunum, prófum og heimavinnu.

KennsluaðferðirÍ fimmta bekk er byrjað á lífvísindum að hausti. Nemendur læra um plöntur og er námið samþætt við smíðakennslu. Hefur þetta samþættingarverkefni verið kallað Að lesa í skóginn.Vettvangsferðir eru farnar þar sem áhersla er á að nemendur njóti náttúru og útivistar. Þá eru myndbönd skoðuð, tilraunir framkvæmdar og spurningum svarað á kennaratöflu. Um vorið fara nemendur í ratleik í Elliðaárdal.

HeimanámÞetta árið vegur heimavinnan alltaf meira og meira. Fyrst eru nemendur beðnir um að klára verkefnablöð heima en þegar líður á veturinn þá er lestur og vinna við að svara spurningum skriflega heima orðinn snar þáttur í náminu.

Page 56: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

54 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• þekki valda þætti úr sögu Ísraels frá brottförinni frá Egyptalandi til landnáms í Kanaanslandi

• læri boðorðin tíu• kynnist uppruna jólahalds kristinna manna og söguna af heilögum Nikulási• fræðist um hugmyndir gyðinga um Messías og hvernig Jesús heimfærði þær á sjálfan sig• kynnist völdum sögum af lækningakraftaverkum Jesú• læri um aðdragandann að handtöku Jesú og ástæður hennar og kunni skil á atburðum

skírdags og föstudagsins langa• kynnist því hvernig listamenn hafa túlkað píslir og dauða Jesú• öðlist skilning á ástæðunum fyrir kristniboðs- og hjálparstarfi kristinnar kirkju• kunni skil á aðdragandanum að því að Íslendingar tóku kristni og sjálfri kristnitökunni á

Alþingi• temji sér virðingu fyrir því sem öðrum er heilagt• fáist við efni tengt sáttfýsi og fyrirgefningu og gildi þess• ( Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði (2007:14).

NámsþættirBrottför Ísraels frá Egyptalandi og landnám í Kanaan, boðorðin tíu, uppruni jólahalds, heilagur Nikulás, Messías, lækningakraftaverk Jesú, píslarsagan, hjálparstarf, kristnitakan á Alþingi um árið þúsund, virðing, gildi sáttfýsi og fyrirgefningu.

NámsefniBrauð lífsins og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni og félagsfærni nemenda í tímum, vinnubókum, heimavinnu og prófum.

KennslutilhögunHlustun, umræður, verkefnavinna, hópavinna, föndurvinna, skoðun myndbanda og skyggnumynda, leikræn tjáning og söngur.

HeimanámNemendur lesa heima í námsbókinni Brauð lífsins og vinna verkefnablöð.

UpplýsingamenntTölvur/Bókasafn 2 tímar á vikuUnnið er samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla í Upplýsinga og tæknimennt. Upplýsingamennt er þverfagleg námsgrein að því leyti að áhersla er lögð á að kenna og leiðbeina nemendum við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við annað nám nemenda. Náið samstarf er á milli kennara í tölvuveri og bókasafnsfræðings.

Námsmat

Page 57: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

55Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Símat byggt á vinnu nemenda og virkni í tímum. Einstök verkefni verða metin í samvinnu við bekkjakennara.

Kennsluskipan og námsgögn:Sjálfstæð vinna á safni og í tölvuveri. Kynning á kennsluforritum við hæfi nemenda og þeim kynnt póstforrit. Hver nemandi fær úthlutað netfangi. Ritgerðasmíð í tengslum við bókasafn. Verkefnavinna í tengslum við samfélagsfræði, myndmennt og bókasafn.Nemendur eru tvo tíma í viku í upplýsingamennt, einn tíma í tölvustofu og einn á skólasafni. Nemendur geta fengið þrjár bækur lánaðar á skólasafni og er útlánstíminn tvær vikur. Notast verður við bókina 25 lexíur í upplýsingatækni fyrir miðstig eftir Hauk Má Helgason og Halldór Arnar Úlfarsson.

TölvurMarkmið

• að nemendur læri grunnatriði í meðferð og notkun tölvu• að nemendur þjálfist í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu• að nemendur haldi áfram að þjálfast í réttri fingrasetningu (Ritfinnur)• að nemendur geti nýtt sér kennsluf orrit er hæfa aldri og getu• að nemendur geti ritað einfaldan texta og skeytt myndum inn í textann (Word)• að nemendur geti brotið um í tölvu texta með myndum, s.s. einfaldan bækling (Publisher)• að nemendur kunni að vista skjöl og ná í vistuð skjöl• að nemendur geti geymt eigin upplýsingar á tölvutæku formi með skipulögðum hætti• að nemendur kynnist glærugerðarforriti og notkun þess (Powerpoint)

SkólasafnMarkmið:að nemendur þekki uppröðunarreglur skáld- og fræðirita og kunni að leita að gögnum á safninu. að nemendur kunni að nota handbækur, fræðibækur og netið við heimildavinnu.

NámsþættirUpprifjun á meðferð bóka og umgengni á safninu. Nemendur vinna í bókinni Í skólasafninu III. Bókakynningar. Nemendur lesa bók, skrifa ritdóm, kynna höfundinn og myndskreyta. Nemendur útbúa myndband í samvinnu við Martein Sigurgeirsson kennsluráðgjafa og verður myndbandið til útláns á safninu. Kennt mismunandi uppröðun eftir tegundum efnis svo sem skáldrit og fræðirit, farið nánar í staðsetningu efnis á safninu. Heimildavinna í samvinnu við kennara.

KennsluaðferðirFarið yfir uppbyggingu bókasafnsins. Nemendum kennt að nota orðabækur og aðrar handbækur. Farið yfir flokkunarkerfi bókasafna.

Námsefni:Barnaorðabókin. 1988. Reykjavík, Iðunn.Helga Kristín Möller. 1991. Í skólasafninu III. Fræðsluskrifstofa Reykjanesumdæmis.Réttritunarorðabók handa grunnskólum. 1995. Reykjavík, Námsgagnastofnun.

Myndmennt2 kennslustundir á viku

Lögð er áhersla á skilning á myndlist auk sjálfstæðra vinnubragða í fjölbreyttum verkum. Skilningur

Page 58: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

56 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

og þekking dýpkuð og þau grunnatriði sem nemandinn kynntist á yngsta stigi eru nýtt í verkefni og ný atriði lögð inn. Listamenn kynntir og verk þeirra. Samstarf við aðra nemendur.

MarkmiðNemandi:

• þroski hæfileika sína til að túlka eigin hugmyndir í myndum• kynnist mismunandi aðferðum og vinnubrögðum• fræðist um myndlistarsöguna• kynnist myndbyggingu og myndtáknum• geri sér grein fyrir mikilvægi mynd- og handverks í daglegu lífi

Námsefni:Myndbönd, bækur og heimasíður listamanna

Námsþættirlit- og formfræði, fjarvíddarteikningar, ljós og skuggi, línur, hreyfing, sjónarhorn, leirvinna, hreyfimyndagerð.

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni1 kennslustund á viku

Markmið:Að nemendur:

• geti gert sér í hugarlund hvernig ákafar og stjórnlausar tilfinningar geta brotist út í ofbeldi eða annarri neikvæðri og vanhugsaðri hegðun

• geti fylgt flóknu reglukerfi, í leik eða starfi, einn eða með öðrum • fái þjálfun í að tjá hugsanir sínar og skoðanir frammi fyrir bekknum eða á stærri

samkomum • læri að beita skapandi og frumlegum vinnubrögðum við úrlausnir verkefna • geri sér grein fyrir að líkamleg og andleg vellíðan hvílir á heilbrigðum lífsvenjum, líkamsrækt

og hollum neysluvenjum • kunni umferðarreglur fyrir gangandi, hjólandi og skautandi vegfarendur • þjálfist í notkun reiðhjóls á göngustígum • læri að forðast hættur á heimilum, við skóla og í nánasta umhverfi • læri að afla sér upplýsinga um áætlunarferðir • læri um gildi þess að ganga vel um náttúruna • læri að gróðursetja og um gildi gróðurs fyrir umhverfið • læri að meta eigin útgjöld

NámsþættirSjálfsþekking, samskipti, sköpun, lífsstíll, samfélag, umhverfi, náttúra og menning.

NámsefniHjálpfús

Page 59: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

57Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Ég er það sem ég velÆ, þetta er sártÝmis verkefni úr daglega lífinu og klípusögur.Lífsleikni. is (verkefni þrautir og æfingar)

KennslutilhögunLögð er áhersla á fjölbreytta vinnu s.s umræður, bekkjarfundi og ýmis samskiptaverkefni. Auk námsbóka og verkmöppu er stuðst við Lífsleikni. is á veraldarvefnum. Einnig er lögð áhersla á hlutverkaleiki, myndsköpun, og skriflega og myndræna tjáningu.

NámsmatNámsmat í lífsleikni byggist á fjölbreytilegum matsaðferðum. Umfjöllunarefni eru oft mjög huglæg og því erfitt að meta þau á hefðbundinn hátt. Mögulegt er þó að meta þekkingaratriði með skriflegum eða munnlegum prófum og gefa fyrir verklegar æfingar.

HeimanámNámið fer að mestu fram í skólanum en einstaka sinnum fá nemendur verkefni til að vinna heima.

Íþróttir2 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur efli hæfileika sína til tjáningar og sköpunar.• að nemendur taki þátt í leikjum og æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð og kraft.• að nemendur skilji mikilvægi reglubundinnar líkamsræktar og finni til þess leiðir við sitt

hæfi.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/Námsefni• Læra að leysa úr ágreiningi sem upp getur komið í íþróttum.• Læra að bera virðingu fyrir þörfum annarra• Læra að bera virðingu fyrir mismunandi getu félaga sinna.• Læra undirstöðuatriði í íslenskri glímu• Læra að tileinka sér helstu líkamsæfingar og heiti helstu hreyfinga eins og rétta og beygja,

réttstaða, handstaða, hliðbeygja, bolvinda, bolbeygja, armbeygja og armrétta.• Nemendur taka þátt í umræðu um svefn og hvíldarþörf, mikilvægi hreyfingar og hollt

mataræði.• Nemendur þjálfast í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og

körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, hafnabolta, blak og bandy.• Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reiptog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir,

brennó, kíló, Tarsanleikur og hanaslagur.• Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup,

jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu, litlir kolhnísar og stórir kolhnísar.

• Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.

Page 60: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

58 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.• Sund: Bringusund, baksund, skriðsund, björgunarsund, kafsund og stunga.

NámsmatGefið er í bókstöfum fyrir eftirfarandi þætti

• Áhugi • Virkni• Hegðun• Færni• Samvinna

A þýðir ágættB þýðir gottC þýðir sæmilegtD þýðir ábótavant

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• tileinki sér persónulegt hreinlæti• geti notað allar mæliskeiðarnar, dl mál, og lítramál og geti mælt ¼, ½ og ¾ • viti gildi hollra fæðu og lífshátta• geti greint milli góðs og lélegs fæðuvals• geti unnið með öðrum og sýnt tillitsemi• geti eldað og bakað holla og einfalda rétti

NámsþættirNemendur læra:

• einfaldar matreiðsluaðferðir• um hollustu grænmetis og ávaxta og þau góðu næringarefni sem fást úr þeim• um grænmetis- og ávaxtaflokkinn• að þvo grænmeti, flysja, skera og rífa í hrásalöt• um neytendafræði og umhverfisvermd• að hræra, þeyta og hnoða deig• á bakaraofninn og hvaða hitastig hentar hverjum bakstri• að þvo ullarflík (trefilinn eða húfuna sína)• kurteisi, borðsiði, tillitsemi, samvinnu o.m.fl.

NámsgögnGott og gagnlegt 1, kennslubók gefin út fyrir 5. bekk með verkefnum og uppskriftum.Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar .Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 5. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg

Page 61: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

59Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

kennsla.Nemendur vinna tveir eða fleiri saman í hóp.

Námsmat:Stöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.

Hönnun / Smíðar 2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Markmið /NámsþættirVerkefnið: Tálgað í tré, lesið í skóginn.Tálgun og vinnsla með skógarafurðir íslenskra trjáa er verkefni vetrarins. Vinnan er í samþættingu við náttúruvísindakennslu skólans á þessu ári. Farnar eru vettvangsferðir og efni sótt í grenndarskóg Hvassaleitisskóla sem er Svartiskógur í Fossvogsdal. Einnig leitum við fanga á skólalóðina sjálfa.Kennd eru undirstöðu handtök tálgunar með svo kölluðum lokuðum hnífsbrögðum þannig að ekki á að vera möguleiki á því að nemendur skeri sig.Reynt verður eftir fremsta megni að sinna þörfum hvers einstaklings fyrir sig og leggja áherslu á að hver og einn nái tökum á verkefninu út frá þroska. Verkefni eru valin miðað við þessa þætti.

KennslutilhögunKynning, þar sem verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 kennslustundir hálfan veturinn

Markmið• að nemendur kynnist algengum vinnubrögðum sem haldist hafa með þjóðinni og geti lagað

þau• að kröfum nútímans.• að nemendur læri rétt handtök, meðhöndlun og heiti á áhöldum við vinnuna.• að nemendur vinni eftir einföldum skriflegum leiðbeiningum og noti handbækur

greinarinnar.

NámsþættirPrjón: læra að vinda hnykil, fitja upp, prjóna garðaprjón, prjóna brugðna lykkju, auka út, taka úr og skipta um lit á garni. Útbúa hlut að eigin vali í samráði við kennara.Vélsaumur: kennt á saumavélina, þekki undirtvinna og yfirtvinna, noti einfaldar sporgerðir á saumavél til skreytinga og frágangs, sauma saman efni með beinum saum og sikk-sakka í brún. Verkefni t.d. íþróttapoki eða önnur einföld vélsaumsverkefni.Vefjarefnafræði: Þekki í grófum dráttum uppruna og helstu eiginleika baðmullarefna.

Page 62: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

60 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniBækurnar, Hannyrðir í 3. - 6. bekk og Á prjónunum.

KennsluaðferðirKynning, þar sem verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og skýringarmyndir.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir og skriflegar leiðbeiningar til að vinna eftir ásamt handbókum.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum, en þegar unnið er með prjónaverkefni geta nemendur einnig unnið heima.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Tónmennt2 kennslustundir á viku

MarkmiðAð nemendur:

• öðlist vaxandi færni í söng og leik á skólahljóðfæri• öðlist vaxandi færni í flutningi á tónlist, lögum og stefjum eftir minni, heyrn og

nótnatáknum• spinni og semji einfalt tónverk sem sýnir greinilegt form og vaxandi skilning á efnisþáttum

tónlistarinnar• þekki og geti greint hugtök, s.s. háir tónar og djúpir tónar, hratt og hægt, bjart og dimmt,

langt og stutt, púls og hrynur, sterkt og veikt, endurtekning og andstæður, hljóð og þögn, einn tónn eða fleiri og hendingar

• þekki og geti greint helstu hljóðfæraflokka og raddgerðir• þjálfist í virkri hlustun• geti heyrt, greint og sýnt þekkingu á ólíkum tónlistarstíltegundum sem unnið hefur verið

með• sýni vaxandi skilning á sögulegu og samfélagslegu hlutverki tónlistar sem unnið er með

NámsþættirSöngur og raddbeitingHljóðfæranotkunLestur og ritunHreyfingHlustun og sköpunMikil áhersla verður lögð á virka hlustun, upplifun og skilning á fjölbreyttri tónlist og stöðu hennar og mikilvægi í samfélaginu. Sú þekking sem nemendur öðlast í gegnum þessa vinnu verður svo markvisst notuð í verklegri vinnu, t.d. á hljóðfæri, í söng og hreyfingu.

NámsefniÞað er gaman að hlusta á kvikmyndatónlist, kennslubók, hlustunarefni, myndband og skrifleg verkefni

Page 63: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

61Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Það var lagiðÝmsar söngbækurFjölbreytt úrval hljómdiskaFjölrituð verkefni úr ýmsum áttum frá kennara

NámsmatSímat á ástundun, virkni, samvinnu og frumkvæði, ásamt skriflegum og munnlegum verkefnum.

Page 64: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

62 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

6. bekkur Íslenska

8 kennslustundir á vikuMeginmarkmið

• að nemendur geti lesið og ritað texta sér til gagns og ánægju.• að máltilfinning þeirra þroskist og þekking þeirra á málinu aukist.• að nemendur þjálfist í að hlusta á aðra og geti tjáð skoðanir sínar, hugmyndir og tilfinningar

á skýru og góðu máli, töluðu og rituðu.

Bókmenntir: 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• að nemendur kynnist hvernig bókmenntaverk eru uppbyggð, þ.e. inngangur, meginmál og niðurlag.

• að nemendur kynni sér mismunandi bókmenntaverk• að nemendur læri að gera persónulýsingar.• að nemendur læri að gera útdrátt.• að nemendur öðlist færni til að meta og skilja innihald texta.• að nemendur þjálfist í sögugreiningu.

NámsþættirSkilningur á texta, sögugreining, upplestur og framsögn, persónulýsingar, útdráttur (aðalatriði og aukaatriði ), uppbygging texta og orðaforði.

NámsefniSnorra saga, Rauðkápa. Ýmis verkefni unnin sem og vinnublöð.

HeimanámNemendur ljúka við að svara spurningum og önnur verkefni tengd bókmenntum.

Stafsetning : 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• að nemendur geti skrifað réttan texta.• að nemendur öðlist færni í að beita stafsetningarreglum• að nemendur þjálfist í að nýta sér orðabækur og önnur hjálpargögn við ritun.

NámsþættirUpprifjun á reglum. Reglur um ng og nk, stóran og lítinn staf, n og nn, greini, tvöfaldan samhljóða, stafavíxl, hljóðvarp, y, ý, ey o.fl. Nemendur geti skipt orðum milli lína og notað greinamerki rétt.

NámsefniStafsetning Á. Þ. og G. G. Mál í mótun og verkefnahefti. Verkefni við réttritunarorðabók. Ljósrituð viðbótarverkefni.

HeimanámNemendur vinna ýmis ritunarefni sem koma frá kennara. Nemendur ljúka við stafsetningaæfingar heima og í skóla.

Page 65: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

63Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Móðurmál : 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• að nemendur nýti sér málfræðiþekkingu sína í almennri ritun og talmáli.• að nemendur temji sér skýrt og skorinort ritmál og forðist óþarfa málalengingar.• að nemendur þekki nafnorð, geti greint sérnöfn, samnöfn, kyn, tölu, greini og föll.• að nemendur þekki lýsingarorð og geti fallbeygt þau og stigbreytt.• að nemendur þekki sagnorð og geti greint þau í nútíð og þátíð.• að nemendur þekki stofn nafnorða, sagnorða og lýsingarorða og kunni að nýta

sérreglurnar.

NámsþættirNafnorð: kyn, tala, greinir, fallbeyging, sérnöfn, stofn nafnorða.Sagnorð: nútíð, þátíð, nafnháttur, stofn sagnorða.Lýsingarorð: kyn, tala, stigbreyting, fallbeyging, stofn lýsingarorða.Samheiti, andheiti, samsett orð, stafrófsröð og atkvæðaskipting orða.Ritsmíðar, undirbúnar og óundirbúnar.

NámsefniMálrækt 2. hefti. Verkefni sem unnin hafa verið upp úr Móðurmál 2. hefti. Skræða með vinnubókum.Orðabókaverkefni og frjáls ritun.Mál til komið og Mál til komið verkefnabók.

HeimanámStuttar æfingar í móðurmálsstílabók sem og verkefni í öðrum bókum. Einnig setja nemendur sér vikuleg markmið í bækur eins og Málrækt 2 og Skræðu.

Ljóð: 1 kennslustund á vikuMarkmið

• að nemendur kynnist mismunandi ljóðformum.• að nemendur læri að lesa og skilja ljóð sér til gagns og ánægju.• að nemendur kynnist völdum skáldum og verkum þeirra.• að nemendur læri valin ljóð utanbókar.• að nemendur þjálfist í eigin ljóðagerð.

NámsþættirUnnið með mismunandi form og einkenni ljóða, s.s. rím, ljóðstafi, og líkingar.Flutningur þjálfaður á lærðum og frumsömdum ljóðum.Ljóðaskýringar og höfundar kynntir.

NámsefniLjóðspor og vinnubók unnin.

HeimanámLæra utan að nokkur ljóð yfir veturinn.

Skrift: 1 kennslustund á vikuMarkmið

Page 66: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

64 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemendur vandi vinnubrögð.• að nemendur þrói með sér læsilega og hraða rithönd.• að nemendur noti tengiskrift.• að nemendur þjálfist í uppsetningu.

NámsþættirTengiskrift, uppsetning og vönduð vinnubrögð.

NámsefniSkrift 6 o. fl. Uppsetning ljóða og sagna á blöðum.

NámsmatNámsmat verður byggt skriflegri færni nemenda og einkunnir í lok anna verða byggðar á heimavinnu, ástundun í kennslustundum, vinnubókum og verkefnum ásamt prófum. Við námsmat leggur kennarinn áherslu á að nemendurnir hafi tileinkað sér það sem kennt hefur verið um veturinn. Einkunnir byggjast ekki eingöngu á einstökum prófum (75%-85%)heldur einnig heimavinnu og frammistöðu nemenda í kennslutímum(15%-25%).

HeimanámNemendur skrifa u.þ.b. einu sinni í viku nokkrar línur heima í Skrifbók.

KennslutilhögunKennsla á töflu, fyrirlestrar, sýnikennsla, myndmiðlar, hlustunarefni, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, lestur og greining texta, spurt og spjallað, spurnaraðferðir, yfirferð námsefnis, samræða, umræðuhópar, skrifleg tjáning, leikræn tjáning, myndræn tjáning-myndsköpun, námsleikir, hreyfing, ritun, hópvinna og þemanám.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að nemendur nái það góðum tökum á völdum sviðum stærðfræðinnar að hún nýtist þeim

í daglegu líf.• að nemendur temji sér nákvæm vinnubrögð í stærðfræði.• að nemendur æfist í að tala um stærðfræðileg viðfangsefni á skipulegan hátt.• að nemendur þjálfist í rökhugsun og tjáskiptum við stærðfræðiúrlausnir.• að nemendur byggi ofan á áður lærða efnisþætti og tileinki sér námsefni vetrarins með

reglubundinni þjálfun.

NámsþættirReikningur TalnafræðiAlgebraTölfræðiRúmfræði og mælingarBrot Nánari upplýsingar má finna í Náms- og kennsluáætlun sem nemendum hefur verið fengin.

Page 67: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

65Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniGeisli 2 grunnbók ásamt vinnuhefti 2A og 2B. Námsbókaröðin Hringur 2. Satúrnus, Úranus. Þemaheftin Rökþrautir, Mynstur og Hve stórt er stórt?Stærðfræðiþrautir og leikir til þjálfunar.

NámsmatNámsmat fer fram nokkrum sinnum yfir skólaárið eftir hvern efnisþátt, verður það í formi prófa, verkefna, kynninga eða þess háttar. Símat og sjálfsmat verður á almennri vinnu nemenda. Á miðsvetrarprófi er prófað úr námsþáttum haustannar og á vorprófi er prófað úr námsþáttum vorannar.

KennslutilhögunLögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum, setja sér markmið og meta eigin framvindu og árangur. Unnið er með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Lögð er áhersla á skilning á stærðfræðinni og að nemendur séu vakandi fyrir því að þroska þann skilning. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota sérhver stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem vasareikni, brotaspjöld og kennslupeninga.

HeimanámNemendur setja vikuleg markmið. Ákveðnar verkefnabækur eru unnar og markmiðin skráð í náms- og kennsluáætlun (sem á alltaf að vera í skólatösku). Heimavinnu er skilað einu sinni í viku á ákveðnum degi.

Enska4 kennslustundir á viku

Lögð er áhersla á að nemendur skilji einfalt mál, bæði talað og ritað. Þeir þjálfist í að hlusta á hljómsnældur og æfist í að tjá sig.

Markmið• að nemendur kynnist og fái tilfinningu fyrir tungumálinu.• að nemendur fái innsýn í erlent tungumál og tileinki sér einföld grunnatriði.• að nemendur lesi og skilji einfaldan texta.• að nemendur geti skrifað einfaldan texta.• að nemendur geti myndað auðveldar setningar á ensku er tengjast nemendunum sjálfum

og þeirra daglega lífi.• að nemendur kynnist siðum og venjum í enskumælandi löndum.

NámsþættirHlustun, tal og framburðaræfingar. Nemendur læra að glósa á skipulegan hátt og leita í orðabók. Nemendur lesa léttan texta, aðallega í formi smásagna og vinna samhliða í verkefnabók. Farið er í stafrófið, vikudaga, árstíðir, mánuði, heiti á klæðnaði, heiti líkamshluta, kyn, nafnorð, eintölu og fleirtölu, óákveðna og ákveðna greininn og persónufornöfn, nútíð og þátíð lítillega kynntar.

NámsefniEnglish is fun. Build up 1, Easy true stories.Málfræði A og B, lesskilningsverkefni On your own auk ýmissa verkefna.

KennslutilhögunÞulunám, þemanám, endurtekningaræfingar, skriflegar æfingar, vinnubókakennsla, vinnublaðakennsla, töflukennsla, yfirferð námsefnis, námsleikir, námspil, boðnámsaðferðir,

Page 68: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

66 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

þjálfunarforrit, hópavinna, tvenndar vinna, myndræn tjáning, tónlist, hreyfing, söngur, skrifleg tjáning, ritun, hlustunarefni, myndmiðlar, sýnikennsla, spurnaraðferðir og ofl.

HeimanámLestur, ritun og vinnublöð.

NámsmatVið námsmat leggur kennarinn áherslu á að nemendurnir hafi tileinkað sér það sem kennt hefur verið um veturinn. Einkunnir byggjast ekki eingöngu á einstökum prófum (75%-85%)heldur einnig heimavinnu og frammistöðu nemenda í kennslutímum(15%-25%). Í lok skólaárs fá nemendur vetrareinkunn sem er heildareinkunn fyrir allan veturinn.

Samfélagsfræði3 kennslustundir á viku

Í samfélagsfræði er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsvinnu og hópvinnu. Auk námsbóka og verkmöppu er stuðst við veraldarvefinn og unnin verefni í PowerPoint og Publisher. Nemendur eru þjálfaðir í að koma fram og kynna verkefnin sín og eru hvattir til að temja sér vönduð vinnubrögð.

Íslandssaga fyrrihluta vetrar Markmið

• að nemendur öðlist þekkingu á íslensku þjóðfélagi á tímabilinu 930 -1262.• að skilningur nemenda á sögulegum arfi þeirra eflist.• að nemendur átti sig á því að við myndun nýs samfélags eins og á Íslandi er tilvera þess háð

samkomulagi manna um lög og reglur, stjórnskipan og réttarfar.• að nemendur fái innsýn í daglegt líf fólks á þessum tíma.

NámsþættirAlþingi og stjórnarfar á Íslandi á þjóðveldisöld. Saga Íslands til 1262 út frá stjórnmála- og menningarsögulegu sjónarhorni. Ættir og áhrifamenn á Sturlungaöld og aðstæður almennings s.s. kjör barna og kvenna, búskaparhættir og barátta landsmanna við náttúruöflin. Erlend áhrif, deilur innanlands og hvernig Íslendingar glötuðu sjálfstæði sínu. Ævi og störf Snorra Sturlusonar. Landafundir, Grænland – Ameríka. Nemendur læri að nota söguleg kort, töflur og gröf og æfist í að lesa á tímaás.

NámsefniSögueyjan 1.hefti. Snorri Sturluson og mannlíf á miðöldum. Merkir sögustaðir Hólar og Skálholt.Söguatlas og aðrar heimildir sem henta.s.s af veraldarvefnum.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni nemenda í tímum, vinnubók, kynningu og kaflaprófum

Page 69: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

67Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Landafræði seinnihluta vetrarMarkmiðað nemendur kynnist Norðurlöndum, landslagi, auðlindum, gróðri, veðurfari og íbúum. að nemendur öðlist færni í að lesa úr kortum, gröfum og öðrum landfræðilegum upplýsingum. að nemendur þjálfist í að leita sér upplýsinga um ákveðið efni.

NámsþættirAtvinnu- og þjóðlíf á Norðurlöndum s.s. lega, landshættir, þjóðir, tungumál og menning. Höfuðborgir, þjóðfánar og stjórnarfar. Náttúruauðlindir og atvinnuvegir. Frægustu náttúrufyrirbæri. Norðurlandasamvinna. Kortavinna.

NámsefniNorðurlönd. Við Norðurlandabúar og aðrar heppilegar heimildir.Vinnubók, hópverkefni, einstaklingsverkefni í samvinnu við bókasafn og upplýsingamennt.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni nemenda í tímum, vinnubók, kynningu og kaflaprófum.

NáttúrufræðiMarkmið úr eðlisvísindumNemendur:

• athugi flotkraft • athugi núningskraft• mæli kraft• vinni með loft og með hluti í lofti• mæli vegalengd og ferðatíma hluta sem eru á hreyfingu• vinni einfalda útreikninga á hraða• geri athuganir á ýmsum einföldum vélum og tækjum• þekki ölduhreyfingu og endurvarp út frá athugunum• geri sér grein fyrir að hljóð myndast ekki nema hreyfing á hlutum eigi sér stað• geti lýst bylgjuhreyfingu með hugtökunum öldutoppur, öldudalur og bylgjulengd

Markmið úr jarðvísindumNemendur:

• vinni með stærð jarðar og reikistjarna og fjarlægð þeirra frá sólu• geri sér grein fyrir mikilvægi lofthjúpsins fyrir lífríki jarðar• þekki hugtökin ósonlag og gróðurhúsaáhrif• geri sér grein fyrir hringrás vatns í umhverfi sínu• þekki að grunnvatn rennur um sprungur í berglögum• þekki einkenni helstu jarðsögutímabila á jörðinni• ræði um breytingar sem verða á yfirborði jarðar við náttúruhamfarir; eldvirkni, jarðskjálfta,

Page 70: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

68 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

flóð og vinda

Markmið úr lífvísindumNemendur:

• kynnist völdum þáttum úr þróunarsögu lífs á jörðinni, einkum risaeðlum• geri athuganir í ferskvatni og kanni mismunandi þætti s.s. lífríkið, fæðukeðjur, áhrif

umhverfisþátta• kannist við alla íslenska ferskvatnsfiska og hvernig þeir hafi borist til Íslands• geri sér grein fyrir að líkami mannsins tekur stöðugum breytingum frá fæðingu til dauða• fjalli um og geti borið saman mismunandi gróðurlendi, s.s votlendi, valllendi og skóglendi

Markmiðin eru flest þrepamarkmið sjötta bekkjar í Aðalnámskrá grunnskóla, náttúrufræði (1999:50-51)

NámsþættirKraftar (flotkraftur, núningskraftur), loft, hraði, vélar og tæki, ölduhreyfingar og endurvarp, hljóð, fjarlægð reikistjarna frá sól, lofthjúpur, ósonlag, gróðurhúsaáhrif, hringrás vatns, lífsferill mannsins, grunnvatn, jarðsögutímabil, náttúruhamfarir (eldvirkni, jarðskjálftar, flóð, vindar), þróunarsaga lífs á jörðu, lífríki ferskvatns, fæðukeðjur, umhverfisþættir, íslenskir ferskvatnsfiskar, mismunandi gróðurlendi (votlendi, vallendi, kjarr- og skóglendi, holt og móar, melar og sandar, fjöll og heiðar, strendur).

NámsefniLífríkið í fersku vatni, Lífríkið á landi, Auðvitað 2 og vinnublöð.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af ástundun nemenda í tímum, vinnubókum, tímaverkefnum s.s. kynningum, veggspjöldum, könnunum, prófum og heimavinnu.

KennsluaðferðirÍ sjötta bekk er meira en áður lagt upp úr þekkingaröflun nemenda á ákveðnum námsþáttum og kynningu þeirra á námsþáttunum. Í skólanum er mikið unnið í hópum eða tvenndum en einstaklingsvinnan er mest í heimavinnunni. Reynt er að hafa námið fjölbreytt og inn í það fléttast skoðun myndbanda og vefefnis, tilraunir, tölvuvinnsla, umræður, töflukennsla og vettvangsferðir þar sem áhersla er lögð á að nemendur njóti náttúru og útivistar.

HeimavinnaFrekar stöðug heimavinna sem einkennist af lestri námsbókar og að svara spurningum úr textanum.

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• kynnist islam og gyðingdómi• virði fólk með mismunandi trúar- og lífsskoðanir• þjálfist í málefnalegri umræðu• þroski með sér gagnrýna hugsun

Page 71: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

69Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geri sér ljósa ábyrgð mannsins á sköpunarverkinu, sjálfum sér og náunga sínum• fái tækifæri til að ræða mismun á trú og vísindum í tengslum við sköpunartexta Biblíunnar• kynnist og geti dregið lærdóm af nokkrum af dæmisögum Jesú• þekki hina kristnu upprisutrú og þá von sem henni tengist• kynnist frumsöfnuðinum• viti að postulleg trúarjátning feli í sér grundvallaratriði kristinnar trúar • fáist við siðferðileg efni tengd einelti og hópþrýstingi

( Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 1999:20-22 og 2007:14-16).

NámsefniIslam – að lúta vilja Guðs, Gyðingdómur – sáttmáli þjóðar, Ljós heimsins og verkefnablöð.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni og félagsfærni nemenda í tímum, heimavinnu, veggspjöldum, vinnubókum, og prófum.

KennslutilhögunHlustun, umræður, verkefnavinna, hópavinna, föndurvinna, skoðun myndbanda, tölvuvinnsla, upplýsingaleit, leikræn tjáning og söngur.

HeimanámNemendur lesa reglulega heima í námsbókunum og vinna verkefnablöð.

Upplýsingamennt1 kennslustund á viku

Unnið er samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla í Upplýsinga og tæknimennt. Upplýsingamennt er þverfagleg námsgrein að því leyti að áhersla er lögð á að kenna og leiðbeina nemendum við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við annað nám nemenda. Náið samstarf er á milli kennara í tölvuveri og bókasafnsfræðings.

Markmið• að nemendur læri grunnatriði í meðferð og notkun tölvu• að nemendur þjálfist í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu• að nemendur haldi áfram að þjálfast í réttri fingrasetningu (Ritfinnur)• að nemendur geti nýtt sér kennsluf orrit er hæfa aldri og getu• að nemendur geti ritað einfaldan texta og skeytt myndum inn í textann (Word)• að nemendur geti brotið um í tölvu texta með myndum, s.s. einfaldan bækling (Publisher)• að nemendur kunni að vista skjöl og ná í vistuð skjöl• að nemendur geti geymt eigin upplýsingar á tölvutæku formi með skipulögðum hætti• að nemendur kynnist glærugerðarforriti og notkun þess (Powerpoint)

NámsmatSímat byggt á vinnu nemenda og virkni í tímum. Einstök verkefni verða metin í samvinnu við bekkjakennara.

KennsluskipanSjálfstæð vinna á safni og í tölvuveri. Kynning á kennsluforritum við hæfi nemenda og þeim

Page 72: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

70 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

kynnt póstforrit. Hver nemandi fær úthlutað netfangi. Ritgerðasmíð í tengslum við bókasafn. Verkefnavinna í tengslum við samfélagsfræði, myndmennt og bókasafn. Nemendur eru tvo tíma í viku í upplýsingamennt, einn tíma í tölvustofu og einn á skólasafni. Nemendur geta fengið þrjár bækur lánaðar á skólasafni og er útlánstíminn tvær vikur.

NámsefniNotast verður við bókina 25 lexíur í upplýsingatækni fyrir miðstig eftir Hauk Má Helgason og Halldór Arnar Úlfarsson

SKÓLASAFNMarkmið

• Nemendur kynnist Dewey flokkunarkerfinu og geti fundið heimildir á safninu. • Nemendur séu færir um að nota handbækur og geti gert heimildaritgerð.

NámsefniTvö verkefnahefti. Leiðbeiningar fyrir ritgerðarsmíð.

NámsþættirUpprifjun á reglum bókasafnsins. Nemendur vinna í bókfræðihefti.Handbókanotkun kennd. Kennt að leita í helstu handbókum, alfræðiorðabókum og fræðibókum. Upprifjun og þjálfun í notkun orðabóka.Nemendur læri að leita að heimildum á netinu.Heimildavinna. Nemendur læri betur undirstöðuatriði í gerð heimildaritgerða og læri að setja þær rétt upp.

Myndmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinnMarkmið

• að nemendur þroski hæfileika sína til að túlka eigin hugmyndir í myndum.• að nemendur fái að kynnast mismunandi aðferðum og vinnubrögðum.• að nemendur fræðist um myndlistasöguna.• að nemendur kynnist myndbyggingu og myndtáknum.• að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi mynd- og handverks í daglegu lífi.• að nemendur þjálfist í að teikna bæði það sem fyrir augu ber og einnig óhlutbundið.

NámsþættirRifjuð upp lit- og formfræði. Unnið með línu, einföldum fjarvíddarteikningum og athugun á ljósi og skugga. Grafíktækni kynnt og unnið með skapalónsþrykk og einþrykk.

NámsmatValin myndverk/verkefni metin. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni1 kennslustund á viku

MarkmiðNemendur:

• viti að hver og einn hefur persónuleg og tilfinningaleg mörk sem hægt er að ganga of nærri

Page 73: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

71Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

með neikvæðum áreitum• virði ólíka einstaklinga• geti í samvinnu við aðra komið sér saman um leikreglur þar sem jafnréttis er gætt• þjálfist í að vega og meta ólíka kosti með gagnrýnu hugarfari• átti sig á gildi hirðusemi um líkama sinn, umhverfi, eigin eigur og annarra• þekki vel starfshætti, reglur, skipulag og áherslur skóla síns• kunni helstu umferðarreglur og þekki algengustu umferðarmerki• fái tækifæri til þátttöku í hópefli í sínum bekk og árgangi

Engin formleg einkunn verður gefin í lífsleikni.

Íþróttir2 kennslustundir á viku

markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek• að nemendur efli hæfileika sína til tjáningar og sköpunar• að nemendur taki þátt í leikjum og æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð og kraft• að nemendur skilji mikilvægi reglubundinnar líkamsræktar og finni til þess leiðir við sitt

hæfi.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/námsefni:• Læra að leysa úr ágreiningi sem upp getur komið í íþróttum.• Læra að bera virðingu fyrir þörfum annarra• Læra að bera virðingu fyrir mismunandi getu félaga sinna.• Nemendur taka þátt í umræðu um skaðsemi ávana- og fíkniefna og misnotkunar lyfja fyrir

líkama og sál.• Nemendur nái tökum undirstöðuatriðum íslenskrar glímu og þekki helstu glímubrögð.• Nemendur taka þátt í umræðu um svefn og hvíldarþörf, mikilvægi hreyfingar og hollt

mataræði.• Nemendur þjálfast í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og

körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, blak, hafnarbolta og bandy.• Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reiptog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir,

brennó, kíló, Tarsanleikur og hanaslagur.• Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup,

jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu, litlir kolhnísar og stórir kolhnísar.

• Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.• Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.• Sund: Bringusund, baksund, skriðsund, björgunarsund, kafsund og stunga.

NámsmatÍ íþróttum fer námsmat fram með þrennum hætti20 % A: Hlutlægt mat þar sem árangur nemenda er mældur t.d. með málbandi eða skeiðklukku.

Page 74: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

72 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

30 % B: Huglægt mat. Kennarinn metur færni nemenda í ákveðnum íþróttum þar sem mælingum verður ekki komið við með öðrum hætti t.d. boltaleikjum, leikjum og æfingum ýmis konar.50 % C: Ástundun, áhugi, virkni, samvinna og framkoma í kennlustundum.

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinnMarkmiðAð nemendur:

• geri sér grein fyrir því að neysluvenjur hafa áhrif á heilsuna• geti stækkað og minnkað uppskriftir• tileinki sér kurteisi og tillitsemi við borðhald og bragði á þeim mat sem á boðstólum er• viti hvert hlutverk orkuefnanna er í líkamanum• tileinki sér gildi hollra lífshátta

Inntak námsNemendur læra:

• um næringarefnin, í hvaða flokka þau skiptast• um hollar matarvenjur og að borða reglulega• um mikilvægi þess að þvo vel upp• um umhverfisvermd og neytendafræði• hvaða næringarefni fást úr fiski, kjöti og eggjum• að baka og elda einfalda rétti sem þeir geta gert heima• almenn eldhússtörf og þrif svo þeir geti hjálpað til heima• borðsiði og almenna kurteisi

NámsgögnGott og gagnlegt 2, kennslubók sem gefin er út fyrir 6. bekk með verkefnum og uppskriftum. Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar .Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 6. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg kennsla. Nemendur vinna saman tveir eða fleiri í hóp.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.

Hönnun/smíði2 stundir á viku hálfan veturinnMarkmið/námsþættirÁ þessu ári eru mælingar og hlutföll skoðuð ásamt því að nemendum er kennt að teikna með teikniaðferð sem kölluð er þrívörpun (réttvörpun). Öll verkefni eru teiknuð með þessari aðferð og málsett. Verkefni eru nú mun stærri og umfangsmeiri. Samsetningar og nákvæmni sérstaklega tekin fyrir.

Page 75: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

73Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Metrakerfið og önnur kerfi eins og tommur skoðuð með tilliti til kosta og galla hvors um sig. Vélavinna á einfaldar vélar s.s. rafmagnsborvélar og pússivélar innleidd. Möguleikar véla og uppruni skoðuð. Verkefni verða hér með meira og minna í vali nemenda sjálfra. Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

KennslutilhögunKynning, verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 stundir á viku hálfan veturinnMarkmið

• Miðað skal að markvissri þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að nemendur verði sjálfbjarga í verki og geti lagt mat á handverk. Lögð skal áhersla á að efla frumkvæði nemenda svo að þeir öðlist sjálfstraust til eigin sköpunar.

• Að viðhalda algengum vinnubrögðum, sem haldist hafa með þjóðinni, en jafnframt laga þau að kröfum nútímans.

• Að nemendur læri rétt handtök, meðhöndlun og heiti áhalda. • Að nemendur vinni eftir einföldum skriflegum leiðbeiningum og noti handbækur

greinarinnar.Vinna munstur með hjálp tölvu og geri tilraunir með litasamspil.

NámsþættirPrjón: Nemendur hagnýti sér þau vinnubrögð sem áður voru lærð í prjóni. Prjóna á hringprjón og fjóra prjóna. Verkefni valin í samráði við kennara.Vélsaumur: læra að spóla og þræða tvinna á saumavél, sauma óregluleg form, brjóta og sauma niður fald. Skreyti nytjahlut með hjálp saumavélarinnar.Hekl: læra að hekla loftlykkjur, fastahekl og stuðlahekl.

NámsefniBækur: Hannyrðir í 3.- 6. bekk og Á prjónunum.

KennsluaðferðirKynning, verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum, en þegar unnið er með prjónaverkefni geta nemendur einnig unnið heima.

Page 76: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

74 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Tónmennt1 kennslustund á viku

MarkmiðAð nemendur:

• öðlist vaxandi færni í söng og leik á skólahljóðfæri• öðlist vaxandi færni í flutningi á tónlist, lögum og stefjum eftir minni, heyrn og

nótnatáknum• spinni og semji einfalt tónverk sem sýnir greinilegt form og vaxandi skilning á efnisþáttum

tónlistarinnar• þekki og geti greint hugtök, s.s. háir tónar og djúpir tónar, hratt og hægt, bjart og dimmt,

langt og stutt, púls og hrynur, sterkt og veikt, endurtekning og andstæður, hljóð og þögn, einn tónn eða fleiri og hendingar

• þekki og geti greint helstu hljóðfæraflokka og raddgerðir• þjálfist í virkri hlustun• geti heyrt, greint og sýnt þekkingu á ólíkum tónlistarstíltegundum sem unnið hefur verið

með• sýni vaxandi skilning á sögulegu og samfélagslegu hlutverki tónlistar sem unnið er með

NámsþættirSöngur og raddbeitingHljóðfæranotkunLestur og ritunHreyfingHlustun og sköpunMikil áhersla verður lögð á virka hlustun, upplifun og skilning á fjölbreyttri tónlist og stöðu hennar og mikilvægi í samfélaginu. Sú þekking sem nemendur öðlast í gegnum þessa vinnu verður svo markvisst notuð í verklegri vinnu, t.d. á hljóðfæri, í söng og hreyfingu.

NámsefniÞað er gaman að hlusta á kvikmyndatónlist, kennslubók, hlustunarefni, myndband og skrifleg verkefniHljóðsporÞað var lagiðÝmsar söngbækurFjölbreytt úrval hljómdiskaFjölrituð verkefni úr ýmsum áttum frá kennara

NámsmatSímat á ástundun, virkni, samvinnu og frumkvæði, ásamt skriflegum og munnlegum verkefnum.

Page 77: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

75Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

7. bekkur Íslenska

5 kennslustundir á viku Meginmarkmið:

• að nemendur geti lesið og ritað texta sér til gagns og ánægju.• að máltilfinning þeirra þroskist og þekking þeirra á málinu aukist.• að nemendur þjálfist í að hlusta á aðra og geti tjáð skoðanir sínar, hugmyndir og tilfinningar

á skýru og góðu máli, töluðu og rituðu.

BókmenntirMarkmið

• að nemendur auki lestrarhæfni, orðaforða og lesskilning.• að nemendur læri að lesa með áherslum.• að nemendur læri að lesa sér til gagns og ánægju.• að nemendur öðlist færni til að meta og skilja innihald texta.• að nemendur efli lestrargleðina.• að nemendur fái innsýn í margvísleg bókmenntaverk, innlend sem erlend.• að nemendur þjálfist í gerð bókmenntaritgerða.• að nemendur læri að gera persónulýsingar.• að nemendur læri að gera útdrátt.• að nemendur geri sér grein fyrir aðalatriðum í texta.• að nemendur þjálfist í orðabókanotkun og sögugreiningu.• að nemendur lesi ólíka texta.• að nemendur geti notið þess að hlusta á frásagnir og upplestur.

NámsþættirBókmenntatextar af ýmsum toga, skrifleg og munnleg verkefni.Áhersla lögð á frjálsan lestur. Þjálfun í upplestri og framsögn. Uppbygging texta.

NámsefniGrænkápa.Benjamín dúfa og verkefnahefti. Vinnublöð unnin. Sveinn i djúpum dali – um Jónas Hallgrímsson

Stafsetning/ritunMarkmið

• að nemendur geti skrifað réttan texta.• að nemendur öðlist færni í að beita stafsetningarreglum.• að nemendur þjálfist í að nota orðabækur og önnur hjálpargögn við ritun.• að nemendur geti dregið út aðalatriði og endursagt efni.• Öðlist öryggi við að tjá hugmyndir sínar og reynslu.

NámsþættirUpprifjun á reglum. Reglur um j, g, gs, ks, x, f, v, hv og kv. Eitt orð eða tvö.

Page 78: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

76 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Ýmis ritunarverkefni frá kennara.

NámsefniStafsetning Á.Þ. og G.G. Mál er miðill, grunnbók og verkefnabók. Ljósrit og Finnbjörg.

MóðurmálMarkmið

• að nemendur geri sér grein fyrir málnotkun sinni og kynnist margbreytileika móðurmálsins.

• að nemendur auðgi málfar sitt, máltilfinningu og málskilning.• að nemendur læri ýmis hugtök sem auðvelda þeim að fjalla um og nota móðurmálið.• að nemendur geti greint fallorð og sagnorð og þjálfist í fallbeygingu.• að nemendur fái innsýn í setningafræði.• að nemendur tengi málfræði öðrum þáttum móðurmálsins.• að nemendur þekki stofn nafnorða, sagnorða og lýsingarorða og geti nýtt sér reglurnar.• að nemandur skilji að málfræðiþekking nýtist í tungumálanámi.• að nemendur geti flett upp í og notað orðabækur. • að nemendur geri sér grein fyrir mismunandi hlutverki orða í texta.

NámsþættirNafnorð, lýsingarorð, sagnorð, stofn orða, persónufornöfn, spurnarfornöfn, beygingarfræði, setningafræði, málshættir, orðtök, margræðni. Fjallað um uppbyggingu og fjölbreytileika móðurmálsins. Nemendur kynnast málkerfinu á skipulegan hátt. Þá verða unnin margvísleg verkefni til að þjálfa málnotkun.

NámsefniMálrækt 3. hefti. Skrudda og vinnuhefti I og II. Ljósrituð verkefni úr Móðurmál 3. hefti eftir Á. S. Dagblaðaverkefni. Finnbjörg, Verkefni með Réttritunarbókinni.

LjóðMarkmið

• að nemendur kynnist mismunandi ljóðformum.• að nemendur læri að lesa og skilja ljóð sér til gagns og ánægju.• að nemendur læri að meta ljóð og mikilvægi þeirra.• að nemendur kynnist völdum skáldum og verkum þeirra.• að nemendur læri valin ljóð utanbókar.• að nemendur þjálfist í eigin ljóðagerð.

NámsþættirUnnið með mismunandi form og einkenni ljóða s.s. rím, ljóðstafi og líkingar, persónugervinga og andstæður. Flutningur þjálfaður á lærðum og frumsömdum ljóðum. Ljóðaskýringar og höfundar kynntir.

NámsefniLjóðspor og ýmis önnur ljóð úr fórum kennara.

SkriftMarkmið

• að nemendur þjálfist í pennaskrift.

Page 79: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

77Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemendur vandi frágang og uppsetningu.• að nemendur þrói með sér læsilega og hraða rithönd.

NámsþættirPennaskrift, uppsetning og vönduð vinnubrögð.

NámsefniSkrift 7. Æfingatextar af blöðum og bókum. Uppsetning ljóða á vinnublöð.

KennslutilhögunFyrirlestrar, sýnikennsla, myndmiðlar, hlustunarefni, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, yfirferð námsefnis, námsleikir, þjálfunarforrit, samræða, spurnaraðferðir, umræðuhópar, leikræn tjáning, myndræn tjáning, hreyfing, ritun, hópvinna og þemanám.

NámsmatStöðugt eftirlit er með vinnu nemenda, eftirtekt, skilningi, færni og áhuga. Verkefni og próf eru notuð til að meta stöðu nemendanna og eru þau lögð fyrir eftir að ákveðnir námsþættir hafa verið kláraðir. Í lok annar er svo lagt fyrir próf sem gildir hluta af annareinkunn og um leið eru vinnubækur metnar.

Stærðfræði6 kennslustundir á viku Markmið

• að nemendur fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• að nemendur nái það góðum tökum á völdum sviðum stærðfræðinnar að hún nýtist þeim

í daglegu líf.• að nemendur temji sér nákvæm vinnubrögð í stærðfræði.• að nemendur æfist í að tala um stærðfræðileg viðfangsefni á skipulegan hátt.• að nemendur þjálfist í rökhugsun og tjáskiptum við stærðfræðiúrlausnir.• að nemendur byggi ofan á áður lærða efnisþætti og tileinki sér námsefni vetrarins með

reglubundinni þjálfun.

NámsþættirReikningur TalnafræðiAlgebraTölfræðiRúmfræði og mælingarBrot Nánari upplýsingar má finna í Náms- og kennsluáætlun sem nemendum hefur verið fengin.

NámsefniGeisli 3 grunnbók ásamt vinnuhefti 3A og 3B. Námsbókaröðin Hringur3 Þemaheftin Rökþrautir og Jöklar. Neptúnuns og Plútó.Stærðfræðiþrautir og leikir til þjálfunar.

NámsmatNámsmat fer fram nokkrum sinnum yfir skólaárið eftir hvern efnisþátt, verður það í formi prófa,

Page 80: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

78 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

verkefna, kynninga eða þess háttar. Símat og sjálfsmat verður á almennri vinnu nemenda. Á miðsvetrarprófi er prófað úr námsþáttum haustannar og á vorprófi er prófað úr námsþáttum vorannar.

KennslutilhögunLögð er áhersla á að efla ábyrgð nemendanna með því að hvetja þá til að beita sjálfstæðum vinnubrögðum, setja sér markmið og meta eigin framvindu og árangur. Unnið er með viðfangsefni grunnbóka á fjölbreyttan hátt á grundvelli getu einstaklingsins. Lögð er áhersla á skilning á stærðfræðinni og að nemendur séu vakandi fyrir því að þroska þann skilning. Nemendur eru hvattir til að temja sér að nota sérhver stærðfræðigögn sem koma geti að gagni, svo sem vasareikni, brotaspjöld og kennslupeninga.

HeimanámNemendur setja vikuleg markmið. Ákveðnar verkefnabækur eru unnar og markmiðin skráð í náms- og kennsluáætlun (sem á alltaf að vera í skólatösku). Heimavinnu er skilað einu sinni í viku á ákveðnum degi.

Enska4 kennslustundir á vikuLögð er áhersla á að nemendur skilji einfalt mál, bæði talað og ritað. Þeir þjálfist í að hlusta áhljómsnældur og æfist í að tjá sig

Markmið• að nemendur geti skilið einfalt talmál og tjáð sig á því.• að nemendur geti lesið sér til gagns og skemmtunar.• að nemendur geti skrifað einfaldan texta nokkuð rétt.• að nemendur læri að glósa á skipulagðan hátt.

NámsþættirHugtök úr nánasta umhverfi, litir, fatnaður og fl., tölur, ákveðinn og óákveðinn greinir nafnorða, eintala og fleirtala nafnorða, persónufornöfn, spurnarfornöfn, tíðir sagna og fl.

NámsefniBuild up 2 - Málfræði C, True stories. Lesskilningsverkefni Nice and Easy, Ritunarverkefni (PP) Ýmislegt efni til að þjálfa og auka hæfni nemenda í ensku.

KennslutilhögunÞegar kenndar eru tvær kennslustundir saman er sú fyrri notuð í kennslubókina og sett verður fyrir í henni í lok tímans. Seinni tíminn mun fara í að þjálfa færniþættina fjóra (hlustun, lesskilning, tal og ritun) og verður þá stundum kennt í hringekju eða hópaformi. Bein kennsla, hlustun, hópvinna, ritun, samræður og vinnubókarkennsla.

HeimanámLestur, ritun og vinnublöð.

NámsmatVið námsmat leggur kennarinn áherslu á að nemendurnir hafi tileinkað sér það sem kennt hefur verið um veturinn. Einkunnir byggjast ekki eingöngu á einstökum prófum (75%-85%)heldur einnig heimavinnu og frammistöðu nemenda í kennslutímum(15%-25%) . Í lok skólaárs fá nemendur vetrareinkunn sem er heildareinkunn fyrir allan veturinn.

Page 81: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

79Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Danska4 kennslustundir á viku Markmið

• Að nemendur skilji einfalt talmál og geti tjáð sig á því.• Að nemendur lesi sér til gagns og skemmtunar.• Að nemendur geti skrifað einfaldan texta nokkuð rétt.• Að nemendur læri að glósa á skipulagðan hátt.

NámsþættirLögð er áhersla á hlustun, tal, orðaleiki og lestur smásagna. Orðabækur notaðar í tengslum við ný orð og nemendum kennt að glósa. Nemendur tileinki sér orðaforða er tengist daglegu lífi fólks og þáttum sem snerta nemendurna sjálfa. Helstu viðfangsefni eru allt það sem er í nánasta umhverfi nemandans t.d. fjölskylda og heimili.

NámsefniJeg taler dansk - verkefnablöð.Klar Parat ásamt vinnubók og verkefnum.Verkefni frá kennara

HeimanámHeimanám verður í dönsku þegar líða tekur á veturinn. Kennari leggur ríka áherslu á að því sé sinnt. Nemendur vinna 3-4 hefti heima sem þeir svo skila til kennara.

KennslutilhögunMyndmiðlar, hlustunarefni, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, yfirferð námsefnis, námsleikir, þjálfunarforrit, samræða, spurnaraðferðir, umræðuhópar, leikræn tjáning, myndræn tjáning, hreyfing, ritun, hópvinna og þemanám.

NámsmatVið námsmat leggur kennarinn áherslu á að nemendurnir hafi tileinkað sér það sem kennt hefur verið um veturinn. Einkunnir byggjast ekki eingöngu á einstökum prófum (75%-85%)heldur einnig heimavinnu og frammistöðu nemenda í kennslutímum(15%-25%) . Í lok skólaárs fá nemendur vetrareinkunn sem er heildareinkunn fyrir allan veturinn.

Samfélagsfræði3 kennslustundir á vikuÍ samfélagsfræði er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsvinnu og hópvinnu. Auk námsbóka og verkmöppu er stuðst við veraldarvefinn og unnin verkefni í PowerPoint og Publisher. Nemendur eru þjálfaðir í að koma fram og kynna verkefnin sín og eru hvattir til að temja sér vönduð vinnubrögð.

LandafræðiMarkmið

• að nemendur þekki landfræðileg og samfélagsleg hugtök eins og loftslag, gróðurfar, þéttbýli, atvinnuvegir, stjórnarfar.

• að nemendur öðlist færni í að lesa úr kortum og gröfum og öðrum landfræðilegum upplýsingum.

• að nemendur öðlist þekkingu á Evrópu bæði landfræðilega og samfélagslega.• að nemendur æfist í að leita upplýsinga.

Page 82: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

80 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsþættirFjallað um heimsálfurnar sjö þar sem Evrópu er gerð sérstök skil.Farið verður í menningu þjóða, stærð landa, höfuðborgir, atvinnuvegi, veðurfar, íþróttir ofl. Yfirlit um svæði og lönd í Evrópu. Svipmyndir úr sögu Evrópu og þróun álfunnar til okkar daga og litið til framtíðar. Lestur á kort, gröf, töflur o. fl.

NámsefniEvrópa - álfan okkar. Bókin lesin og vinnubók unnin. Verkefnin unnin samhliða í upplýsingamennt. Leitast verður við að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum og heimildaöflun.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni nemenda í tímum, vinnubók, kynningu og kaflaprófum.

Íslandssaga Markmið

• að nemendur fræðist um sögu lands og þjóðar.• að skilningur nemenda á sögulegum arfi eflist.

Námsþættirtímabilið 1300 - 1800, Íslendingar verða þegnar Danakonungs, verslun, siðaskiptin, einokun, Tyrkjaránið, handritin, Reykjavík verður þorp.

NámsefniSjálfstæði Íslendinga 2. hefti og vinnubók. Ein grjóthrúga í hafinu. Lítið eitt um byggð í Reykjavík.

HeimanámNámið fer að mestu leyti fram í skólanum. Heimavinna aðallega fyrir próf.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni nemenda í tímum, vinnubók, kynningu og kaflaprófum.

Kristin-, sið- og trúarbragðafræði1 kennslustund á viku. Markmið

• að nemendur fáist við siðræn viðfangsefni sem tengjast samskiptum, sáttfýsi, fyrirgefningu, minnihlutahópum, einelti og hópþrýstingi

• að nemendurgeri sér ljósa ábyrgð mannsins á náttúrunni, sjálfum sér og náunga sínum• að nemendur geri sér grein fyrir gildi jákvæðra lífsviðhorfa og gildismats sem mikilvægs

þáttar í heilbrigðri sjálfsvitund• að nemendur þjálfist í að ræða siðferðileg gildi og álitamál sem lúta að réttlæti,

mannréttindum og jafnrétti, kjörum flóttamanna og misskiptingu lífsgæða í heiminum þar sem hver einstaklingur er hluti af stærri heild í samfélagi þjóðanna

Page 83: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

81Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemendur temji sér umburðarlyndi og virðingu fyrir ólíkum einstaklingum, kynþáttum og þjóðum í ljósi jafngildis og jafnréttis allra manna

• að nemendur þekki postullegu trúarjátninguna og geri sér grein fyrir því að hún felur í sér grundvallaratriði kristinnar trúar og er sameiginlegur arfur nær allra kristinna kirkjudeilda

• að nemendur fræðist um uppruna, sögu og útbreiðslu búddadóms og hindúasiðar• að nemendur þekki dæmi um helgirit búddadóms og hindúasiðar• að nemendur kynnist trúarjátningu búddatrúarmanna• að nemendur þekki til trúariðkun hindúa og búddhatrúarmanna• að nemendur kynnist öðrum völdum þáttum búddadóms og úr hindúasið, m.a. musterum,

klaustrum, helgistöðum, táknum, hátíðum og siðum• að nemendur hafi þekkingu á uppruna, sögu, inntaki, helgisiðum, helgistöðum, helgiritum,

táknum, hátíðum, guðshúsum og útbreiðslu helstu trúarbragða heims þ.e. kristindóms, gyðingdóms, íslams, hindúasiðar og búddadóms

• að nemendur nái nokkru valdi á að bera saman meginatriði ólíkra trúarbragða, svo sem sögu, guðshugmyndir, tilveruskilning, mannskilning, frelsunarleiðir, hugmyndir um dauðann, helgirit, helgisiði og siðgæði

( Aðalnámskrá grunnskóla, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði 2007:15-17).

NámsefniBúddhatrú – leiðin til nirvana, Hindúatrú – Guð í mörgum myndum, Kristintrú – Fagnaðarerindið, Ljós heimsins og verkefnablöð.

NámsmatFormleg einkunn er gefin og tekur hún mið af virkni og félagsfærni nemenda í tímum, heimavinnu, verkefnum, vinnubókum, og prófum.

KennslutilhögunHlustun, umræður, verkefnavinna, hópavinna, skoðun myndbanda, tölvuvinnsla, upplýsingaleit, leikræn tjáning og söngur.

HeimanámNemendur lesa reglulega heima í námsbókunum og vinna verkefnablöð.

Náttúruvísindi Lífvísindi

Markmið• að nemendur læri um mannslíkamann, einkum gerð og starfsemi líffærakerfanna og

samspil þeirra.• Að nemendur fái t.d. innsýn í ferli getnaðar, fæðingar, bernsku, kynþroska og öldrun.

NámsþættirMannslíkaminn innri og ytri gerð, skynfæri, æxlun, kynþroskaskeið, getnaðarvarnir, fíkniefni og áhrif þeirra og öldrun.

NámsefniLíkami mannsins, vinnubók og verkefni frá kennara.

Page 84: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

82 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Eðlisvísindi:Markmið

• Að nemendur öðlist þekkingu á nokkrum af grunnhugtökum eðlis- og efnafræðinnar, sbr. frumeind, sameind, varmi, orka.

• Að nemendur þjálfist í að beita aðferðum og vinnubrögðum með því að skoða, lýsa, mæla,vega, greina og flokka.

• Að nemendur temji sér vönduð vinnubrögð.

NámsþættirFjallað verður um byggingareiningar alheims, varma, hamskipti, hitaþenslu og leysni, orku og orkunotkun, haf, vatnsföll og jökla.

NámsefniAuðvitað 3 og verkefni frá kennara.

KennslutilhögunÍ kennslustundum er farið yfir efni bókanna og ætlast til að nemendur skrifi hjá sér helstu áhersluatriði. Nemendur gera nokkrar tilraunir/æfingar auk þess sem sýnitilraunir eru gerðar. Að auki eru ýmis skrifleg verkefni unnin. Öllum verkefnum og glósum eiga nemendur að halda til haga í möppu. Notast er við kennslumynd-bönd eftir því sem við á.

KennsluaðferðirBein kennsla, fyrirlestrar, sýnikennsla, umræður, verklegar æfingar, fræðslumyndir.

HeimavinnaFrekar stöðug heimavinna sem einkennist af lestri námsbókar og að svara spurningum úr textanum.

NámsmatNámsmatið byggir á símati þar sem kennari fylgist með stöðu og framförum nemenda. Námsmatið á við frágang, vinnusemi, vandvirkni, virkni, félagsfærni og þekkingu. Formleg einkunn er gefin og tekur hún mið af ástundun nemenda í tímum, kynningum, veggspjöldum, vinnubókum, heimavinnu og prófum.

Upplýsingamennt2 kennslustundir á vikuUnnið er samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla í Upplýsinga- og tæknimennt. Upplýsingamennt er þverfagleg námsgrein að því leyti að áhersla er lögð á að kenna og leiðbeina nemendum við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við annað nám nemenda. Náið samstarf er á milli kennara í tölvuveri og bókasafnsfræðings.

NámsmatSímat byggt á vinnu nemenda og virkni í tímum.

KennslutilhögunVinna í tölvuveri undir leiðsögn kennara. Nemendur vinna síðan verkefni fyrir áramót þar sem bókasafn og heimildaleit er stór partur. Verkefnið byggir á margmiðlun og eiga nemendur að setja verkefnið fram með sem fjölbreyttustum hætti, má þar nefna myndskeið, ljósmyndir, hljóð og texti. Eftir áramót verður áherslan lögð á ritvinnsluforritið Word. Áhersla verður lögð á uppbyggingu ritgerðar, tengsl mynda og texta o.s.frv.

Page 85: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

83Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniMicrosoft power point, Windows movie maker og Microsoft Word.

TæknilæsiNemendur:

• læri grunnatriði í meðferð og notkun tölvu• kynnist Internetinu og þjálfist í notkun þess við heimildaöflun• þekki helstu leitarmöguleika á netinu• haldi áfram að þjálfast í réttri fingrasetningu• geti ritað einfaldan texta og skeytt myndum inn í textann (Word)• kunni að búa til möppur og nota möppur í tölvum• kunni að vista skjöl og ná í vistuð skjöl• noti glærugerðarforrit (Powerpoint) í tengslum við kynningu á námsefni

SkólasafnMarkmið:

• Nemendur kunni að nota bókasöfn. Geti leitað að gögnum á safninu.• Nemendur séu nokkuð færir um að finna heimildir jafnt á safninu sem af netinu.

Inntak námsUpprifjun á reglum og umgengni á safninu. Heimildaleit bæði á safninu og á netinu. Nemendum kennt á leitar- og útlánskerfi safnsins.

Helstu námsgögnKristín Unnsteinsdóttir. 1992. Leitum og finnum á skólasafni I.

NámsþættirUpplýsingavinnsla, samfélagsfræði, íslenska og einföld margmiðlun.

Myndmennt2 kennslustundir á viku hálfan veturinnMarkmið

• að nemendur þroski hæfileika sína til að túlka eigin hugmyndir í myndum.• að nemendur fái að kynnast mismunandi aðferðum og vinnubrögðum.• að nemendur fái fræðslu um myndlistasöguna.• að nemendur kynnist myndbyggingu og myndtáknum.• að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi mynd- og handverks í daglegu lífi.• að nemendur kynnist fjarvídd.

NámsþættirRifjuð upp lit- og formfræði. Byrjað á línuæfingum, einföldum fjarvíddarteikningum og athugun á ljósi og skugga. Grafíktækni kynnt og unnið með ýmsa þætti hennar s.s. dúkþrykk. Leirvinnsla og brennsla.

NámsmatValin myndverk/verkefni metin. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Page 86: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

84 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Lífsleikni½-1 kennslustund á vikuMarkmið

• að nemendur velti fyrir sér ýmsum hliðum þess að breytast úr barni í ungling• að nemendur viti af hættum samfara neyslu tóbaks og áfengis• að nemendur geri sér grein fyrir að mannréttindi eru leikreglur í samfélagi einstaklinga og

þjóða til að tryggja jafnan rétt• að nemendur skoði samskipti undir mismunandi aðstæðum• að nemendur geti greint jákvæðan áróður frá neikvæðum í auglýsingum og umhverfi• að nemendur geti lagt mat á fréttaflutning um málefni barna og unglinga

NámsþættirSamskipti, tóbaksvarnir, áróður og áhrif fjölmiðla.

NámsefniÍ sátt og samlyndiReyklaus – að sjálfsögðuAllir geta eitthvað, enginn getur allt

NámsmatFormleg einkunn er ekki gefin en færni nemenda til að tjá sig og þátttaka þeirra í umræðum og annarri gefin gaumur.

KennslutilhögunMyndmiðlar, hlustunarefni, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, námsleikir, umræðuhópar, leikræn tjáning, myndræn tjáning, hreyfing, ritun og hópvinna .

HeimanámEkkert heimanám er í lífsleikni.

Íþróttir2 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek.• að nemendur efli hæfileika sína til tjáningar og sköpunar.• að nemendur taki þátt í leikjum og æfingum sem efla líkamsþol, hraða, viðbragð og kraft.• að nemendur skilji mikilvægi reglubundinnar líkamsræktar og finni til þess leiðir við sitt

hæfi.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að nemendur fræðist um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd.

Námsþættir/námsefni• Læra að bera virðingu fyrir þörfum annarra• Læra að bera virðingu fyrir mismunandi getu félaga sinna.• Nemendur taka þátt í samstarfsverkefnum s.s. íþróttasýningum og íþróttamótum.• Nemendur taka þátt í umræðu um svefn og hvíldarþörf, mikilvægi hreyfingar og hollt

mataræði.

Page 87: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

85Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Nemendur þjálfast í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, blak, hafnarbolta og bandy.

• Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reipitog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir, brennó, kilo, Tarsanleikur og hanaslagur.

• Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup, jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu, litlir kolhnísar og stórir kolhnísar.

• Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.• Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.• Sund: Bringusund, baksund, skriðsund, björgunarsund, kafsund og stunga

NámsmatÍ íþróttum fer námsmat fram með þrennum hætti:20 % A: Hlutlægt mat þar sem árangur nemenda er mældur t.d. með málbandi eða skeiðklukku.30 % B: Huglægt mat. Kennarinn metur færni nemenda í ákveðnum íþróttum þar sem mælingum verður ekki komið við með öðrum hætti t.d. boltaleikjum, leikjum og æfingum ýmis konar.50 % C: Ástundun, áhugi, virkni, samvinna og framkoma í kennlustundum.

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• læri að hreinlæti er forsenda allrar matreiðslu• tileinki sér gildi hollra lífshátta• tileinki sér tillitssemi og kurteisi í allri samvinnu• viti í hvaða röð best er að vinna verkin• viti hvenær feiti er hæfilega heit til steikingar• viti mun á lyftiefnum• viti mun á hrærðu, hnoðuðu og þeyttu degi og hvenær kakan er bökuð

Inntak námsNemendur læra:

• grunnaðferðir í matreiðslu algengra fæðutegunda• um orkuefnin og vítamínin í fæðunni• um hollar matarvenjur að borða reglulega • borðsiði og almenna kurteisi• þrif, uppþvott og frágang í eldhúsi• grunnatriði í vöruþekkingu• um fæðuflokkana og fæðupýramídann• um meðferð og geymslu matvæla• um krydd og bragðefni

NámsgögnGott og gagnlegt 3, kennslubók sem gefin er út fyrir 7. bekk með verkefnum og uppskriftum. Uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar .

Page 88: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

86 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Verklýsingar í byrjun hvers tíma.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 7. bekk. Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.

Hönnun/ smíðar2 kennslustundir á viku hálfan veturinn.

Markmið / NámsþættirAllir þættir fyrri ára eru nú á takteinum og eru nemendur færir um að tjá skoðanir sínar um hluti, hönnun þeirra efni og annað sem tengist tilurð hluta og umhverfis.Þáttaskil eru nú í efnisvali þar sem málmur er aðalefni vetrarins. Teikningar í hlutföllum 1:1 og fríhendis teikning hluta. Hönnun og útleit skartgripa og annarra skrautmuna í umhverfi okkar rædd. Silfur er jafnvel efni sem notað verður. Listmunir og uppstillingar til yndis en ekki nauðsynlegs gagns ræddir og gerðar prufur. Verkefni reyna því meira á nákvæmni en nokkru sinni fyrr. Kennd verður rafsuða fyrir þá sem óska þess. Öryggi og varfærni við vinnu skoðuð og rædd.

KennsluaðferðirMálmar og önnur efni kynnt og talað um möguleika þeirra.Hönnun hluta gerð góð skil, teikningar og skipulag verka tekið fyrir.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt 2 stundir á viku hálfan veturinnMarkmið

• að nemendur þjálfist í hagnýtum vinnubrögðum.• að nemendur kynnist algengum vinnubrögðum sem haldist hafa með þjóðinni en lagi þau

jafnframt að kröfum nútímans.• að nemendur temji sér góða umgengni og fari vel með áhöld og tæki.• að nemendur vinni sjálfstætt að sínum verkefnum, allt frá hönnun að lokafrágangi.

NámsþættirÚtsaumur: krosssaumur eða gömul þjóðleg útsaumsspor, unnið eftir tilbúnum munstrum eða eigin teikningum og hugmyndum.Vélsaumur: nemendur fái góða þjálfun í að þræða saumavélina, spóla og breyta um sporgerðir.Kennt að búa til hnappagöt í saumavél, festa tölur bæði í vél og í höndum og að sauma rennilás.Nemendur fá þjálfun í að taka mál, ákveða stærðir og sníða fatnað.Nemendur eiga kost á meiri þjálfun í prjóni og hekli eftir getu og áhuga hvers og eins.

Page 89: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

87Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniBækur: Hannyrðir í 3.- 6. bekk og Á prjónunum.

KennsluaðferðirKynning, verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum, en þegar unnið er með útsaum, prjón, eða hekl geta nemendur einnig unnið heima.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Page 90: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

88 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

8. bekkurÍslenska

6 kennslustundir á vikuMeginmarkmiðStefnt að því að nemandi geti:

• fengið ríkuleg tækifæri til að leika sér með tungumálið á fjölbreyttan hátt, t.d., ýmiss konar orða- og málleikjum og spuna

• þekki flestar stafsetningarreglur og hafi náð nokkurri færni í greinarmerkjasetningu• skrifað skilmerkilega um eigin reynslu, hugsanir og tilfinningar• skrifað sögur og ljóð og notað myndmál, málshætti og orðtök þar sem við á• geti byggt upp texta á viðeigandi hátt• þjálfist í að beita mismunandi stíl í rituðu máli með tilliti til viðtakanda og efnis• auki orðaforða sinn og lesskilning og efli málskilning með margvíslegum lestrarverkefnum

í skóla og á heimili • kynnist málfræðiatriðum sem koma við sögu t.d. við notkun orðabóka, handbóka,

gagnasafna og námsefnis• geti tjáð sig frjálslega frammi fyrir skólafélögum sínum og öðrum hópum, t.d. við kynningu

á hópverkefnum• þjálfist í samræðum í litlum hópum um tiltekin málefni.

Íslenskunni eru ætlaðar 6 kennslustundir á viku og verður hér skipt í fjögur meginsvið:

Talað mál og framsögnMarkmið

• geta tjáð sig frjálslega frammi fyrir skólafélögum sínum, t.d. á fundum eða samkomum• til að auka hæfni sína í munnlegri tjáningu munu nemendur taka þátt í umræðum, lesa upp

bundið og óbundið mál og halda stutta fyrirlestra• Áhersla verður lögð á að nemendur tileinki sér skýran og eðlilegan framburð og áherslur.

Kennari leggur mikla áherslu á þennan þátt íslenskunnar.

NámsþættirUnnið með mismunandi form upplesturs, ýmist í formi spuna, tækifærisræðna, undirbúins fyrirlesturs eða annað sem reynir á hæfni nemenda í framsögn

NámsefniMálbjörg, glærur og ljósrit frá kennara

HeimanámNemendur undirbúa sig heima og flytja ólík verkefni munnlega í tíma.

Lestur og bókmenntir/ljóðMarkmið

• kynnist heimi Íslendingasagna með því að lesa og ræða um stutta Íslendingasögu eða Íslendingaþátt

• geti fjallað um form og byggingu ljóða og notað til þess hugtökin rím, stuðlar, braglína, hrynjandi og endurtekning

• þekki og geti fjallað um mismunandi gerðir myndmáls; bein mynd, líking, persónugerving

Page 91: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

89Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

og myndhverfing • skoði mismunandi stíl og stílbrögð bókmenntaverka

NámsþættirNemendur lesa valdar sögur úr Mályrkju og vinna ýmis verkefni tengd sögunum, s.s. upptökuverkefni, framsögn og fleira. Nemendur lesa Gunnlaugssögu og vinna verkefni tengt henni í vinnubækur. Nemendur læra hugtök á borð við rím, ljóðstafi, ferskeytlu o.fl

NámsefniGrundvallarlesefni verður eftirfarandi:A. Mályrkja I eftir Þórunni Blöndal.B. GunnlaugssagaC. Baulaðu nú, þjóðsögur teknar saman af Baldri HafstaðD. Bragfræði eftir Ragnar AðalsteinssonE. Efni frá kennara

HeimanámNemendur lesa heima og svara spurningum úr efninu auk þess sem þeir þurfa að kljást við ýmis bókmenntahugtök

Stafsetning og ritunMarkmið

• að þjálfa nemendur í að mynda sér rökstudda skoðun um tiltekið efni eða álitamál. Munu þeir rita um ákveðin viðfangsefni úr daglegu lífi svo sem atburðalýsingar, persónulýsingar, hlut- eða verklýsingar og sjálfvalin efni.

• Einnig skila nemendur ritgerðum nokkrum sinnum yfir veturinn í samráði við kennara. • nái valdi á stafsetningu og þekki flestar reglur um greinarmerkjasetningu• nái tökum á eðlilegri byggingu ritaðs máls

NámsþættirLögð verður áhersla á skýra og læsilega rithönd. Reglur verða skoðaðar í Skriffinn en einnig vinna nemendur stafsetningarverkefni frá kennara og úr Finni 1Áhersla lögð á þjálfun í réttritun og greinarmerkjasetningu með fjölbreyttum æfingum.

NámsefniA. Skriffinnur e. Svanhildi Kr. SverrisdótturB. Finnur 1 e.Svanhildi Kr. SverrisdótturC. Ljósrit frá kennara

HeimanámNemendur vinna stafsetningaæfingar heima og í skóla

MálfræðiMálfræðinni er ætlað að stuðla að betri málvitund, málrækt og málvöndun. Auk þess sem góð málfræði þekking nýtist vel í erlendu tungumálanámi.

Markmið• þekki helstu beygingaratriði fallorða og sagnorða, átti sig á því hvað er reglulegt og hvað

óreglulegt og geti nýtt sér þá þekkingu, t.d. í tengslum við leiðbeiningar um málfar og stafsetningu

Page 92: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

90 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• kannist við helstu hugtök í tengslum við orðmyndun, stofn, forskeyti, viðskeyti og beygingarendingu, og geti nýtt sér þau við stafsetningu og orðmyndun

• þekki og geti útskýrt mun orðtaka og málshátta og öðlist áhuga á að nota málshætti og orðtök við sem flest tækifæri

• öðlist áhuga á að vanda mál sitt sem best og láta það hæfa aðstæðum hverju sinni • öðlist trú á eigin málkunnáttu og málhæfni

NámsþættirLögð verður áhersla á orðflokka og eðli þeirra og setningarfræði. Í Finni 1 eru ólík verkefni sem krefjast víðrar kunnáttu í málfræði og reynir á ólík svið málfræðinnar.

NámsefniA. Finnur 1 e. Svanhildi Kr. SverridsótturB. Málfinnur e. Svanhildi Kr. SverrisdótturC. Orðhákur 1 e. Magnús Jón ÁrnasonD. Fallorð e. Magnús Jón ÁrnasonD. Ljósritað efni frá kennara og af Málbjörgu

HeimanámNemendur vinna verkefni heima og tímum.Þetta er engan veginn tæmandi lýsing á öllum þáttum íslenskukennslu í 8. bekk. Má þar til nefna bókasafnið, margs konar efni úr hugmyndabanka skólans og tengsl við aðrar námsgreinar o.fl.

KennslutilhögunFyrirlestrar, sýnikennsla,myndmiðlar, hlustunarefni, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, yfirferð námsefnis, námsleikir, þjáflunarforrit, samræða, spurnaraðferðir, umræðuhópar, leikræn tjáning, myndræn tjáning, hreyfing, ritun, hópvinna og þemanám

NámsmatNámsmat verður byggt bæði á munnlegri og skriflegri færni nemenda og einkunnir í lok anna verða byggðar á heimavinnu, ástundun í kennslustundum, vinnubókum og verkefnum ásamt prófum. Viðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Stærðfræði6 kennslustundir á viku MeginmarkmiðÍ Aðalnámskrá grunnskóla eru meginmarkmið kennslu í stærðfræði þau að nemendur:

Page 93: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

91Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• fáist við stærðfræðileg hugtök og læri að nota táknmál stærðfræðinnar.• nái það góðum tökum á völdum sviðum stærðfræðinnar að hún nýtist þeim daglegu lífi.• nái þeim tökum á völdum sviðum stærðfræðinnar að á þeim megi byggja áframhaldandi

nám.• temji sér að beita stærðfræði við ný viðfangsefni þegar við á, hvort sem er í dagsins önn eða

fræðilegri viðleitni, og fái þannig tækifæri til að beita ímyndunarafli sínu og frumkvæði.• geri sér grein fyrir að skýr röksemdafærsla og kerfisbundin framsetning er mikilvæg

vinnuaðferð í stærðfræði.• geri sér grein fyrir hve vel stærðfræði getur verið fallin til að lýsa fyrirbærum og athuga

þau. Nemendur læri smám saman að beita stærðfræði í þeim tilgangi.• hafi það viðhorf til stærðfræðinnar að þeir vilji leggja við hana rækt og að hún geti orðið

þeim uppspretta ánægju og vinnugleði. Sjá nánar á vefsíðu Menntmálráðuneytisins http://bella.stjr.is/utgafur AGstaerfraedi.pdf

Námsefni“8 – 10” eftir Guðbjörgu Pálsdóttur og Guðnýju Helgadóttur, “Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla I”. Þýdd og staðfærð úr sænsku af þeim Hildigunni Halldórsdóttur og Sverri Einarssyni, “Töflureiknir notaður”, þemahefti .

NámsþættirTalnareikningur, náttúrulegar tölur, heilar tölur ræðar tölur, frumtölur, hringir og hyrningar, algebra, hlutföll, almenn brot, þrívídd, tugabrot, prósentur, tölfræði, breytingar, brot, líkindi, jöfnur, línurit, hnitakerfi, flutningar, metrakerfið og viðhorf til stærðfræði.

KennslutilhögunBein kennsla þar sem útskýrt er af töflu ásamt uppgötvunarnámi, yfirferð á dæmum, þrautalausnir, þjálfunarforrit, hópverkefni, og umræður. Nemendur setja sér markmið í samráði við kennara, gera áætlun til viku í einu og skila í möppu sem geymd er í stærðfræðistofu. Afrakstur vinnuvikunnar fer síðan í sömu möppu til yfirferðar fyrir kennara. . Kennari ákveður hvenær „eindagi“ kaflaprófa er en nemenda er í sjálfsvald sett að taka kaflaprófið fyrr.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Enska4 kennslustundir á vikuKennsluaðferðirKenndar eru tvær kennslustundir saman. Sú fyrri verður notuð í kennslubókina og sett verður

Page 94: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

92 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

fyrir í henni í lok tímans. Seinni tíminn mun fara í að þjálfa færniþættina fjóra (hlustun, lesskilning, tal og ritun) og verður þá stundum kennt í hringekju eða hópaformi. Bein kennsla, hlustun, hópvinna, ritun, samræður og vinnubókarkennsla.

MeginmarkmiðAð nemendur:

• verði færir um að tala ensku áreynslulaust á skiljanlegu máli við hversdagslegar aðstæður og við lok grunnskóla tali þeir þokkalega rétt mál hiklaust og á viðunandi hraða.

• geti sem hlustendur skilið upplýsingar, hugmyndir og skoðanir enskumælandi manna.• verði færir um að lesa í hljóði fjölbreytilega texta á hæfilegum hraða og skilji bærilega það

sem lesið er.• öðlist leikni í að rita ensku þannig að auðveldlega megi lesa það sem þeir hafa skrifað.• fái undirbúning undir frekara nám í ensku að loknu grunnskólanámi.• fái innsýn í menningu og lifnaðarhætti þeirra þjóða sem hafa ensku að móðurmáli eða

þjóðtungu. þjálfist í að taka virkan þátt í samræðum

NámsefniMikið framboð er af efni til enskukennslu, en þær bækur sem lagðareru til grundvallar hér eru Matrix lestrar- og vinnubók, Go for it, textabók og vinnublöð en að auki er ýmislegt annað efni notað til þess að þjálfa og auka hæfni nemenda í ensku t.d.:More true storiesLesskilningsverkefni SRA 2A og 2BLet’s listen 1 (hlustunarverkefni)Ljósrituð lesskilings- og ritunarverkefniLestrarbækur (með mismunandi þungum texta) sem fást á skólabókasafniRitunarverkefniLjósrituð málfræðiverkefni.

HeimanámHeimanám er nauðsynlegur liður í enskunámi nemendanna og kennari leggur ríka áherslu á að því sé sinnt. Kennarinn hvetur nemendur til að vanda vinnubrögð sín. Nemendur koma reglulega “upp á töflu” og skrifa verkefni sem þeir hafa unnið heima og kennari og nemendur leiðrétta síðan.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Page 95: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

93Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Danska4 kennslustundir á vikuMeginmarkmiðÍ nýrri aðalnámskrá er tekin skýr afstaða til stöðu dönskukennslunnar. Danska er kennd í þeim tilgangi að halda tengslum við öll Norðurlöndin og til að kynnast norrænni menningu. Í vissum tilvikum getur menntamálaráðuneytið heimilað að nemendur leggi stund á norsku eða sænsku í stað dönsku. Sömu kröfur eru þá gerðar um kunnáttu og færni og gerðar eru varðandi dönsku í aðalnámskrá.Markmiðin í 8.-10. bekk beinast að því að nemendur verði færir um að tjá sig í töluðu máli á viðunandi hraða og á þokkalega réttu máli. Lögð verður áhersla á réttar áherslur og réttan framburð sérhljóða. En þótt áherslan liggi alltaf á munnlegri færni þá eykst núna vægi lesskilnings verulega

Markmiðgeti tekið glósur í verkefni sínu

• þjálfist í ritun á dönsku• vinni úr ýmsum heimildum• geti nýtt sér orðabækur• þjálfist í að lesa texta á dönsku

NámsþættirLögð er áhersla á hlustun, lestur og tal. Orðabækur notaðar í tengslum við ný orð og nemendum kennt að glósa. Nemendur tileinki sér orðaforða sem er í tengslum við kennslubókina Tænk en þar er m.a. fjallað ferminguna, hreyfingu, heimilið, frítíma og þau sjálf.

NámsefniSú bók sem lögð er til grundvallar er ný og heitir “Tænk” fylgir henni líka vinnuhefti. Einnig er notuð hlustunarbókin “ Hvad siger du B”.Samhliða þessu er mikið safn alls kyns verkefna í eigu skólans og má t.d. benda á að nemendur fá í hendur krossgátuhefti á vetri og beinist sú þjálfun að því að auka orðaforðann. Við munum líka nýta okkur fartölvukost skólans og vinna ýmis verkefni sem tengjast Danmörku.Einnig verða sýnd myndbönd.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk.Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

HeimanámHeimanám verður í faginu og felst m.a. í undirbúningi fyrir kennslustundir. Kennari leggur ríka áherslu á að því sé sinnt og gengur eftir því. Öll heimavinna nemenda er skráð í Mentor og geta

Page 96: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

94 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

foreldrar fylgst með því þar. Til að byrja með vinna nemendur sameiginlega en eftir því sem líður á verður farið út í einstaklingsmiðað heimanám.

KennslutilhögunKenndar eru tvær kennslustundir saman. Sú fyrri verður notuð í kennslubókina og sett verður fyrir í henni í lok tímans. Seinni tíminn mun fara í að þjálfa færniþættina fjóra (hlustun, lesskilning, tal og ritun) og verður þá stundum kennt í hringekju eða hópaformi. Bein kennsla, hlustun, hópverkefni, ritun, samræðuaðferðir, tölvuvinna, vinnubókarkennsla.

Samfélagsfræði4 kennslustundir á viku

Saga 2 kennslustundir á vikuKennsluaðferðirBein kennsla, fræðslumyndir, fyrirlestrar, heimildarvinna, hópverkefni, námsleikir, spurningar-aðferðir, samvinnunám, umræður, verklegar æfingar, vettvangsferðir, vinnubókarkennsla, yfirferð námsefnis, þrautalausnir.

MarkmiðStefnt skal að því að efla kunnáttu og skilning nemenda á: íslensku nútímasamfélagi, mótun þess og einkennum; á sjálfum sér sem einstaklingum og þegnum í þessu samfélagi.sögu og umhverfi sínu.því að sjálfstæðisbarátta þjóðar er margslungin og hefur áhrif á flesta þætti þjóðlífsins og gagnkvæmt.því hvaða aðstæður mótuðu atvinnulíf og lífshætti Íslendinga fyrr á öldum.

NámsefniTil að ná fyrrgreindum markmiðum verður stuðst við eftirfarandi bækur:Sjálfstæði Íslendinga 3 eftir Gunnar Karlsson.Í fullorðinna tölu.Myndbönd sem tiltæk eru og falla að námsefninu verða notuð og jafnvel farið í vettvangsferðir.Reynt verður að hafa kennsluaðferðir fjölbreyttar, ýmist hefðbundna bekkjarkennslu eða einstaklings- og hópvinnu í samvinnu við skólasafnskennara.

Landafræði: 2 kennslustundir á vikuKennsluaðferðirFjölbreyttar kennsluaðferðir með einstaklingsmiðað nám í fyrirrúmi eftir því sem mögulegt er.Hópvinna og einstaklingsvinna.

MarkmiðAð nemandi:

• læri að bera saman ólík svæði í heiminum út frá upplýsingum af kortum og hvaða þættir hafi áhrif á lífsskilyrði folks

• skilji hvernig náttúrufar hefur áhrif á athafnir fólks og hvernig mismunandi menningarleg gildi, trúarleg viðhorf, tæknileg , efnahagsleg og pólitísk kerfi geta mótað umhverfið á ólíka vegu

• öðlist yfirlit yfir heiminn, jafnt þætti náttúrufars og menningarleg einkenni, geti borið saman ýmis einkenni heimsálfnanna, hvað sé líkt og ólíkt

Page 97: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

95Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• kynnist vandamálum fólksfjölgunar og ójafnrar dreifingar mannfjöldans þar með talið vaxandi borgarvæðingu

• kynnist meginþáttum efnahagslífs þjóða, tengslum þess við nýtingu náttúruauðlinda

NámsmatNámsmat fer fram að hluta til jafnóðum miðað við öll meginmarkmið námsins og einnig með skriflegum verkefnum og prófum.

Náttúruvísindi Náttúruvísindi greinast í þrjú meginsvið: eðlisvísindi, jarðvísindi og lífvísindi.

Áfangamarkmið við lok 10. bekkjarAð nemandinn:

• geti tengt skilning og vinnubrögð úr náttúrufræðinámi við önnur verkefni í ýmsum greinumí skólanum og í daglegu lífi.

• sýni áhuga og frumkvæði við öflun þekkingar.• öðlist færni og sjálfsöryggi við að leysa fjölbreytt verkefni með eða án ítarlegra

leiðbeininga.• geti fjallað um sameiginlega þætti ólíkra námsgreina.• sýni vilja til að leita eftir og deila upplýsingum og skýringum með öðrum og sýni skilning á

að slíkt er ein af forsendum vísindaframfara.• átti sig á að útskýringar séu aldrei endanlegar og að ekki er hægt að sanna þær svo óyggjandi

sé.• geri sér grein fyrir tilgátusmíð og kenningum sem skipulegri starfsemi vísinda.• skilji mikilvægi þess að mælingar séu áreiðanlegar og nákvæmar• geti útskýrt með dæmum hvernig þekking á náttúrunni hefur þróast.• geri sér grein fyrir hvernig náttúruvísindi hafa í senn áhrif á og verða fyrir áhrifum af

menningu og heimsmynd mannsins.• geti fjallað um gagnkvæm áhrif tækni og vísindalegra framfara• geti metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað• sýni áhuga og ábyrgð á umhverfinu og því að dýpka og styrkja þekkingu sína á því eftirýmsum

leiðum• geti fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdra umhverfismálum í

heimabyggð, umhverfisvernd og nýtingu náttúruauðlinda, tilraunastarfsemi á mönnum og dýrum og annarri nýtingu á vísindalegri þekkingu.

• geri sér grein fyrir mikilvægi sjálfbærrar þróunar fyrir samfélagið• geri sér grein fyrir að maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans og framtíð byggist

á gagnkvæmri ábyrgð og virðingu í samspilinu við móður jörð.

ÞrepamarkmiðÚr eðlisvísindumAð nemandinn:

• geti borið saman og fjallað um muninn á hugtökunum massi og þyngd efna m.t.t. þyngdarkrafts á jörðinni og tunglinu

• kunni að finna rúmmál óreglulegs hlutar og þekki tengsl millilítra og rúmsentimetra.

Page 98: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

96 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geti fundið eðlismassa mismunandi efna• átti sig á að hægt er að greina óþekkt efni með því að finna bræðslu- og suðumark þess.• þekki hvernig frumeindir eru gerðar úr rafeindum, róteindum og nifteindum og geti

skilgreint hugtökin sætistala, massatala og samsæta.• geti unnið með lotukerfið og skilji að frumefnin raðast eftir eiginleikum sínum og fjölda

róteinda.• geri sér grein fyrir hvernig frumeindir geta tengst saman og myndað sameindir sem ýmist

eru frumefni eða efnasambönd.• geti skrifað, stillt og staðfest einfaldar efnajöfnur.• geti sýnt fram á að vatn klofnar í frumefni sín við rafgreiningu.• hafi kynnst eiginleikum mikilvægustu lofttegundanna, þekki efnasamsetningu.• lofthjúpsins og hugtökin ósonlag og gróðurhúsaáhrif.• þekki frumefnatákn og heiti þrjátíu frumefna (sbr. Súrefnis, vetnis, niturs o.fl.).

Úr lífvísindumAð nemandinn:

• nái valdi á beitingu ýmissa grunnhugtaka varðandi efnaskipti, vöxt, æxlun, þroskun og hreyfingu.

• geti lýst sameiginlegum einkennum lífvera.• geti lýst orkuþörf lífvera og hvernig þær verða sér úti um orku.• geti skýrt hvers vegna vatn er nauðsynlegt öllum lífverum.• geri greinarmun á ólífrænum og lífrænum efnum og þekki hlutverk sykurefna, prótína,

fituefna og erfðaefnisins.• þekki algengustu frumefnin í lífverum.• geti skýrt frá megineinkennum frumuöndunar og ljóstillífunar og því hvernig þessi efnaferli

tengjast.• geti lýst stærð, uppbyggingu og mismunandi sérhæfingum frumna.• geti borið saman plöntu- og dýrafrumu.• geti lýst hlutverki og sérhæfingu mismunandi frumulíffæra s.s. kjarna, hvatbera,

ríbósóma,grænukorna, frumukjarna, erfðaefnis og litninga.• geti lýst hvaða nútímatækni gerir kleift að stunda frumurannsóknir.• geti skýrt jafn- og rýriskiptingu frumna.• geti skýrt hvað gerist við frjóvgun og hvað felist í hugtakinu þroskun.• geti skýrt frá osmósu og flæði• skilji að vistkerfi byggist á samspili lífvera innbyrðis og við lífvana umhverfi• geti skýrt mögulegar afleiðingar þess ef fæðukeðjur raskast.• geti nefnt dæmi um fjölbreytni í samskiptum lífvera, s.s. samhjálp, samkeppni, gistilífi og

sníkjulífi.• geti útskýrt orkuflæði í vistkerfum.• geti útskýrt efnahringrásir í vistkerfum, t.d. kolefnis og súrefnis.

Bækur/GögnEinkenni lífvera - úr bókaflokki um almenn náttúruvísindiEfnisheimurinn eftir Hafþór Guðjónsson

Page 99: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

97Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Myndbönd/efni frá kennara

KennslutilhögunÍ kennslustundum er farið yfir efni bókanna og ætlast til að nemendur skrifi hjá sér helstu áhersluatriði. Nemendur gera nokkrar tilraunir/æfingar auk þess sem sýnitilraunir eru gerðar. Að auki eru ýmis skrifleg verkefni unnin. Öllum verkefnum og glósum eiga nemendur að halda til haga í möppu. Notast er við kennslumyndbönd eftir því sem við á.

KennsluaðferðirBein kennsla, fyrirlestrar, sýnikennsla, umræður, verklegar æfingar, fræðslumyndir.

HeimanámHeimanám felst í lestri efnis sem farið er yfir í tímum auk skriflegra verkefna.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Upplýsingamennt2 kennslustundir á viku

Markmið• að nemendur kynnist undirstöðuatriðum í meðferð tölva og notkunarmöguleikum Windows

umhverfisins.• að nemendur temji sér snyrtilegan frágang á verkefnum.• að nemendur nái grunnfærni í notkun vefsíðugerðarforritsins Dreamweaver.• að nemendur geri hver sína eigin vefsíðu í Dreamweaver þar sem unnið er með texta,

myndir og tengingar (krækjur í aðrar síður, póstkrækjur o.s.frv.).• að nemendur kynnist einföldustu þáttum þess að taka stafrænar ljósmyndir.• að nemendur kynnist myndvinnslu fyrir net, t. d. að minnka myndir og að búa til

vefalbúm.• að nemendur kynnist mjög einfaldri hreyfimyndagerð (animation).• að nemendur lesi valin bókmenntaverk.• að nemendur þjálfist í að skrifa umsagnir um valdar bækur á tölvur.

NámsþættirVefsíðugerð, stafræn myndataka, myndvinnsla fyrir vef, vefalbúm, hreyfimyndagerð, bókmenntir og textavinnsla.

KennslutilhögunVinna í tölvuveri undir leiðsögn kennara. Nemendur vinna síðan verkefni í tengslum við bókasafn.

Page 100: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

98 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniEfni frá kennara, ýmist af kennsluvefum Námsgagnastofnunar eða verkefni úbúin af kennara.

Námsmat:Vinnusemi í tímum. Mat á verkefnum, ástundun og hegðun.

Myndmennt2 kennslustundir á viku

Lögð er áhersla á að skilning á myndlist auk sjálfstæðra vinnubragða í fjölbreyttum verkum. Grunnatriði sem nemandinn hefur kynnst í bekkjum á yngsta stigi og miðstigi eru nýtt í verkefni sem eru meira krefjandi fyrir námsmanninn. Skilningur og þekking eru dýpkuð og ný atriði lögð inn. Listamenn kynntir og verk þeirra. Samstarf við aðra nemendur.

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, þekkingu og reynslu

með viðeigandi vinnubrögðum í margs konar efnivið• að efla hugmyndaflug, sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemenda• að stuðla að því að nemendur verði læsir á umhverfi sitt• að stuðla að því að nemendur skynji og skilji boðskap þess myndmáls sem daglega ber fyrir

augu• að rækta samstarfsvilja, samstarfshæfni og félagsþroska nemenda• að leggja grunn að sjálfstæðu gildismati nemenda, vekja áhuga og auka þekkingu á

verkmenningu, listum og öðrum menningarverðmætum• að stuðla að því að nemendur kynnist eiginleikum hinna ýmsu efna sem unnið er úr, tileinki

sér hagkvæm vinnubrögð og nái þeirri hæfni að verða sjálfbjarga í verki Í lok vetrar á nemandinn að:

• Hafa fengið nasasjón af sögu myndlistar frá upphafi til okkar daga.• Kannast við helstu frumherja hinna ýmsu listastefna.• Þekkja dæmi um íslenska myndlistarmenn í hinum ýmsu listastefnum.• Þekkja muninn á listastefnum og geta nefnt dæmi um verk.• Geta metið myndlist fordómalaust og geti gagnrýnt eigin verk.• Hafa kynnst hinum ýmsu efnum til listsköpunar.• Hafa víðtækan skilning á hugtakinu myndlist og hafa lært öguð vinnubrögð.

Lífsleikni1 kennslustund á viku

Markmið• Sjálfsþekking,samskipti, sköpun og lífsstíll.• að nemandi temji sér góðar námsvenjur og námstækni• að nemandi átti sig á að einstaklingar eru stöðugt að miðla tilfinningum sín á milli og láta

þannig í ljós líðan sína og hugarástand• að nemandi öðlist skilning á að einstaklingar geta upplifað og túlkað áreiti í umhverfinu

með ólíkum hætti• að nemandi geri sér grein fyrir hlutverki laga og reglna í persónulegum og ópersónulegum

Page 101: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

99Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

samskiptum einstaklinga, t.d. innan fjölskyldu, í skóla, á vinnustað og á milli einstaklinga af ólíku þjóðerni

• að nemandi geti tjáð og fært rök fyrir hugsunum sínum og skoðunum á formlegum fundi• Samfélag, umhverfi, náttúra og menning.• að nemandi viti um námstilboð skólans fyrir 9. og 10. bekk• að nemandi viti um rétt sinn til að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum• að nemandi þekki ýmis lög og reglur sem taka til samskipta manna• að nemandi læri að meta ráðstöfun eigin tekna með tiliti til nauðsynja og annarra

útgjalda• að nemandi þekki viðurkenndar merkingar fyrir umhverfisvænar vörur• að nemandi geti aflað sér nauðsynlegra upplýsinga um vöru, þjónustu og ferðalög• að nemandi geti gert eigin áætlun um sparnað og ávöxtun• að nemandi geti tekið ábyrgð á eigin öryggi í öllum ferðum• að nemandi þekki flest boð-, bann- og leiðbeiningarmerki í umferðinni• að nemandi þekki reglur og viðbrögð almannavarna varðandi náttúruhamfarir og

hættuástand

NámsþættirHaft er að leiðarljósi að styrkja bekkinn sem hóp, þ.e. að samskipti nemenda einkennist af jákvæðni og hjálpsemi. Kynning á vinnumarkaði, launum, sparnaði og neyslu.Hlutverk einstaklingsins í þjóðfélaginu, persónulegar, samfélagslegar og fjárhagslegar skyldur hans.Leitast verður við að gera nemandann læsan á merkingar í umhverfinu, má þar nefna: umferðarskilti, merkingar á fatnaði og matvælum.Farið verður í forvarnir, lögð verður áhersla á forvarnir gagnvart reykingum og vímuefnum.

NámsgögnÉg er það sem ég vel; gefið út af námsgagnastofnun fyrir 8. bekkVefefni, Námstækni fyrir efstu bekki grunnskólaMálbjörg, verkefni á vef, framsögn.Efni frá kennara.

KennslutilhögunBein kennsla, umræður, leikir, hópvinna og einstaklingsvinna.

NámsmatKennari leggur mat á skriflegar og munnlegar skýrslur nemenda, verkefnavinnu og virkni nemenda í hópastarfi eða starfi bekkjarins. Einnig er tekið tillit til sjálfsmats nemenda og jafningjamats. Engin próf eru þreytt, en kennari gefur umsagnir um verkefni eftir því sem þau vinnast.

Heimilisfræði2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemendur:

• kunni skil á skaðsemi mismunandi örvera (krossmengun)

Page 102: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

100 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• temji sér að nota hreinlætisvörur í hófi, velji umhverfisvænar vörur og viti hvaða efni á að varast

• vinni af öryggi með helstu matreiðsluaðferðir og geti unnið sjálfstætt eftir uppskriftum• geti lagt mat á gæði algengustu matvæla sem eru á markaðnum, geymsluaðferðir og

geymsluþol• geti matreitt heimilismat og kryddað eftir smekk

Inntak námsNemendur læra:

• um persónulegt heinlæti og hreinlæti í eldhúsinu• um örverur, jarðvegsbakteríur og smitleiðir• vöruþekkingu og næringarfræði• að tileinka sér vandvirkni, góða umgengni og rétta meðferð áhalda og véla• að fara eftir uppskriftum og nota matreiðslubækur• að tileinka sér hollar matarvenjur• meðferð á grænmeti, fiski og kjöti• að sjóða, pönnusteikja og ofnbaka• almennan heimilisbakstur með áherslu á gerbakstur• að nota krydd á réttan hátt

NámsgögnVerklýsingar gerðar af kennara.Heimilisfræði II og verkefnablöð unnin upp úr þeim.Ýmsar matreiðslubækur og uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar.Sýnikennsla í ýmsum matreiðsluaðferðum og vinnubrögðum.

KennsluskipanGreinin er skyldufag í 8. bekk.Kennt er hálfan veturinn 2 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.Skrifleg verkefni eru unnin í hverjum tíma, ýmist taka þau til næringarfræði, vöruþekkingar eðaverklega þáttarins.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.Bóklegt próf.

Hönnun / smíðar2 kennslustundir á viku hálfan veturinn

Á síðastliðnum árum var byrjað að láta nemendur nær eina um að hanna sína hluti sjálfa. Í vetur verður byggt á reynslu þeirra og reynt að efla formskynjun og hin ýmsu stílbrigði listsköpunar.

Markmiðað kennslan miði að þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að nemendur verði sjálfbjarga í verki og ekki algjörlega háðir aðkeyptum iðnvarningi.að þjálfa nemendur í að fara eftir skriflegum vinnulýsingum.að nota fagbækur, upplýsingatækni, tölvur, hjálpartæki þeim tengd og margmiðlunarefni til að

Page 103: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

101Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

þróa eigin hugmyndir að textílverkum.að vekja, hlúa að og efla áhuga nemenda fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi.

NámsþættirUnnið verður með plast og nemendur læra að vinna með og kynnast eiginleikum þessa efnis sem svo mikið er notað í umhverfi þeirra í nútímaþjóðfélagi.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 stundir á viku hálfan veturinn

Markmið• að kennslan miði að þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að nemendur verði sjálfbjarga í

verki og ekki algjörlega háðir aðkeyptum iðnvarningi.• að þjálfa nemendur í að fara eftir skriflegum vinnulýsingum.• að nota fagbækur, upplýsingatækni, tölvur, hjálpartæki þeim tengd og margmiðlunarefni

til að• að þróa eigin hugmyndir að textílverkum.• að vekja, hlúa að og efla áhuga nemenda fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi.

NámsþættirVélsaumur: nemendur fá nánari þjálfun í meðferð saumavéla. Sauma bútasaumsverkefni. Læra að leggja snið á efni og merkja saumför, taka mál, sníða og sauma einfalda flík.Prjón og hekl: Læra að hekla og/eða prjóna eftir skriflegum vinnulýsingum.Munstur yfirfært á efni: prenta mynd úr tölvu á pappír til að strauja á efni. Yfirfært á tilbúna boli eða annað efni.Vefjarefnafræði: kynning á náttúruefnum og gerviefnum. Kynntar meðferðarmerkingar þvottatákn og fleira á mismunandi efnum.Fataviðgerðir: farið í gegnum einfaldar viðgerðir á fatnaði.

NámsefniBækur: Saumahandbókin, Á prjónunum, handbækur og blöð sem til eru.

KennsluaðferðirKynning, verkefnið er útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð og aðferðir sem fylgt er eftir með þjálfun í verklegum æfingum. Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir.

HeimavinnaVinnan fer að mestu fram í skólanum, en þegar unnið er með hekl, prjón eða útsaum geta nemendur einnig unnið heima.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni, einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis

Page 104: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

102 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.Námsmat50% Vinnubrögð (vandvirkni)20% Ástundun (heimavinna/vinna í tímum)15% Sjálfstæði15% Afköst

Page 105: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

103Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

9. bekkurÍslenska

6 kennslustundir á vikuMeginmarkmiðFjölmörg markmið eru æskileg þegar fjallað er um notkun og meðferð móðurmálsins svo að það nýtist nemendum sem best. Flokka má markmiðin í fjóra meginþætti sem eru einna mikilvægastir í því sambandi.Að nemandinn nái:

• að hlusta á talað mál af skilningi• að tala gott mál• að lesa sér til gagns og ánægju• að rita læsilegt og vandað mál• að kunna skil á ýmsum þáttum málfræði, setningafræði o.þ.h.• tjáð sig eðlilega og óþvingað í bekk og öðrum vettvangi innan skólans, • lesið sér til ánægju efni við sitt hæfi og telji slíkt sjálfsagðan hluta af tómstundaiðkun sinni• náð góðum tökum á að skrifa útdrætti og endursagnir úr munnlegu og skriflegu efni• náð tökum á eðlilegri byggingu ritaðs máls• beitt mismunandi stíl í rituðu máli með tilliti til viðtakanda og efnis• þekki og geti útskýrt mun orðtaka og málshátta og öðlist áhuga á að nota málshætti og

orðtök við sem flest tækifæri• öðlist áhuga á að vanda mál sitt sem best og láta það hæfa aðstæðum hverju sinni• öðlist trú á eigin málkunnáttu og málhæfni

Lestur og bókmenntir/Ljóð:Markmið

• geti gert grein fyrir þeim áhrifum sem tiltekið bókmenntaverk hefur á hann • þekki og geti fjallað um mismunandi gerðir myndmáls; bein mynd, líking, persónugerving

og myndhverfing • skoði mismunandi stíl og stílbrögð bókmenntaverka

NámsþættirNemendur vinna með ýmsar bókmenntaskilgreiningar eins og innri/ytri tími, aðal-aukapersónur, umhverfi o.fl. Þau lesa og vinna með fornsögu og vinna verkefni tengd henni. Áfram verður haldið með vinnu í rími, ljóðstöfum og einnig munum við fjalla um mynmál og túlkun ljóða á ýmsan máta

Námsefni:Lesefni úr Mályrkju IIEnglar alheimsins e. Einar Má GuðmundssonHrafnkelssaga Freysgoða/GunnlaugssagaÉg átti að verða prestskona, þjóðsögur teknar saman af Baldri HafstaðValbækur og skýrslugerðLjóðspeglar og ljósrit frá kennara

Page 106: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

104 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Jafnframt þessum grundvallarlestri skulu nemendur hvattir til viðbótarlestrar að frjálsu vali og skila ritdómum. Í bókmenntum lesa nemendur, hlusta og tjá sig á rituðu og töluðu máli.Upptalning þessi er að sjálfsögðu ekki tæmandi. Skólabókasafnið mun t.d. skipa hér háan sess og margs konar efni úr hugmyndabanka skólans verður notað. Einnig kemur til greina að nota kvikmyndir sem viðbótarefni.

HeimanámNemendur lesa heima og svara spurningum úr efninu auk þess sem þeir þurfa að kljást við ýmis bókmenntahugtök

Stafsetning og ritun:Markmið

• nái valdi á stafsetningu og þekki flestar reglur um greinarmerkjasetningu• nái góðum tökum á að skrifa útdrætti og endursagnir úr munnlegu og skriflegu efni• þjálfist í ritun í tengslum við lesna bókmenntatexta• vinni úr ýmsum heimildum og læri undirstöðuatriði heimildarritunar

NámsþættirUpplestrar í tengslum við áður lesið efni í stafsetningu en þessar æfingar eru unnar í Finni 2. Vinna nemendur þá málfræðiæfingar með ólík orð og eiga svo að skrifa eftir upplestri í tíma. Þessi hugmyndafræði er kölluð orðhlutafræði. Lögð er áhersla á helstu stafsetningarreglurnar ss. n og nn, y- reglurnar o.fl Í ritun er lögð áhersla á að nemendur standi klárir á byggingu ritgerða.

NámsefniStafsetning eftir Árna Þórðarson og Gunnar GuðmundssonFinnur 2 eftir Svanhildi Kr. SverrisdóttirSkriffinnur eftir Svanhildi Kr. SverrisdóttirEfni frá kennara

HeimanámNemendur vinna verkefni heima í bókum og fá efni frá kennara.

MálfræðiMarkmið

• átti sig á því hvernig orðum er skipt eftir merkingarlegum og formlegum einkennum í fallorð, sagnorð og óbeygjanleg orð

• öðlist áhuga á að vanda mál sitt sem best og láta það hæfa aðstæðum hverju sinni • þekki helstu beygingaratriði fallorða og sagnorða, átti sig á því hvað er reglulegt og hvað

óreglulegt og geti nýtt sér þá þekkingu, t.d. í tengslum við leiðbeiningar um málfar og stafsetningu

• þekki mun á beinni og óbeinni ræðu og skilji merkingarmun á framsöguhætti og viðtengingarhætti í því samhengi

• skilji merkingarlegan mun á háttum sagna • öðlist trú á eigin málkunnáttu og málhæfni

NámsþættirNemendur vinna ýmis málfræðiverkefni sem þeir þurfa að hafa á valdi sínu í lok 9. bekkjar m.a. orðhlutar, beygingarmyndir og fleira. Áhersla er lögð á ólík verkefni og að nemendur þjálfist í að beita ólíkum málfræðihugtökum við lausn verkefna.

Page 107: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

105Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsefniFinnur 2 eftir Svanhildi Kr. Sverrisdóttur Orðhákur 2. eftir Magnús Jón ÁrnasonSagnorð eftir Magnús Jón ÁrnasonMálfinnur eftir Svanhildi Kr. SverrsidótturNemendur vinna verkefni úr þessum bókum bæði munnlega og skriflega. Auk þess verða lögð fyrir verkefni úr hugmyndabanka skólans sem og af vef námsgagnastofnunnar.

HeimanámNemendur vinna verkefni í málfræðibókum og stafsetningabókum.

KennslutilhögunBein kennsla, efnisdönnun, fyrirlestrar, heimildarvinna, hlustunarefni, hópverkefni, hugmyndavinna, kannanir, margmiðlun, ritun, samræðuaðferðir, samvinnunám, spurnaraðferðir, tjáning, umræður,upplýsingatækni, vinna með ólíka miðla, vinnubókarkennsla, yfirferð námsefnis.

NámsmatStöðugt eftirlit er með vinnu nemenda, eftirtekt, skilningi, færni og áhuga. Verkefni og próf eru notuð til að meta stöðu nemendanna og niðurstöðurnar notaðar til að hvetja þá til dáða. Einnig gefst forráðamönnum stöðugt færi á að fylgjast með árangri barna sinna með viðtölum og mánaðarlegu yfirliti yfir ástundun.Viðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Stærðfræði6 kennslustundir á viku

Námsefni“8 – 10” eftir Guðbjörgu Pálsdóttur og Guðnýju Helgadóttur, “Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla II”. Þýdd og staðfærð úr sænsku af þeim Hildigunni Halldórsdóttur og Sverri Einarssyni, “Töflureiknir notaður”, “Gullinsnið”, þemahefti .

Námsþættir• Upprifjun á talnareikningi með náttúrulegum, heilum og ræðum tölum, frumtölur. • Stórar og smáar tölur, tugveldi og staðalform. • Hringur, flatarmál og ummál, hringgeiri og rúmfræðiteikningar. • Algebra, einföldun á stæðum, jöfnur og formúlur.• Hlutföll, einslögun og mælikvarðar.• Hnitakerfi, formúlur, gröf og flutningar (hliðrun og speglun).

Page 108: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

106 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Tölfræði, myndrit, meðaltöl og miðgildi.

KennsluhættirBein kennsla þar sem útskýrt er af töflu ásamt uppgötvunarnámi, yfirferð á dæmum, þrautalausnir, þjálfunarforrit, hópverkefni, og umræður. Nemendur setja sér markmið í samráði við kennara, gera áætlun til viku í einu og skila í möppu sem geymd er í stærðfræðistofu. Afrakstur vinnuvikunnar fer síðan í sömu möppu til yfirferðar fyrir kennara. Kennari ákveður hvenær „eindagi“ kaflaprófa er en nemenda er í sjálfsvald sett að taka kaflaprófið fyrr.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Enska4 kennslustundir á viku

KennsluaðferðirKenndar eru tvær kennslustundir saman. Sá fyrri verður notaður í kennslubókina og sett verður fyrir í henni í lok tímans. Seinni tíminn mun fara í að þjálfa færniþættina fjóra (hlustun, lesskilning, tal og ritun) og verður þá stundum kennt í hringekju eða hópaformi. Bein kennsla, hlustun, hópvinna, ritun, samræður og vinnubókarkennsla.

Meginmarkmið• Að nemendur verði færir um að tala ensku á skiljanlegu máli við hversdagslegar aðstæður

og á viðunandi hraða.• Að nemendur geti sem hlustendur skilið upplýsingar, hugmyndir og skoðanir enskumælandi

manna.• Að nemendur verði færir um að lesa í hljóði tiltölulega fjölbreytilegan texta áhæfilegum

hraða og skilið bærilega það sem lesið er.• Að nemendur þekki og geti beitt grundvallaratriðum enskrar málfræði svo sem notkun

ákveðins og óákveðins greinis, helstu sagntíðum, notkun reglulegra sagna og kennimyndum algengustu óreglulegra sagna, fleirtölu nafnorða, stigbreytingu lýsingar- og atviksorða og kunni skil á helstu fornöfnum og forsetningum.

• Að nemendur öðlist leikni í að skrifa samfelldan texta um efni sem fjallað hefur verið um.• Að nemendur geti nýtt sér orðabækur• Að nemendur öðlist þjálfun í gerð útdrátta og ritunar eftir upplestri.• Að nemendurfái innsýn í menningu og lifnaðarhætti þeirra þjóða sem hafa ensku að

móðurmáli eða þjóðtungu.• Að nemendur geti nýtt sér upplýsingartækni til öflunar heimilda.

Page 109: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

107Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Að nemendur þjálfist í að taka þátt í samræðum

NámsefniAðalkennslubækur: Breakaway 4, Move onHlustun: Notað er hlustunarefni sem skólinn leggur til t.d. Let´s listen 2 og fl.Málfræði: Ljósritað efni sem skólinn leggur tilFrjáls lestur: Nemendur skila mánaðalega umsögn um léttlestrarbók sem þeir hafa valið á bókasafni skólans.Lesskilningsverkefni SRA 2B 2CRitun: A week by the sea, Practice and progress og fl. Strange but trueÆskilegt er að nemendur hafi aðgang að enskri orðabók.School times enskukennslutímarit

HeimanámHeimanám er nauðsynlegur liður í enskunámi nemendanna og kennari leggur ríka áherslu á að því sé sinnt. Kennarinn hvetur nemendur til að vanda vinnubrögð sín. Nemendur koma reglulega “upp á töflu” og skrifa verkefni sem þeir hafa unnið heima og kennari og nemendur leiðrétta síðan.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Danska4 kennslustundir á viku

Í 9.bekk er sérstaklega unnið með eflingu orðaforða og lögð áhersla á að vinna með alla færniþætti tungumálsins samhliða.

KennsluaðferðirBein kennsla, hlustun, hópverkefni, ritun, samræðuaðferðir, tölvuvinna, vinnubókarkennsla.

Markmið• að nemendur skilji flest venjuleg fyrirmæli• að nemendur skilji aðalatriði í töluðu máli þegar fjallað er um málefni sem hann þekkir• að nemendur geti greint og skilið lykilatriði úr frásögnum og samtölum• að nemendur geti lesið fyrirhafnarlítið texta á frekar léttum máli• að nemendur geti leitað upplýsinga sem tengjast orðaforða þeirra flokka sem unnið er

með• að nemendur geti lesið léttlestrarbækur og smásögur sér til gagns og ánægju• að nemendur geti endursagt texta með aðstoð minnispunkta eða hjálparorða

Page 110: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

108 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemendur geti brugðist við beiðnum eða spurningum með útskýringum• að nemendur geti notað grunnorðaforða í efnisflokkum sem unnið er með• að nemendur geti skrifað stuttan texta um þá málaflokka sem unnið er með eftir myndum,

fyrirmælum eða lýsingu• að nemendur þekki og geti beitt grundvallaratriðum danskrar málfræði svo sem ákveðinn

greini nafnorða og lýsingarorða, þekki reglulega fleirtölu nafnorða og geti notað spurnarorð og þekki persónufornöfn

• að nemendur geti nýtt sér orðabækur• að nemendur geti nýtt sér netið til upplýsingaöflunar og ritunnarvinnu og einnig unnið

sjálfstætt úr ýmsum heimildum• að nemendur þjálfist í framsögn

NámsefniAðalkennslubók Glimrende eftir Arnbjörgu Eiðsdóttur og Kristínu JóhannesdótturHlustunarbókin Hvad siger du C-heftiðDejlige Danmark, þemahefti eftir Ernu Jessen og Ásdísi Lovísu GrétarsdótturMyndbandsspólur ; Det er Danmark1 - 2 danskar kvikmyndirLéttlestrarbækur af bókasafni skólansValdir textar og verkefni á InternetinuVerkefnablöð með söngtextumValin málfræðiverkefni úr bókinni Danskar æfingar eftir Guðrúnu HalldórsdótturLjósritað efni sem skólinn leggur tilÆskilegt er að nemendur hafi aðgang að danskri orðabók

NámsþættirLesturAðalkennslubók er Glimrende. Nemendur lesa texta í kennslubók heima fyrir hverja kennslustund og glósa öll ný orð sem koma fyrir í viðkomandi texta. Þeir leysa fjölbreytt verkefni sem tengjast textanum, annað hvort heima eða í kennslustund. Sum verkefnin eru unnin einstaklingslega eða í hópum.Auk þess lesa nemendur 4-5 léttlestrarbækur yfir veturinn og skila bókaumsögnum eftir lestur þeirra til kennara. Nemendur fara einnig inn á danska vefi á Internetinu og lesa og leysa verkefni þar.

HlustunNemendur hlusta á talað mál af snældum/geisladiskum vikulega. Þeir gera síðan verkefni í verkefnabók útfrá hlustunaræfingunni. Myndbandsefnið, Det er Danmark er notað og verkefni tengd því.

Talað málLeitast skal við að kennsla fari að mestu leyti fram á dönsku. Nemendur þjálfast í talmáli með samtalsæfingum í kennslubók, sín á milli og við kennara. Við yfirferð námsefnis úr aðalkennslubókinni eru nemendur stundum látnir lesa upp texta og framburður æfður.

RitunNemendur æfa ritun með því að skrifa stutta texta á dönsku, getur verið frjáls texti eftir myndum og fyrirmælum eða beinar þýðingar á dönsku. Öðru hvoru skrifa nemendur uppritun eftir lestri kennara.Einnig leggur skólinn til ýmis ritunarverkefni sem tengjast þá efni því sem farið er yfir í

Page 111: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

109Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

aðalkennslubók.

MálfræðiNemendur vinna málfræðiverkefni þegar við á. Reglur málfræðinnar eru kynntar þannig að nemendur geti skilið og beitt málfræðiatriðum í tali og rituðu máli.

HeimanámHeimavinna nemenda felst í undirbúningi fyrir kennslustundir t.d. lestri og úrvinnslu verkefna.Kennari leggur mikla áherslu á að heimavinnu sé sinnt og gengur eftir því. Öll heimavinna nemenda er skráð niður hjá kennara og geta nemendur og foreldrar ávallt fengið að vita hvernig nemendur sinna heimavinnu sinni.

KennsluaðferðirBein kennsla, hlustun, hópverkefni, ritun, samræðuaðferðir, vinnubókarkennsla.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk.Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

SamfélagsfræðiLandafræði: 2 kennslustundir á viku

KennsluaðferðirLausnarleitarnám unnið í hópum og einstaklingsmiðað.

MarkmiðAð nemandi:

• læri að bera saman ólík svæði í heiminum út frá upplýsingum af kortum og hvaða þættir hafi áhrif á lífsskilyrði fólks

• skilji hvernig náttúrufar hefur áhrif á athafnir fólks og hvernig mismunandi menningarleg gildi, trúarleg viðhorf, tæknileg , efnahagsleg og pólitísk kerfi geta mótað umhverfið á ólíka vegu

• öðlist yfirlit yfir heiminn, jafnt þætti náttúrufars og menningarleg einkenni, geti borið saman ýmis einkenni heimsálfnanna, hvað sé líkt og ólíkt

• kynnist vandamálum fólksfjölgunar og ójafnrar dreifingar mannfjöldans þar með talið vaxandi borgarvæðingu

• kynnist meginþáttum efnahagslífs þjóða, tengslum þess við nýtingu náttúruauðlinda og skiptingu heimsins í ríkar þjóðir og fátækar

• þekki helstu atvinnuvegi jarðarbúa og hvernig náttúran sníður atvinnulífi hvers lands stakk og setur skorður

• fái innsýn í þau umhverfisvandamál sem fylgja mikilli borgarvæðingu

Page 112: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

110 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• þekki helstu ástæður gróður-og jarðvegseyðingar af manna völdum

NámsefniLandafræði handa unglingum 2. hefti eftir Göran Anderson

KennslutilhögunNámsefnið er fjölbreytt og býður upp á mismunandi kennsluaðferðir, fyrirlestra, skriflegt nám, einstaklings- og hópverkefni með lausnarleitarnámi sem miðar að einstaklingsmiðuðu námi. Kennslan miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og skilning á námsefninu. Unnið er í verkefnabók að skriflegum verkefnum. Kennslumyndbönd, glærur,teikningar og kort eru notuð eftir því sem við á.

HeimanámNemendur lesa heima fyrir hvern tíma og svara verkefnum.

NámsmatNámsmatið fer fram jafnt og þétt allan veturinn. Nemendur vinna verkefni úr kennslubók og kennaraverkefnum.Tekin eru próf sem gilda sem lokaeinkunn ásamt vinnubók. Heimavinnuskil og vinnubrögð í tímum gilda sem vetrareinkunn.

Saga: 2 kennslustundir á vikuMarkmið

• kynnist mismunandi sjónarmiðum um hlutverk landbúnaðar og sveitalífs í íslensku þjóðfélagi

• þekki atburðarás stríðsáranna í stórum dráttum• sjá hvernig ýmis veigamikil málefni hafa verið bundin stjórnmálaflokkum en önnur ekki• skoði uppbyggingu velferðarkerfis á Íslandi• þekkja nokkra þætti styrjaldaráranna á Íslandi, svo sem hernámið, stofnun lýðveldis og

breytingar á menningu og gildismati.

NámsþættirÍ sögu 9. bekkjar verður fjallað um 19. og 20. aldirnar í Íslandssögu. Fjallað er um Heimastjórnartímabilið og árin milli stríða. Einnig verður farið yfir stríðið og hernámsárin og Ísland í köldu stríði.

NámsefniÚr sveit í borg . Þættir úr sögu 20. aldar eftir Guðmund J. Guðmundsson og Jón Sigurðsson og hugmyndir 19. aldar eftir Árna Daníel Júlíusson.

KennslutilhögunNámsefnið er fjölbreytt og býður upp á mismunandi vinnuaðferðir, fyrirlestra, skriflegt nám, einstaklings- og hópverkefni. Kennslan miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og skilning á námsefninu. Unnið er í verkefnabók að skriflegum verkefnum. Kennslumyndbönd eru notuð eftir því sem við á.

HeimanámNemendur lesa heima fyrir hvern tíma og vinna verkefni skriflega.

KennsluaðferðirHeimildarvinna, hópvinna, lestur, umræður, ritun, efniskönnun, spurnaraðferðir.

NámsmatNámsmatið fer fram jafnt og þétt allan veturinn.Tekin eru próf sem gilda sem lokaeinkunn

Page 113: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

111Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

ásamt vinnubók. Nemendur halda fyrirlestur. Heimavinnuskil og vinnubrögð í tímum gilda sem vetrareinkunn.

NáttúruvísindiÞekking og skilningur á helstu kenningum og lögmálum náttúruvísinda og kunnátta í vinnubrögðum sem viðhöfð eru við vísindalegar athuganir og rannsóknir eru mikilvægur þáttur í þroska og menntun nemenda og grundvöllur að því að efla áhuga þeirra og forvitni á umhverfi sínu og hinum ýmsu fyrirbærum náttúrunnar. Að loknu grunnskólanámi er stefnt að því að nemendur hafi öðlast grunnþekkingu, þjálfun og sjálfstraust til að takast á við kröfur nútímasamfélags og verði færir um að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni.Náttúruvísindi greinast í þrjú meginsvið: eðlisvísindi, jarðvísindi og lífvísindi.

Áfangamarkmið við lok 10. bekkjarAð nemandinn:

• geti tengt skilning og vinnubrögð úr náttúrufræðinámi við önnur verkefni í ýmsum greinum í skólanum og í daglegu lífi.

• sýni áhuga og frumkvæði við öflun þekkingar.• öðlist færni og sjálfsöryggi við að leysa fjölbreytt verkefni með eða án ítarlegra

leiðbeininga.• geti fjallað um sameiginlega þætti ólíkra námsgreina.• sýni vilja til að leita eftir og deila upplýsingum og skýringum með öðrum og sýni skilning á

að slíkt er ein af forsendum vísindaframfara.• átti sig á að útskýringar séu aldrei endanlegar og að ekki er hægt að sanna þær svo óyggjandi

sé.• geri sér grein fyrir tilgátusmíð og kenningum sem skipulegri starfsemi vísinda.• skilji mikilvægi þess að mælingar séu áreiðanlegar og nákvæmar• geti útskýrt með dæmum hvernig þekking á náttúrunni hefur þróast.• geri sér grein fyrir hvernig náttúruvísindi hafa í senn áhrif á og verða fyrir áhrifum af

menningu og heimsmynd mannsins.• geti fjallað um gagnkvæm áhrif tækni og vísindalegra framfara• geti metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað• sýni áhuga og ábyrgð á umhverfinu og því að dýpka og styrkja þekkingu sína á því eftir

ýmsum leiðum• geti fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdra umhverfismálum í

heimabyggð, umhverfisvernd og nýtingu náttúruauðlinda, tilraunastarfsemi á mönnum og dýrum og annarri nýtingu á vísindalegri þekkingu.

• geri sér grein fyrir mikilvægi sjálfbærrar þróunar fyrir samfélagið• geri sér grein fyrir að maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans og framtíð byggist

á gagnkvæmri ábyrgð og virðingu í samspilinu við móður jörð.

Úr eðlisvísindumAð nemandinn:

• geri sér grein fyrir að vélar breyta stærð og stefnu þess krafts sem beitt er• geti útskýrt tilgang vogarstanga, talíu, hjóla og áss, skáflatar, fleygs og skrúfu• geti lýst einföldum samsettum vélum• skilji krafverkan í einföldum vökvaknúnum tækjum

Page 114: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

112 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• mæli kraft og hröðun hluta með mismunandi mælitækjum og noti viðeigandi mælieiningar

• vinni með samband vegalengdar, tíma, ferðar, hraða og hröðunar• þekki þyngdarlögmál Newtons og samband þess við hugtakið þyngdarkraftur• vinni með einfalda útreikninga í tengslum við annað lögmál Newtons• geti skýrt samband hugtakanna vinna og orka• framkvæmi einfalda útreikninga á vinnu/orku og afli og þekki viðeigandi mælieiningar• geti útskýrt áhrif núningskrafts á hreyfingu hluta• þekki þyngdarhröðun við yfirborð jarðar• vinni að einföldum athugunum tengdum þrýstingi og þekki viðeigandi mælieiningar• skilji og geti beitt hugtökum tengdum eðlismassa, flotkrafti og lögmáli Bernoullis• geri tilraun þar sem athuguð eru áhrif breytinga á massa lóðs og lengd pendúls á

sveiflutíma• þekki hvernig frumeindir eru gerðar úr rafeindum, róteindum og nifteindum og geti

skilgreint hugtökin sætistala, massatala og samsæta.• geti unnið með lotukerfið og skilji að frumefnin raðast eftir eiginleikum sínum og fjölda

róteinda• geri sér grein fyrir hvernig frumeindir geta tengst saman og myndað sameindir sem ýmis

eru frumefni eða efnasambönd• geti skrifað, stillt og staðfest einfaldar efnajöfnur• geti sýnt fram á að vatn klofnar í frumefni sín við rafgreiningu• hafi kynnst eiginleikum mikilvægustu lofttegundanna, þekki efnasamsetningu• lofthjúpsins og hugtökin ósonlag og gróðurhúsaáhrif

Úr lífvísindumAð nemandinn:

• geti lýst grundvelli flokkunar lífvera í hópa• geti lýst gildi fjölbreytileika lífvera á jörðinni• geti lýst sérstöðu lífþróunar á nokkrum svæðum• geti útskýrt hvers vegna íslenskt lífríki á landi er fábreyttara en á meginlöndum.• geti lýst ríkjum lífvera og sameiginlegum einkennum lífvera innan hvers ríkis.• vinni að verkefnum um einstaka hópa lífvera• geti útskýrt lifnaðarhætti veira og sérstöðu þeirra• geti útskýrt eðli algengra veirusjúkdóma í mönnum• geti lýst fjölbreytni meðal baktería með tilliti til frumuöndunar og næringaröflunar• kynnist því hvernig maðurinn nýtir bakteríur í sína þágu og hvernig hann getur varist

skaðsemi annarra.• geti lýst lífsferlum og næringaröflun sveppa og þekki gagnsemi og skaða sem af þeim

hlýst.• kynnist ríkjum plantna og vefdýra út frá völdum áherslum, s.s. lífsferlum, æxlun, ljóstillífun

og þroskun.

Úr jarðvísindumAð nemandinn:

Page 115: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

113Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geri sér grein fyrir stöðu sólkerfis okkar í vetrarbrautinni• fjalli um mismunandi kenningar um þróunarsögu sólarinnar• geti lýst fæðingu, þróun og endalokum stjarna• fjalli um hvernig alheimurinn varð til samkvæmt stórahvellskenningunni og þróun hans í

fortíð og framtíð• geri sér grein fyrir fjarlægðum úti í geimnum og þekki mælieiningar sem notaðar eru í

umfjöllun um stærðir í alheimi• þekki hvað ljós er lengi að berast frá sólu og nálægum stjörnum til jarðarinnar

Bækur/GögnKraftur og hreyfing , Lifandi veröld sem eru bækur í bókaflokki um almenn náttúruvísindi, gefnar út af NámsgagnastofnunByrjað á Sól, tungl og stjörnum sem einnig er í ofangreindum bókaflokki.Myndbönd/efni frá kennara

KennslutilhögunÍ kennslustundum er farið yfir efni bókanna og ætlast til að nemendur skrifi hjá sér helstu áhersluatriði. Nemendur gera nokkrar tilraunir auk þess sem sýnitilraunir eru gerðar. Að auki eru ýmis skrifleg verkefni unnin. Öllum verkefnum og glósum eiga nemendur að halda til haga í vinnubókum. Notast er við kennslumyndbönd eftir því sem við á.

KennsluaðferðirBein kennsla, fyrirlestur, sýnikennsla, umræður, verklegar æfingar, fræðslumyndir.

HeimanámHeimanám felst í lestri efnis sem farið er yfir í tímum auk skriflegra verkefna úr bókunum.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Myndmennt, valgreinLögð er áhersla á skilning á myndlist auk sjálfstæðra vinnubragða í fjölbreyttum verkum. Grunnatriði sem nemandinn hefur kynnst í bekkjum á yngsta stigi og miðstigi eru nýtt í verkefni sem eru meira krefjandi fyrir námsmanninn. Skilningur og þekking eru dýpkuð og ný atriði lögð inn. Listamenn kynntir og verk þeirra. Samstarf við aðra nemendur.

2 kennslustundir á vikuMeginmarkmiðÍ lok vetrar á nemandinn að:

• Hafa fengið nasasjón af sögu myndlistar frá upphafi til okkar daga.

Page 116: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

114 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Kannast við helstu frumherja hinna ýmsu listastefna• Þekkja dæmi um íslenska myndlistarmenn í hinum ýmsu listastefnum.• Þekkja muninn á listastefnum, og geta nefnt dæmi um verk.• Geta metið myndlist fordómalaust og geti gagnrýnt eigin verk.• Hafa kynnst hinum ýmsu efnum til listsköpunar.• Hafa víðtækan skilning á hugtakinu myndlist og hafa lært öguð vinnubrögð.

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, þekkingu og reynslu

með viðeigandi vinnubrögðum í margs konar efnivið• að efla hugmyndaflug, sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemenda• að stuðla að því að nemendur verði læsir á umhverfi sitt• að stuðla að því að nemendur skynji og skilji boðskap þess myndmáls sem daglega ber fyrir

augu• að rækta samstarfsvilja, samstarfshæfni og félagsþroska nemenda• að leggja grunn að sjálfstæðu gildismati nemenda, vekja áhuga og auka þekkingu á

verkmenningu, listum og öðrum menningarverðmætum• að stuðla að því að nemendur kynnist eiginleikum hinna ýmsu efna sem unnið er úr, tileinki

sér hagkvæm vinnubrögð og nái þeirri hæfni að verða sjálfbjarga í verki

NámsþættirTeiknun og málun:Nemendur þjálfaðir í myndrænni frásögn, hlutateiknun, athugun á ljósi og skugga ásamt fjarvídd og sjónarhorni.Lit og formfræði:Blöndun lita,lýsa dekkja. Litasamræmi. Athuganir á tengslum við myndsköpun. Unnið með tví-og þrívíð form.Myndbönd og bækur:Nemendur skoði myndbönd og bækur og vinni verk í anda hinna ýmsu listamanna.Vettvangsferðir: Vettvangsferðir einsog kostur er til listamanna og á sýningar.Hópumræður.Kynnist myndlist á internetinu og læri að leita að myndlist þar og nýta sér þann miðill í myndlistinni.

EfniKynnist margvíslegum efnum til listsköpunar.

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni1 kennslustund á viku

MarkmiðSjálfsþekking,samskipti, sköpun og lífsstíll.

Page 117: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

115Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• að nemandi temji sér góðar námsvenjur og námstækni• að nemandi átti sig á að einstaklingar eru stöðugt að miðla tilfinningum síná milli og láta

þannig í ljós líðan sína og hugarástand• að nemandi öðlist skilning á að einstaklingar geta upplifað og túlkað áreiti í umhverfinu

með ólíkum hætti• að nemandi geri sér grein fyrir hlutverki laga og reglna í persónulegum og ópersónulegum

samskiptum einstaklinga, t.d. innan fjölskyldu, í skóla, á vinnustað og á milli einstaklinga af ólíku þjóðerni

• að nemandi geti tjáð og fært rök fyrir hugsunum sínum og skoðunum á formlegum fundi• að nemandi læri að vega og meta langanir sínar og væntingar á raunhæfan hátt til að geta

sett sér persónuleg markmið• að nemandi geti sett sér fyrir sjónir margvísleg vandamál og fundið eigin lausnir á þeim

Samfélag, umhverfi, náttúra og menning.• að nemandi viti um námstilboð skólans fyrir 9. og 10. bekk• að nemandi viti um rétt sinn til að ljúka grunnskóla á skemmri tíma en 10 árum• að nemandi þekki ýmis lög og reglur sem taka til samskipta manna• að nemandi læri að meta ráðstöfun eigin tekna með tilliti til nauðsynja og annarra

útgjalda• að nemandi þekki viðurkenndar merkingar fyrir umhverfisvænar vörur• að nemandi geti aflað sér nauðsynlegra upplýsinga um vöru, þjónustu og ferðalög• að nemandi geti tekið ábyrgð á eigin öryggi í öllum ferðum• að nemandi þekki flest boð-, bann- og leiðbeiningarmerki í umferðinni• að nemandi þekki reglur og viðbrögð almannavarna varðandi náttúruhamfarir og

hættuástand

NámsþættirStyrkja bekkinn sem hóp og æfa jákvæð og eðlileg samskipti innan hans.Þróa fjölbreytni í samskiptahæfni einstaklinganna í bekknum.Hlutverk einstaklingsins í þjóðfélaginu, persónulegar, samfélagslegar og fjárhagslegar skyldur hans.Skaðsemi reykinga og fíkniefnaneyslu, útbreiðsla og áróðursaðferðir framleiðenda.Áróðursmiðlar nútímans notaðir til að koma á framfæri áróðri gegn reykingum og fíkniefnaneyslu.

Námsgögn“Leið þín um lífið” (Siðfræði fyrir ungt fólk), Stefán Jónsson þýddi. “Hugsi” um röklist og lífsleikni, eftir Matthías Viðar Sæmundsson og Sigurð Björnsson. Vefefni, Námstækni fyrir efstu bekki grunnskólaMálbjörg, verkefni á vef, framsögn.

KennslutilhögunBein kennsla, umræður, leikir, hópvinna, einstaklingsvinna. E.t.v. tilraunir, sköpun, þrautalausnir.

NámsmatKennari leggur mat á skriflegar og munnlegar skýrslur nemenda, verkefnavinnu og virkni nemenda í hópastarfi eða starfi bekkjarins. Einnig er tekið tillit til sjálfsmats nemenda og jafningjamats. Engin próf eru þreytt.

Page 118: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

116 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Íþróttir2 kennslustundir á viku

Markmið:• að breyta líkamshreysti og líkamsreisn og þroska taugakerfið meðal annars með markvissri

þjálfun þrekþátta, þols, krafts, hraða, og æfingum sem bæta líkamsstöðu og líkamsreisn.• að örva grunnhreyfingar nemenda og þroska taugakerfið meðal annars með fjölbreyttum

leikjum og æfingum.• að koma til móts við sköpunarþörf nemenda og leikræna tjáningu.• að efla nemandann sem félagsveru, kenna honum að taka tillit til annnarra og beita

sveigjanleika í samskiptum.• að auka skilning og hæfni nemenda til þess að fara eftir reglum og fyrirmælum og auka

innsæi nemenda í tilfinningar sínar og tilfinningar annarra.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að auka þekkingu og skilning nemenda á starfsemi líkamans og áhrifum skipulagðrar

þjálfunar á líkama og heilsu.

Námsþættir/NámsefniLögð er áhersla á grunnþjálfun sem felst í alhliða líkamsuppbyggingu, þolþjálfun og sem mestri hreyfingu. Nemendum eru kynntar helstu íþróttagreinar sem stundaðar eru í landinu og íþróttaaðstaðan við skólann leyfir.Þolhlaup ( úti), rólegt skokk í 15-20 mín.Nemendur taka þátt í samstarfsverkefnum s.s. íþróttasýningum og íþróttamótum.Nemendur þjálfast í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, blak, hafnarbolta og bandy.Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reipitog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir, brennó, kíló, Tarsanleikur og hanaslagur.Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup, jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu, litlir kolhnísar og stórir kolhnísar.Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.Grunnþjálfun og leikfimi: Alhliða líkamsuppbygging með áherslu á æfingar sem auka styrk, liðleika og þol nemenda.Íþróttafræði og heilsuvernd: Í kennslu verður leitast við að fræða nemendur um hreinlæti áhrif íþróttaiðkunar á líkamann og starfsemi íþróttafélaga.Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.Sund: Bringusund, baksund, skriðsund, björgunarsund, stunga, björgunar- og leysitök.

NámsmatÍ íþróttum fer námsmat fram með þrennum hætti20 % A: Hlutlægt mat þar sem árangur nemenda er mældur t.d. með málbandi eða skeiðklukku.30 % B: Huglægt mat. Kennarinn metur færni nemenda í ákveðnum íþróttum þar sem mælingum verður ekki komið við með öðrum hætti t.d. boltaleikjum, leikjum og æfingum ýmis konar.50 % C: Ástundun, áhugi, virkni, samvinna og framkoma í kennlustundum.

Page 119: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

117Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Heimilisfræði, valgrein3 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemandi:

• verði upplýstur og ábyrgur neytandi og geti valið og hafnað vöru og þjónustu með gagnrýnu hugarfari

• tileinki sér kurteisi og tillitssemi og geti unnið með öðrum• tileinki sér lífshætti sem samræmast umhverfisvernd• þekki þætti í matarmenningu Íslendinga, sögu og sérkenni, siði og venjur

Inntak námsNemendur læra:að vinna sjálfstættað beita helstu áhöldum og tækjum sem notuð eru við matreiðslunaað skipulag og öguð vinnubrögð eru nauðsynlegað fara eftir uppskriftum og nota matreiðslubækurmeðferð grænmetis, fisks og kjöts með tilliti til matarsýkingaað góð nýting hráefnis skiptir sköpum í matreiðsluferlinuað gera greinarmun á hollum og óhollum matað taka á móti gestum og þjóna til borðs (gestum boðið í mat)

NámsgögnVerklýsingar gerðar af kennara.Heimilisfræði II og III og verkefnablöð unnin upp úr þeim.Ýmsar matreiðslubækur og uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar.Sýnikennsla í ýmslum matreiðsluaðferðum og vinnubrögðum.

KennsluskipanGreinin er valgrein í 9. bekk.Kennt er hálfan veturinn 3 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.Skrifleg verkefni eru unnin í tímunum ýmist taka þau til næringarfræði, vöruþekkingar eða verklega þáttarins.

NámsmatStöðugt mat á vinnu nemenda. Metið er sjálfstæði, frumkvæði, ástundun, vinnubrögð, samstarfshæfni, frágangur og hegðun.Verklegt- og bóklegt próf.

Hönnun, smíði og tæknimennt2 kennslustundir á vikuÍ Aðalnámskrá grunnskólans stendur:“Nauðsynlegt er að kenna börnum og unglingum hönnun og smíði í samræmi við kröfur og áherslur á verkmenntun og skapandi starf. Smíðin þroskar verkfærni og verkkunnáttu og gerir nemandann sjálfstæðan í verki. Þannig er smíði góður undirbúningur undir lífið og frekara nám.”

Page 120: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

118 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

MarkmiðÍ þessari grein fær nemandinn þjálfun í að móta hugmyndir sínar og færni. Nýting á efnis- og formheimi í umhverfi barnanna og afleiðing af heildrænu, skapandi starfi er aukið áræði, þekking og færni.Öllum einstaklingum er nauðsyn að geta greint og skilið eðli vinnuferla og notkun viðeigandi verkfæra og beitingar þeirra. Skilningur og færni í þessum þáttum gerir nemandann færan um að skilja eðli vinnunnar og skipuleggja starf sitt. Í hönnun og smíði fær nemandinn þjálfun í verktækni og verkþekkingu ásamt því að geta áttað sig á hvernig hlutir verða til, allt frá hönnunarstigi til lokaafurðar. Fléttað er inn í nokkur verkefni tæknimenntar þar sem einföldum þáttum s.s. flutning hreyfingar frá einum stað til annars, orkuflutningi með tannhjólum eða reimum og leiðni og rof rafmagns. Þessir þættir koma inn smátt og smátt eftir aldri og þroska nemenda. Eftir átta ára nám í þessari grein hafa nemendur öðlast töluverða færni . Þess vegna er nauðsynlegt að halda áfram námi í greininni og njóta þess að nýta þessa þekkingu sem þegar er áunnin Þannig er komið í veg fyrir að nemendur missi það sjálfstraust í sköpun sem þeir hafa öðlast í gegnum árin. Gott er að geta lagt á hilluna bókagrúsk í 2 kennslustundir á viku og beina huganum í aðrar áttir. Í vali í 9. bekk verður byggt á námi greinarinnar undanfarin tvö ár með aukna áherslu á einstaka þætti listsköpunar og hönnunar með tæknimenntarívafi. Í 9. bekk verða gerðar ýmsar tilraunir með verkefni einstaklinga eða hópa allt eftir vilja nemenda sjálfra.

NámsefniAllt sem nemendur vilja nota og mögulegt er að útvega.Verkefnaval er frjálst í samvinnu við kennara.Tækjanotkun verður almennari við vinnu nemenda s.s: notkun pússivéla , borvéla , rafsuðuvéla og gastækja svo eitthvað sé nefnt.

KennsluaðferðirSýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð, aðferðir og skýringartöflur.Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir, ásamt leiðsögn kennara.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni. Einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 stundir á viku allan veturinn

Markmið• að nemendur fái markvissa þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að þeir verði sjálfbjarga í

réttri notkun áhalda og saumavéla.• að efla frumkvæði nemenda og að þeir öðlist sjálfstraust til eigin sköpunar.• að nemendur fræðist um textíliðnað og fataframleiðslu.• að nemendur geti tekið mál, tekið upp snið, sniðið og saumað flík.• að nemendur læri að nota handbækur greinarinnar.• að nemendur geti notað möguleika margmiðlunar og tölvutækni í tengslum við vinnu

sína.

Page 121: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

119Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsþættirNám í textílmennt í 9. bekk er framhald af fyrra námi í yngri bekkjunum. Nemendur bæta við þekkingu sína í prjóni, hekli, útsaumi og vélsaumi samkvæmt áhuga og getu hvers einstaklings.Í vélsaum er saumuð einföld flík t.d.náttföt, barnaföt, hettupeysur, pils, buxur, bolir eða annað að eigin vali. Kennt að taka upp snið úr tískublöðum, átta sig á hvaða stærð skal nota, hve mikið efni fer í flíkina, leggja snið á efni og merkja saumför.Hönnun endurnýting. Nemendur hanni og saumi fatnað eða aðra hluti úr notuðum flíkum t.d. gallabuxum.Kynning á þæfingu, útbúnir hlutir að eigin vali.Önnur viðfangsefni, frjálst val í samráði við kennara, eftir getu og áhuga nemenda. Farið verður í vettvangsferðir á hönnunar- og textílverkstæði og textílsýningar ef þess er kostur.

NámsefniBækur: Saumahandbókin og Á prjónunum. Handbækur, blöð og ljósrit úr bókum og blöðum sem henta verkefnum hverju sinni.

KennsluaðferðirKynning, verkefni útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð, aðferðir og skýringartöflur.Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir, ásamt leiðsögn kennara.

HeimavinnaVinnan fer að mestu leyti fram í skólanum en ef unnið er með prjóna, hekl- eða útsaumsverkefni geta nemendur einnig unnið heima.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni. Einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.Námsmat:60% Vinnubrögð20% Ástundun (heimavinna/vinna í tímum )10% Sjálfstæði10% Afköst

Page 122: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

120 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

10. bekkurÍslenska

6 kennslustundir á viku Meginmarkmið:Fjölmörg markmið eru æskileg þegar fjallað er um notkun og meðferð móðurmálsins svo að það nýtist nemendum sem best. Flokka má markmiðin í fjóra meginþætti sem eru einna mikilvægastir í því sambandi:

• Stefnt er að því að nemandinn nái:• að hlusta á talað mál af skilningi• að tala gott mál• að lesa sér til gagns og ánægju• að rita læsilegt og vandað mál• að kunna skil á ýmsum þáttum málfræði, setningafræði o.þ.h.

Hér verður getið nokkurra þeirra undirmarkmiða sem stefnt verður að í 10. bekk. Farið verður eftir þrepamarkmiðum Aðalnámskrár grunnskóla og tekið mið af reynslu undanfarinna áratuga í Hvassaleitisskóla.

Lestur, bókmenntir og ljóðMarkmið

• geti lesið sér til gagns og ánægju á eðlilegum hraða og af öryggi og telji lestur eðlilegan hluta af vinnu sinni og tómstundaiðkun

• geti tileinkað sér texta úr hagnýtum bókum, blöðum, af neti o.s.frv. tilheyrandi öðru námsefni og hugðarefni

• geti greint aðalatriði og aukaatriði í texta• geti lesið texta með gagnrýnu hugarfari, m.a. að• geta myndað sér skoðun á því efni sem lesið er• geta áttað sig á mismunandi markmiðum höfundar með texta, t.d. fræðslu, skemmtun eða

áróðri• geta náð til hlustenda í upplestri og beitt upplestri þannig að efni og form njóti sín Stefnt

að því að nemandi:• geti lesið og skilið valinn texta úr fornum og nýjum bókmenntum bæði í ljóðum og lausu

máli• geti gert grein fyrir hraðlesnum texta skriflega og munnlega, gagnrýnt hann, rökrætt og

fjallað um boðskap hans og áhrif• þekki helstu hugtök í bókmenntum og bragfræði

NámsþættirNemendur lesa valdar sögur úr Mályrkju III auk þess sem ein fornsaga verður lesin. Stefnt er að því að þau lesi eina nýlega skáldsögu og vinna með hana. Nemendur kynnast helstu bókmenntastefnunum auk þess sem áfram er unnið með hugtök úr bókmennta- og ljóðafræðum. Nemendur lesa reglulega kjörbækur og skila skýrslum um efni hennar.

NámsefniGísla saga Súrssonar

Page 123: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

121Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Mályrkja III e. Silju Aðalsteinsdóttur og Höskuld ÞráinssonMýrin e. Arnald Indriðason Hugtakarolla e. Ragnar Inga Aðalsteinsson og Þórð HelgasonÞá hló marbendill, þjóðsögur teknar saman af Baldri HafstaðBlaða- og tímaritagreinar

HeimanámNemendur lesa efni heima og vinna svo efnislega með það ýmist í tímum eða heima

Stafsetning og ritunMarkmið

• geti látið frá sér ritað mál af ýmsu tagi, hafi m.a. öðlast öryggi í að tjá hugmyndir sínar og skoðanir í rituðu máli - og fengist við skapandi skrif

• hafi áttað sig á ólíku stílgildi orða og setningargerðum, orðtökum og málsháttum• geti nýtt sér málfræðihugtök við umfjöllun um frágang, málsnið og stíl• geti skipt texta í málsgreinar, efnisgreinar og kafla með fyrirsögnum• hafi náð tökum á öllum helstu stafsetningarreglum

NámsþættirNemendur vinna æfingar úr bókum og af blöðum frá kennara. Reglulega verða teknar æfingar í upplestri. Nemendur skila yfir veturinn reglulega inn ritunaræfingum þar sem lögð er áhersla á byggingu og málfar.

NámsefniRéttritun eftir Hörð BergmannRitgerðarefni og ljósrit frá kennara

HeimanámNemendur vinna æfingar heima jafnt í stafsetningu og ritun

MálfræðiMarkmiðAð nemandi:kunni skil á öllum orðflokkum, sérkennum þeirra, beygingum og notkunkunni skil á setningafræði, þekki helstu setningahluta og mun á aðalsetningum og aukasetningumþekki helstu hljóðbreytingar í íslensku og geti nýtt sér þær í stafsetningu og orðmyndunþekki helstu hugtök í tengslum við orðmyndum og orðhlutakunni grundvallaratriði hljóðfræði og landshlutabundinn framburðþekki sem flesta málshætti og orðtök og kunni að greina þar á milli

NámsþættirNemendur vinna ólík verkefni í málfræði sem reyna á ólíkar hliðar hennar.

NámsefniÍslenska kennslubók í málvísi og ljóðlist e. Jón Nordal og Gunnlaug V. SnævarrSmáorð eftir Magnús Jón ÁrnasonGullvör III eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson

Page 124: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

122 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Efni frá kennara og af Málbjörgu

HeimanámNemendur vinna verkefni í málfræðibókum og af blöðum

KennslutilhögunFyrirlestrar, sýnikennsla,myndmiðlar, hlustunarefni, skriflegar æfingar, vinnubókarkennsla, töflukennsla, lesið, spurt og spjallað, yfirferð námsefnis, námsleikir, þjálfunarforrit, samræða, spurnaraðferðir, umræðuhópar, leikræn tjáning, myndræn tjáning, hreyfing, ritun, hópvinna og þemanám

NámsmatStöðugt eftirlit er með vinnu nemenda, eftirtekt, skilningi, færni og áhuga. Verkefni og próf eru notuð til að meta stöðu nemendanna. Viðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Stærðfræði 6 kennslustundir á viku

Námsefni“8 – 10” eftir Guðbjörgu Pálsdóttur og Guðnýju Helgadóttur, “Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla III”. Þýdd og staðfærð úr sænsku af þeim Hildigunni Halldórsdóttur og Sverri Einarssyni, Leikni, þjálfun í stærðfræði og Leikni, þjálfun í algebru.

NámsþættirLíkindareikningur, einfaldar og endurteknar líkindatilraunir, fræðilegar líkur og raunlíkur.Ferningar og ferningsrætur, rétthyrndir þríhyrningar (regla Pýþagórasar).Metrakerfið og breytingar milli eininga.Strendingar, sívalningar, keilur og kúla. Rúmmál og yfirborðsflatarmál.Algebra, veldi, margliður, ræðar stæður, margföldun, þáttun og einföldun.Jöfnur uppsettar og óuppsettar, jöfnuhneppi, teikni-, samlagningar- og innsetningarlausn.Þegar niðurstöður samræmdra könnunarprófa liggja fyrir verður námi nemenda stýrt inn á þá námsþætti sem viðkomandi stendur verst í. Nemendur fá því ólík viðfangsefni eftir því sem líður á veturinn.

KennsluhættirBein kennsla þar sem útskýrt er af töflu ásamt uppgötvunarnámi, yfirferð á dæmum, þrautalausnir, þjálfunarforrit, hópverkefni, og umræður. Nemendur setja sér markmið í samráði við kennara, gera áætlun til viku í einu og skila í möppu sem geymd er í stærðfræðistofu. Afrakstur vinnuvikunnar fer síðan í sömu möppu til yfirferðar fyrir kennara. . Kennari ákveður hvenær „eindagi“ kaflaprófa er en nemenda er í sjálfsvald sett að

Page 125: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

123Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

taka kaflaprófið fyrr.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%

Vorpróf 30%-40%

Enska4 kennslustundir á viku

Kennsluaðferðir:Kenndar eru tvær kennslustundir saman. Sá fyrri verður notaður í kennslubókina og sett verður fyrir í henni í lok tímans. Seinni tíminn mun fara í að þjálfa færniþættina fjóra (hlustun, lesskilning, tal og ritun) og verður þá stundum kennt í hringekju eða hópaformi. Bein kennsla, hlustun, hópvinna, ritun, samræður og vinnubókarkennsla.

Meginmarkmið:• að nemendur geti notað ensku til samskipta í skólastofunni, látið í ljós aðdáun/ vanþóknun

og tjáð skoðanir sínar. Geti tjáð sig um umhverfi sitt og áhugamál og náð liprum tökum á framburði.

• að nemendur geti sem hlustendur skilið fyrirhafnarlítið þegar talað er um málefni sem þeir þekkja, geti fylgt meginþræði í fréttaefni eða umræðum.

• geti skilið ensku talaða með mismunandi staðbundnum framburði eða við mismunandi aðstæður, formlegar eða óformlegar.

• að nemendur verði færir um að lesa smásögur og aðgengilegar skáldsögur og valin tímarit og blöð um mismunandi efni

• að nemendur þekki og geti beitt grundvallaratriðum enskrar málfræði svo sem notkun greinis, tíðum sagnorða, fleirtölu nafnorða, stigbreytingu lýsingarorða og atviksorða og kunni skil á fornöfnum og forsetningum og skilyrðasetningum og þolmynd.

• að nemendur geti skrifað samfellda,viðeigandi og skipulega texta s.s. ritgerðir,skýrslur og gagnrýni. Kunni að beita helstu reglum um greinarmerkjasetningu, orðaröð og málnotkun.

• að nemendur fái innsýn í menningu og lifnaðarhætti þeirra þjóða sem hafa ensku að móðurmáli eða þjóðtungu.

• að nemendur geti auðveldlega nýtt sér upplýsingatækni til öflunar heimilda.

Námsefni:• Aðalkennslubók Breakthrough Comprehension 1-3, Active Comprehension 2• Hlustun: Read English og hlustunarefni sem skólinn leggur til.• Lestur: T´n´T (Texts and tasks)og S.R.A. 3A og 3B• Málfræði: Ljósritað efni sem skólinn leggur til.• Ritun: Developing Skills

Page 126: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

124 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• Léttlestrarbækur af bókasafni skólans.• Æskilegt er að nemendur hafi aðgang að enskri orðabók.

Heimanám:Heimanám er nauðsynlegur liður í enskunámi nemendanna og kennari leggur ríka áherslu á að því sé sinnt enda hafa þau alltaf viku til að vinna heimavinnuna. Kennarinn hvetur nemendur til að vanda vinnubrögð sín. Nemendur koma reglulega “upp á töflu” og skrifa verkefni sem þeir hafa unnið heima og kennari og nemendur leiðrétta síðan. Nemendur skila einni bókaumsögn mánaðarlega.

Námsmat:Viðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%

Vorpróf 30%-40%

Danska4 kennslustundir á viku

Í 10. bekk er leitast við að nemendur kynnist menningu, siðum og lifnaðarháttum í Danmörku. Fjallað verður um ýmis efni í því sambandi og má t.d. nefna daglegt líf í Danmörku, fjölmiðla, skóla og menntastofnanir, nám og samskipti einstaklinga og hópa.

Kennslutilhögun:Bein kennsla, hlustun, hópverkefni, ritun, samræðuaðferðir, tölvuvinna, vinnubókarkennsla. Markmið:

• að nemendur skilji fyrirhafnarlaust flest venjuleg fyrirmæli• að nemendur skilji smáatriði í samtölum tveggja manna, tilkynningum og• frásögnum með orðaforða efnisflokka sem unnið er með• að nemendur geti beitt yfirlitslestri og skilið megininntak texta• að nemendur geti beitt leitarlestri og nákvæmnislestri og leitað eftir ákveðnum upplýsingum• að nemendur geti skilið megininntak lengri texta• að nemendur geti beðið um aðstoð sína, leyft eitthvað eða hafnað einhverju á dönsku• að nemendur geti leiðrétt sig, afsakað, hrósað öðrum og látið í ljós ánægju/óánægju• dönsku• að nemendur geti notað grunnorðaforða úr efnisflokkum, sem unnið hefur verið með, á

eigin forsendum í nýju samhengi• að nemendur geti skrifað lengri samfelldan texta um efni sem tengjast daglegu lífi• að nemendur geti tjáð skoðanir sínar og hugsanir á skiljanlegu rituðu máli• að nemendur hafi lært að skrifa texta með góðu samhengi

Page 127: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

125Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Námsefni:• Kennslubókin EKKO eftir Ernu Jessen og Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur verður lögð til

grundvallar. Lesbók og vinnubækur fylgja henni.• Myndbandsspólur ; Det er Danmark• 1 - 2 danskar kvikmyndir• Léttlestrarbækur af bókasafni skólans• Valdir textar og verkefni á Internetinu• Valin málfræðiverkefni úr bókinni Danskar æfingar eftir Guðrúnu Halldórsdóttur• Ljósritað efni sem skólinn leggur til• Æskilegt er að nemendur hafi aðgang að danskri orðabók

Námsþættir: – Lestur:

Nemendur lesa texta í kennslubók heima fyrir hverja kennslustund og glósa öll ný orð sem koma fyrir í viðkomandi texta. Þeir leysa verkefni sem tengjast textanum, annað hvort heima eða í kennslustund. Auk þess lesa nemendur frjálslestrarbækur mánaðarlega og þurfa að skila bókaumsögnum eftir lestur þeirra til kennara. Nemendur fara einnig inn á danska vefi á Internetinu og lesa og leysa verkefni þar.

– Hlustun:Nemendur hlusta á talað mál tengt verkefnum úr aðalkennslubók. Einnig leggur skólinn til ýmis hlustunarverkefni. Myndbandsefni, Det er Danmark er notað og verkefni með því.

– Talað mál:Leitast skal við að kennsla fari að mestu leyti fram á dönsku. Nemendur þjálfast í talmáli með samtalsæfingum í kennslubók, sín á milli og við kennara. Við yfirferð námsefnis úr aðalkennslubókinni eru nemendur stundum látnir lesa upp texta og framburður æfður.

– Ritun:Nemendur æfa ritun með því að skrifa texta á dönsku, getur verið frjáls texti eftir myndum og fyrirmælum eða beinar þýðingar á dönsku. Öðru hvoru skrifa nemendur uppritun eftir lestri kennara. Einnig leggur skólinn til ýmis ritunarverkefni sem tengjast þá efni því sem farið er yfir í aðalkennslubók. Nemendur skrifa líka samfelldan texta sem getur tengst einhverju þema, skoðunum þeirra eða hugsunum.

– Málfræði:Nemendur vinna málfræðiverkefni þegar við á. Reglur málfræðinnar eru kynntar þannig að nemendur geti skilið og beitt málfræðiatriðum í tali og rituðu máli. Í 10. bekk er t.d. fengist við, eignarfornöfn, sagnir, núþálegar sagnir og forsetningar í föstum orðasamböndum.

Heimavinna:Heimavinna nemenda felst í undirbúningi fyrir kennslustundir t.d. lestri og úrvinnslu verkefna. Kennari leggur mikla áherslu á að heimavinnu sé sinnt og gengur eftir því. Öll heimavinna nemenda er skráð niður hjá kennara og geta nemendur og foreldrar ávallt fengið að vita hvernig nemendur sinna heimavinnu sinni.

Námsmat:Viðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. Bekk.Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%

Page 128: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

126 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%Í lok hvers kafla í aðalkennslubók taka nemendur skyndipróf. Kennari fylgist með og skráir ástundun nemenda í kennslustundum og leggur mat á heimaverkefni. Nemendur taka miðsvetrarpróf í janúar (desember). Í lok skólaárs fá nemendur vetrareinkunn sem er heildareinkunn fyrir allan veturinn.

SamfélagsfræðiSaga: 2 kennslustundir á viku

Markmið• Fjalli um valin málefni sem rætt er um í fjölmiðlum• Hugleiði hvernig sjálfsmynd hans verði til• Vera kunnugur nokkrum forystumönnum í þjóðlífi 19.aldar á Íslandi, einkum Jóni Sigurðssyni

og geta metið hvernig þeir mótuðust af og mótuðu umhverfi sitt• Þekkja nokkra þætti styrjaldaráranna á Íslandi svo sem hernámið, stofnun lýðveldis og

breytingar á menningu og gildismati• Kynni sér gang seinni heimsstyrjaldar með því að velja sjónarhorn og efni• Þekki atburðarás stríðsáranna i stórum dráttum• Þekki áhrif hersetunnar á atvinnulíf, viðskipti og tækni

KennsluaðferðirHeimildarvinna, hópvinna, lestur, umræður, ritun, efniskönnun, spurnaraðferðir.

NámsþættirÍ sögu í 10. bekk verður fjallað um tuttugustu öldina. Ákveðnir þættir úr sögu Íslands verðaathugaðir og bornir saman við atburði annars staðar í heiminum á sama tíma. Efnið er viðamikið og eiga nemendur að þekkja fáein atriði s.s. lokasprett sjálfstæðisbaráttunnar. Fjallað verður um stríðsárin á Íslandi og þau áhrif sem þau hafa haft á íslenskt samfélag. Gangur heimsstyrjaldanna verður rakinn og og leitast verður við að gefa trúverðuga mynd af hernámi Breta og Bandaríkjamanna. Skoðuð verða atvinnumál, stjórnmál, efnahagsmál og svo að sjálfsögðu samskipti hermanna við íslensku kvenþjóðina. Loks verður tekin fyrir Þjóðfélagsfræði. Þar sem fjallað er um t.d. sjálfsmynd, réttindi og skyldur og hverjir ráða.

NámsefniJón Sigurðsson og hugmyndir 19. aldarStríðsárin á Íslandi 1939-1945Þjóðfélagsfræði eftir Garðar Gíslason

KennslutilhögunNámsefnið er fjölbreytt og býður upp á mismunandi vinnuaðferðir, fyrirlestra, skriflegt nám, einstaklings- og hópverkefni.Kennslan miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og skilning á námsefninu. Unnið er í

Page 129: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

127Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

verkefnabók að skriflegum verkefnum. Kennslumyndbönd eru notuð eftir því sem við á.

HeimanámNemendur lesa heima fyrir hvern tíma og skila verkefnum þegar við á.

NámsmatNámsmatið fer fram jafnt og þétt allan veturinn. Tekin eru próf sem gilda sem lokaeinkunn ásamt vinnubók. Nemendur skila ritgerðum og halda fyrirlestra.Heimavinnuskil og vinnubrögð í tímum gilda sem vetrareinkunn.

Landafræði: 2 kennslustundir á vikuLandafræðin hefur almennt menntunargildi. Hún kemur víða við og fátt er henni óviðkomandi. Með því að kenna landafræði er ekki eingöngu verið að láta nemendur leggja á minnið ákveðin minnisatriði fyrir næsta próf heldur miklu fremur verið að gera þá læsa á umhverfið, náttúruna, menninguna og mennina.

KennsluaðferðirNámsefnið er fjölbreytt og býður upp á mismunandi vinnuaðferðir, fyrirlestra, skriflegt nám, einstaklings- og hópverkefni. Kennslan miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og skilning á námsefninu. Unnið er í verkefnabók að skriflegum verkefnum. Kennslumyndbönd eru notuð eftir því sem við á og einnig nýjasta tölvutækni.

NámsefniHeimshorna á milli – þróunarlönd eftir Þórdísi SigurðardótturVerkefnablöð og ítarefni.Kort og myndir

MarkmiðNemandi:

• læri að bera saman ólík svæði í heiminum út frá upplýsingum af kortum og ræði um hvaða þættir hafi áhrif á lífskilyrði fólks

• læri að lesa úr og búa til aldurspíramídakynnist gervihnattamyndum og gagnsemi þeirra t.d. við að greina búsetumynstur, gróðurbelti og veðurkerfi

• skynji mikilvægi upplýsinga á kortum við staðarval t.d. verslunarmiðstöðvar og tengsl þeirra við samgöngur og íbúabyggð .

• skilji hvernig náttúrufar hefur áhrif á athafnir fólks og hvernig mismunandi menningarleg gildi, trúarleg viðhorf, tæknileg, efnahagsleg og pólitísk kerfi geta mótað umhverfið á ólíka vegu

• fái yfirlit yfir atvinnulífið og kynnist því hvernig atvinnu fólks er skipt í frumvinnslu, annars og þriðja stigs atvinnugreinar og hver þróun atvinnulífsins er

• öðlist yfirlit yfir heiminn, jafnt þætti náttúrufars sem og menningarleg einkenni, geti borið saman ýmis einkenni heimsálfnanna, hvað sé líkt og hvað ólíkt

• kynnist því sem er efst á baugi í umhverfismálum og öðlist skilning á gildi umhverfisverndar heima og á heimsvísu

• kynnist vandamálum fólksfjölgunar og ójafnrar dreifingar mannfjöldans, þar með talið vaxandi borgvæðingu

• kynnist meginþáttum efnahagslífs þjóða, tengslum þess við nýtingu náttúruauðlinda og skiptingu heimsins í ríkar þjóðir og fátækar

• átti sig á því hvað einkennir þróunarlönd t.d. með tilliti til atvinnuvega og tæknistigs þeirra

Page 130: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

128 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

fæðingar- og dánartíðni, ungbarnadauða, læsis og fjölda lækna• kynnist dæmum um alþjóðlegar aðgerðir til að bæta líf fólks í þróunarlöndum• þjálfist í að greina og túlka landfræðileg tengsl þátta eins og heildarþjóðarframleiðslu, fjölda

starfa í einstökum atvinnugreinum, gróðurfars, landslags, veðurfars og búsetumynsturs• kynnist áhrifum breyttra atvinnuhátta á það hvar fólk býr og samskipti þess• læri að greina mun á hlutfalli mannafla í frumvinnslu og úrvinnslugreinum og geti útskýrt

af hverju þessi munur hefur orðið til• skilji hvernig umhverfisþættir, tækni, efnahagslegar, félagslegar og stjórnmálalegar

breytingar hafa áhrif á landnotkun og atvinnu• læri að útskýra mismun á aldurs- og kynjaskiptingu fólksfjölda eftir borgum, svæðum, löndum

og heimshlutum og gera grein fyrir hvaða áhrif munurinn hefur á þjónustu í samfélagi með hátt hlutfall aldraðra í samanburði við samfélag með hátt hlutfall ungs fólks

• þekki helstu atvinnuvegi jarðarbúa og hvernig náttúran sníður atvinnulífi hvers lands stakk og setur því skorður

• átti sig á hvernig daglegt líf og efnahagur fólks í þróunarlandi stýrist af náttúruöflunum í ríkari mæli en í iðnríki

• fái innsýn í þau umhverfisvandamál sem fylgja mikilli borgvæðingu, t.d. minnkun ræktunarlands, eyðileggingu gróðurþekju og mengun lofts og vatns

• þekki helstu ástæður gróður- og jarðvegseyðingar af manna völdum, s.s. stórvirkar ræktunarframkvæmdir, og geti skýrt af hverju sumir staðir á jörðinni eru sérstaklega viðkvæmir fyrir slíku rofi

• beri saman inn- og útflutningsvörur annars vegar í iðnríkjum og hins vegar í þróunarlöndum og átti sig á hvaða afleiðingar það hefur í för með sér ef verðmæti seldrar vöru og þjónustu er minna en þess sem er keypt

• útskýri hvernig framkvæmdir mannanna og náttúrufar á hverjum stað hefur áhrif á stækkun eyðimarka

• skilji af hverju ár, vötn og höf eru sérstaklega viðkvæm fyrir mengun• átti sig á ástæðum þess að fólk flytur, t.d. vegna óskar um betra húsnæði, það skiptir um

starf, flýr faraldra, stríð eða ofsóknir• þjálfist í að rökræða ágreining t.d. um staðarval stóriðju eða landnotkun innan þéttbýlis• skilji ástæður þess á hvern hátt land er notað, hvernig ágreiningur myndast vegan samkeppni

um landnotkun og staðarval mismunandi starfsemi.

KennslutilhögunKennsla í tímum er að mestu leyti í formi lausnarleitarnáms og hópvinnu og einstaklingsvinna með fyrirlestrum. Sökum efnis er mikil notkun ýmissa nýsigagna nauðsynleg s.s. glæra, myndbanda, teikninga, korta og mynda ásamt ýtarefni af bókasafni og Innterneti.

NámsmatNámsmatið fer fram jafnt og þétt allan veturinn.Tekin eru próf sem gilda sem lokaeinkunn ásamt vinnubók. Nemendur halda fyrirlestur og skila ritgerð. Heimavinnuskil og vinnubrögð í tímum gilda sem vetrareinkunn.

NáttúruvísindiÞekking og skilningur á helstu kenningum og lögmálum náttúruvísinda og kunnátta í vinnubrögðum sem viðhöfð eru við vísindalegar athuganir og rannsóknir eru mikilvægur þáttur í þroska og menntun nemenda og grundvöllur að því að efla áhuga þeirra og forvitni á umhverfi sínu og

Page 131: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

129Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

hinum ýmsu fyrirbærum náttúrunnar. Að loknu grunnskólanámi er stefnt að því að nemendur hafi öðlast grunnþekkingu, þjálfun og sjálfstraust til að takast á við kröfur nútímasamfélags og verði færir um að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni.Náttúruvísindi greinast í þrjú meginsvið: eðlisvísindi, jarðvísindi og lífvísindi.

Áfangamarkmið við lok 10. bekkjarAð nemandinn:

• geti tengt skilning og vinnubrögð úr náttúrufræðinámi við önnur verkefni í ýmsum greinum í skólanum og í daglegu lífi.

• sýni áhuga og frumkvæði við öflun þekkingar.• öðlist færni og sjálfsöryggi við að leysa fjölbreytt verkefni með eða án ítarlegra

leiðbeininga.• geti fjallað um sameiginlega þætti ólíkra námsgreina.• sýni vilja til að leita eftir og deila upplýsingum og skýringum með öðrum og sýni skilning á

að slíkt er ein af forsendum vísindaframfara.• átti sig á að útskýringar séu aldrei endanlegar og að ekki er hægt að sanna þær svo óyggjandi

sé.• geri sér grein fyrir tilgátusmíð og kenningum sem skipulegri starfsemi vísinda.• skilji mikilvægi þess að mælingar séu áreiðanlegar og nákvæmar• geti útskýrt með dæmum hvernig þekking á náttúrunni hefur þróast.• geri sér grein fyrir hvernig náttúruvísindi hafa í senn áhrif á og verða fyrir áhrifum af

menningu og heimsmynd mannsins.• geti fjallað um gagnkvæm áhrif tækni og vísindalegra framfara• geti metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað• sýni áhuga og ábyrgð á umhverfinu og því að dýpka og styrkja þekkingu sína á því eftir

ýmsum leiðum• geti fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdra umhverfismálum í

heimabyggð, umhverfisvernd og nýtingu náttúruauðlinda, tilraunastarfsemi á mönnum og dýrum og annarri nýtingu á vísindalegri þekkingu.

• geri sér grein fyrir mikilvægi sjálfbærrar þróunar fyrir samfélagið• geri sér grein fyrir að maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans og framtíð byggist

á gagnkvæmri ábyrgð og virðingu í samspilinu við móður jörð.

ÞrepamarkmiðÚr eðlisvísindumAð nemandinn:

• geti útskýrt að orkuflutningur á sér stað þegar efni er hitað eða það kólnar• geti útskýrt samband sameindahreyfinga og hita• geti valið og notað viðeigandi mælieiningar um orku, varma og hita• geti útskýrt hvernig orkan breytir um mynd• geti skilgreint og borið saman helstu einkenni hreyfiorku, stöðuorku, rafsegulorku,

varmaorku, efnaorku og kjarnorku• vinni með sveiflustærð, lögun, bylgjulengd og tíðni bylgju og noti viðeigandi mælieiningar• átti sig á hvernig hljóð berst í lofti og vatni• beiti hugtökum um endurvarp bylgna við hljóð

Page 132: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

130 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geri sér grein fyrir muninum á holspeglun og kúptri speglun• geti útskýrt ljósbrot út frá tilraunum með linsur og þrístrent gler• geti útskýrt lifróf hvíts ljóss út frá athugun• geti lýst rafsegulbylgjum og eðli ljóss jafnt sem ögnum og bylgju• geti útskýrt muninn á raðtengdum og hliðtengdum straumrásum og notað viðeigandi

mælieiningar við athuganir á spennu og straum• geti útskýrt rafspennu og rafstraum m.t.t. orku• átti sig á sambandi milli straums og spennu, reikni út viðnám með lögmáli Ohms og noti til

þess viðeigandi mælieiningar• geti útskýrt viðnám m.t.t. orkubreytinga og vinnu• þekki seguleiginleika rafstraums• geri sér grein fyrir hvernig hægt er að fá rafmagn úr segulmagni og tengslum þess við

raforkuframleiðslu• geti útskýrt kjarnahvörf og kjarnaklofnun• fjalli um sérstöðu kjarnorku sem orkugjafa og möguleg áhrif notkunar á lífið á jörðinni• afli sér upplýsinga um orkuform á Íslandi og erlendis• þekki helstu gerðir virkjana, s.s. vatnsaflsvirkjanir, jarðhitaver, kjarnorkuver, virkjun

sjávarfalla, vinds og sólarorku• átti sig á að sumar orkulindir eru endurnýjanlegar en aðrar ekki• fjalli um mikilvægi umgengni við orkulindir út frá gildum sjálfbærrar þróunar• beri saman ólíka orkugjafa og fjalli um mögulegar afleiðingar umsvifa mannsins við virkjun

og aðra nýtingu orkulinda á lífríki og búsetu

Úr lífvísindumAð nemandinn:

• geti lýst hlutverki erfðaefnisins DNA, gena og litninga• geti útskýrt mikilvægi erfðalykla erfðaefnisins• þekki og geti beitt hugtökunum ríkjandi og víkjandi gen, arfhreinn og arfblendinn• vinni útreikninga sem sýna líkur á því að erfðaeiginleiki erfist frá einni kynslóð til annarrar

og kynnist þannig hugmyndum Mendels.• geti lýst fjölbreytni í erfðum, s.s. vegna tilfærslu gena, kynæxlunar og stökkbreytinga.• skilji hvað stjórnar kynferði einstaklings• skoði litninga mannsins á mynd, breytileika þeirra og sérstöðu kynlitninga• geti útskýrt erfðir blóðflokka manna og kynbundnar erfðir, s.s. litblindu• geti skýrt og nefnt dæmi um einræktun• geti rætt um genasplæsingar, kynbætur, gerð og notagildi genakorts mannsins og hugmyndir

um erfðalækningar.• fjalli um á hvaða hugmyndum þróunarkenning Darwins er byggð og hver eru helstu áhrif

hennar á heimsmynd mannsins.• geti lýst hvaða þættir eru taldir hafa áhrif á náttúruval.• geti skýrt kenningar um þróun lífs á jörðinni og stuðst við líffræðileg rök og • steingervinga.

Úr jarðvísindum

Page 133: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

131Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

• geri sér grein fyrir stöðu sólkerfis okkar í vetrarbrautinni• þekki einkenni sólkerfis okkar• þekki reikistjörnurnar eftir sporbaug: nöfn, einkenni, staðsetningu og helstu fylgitungl• þekki muninn á lífsskilyrðum á reikistjörnunum og jörðinni• fjalli um mismunandi kenningar um þróunarsögu sólarinnar• geti lýst fæðingu, þróun og endalokum stjarna• þekki loftsteina, halastjörnur og stjörnuhröp• skilji hvernig og hvers vegna tungl- og sólmyrkvar eiga sér stað• geti útskýrt eðli flóðs og fjöru á jörðinni út frá þyngdarkrafti• geti útskýrt árstíðaskipti út frá stöðu jarðar á leið sinni um sólu með tilliti til halla

jarðmönduls• fjalli um hvernig alheimurinn varð til samkvæmt stórahvellskenningunni og þróun hans í

fortíð og framtíð• geri sér grein fyrir fjarlægðum úti í geimnum og þekki mælieiningar sem notaðar eru í

umfjöllun um stærðir í alheimi• þekki hvað ljós er lengi að berast frá sólu og nálægum stjörnum til jarðarinnar

Bækur/GögnSól, tungl og stjörnurOrkanErfðir og þróunAllt eru þetta bækur úr sama bókaflokki um almenn náttúruvísindi, gefnar út af NámsgagnastofnunMyndbönd

KennslutilhögunÍ kennslustundum er farið yfir efni bókanna og ætlast til að nemendur skrifi hjá sér helstu áhersluatriði. Nemendur gera nokkrar tilraunir auk þess sem sýnitilraunir eru gerðar. Að auki eru ýmis skrifleg verkefni unnin. Öllum verkefnum og glósum eiga nemendur að halda til haga í vinnubókum. Notast er við kennslumyndbönd eftir því sem við á.

KennsluaðferðirBein kennsla, fyrirlestrar, sýnikennsla, umræður, verklegar æfingar, fræðslumyndir.

HeimanámHeimanám felst í lestri efnis sem farið er yfir í tímum auk skriflegra verkefna úr bókunum.

NámsmatViðmiðun fyrir námsmat í 8.-10. bekk 2009-2010Miðsvetrareinkunn:Ástundun ( t.d. heimavinna, vinna í tímum og vinnubækur) 15%-25%Próf í kennslustundum (og t.d. ritgerðir eða önnur verkefni) 75%-85%Voreinkunn (árseinkunn):Miðsvetrareinkunn 20%-30%Ástundun 15%-25%Próf í kennslustundum 15%-35%Vorpróf 30%-40%

Page 134: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

132 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Myndmennt, valgreinLögð er áhersla á skilning á myndlist auk sjálfstæðra vinnubragða í fjölbreyttum verkum. Grunnatriði sem nemandinn hefur kynnst í bekkjum á yngsta stigi og miðstigi eru nýtt í verkefni sem eru meira krefjandi fyrir námsmanninn. Skilningur og þekking eru dýpkuð og ný atriði lögð inn. Listamenn kynntir og verk þeirra. Samstarf við aðra nemendur.

2 kennslustundir á vikuMeginmarkmiðÍ lok vetrar á nemandinn að:

• Hafa fengið nasasjón af sögu myndlistar frá upphafi til okkar daga.• Kannast við helstu frumherja hinna ýmsu listastefna• Þekkja dæmi um íslenska myndlistarmenn í hinum ýmsu listastefnum.• Þekkja muninn á listastefnum, og geta nefnt dæmi um verk.• Geta metið myndlist fordómalaust og geti gagnrýnt eigin verk.• Hafa kynnst hinum ýmsu efnum til listsköpunar.• Hafa víðtækan skilning á hugtakinu myndlist og hafa lært öguð vinnubrögð.

Markmið• að þroska og þjálfa hug og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, þekkingu og reynslu

með viðeigandi vinnubrögðum í margs konar efnivið• að efla hugmyndaflug, sköpunarhæfileika, sjálfstraust og sjálfstæði nemenda• að stuðla að því að nemendur verði læsir á umhverfi sitt• að stuðla að því að nemendur skynji og skilji boðskap þess myndmáls sem daglega ber fyrir

augu• að rækta samstarfsvilja, samstarfshæfni og félagsþroska nemenda• að leggja grunn að sjálfstæðu gildismati nemenda, vekja áhuga og auka þekkingu á

verkmenningu, listum og öðrum menningarverðmætum• að stuðla að því að nemendur kynnist eiginleikum hinna ýmsu efna sem unnið er úr, tileinki

sér hagkvæm vinnubrögð og nái þeirri hæfni að verða sjálfbjarga í verki

NámsþættirTeiknun og málun:Nemendur þjálfaðir í myndrænni frásögn, hlutateiknun, athugun á ljósi og skugga ásamt fjarvídd og sjónarhorni.Lit og formfræði:Blöndun lita,lýsa dekkja. Litasamræmi. Athuganir á tengslum við myndsköpun. Unnið með tví-og þrívíð form.Myndbönd og bækur:Nemendur skoði myndbönd og bækur og vinni verk í anda hinna ýmsu listamanna.Vettvangsferðir: Vettvangsferðir einsog kostur er til listamanna og á sýningar.Hópumræður.Kynnist myndlist á internetinu og læri að leita að myndlist þar og nýta sér þann miðill í myndlistinni.

Efni

Page 135: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

133Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Kynnist margvíslegum efnum til listsköpunar.

NámsmatHvert myndverk/verkefni metið. (60%) Starfseinkunn er 40%Gefið er fyrir : vandvirkni, vinnubrögð, ástundun og hegðun.

Lífsleikni1 kennslustund á vikuMarkmiðSjálfsþekking,samskipti, sköpun og lífsstíll.

• að nemandinn sé meðvitaður um að siðvit og ábyrgð, gagnkvæm virðing og persónuréttur eru helstu mælikvarðar á siðferði og kynhegðun hvers og eins

• að nemandinn sé meðvitaður um jafnréttis- og mannréttindahugsjónir sem leiðarljós í öllum samskiptum

• að nemendur geti sett sér raunhæf markmið til að stefna að í lífinu• að nemendur meti á sjálfstæðan hátt eigin lífsgildi óháð fyrirmyndum og staðalmyndum

samfélagsins• að nemendur nýti ráðgjöf um náms- og starfsleiðir• að nemandi öðlist skilning á atvinnulífinu í samhengi við námsleiðir og starfsval• að nemandinn geti greint og rökrætt áhrifamátt auglýsinga og gert sér grein fyrir óbeinum

áróðri fjölmiðla• að nemandinn þekki grundvallaratriði skyndihjálpar• Samfélag, umhverfi, náttúra og menning.• að nemandinn geti nýtt sér helstu fjölmiðla og lagt mat á fréttaflutning• að nemandinn geri sér grein fyrir hvað felst í orðinu borgaravitund og lýðræði• að nemandinn kunni skil á einföldum launaseðlum og skilji reikningsyfirlit• að nemandinn geti reiknað kostnað vegna afborgana• að nemandinn þekki ýmsar sparnaðar- og ávöxtunarleiðir• að nemandinn hafi tileinkað sér ábyrg sjónarmið og umgengni við nánasta umhverfi sitt og

náttúru landsins

NámsþættirStyrkja bekkinn sem hóp og æfa jákvæð og eðlileg samskipti innan hans.Þróa fjölbreytni í samskiptahæfni einstaklinganna í bekknum.Hlutverk einstaklingsins í þjóðfélaginu, persónulegar, samfélagslegar og fjárhagslegar skyldur hans.Fjármál skoðuð frá ýmsum hliðum.

NámsgögnAuraráð (vinnuhefti um fjármál) eftir Auði Pálsdóttur, ýmis ljósrit sem tengjast völdu efni, myndin Hip, Hip Hora, Raunveruleikurinn 2008, vefefni.

KennslutilhögunBein kennsla, umræður, leikir, hópvinna, einstaklingsvinna, kynningar frá námsráðgjafa og vettvangsferðir.

Page 136: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

134 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

NámsmatKennari leggur mat á skriflegar og munnlegar skýrslur nemenda, verkefnavinnu og virkni nemenda í hópastarfi eða starfi bekkjarins. Einnig er tekið tillit til sjálfsmats nemenda og jafningjamats. Engin próf eru þreytt en nemendur fá umsögnina Lokið/Ólokið að vori.

Íþróttir2 kennslustundir á viku

Námsefni 10. bekkjar skiptist í tvo hluta: Kjarna og valgreinar.

Markmið• að breyta líkamshreysti og líkamsreisn og þroska taugakerfið meðal annars með markvissri

þjálfun þrekþátta, þols, krafts, hraða, og æfingum sem bæta líkamsstöðu og líkamsreisn.• að örva grunnhreyfingar nemenda og þroska taugakerfið meðal annars með fjölbreyttum

leikjum og æfingum.• að koma til móts við sköpunarþörf nemenda og leikræna tjáningu.• að efla nemandann sem félagsveru, kenna honum að taka tillit til annnarra og beita

sveigjanleika í samskiptum.• að auka skilning og hæfni nemenda til þess að fara eftir reglum og fyrirmælum og auka

innsæi nemenda í tilfinningar sínar og tilfinningar annarra.• að nemendur fái mikið sjálfstraust, viljastyrk og áræði.• að auka þekkingu og skilning nemenda á starfsemi líkamans og áhrifum skipulagðrar

þjálfunar á líkama og heilsu.

Námsþættir/NámsefniLögð er áhersla á grunnþjálfun sem felst í alhliða líkamsuppbyggingu, þolþjálfun og sem mestri hreyfingu. Nemendum eru kynntar helstu íþróttagreinar sem stundaðar eru í landinu og íþróttaaðstaðan við skólann leyfir.Þolhlaup ( úti), rólegt skokk í 15-20 mín.Nemendur taka þátt í samstarfsverkefnum s.s. íþróttasýningum og íþróttamótum.Nemendur þjálfast í leikrænum æfingum og leikæfingum helstu íþróttagreina eins og körfubolta, handbolta, knattspyrnu, badminton, blak, hafnarbolta og bandy.Smáleikir: Hlaupaleikir, hugmyndaleikir, boltaleikir, reipitog, boðhlaup, ratleikir, glímuleikir, brennó, kíló, Tarsanleikur og hanaslagur.Fimleikar: Léttar æfingar á dýnum s.s veltur, höfuðstaða, handstaða, handahlaup, jafnvægisganga á bita eða bekk, klifur, hliðarstökk yfir kistu eða bekk, hoppa af bretti upp á kubb og niður á dýnu, litlir kolhnísar og stórir kolhnísar.Frjálsar íþróttir: Ýmis hlaup úti og inni. Hástökk með atrennu og langstökk án atrennu.Grunnþjálfun og leikfimi: Alhliða líkamsuppbygging með áherslu á æfingar sem auka styrk, liðleika og þol nemenda.Íþróttafræði og heilsuvernd: Í kennslu verður leitast við að fræða nemendur um hreinlæti og áhrif íþróttaiðkunar á líkamann og starfsemi íþróttafélaga.Stöðvaþjálfun og hringþjálfun.Sund: Bringusund, baksund, skriðsund, björgunarsund, stunga, björgunar- og leysitök

NámsmatÍ íþróttum fer námsmat fram með þrennum hætti20 % A: Hlutlægt mat þar sem árangur nemenda er mældur t.d. með málbandi eða skeiðklukku.

Page 137: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

135Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

30 % B: Huglægt mat. Kennarinn metur færni nemenda í ákveðnum íþróttum þar sem mælingum verður ekki komið við með öðrum hætti t.d. boltaleikjum, leikjum og æfingum ýmis konar.50 % C: Ástundun, áhugi, virkni, samvinna og framkoma í kennlustundum.

Heimilisfræði, valgrein3 kennslustundir á viku hálfan veturinn

MarkmiðAð nemandi:

• skilji gildi hollrar næringar og mikilvægi heilbrigðra lífshátta og þá ábyrgð sem hver einstaklingur ber á eigin lífi og heilsu

• geti matreitt með tilliti til hollustu, bragðgæða, hreinlætis og hagsýni• fái notið sköpunargleði og virkni við matreiðslu og heimilisstörf• geri sér grein fyrir mikilvægi fjölskyldu og heimilis fyrir hvern einstakling• hafi kynnst einkennum matarmenningar nokkurra erlendra þjóða• þekki orð og hugtök sem tengjast viðfangsefnunum

Inntak námsNemendur læra:

• um orkuefnin, næringarefnin, steinefnin og vítamínin og hlutverk þeirra• að matreiða rétti frá framandi þjóðum• að krydda matinn eftir eigin smekk• að leggja á hátíðarborð fyrir fimm rétta máltíð og hlaðborð• að taka á móti gestum og þjóna til borðs (kennurum boðið í mat)

NámsgögnVerklýsingar gerðar af kennara.Heimilisfræði II og III, verkefnablöð unnin upp úr þeim.Ýmsar matreiðslubækur og uppskriftir á lausum blöðum sem kennari útvegar.Sýnikennsla í ýmsum matreiðsluaðferðum og vinnubrögðum.

KennsluskipanGreinin er valgrein í 10. bekk.Kennt er hálfan veturinn 3 kennslustundir á viku, verkleg og bókleg kennsla.Skrifleg verkefni eru unnin í tímunum ýmist taka þau til næringarfræði, vöruþekkingar eða verklega þáttarins.

Hönnun, smíði og tæknimennt2 kennslustundir á viku

Markmið og námsþættir:Eins og undanfarin ár verður boðið upp á nám í hönnun, smíði og tæknimennt sem valgrein í 10. bekk. Nemendur geta stundað frjálsa skapandi smíði með vali verkefna eftir áhuga þeirra sjálfra. Verkefnaval er því frjálst eins og það efni sem notað er í þau. Við hvetjum því nemendur til að velja þessa grein þar sem þetta er í síðasta sinn sem nemendur sem fara í bóklegt framhaldsnám hafa til að verða sér úti um verklega þekkingu sem nýtist örugglega í amstri daglegs lífs. Einnig er þetta góð undirstaða fyrir þá sem hyggja á frekara nám í verklegum greinum að loknu grunnskólanámi. Efnisfræði, verkfærafræði, teiknun, hönnun, tæknilegri umfjöllun og skoðun er viðfangsefnivetrarins.

Page 138: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

136 Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

HeimavinnaVinnan fer að mestu leyti fram í skólanum.

KennsluaðferðirSýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð, aðferðir og skýringartöflur.Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir, ásamt leiðsögn kennara.

NámsmatEinkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni. Einnig er tekið tillit til frumkvæðis/sjálfstæðis nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.

Textílmennt2 stundir á viku, hálfan veturinn

Markmið• að nemendur fái markvissa þjálfun hagnýtra vinnubragða svo að þeir verði sjálfbjarga í

réttri notkun áhalda og saumavéla.• að efla frumkvæði nemenda og að þeir öðlist sjálfstraust til eigin sköpunar• að nemendur fræðist um textíliðnað og fataframleiðslu.• að nemendur geti tekið mál, tekið upp snið, sniðið og saumað flík.• að nemendur læri að nota handbækur greinarinnar.• að nemendur geti notað möguleika margmiðlunar og tölvutækni í tengslum við vinnu

sína.

NámsþættirNám í textílmennt í 10. bekk er framhald af þeim vinnubrögðum sem nemendur hafa lært og tileinkað sér í yngri bekkjum grunnskólans. Aðaláhersla er lögð á fatasaum. Sauma pils/buxur eftir eigin grunnsniði. Annar fatnaður saumaður að eigin vali, notuð snið úr tískublöðum, tilbúin snið eða önnur snið útbúin með aðstoð kennara. Önnur viðfangsefni t.d. prjón, hekl, þæfing, pappírsgerð, silkimálun og fleira að eigin vali í samráði við kennara. Farið verður í vettvangsferðir á hönnunar- og textílverkstæði og textílsýningar ef þess er kostur. Efniskaup verða nemendur að sjá um sjálfir að nokkru leyti. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan frágang.

NámsefniBækur: Saumahandbókin og Á prjónunum. Handbækur, blöð og ljósrit úr bókum og blöðum sem henta verkefnum hverju sinni.

KennsluaðferðirKynning, verkefni útskýrt, sýnd tilbúin sýnishorn og sýningartöflur.Sýnikennsla, sýnd ákveðin vinnubrögð, aðferðir og skýringartöflur.Nemendur nota skýringarmyndir, skriflegar leiðbeiningar og handbækur til að vinna eftir, ásamt leiðsögn kennara.

HeimavinnaVinnan fer að mestu leyti fram í skólanum en ef unnið er með prjóna, hekl- eða útsaumsverkefni geta nemendur einnig unnið heima.

Námsmat

Page 139: Náms- og kennsluáætlanir 2010-2011

137Náms - og kennsluáætlanir 2010 - 2011

Einkunn er gefin fyrir hvert einstakt verkefni. Einnig er tekið tillit til frumkvæði/sjálfstæði nemenda, færni, framfara, virkni í tímum og umgengni.Námsmat:60% Vinnubrögð20% Ástundun (heimavinna/vinna í tímum )10% Sjálfstæði10% Afköst