48
Líftækni Sjávarlíftækni - Lífverur sjávar Hreiðar Þór Valtýsson Assistant Professor, Faculty of Business and Science, University of Akureyri Director, the Fisheries Sciences Center at the University of Akureyri Borgir (2nd floor, office 228), Norðurslóð, 600 Akureyri Tel.: 862 4493 E-mail: hreidar @ unak .is

L íftækni Lífverur sjávar

  • Upload
    milt

  • View
    129

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

L íftækni Lífverur sjávar. Hreiðar Þór Valtýsson Assistant Professor , Faculty of Business and Science , University of Akureyri Director , the Fisheries Sciences Center at the University of Akureyri Borgir (2nd floor , office 228), Norðurslóð, 600 Akureyri Tel.: 862 4493 - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: L íftækni Lífverur sjávar

LíftækniSjávarlíftækni - Lífverur sjávar

Hreiðar Þór ValtýssonAssistant Professor, Faculty of Business and Science, University of Akureyri

Director, the Fisheries Sciences Center at the University of AkureyriBorgir (2nd floor, office 228), Norðurslóð, 600 Akureyri

Tel.: 862 4493E-mail: [email protected]

Page 2: L íftækni Lífverur sjávar

Upplýsingar

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Lesefni

Meginefni (allt af vefnum)• Undir yfirborðinu – Á Moodle• Glærur – á moodle

Hjálparefni• Tenglar hér á eftir

• Ef það er lykilorð þá er það = fish

Page 3: L íftækni Lífverur sjávar

Lyf úr dýrum

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Fusetani, N. 2000. Drugs from the sea. Karger• Náð í á Google books

Page 5: L íftækni Lífverur sjávar

Sjávarlíffræði - grunnatriði

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Hafið þekur 70% af jörðinni• Selta yfirleitt um 35‰ = 3,5%

– Við árósa og í lokuðum innhöfum (t.d. Eystrasalt) getur selta verið allmikið minni

– Meirihluti lífvera sjávar getur einungis lifað í fullsöltum sjó (35‰ )

• Hitastig sjávar getur verið frá -2°C til 30°C– Yfirborðshiti sjávar sveiflast mikið, djúpsjórinn er

hinsvegar einsleitur og stöðugur– Framleiðni hafsins yfirleitt meiri í köldum sjó en hlýjum

Page 6: L íftækni Lífverur sjávar

Hafið við Ísland- grunnatriði

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Hlýr Atlantssjór umlykur landið og gerir það að verkum að hér er hlýtt miðað við hversu norðarlega við erum

• Há frumframleiðni miðað við flest önnur hafsvæði

• Límassaframleiðni í hafinu kringum Ísland er einnig mikil á öðrum stigum fæðukeðjunnar• Hlýr Atlantssjór• Árstíðabundin blöndun á sólríkum

yfirborðssjónum og næringarríkum djúpsjó

• Blöndunar á köldum hafstraumum úr norðri og hlýjum úr suðri

• Stórt landgrunn• Mikill breytileiki milli ára, sérstaklega

norðan við landið

Page 7: L íftækni Lífverur sjávar

Sjávarlíffræði - grunnatriði

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Baráttan um brauðið

• Eilíf keppni er á milli rándýra og bráðar eða sníkjudýra eða baktería og hýsils

• Önnur að finna betri leiðir til að ná í hina og éta eða sníkja á, hin að reyna að sleppa.

• Náttúruval því sterkt• Ýmsar leiðir notaðar til að verja sig

– hraði– fela sig– dulmálning– gaddar– skeljar– vont bragð– Eitur og efnahernaður

Page 8: L íftækni Lífverur sjávar

Lífverur

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson

Page 9: L íftækni Lífverur sjávar

Dreifkjörnungar (procaryotes)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Minnstu, frumstæðustu og einföldustu lífverurnar’• 2 hópar, bakteríur (bacteria) og fornbakteríur (archaea)• Nánast allar bakteríur eru það smáar að þær sjást ekki

með berum augum (nema ef í miklu magni), þó eru til undantekningar

• Þessar bakteríur eru mjög mikilvægar að því leiti að þær losa um næringarefni og viðhalda því efnahringrás hafsins

• Sumar frumbjarga• Rannsóknir takmarkaðar

en mikið í sjó

Page 10: L íftækni Lífverur sjávar

Einfrumuþörungar (Phytopankton)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• = Plöntusvif = svifþörungar• Sjást ekki með berum augum, nema í miklu magni geta þeir litað

sjóinn• Gegna sama hlutverki og gras á landi, undirstaða fæðukeðju hafsins• Eru þeir dýr eða plöntur ??

– Sumir geta hreyft sig líkt og dýr– Sumar tegundir sem geta ekki ljóstillífað (autotrophic) eru skyldar

tegundum sem ljóstillífa (heterotrophic)– Aðrar tegundir geta gert bæði eftir aðstæðum

• Helstu flokkarnir eru– Kísilþörungar (diatoms)– Skoruþörungar (dinoflagellates)

Page 11: L íftækni Lífverur sjávar

Einfrumuþörungar (Phytopankton)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Page 12: L íftækni Lífverur sjávar

Einfrumuþörungar (Phytopankton)Diatoms (Kísilþörungar)

• Oft stakar frumur en geta myndað keðjur

• Eru með ytri skel úr kísli (SiO2)

• Skelin í 2 hlutum, annar minni, lokast líkt og petriskál

• Þessir þörungar eru með mjög litla hreyfigetu• Geta fjölgað sér gífurlega hratt ef aðstæður eru

góðar og eru því mikilvæg fæða ýmissa svifdýra• Ráðandi þörungar á kaldari hafsvæðum, þ.m.t. hér• Einnig í ferskvatni, t.d. Kísilþörungarnir í Mývatni

sem nýttir voru hér

Page 13: L íftækni Lífverur sjávar

Einfrumuþörungar (Phytopankton)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Dinoflagellates (Skoruþörungar)• Eru með 2 svipur• Geta notað þær til að synda => geta því hreyft sig ólíkt kísilþörungum• Frumuveggir úr sellulósa (eins og plöntur á landi)• Geta einnig lifað sem dýr, þ.e. Éta aðrar örverur• Get vaxið mjög hratt ef aðstæður eru hentugar• Geta þá litað sjóinn, kallað blóðsjór• Stundum eitraðir, fer eftir tegundum• Helsta dæmið hér eru eitranir í skelfiski

a. Samlokan étur eitruðu þörunganab. Eiturþörungarnir drepa ekki skelfiskinn enc. Eitrið safnast fyrir í lifur og öðrum líffærumd. Fólk étur skelfiskinn og verður veikt eða jafnvel deyre. Skelfiskurinn losar sig smá saman við eitrið

Page 14: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Botnþörungar líkjast plöntum og frumframleiða eins og þær en eru í raun ólíkir þeim að mörgu leiti

• Flokkast því í raun ekki sem plöntur • Skapa mikilvæg vistkerfi í sjó líkt og plöntur gera á landi• Þó eru til eiginlegar plöntur (kallaðar háplöntur) í sjó

• Sjaldgæfar og einskorðaðar við takmörkuð svæði• Þó botnþörungarnir séu fjölfrumungar (flestir) er bygging þeirra mun

einfaldari en háplantna á landi • Af botnþörungum eru 3 megingerðir

• Grænþörungar (Chlorophyta)• Brúnþörungar (Phaeophyta)• Rauðþörungar (Rhodophyta)

• Í grundvallaratriðum þekkjast þeir á litnum, en þó eru ætíð undantekningar

Page 15: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Grænþörungar (Green algae)

• Algengustu botnþörungarnir í ferskvatni, einnig til á landi. Tiltölulega fáar tegundir finnast í sjó.

• Þar af eru margar einfrumungar• Á sumum stöðum í sjó geta grænþörungar þó verið mjög algengir,

sérstaklega þar sem sveiflur eru miklar í seltu svo sem ofarlega í fjöru og við árósa

• Hafa yfirleitt fremur einfalda byggingu, grannir þræðir, þunnar himnur eða sem einfrumungar

• Þó grænþörungar séu svo einfaldir í byggingu eru þeir skyldastir háplöntunum af öllum þörungunum. Það má sjá á því að þeir eru með sömu litarefni

Page 16: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Brúnþörungar (Brown algae)• Flestar stærstu og algengustu botnþörungarnir eru brúnþörungar • Geta verið nokkuð breytilegir á litinn, oftast brúnleitir• Nánast eingöngu að finna í sjó• Brúnþörungar þekja oft fjörur, kallast þang• Stærri tegundir sem finnast neðan fjörumarka kallast þari • Þar myndar þarinn þétta þaraskóga (þó ekki í hitabeltinu)• Stærsta tegundin, risaþarinn (Macrocystis pyrifera) sem finnst við

Kaliforníu getur orðið allt að 100 m hár. • Getur vaxið allt að 50 cm á dag

Page 17: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Brúnþörungar (Brown algae)

• Þeir eru ásamt frumskógum hitabeltisins þeir staðir á jörðinni þar sem frumframleiðni er mest á fermetra

• Framleiðni um 10 x meiri en hjá svifþörungum, botnþörungar eru hinsvegar einungis á örmjórri ræmu við ströndina

• Beint aða óbeint eru þeir þó mikilvægir fyrir fæðukeðjuna

• Annað mjög mikilvægt hlutverk er að þeir veita fjölmörgum lífverum skjól og auka þar með við tegundafjölbreytnina

• Á mörgum stöðum, þ.m.t. hér við land eru þeir nýttir af okkur

Page 18: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Rauðþörungar (Red algae)

• Rauðþörungar eru tegundaauðugasti þörungaflokkurinn

• Tegundirnar þó ekki stórar né áberandi• Flestar tegundir eru rauðar, en þó eru auðvitað

undantekningar• Nánast eingöngu í sjó• Eru nýttir víða í heiminum• Eru yfirleitt einfaldir í byggingu, oft himnur• Einnig til rauðþörungar (Corallina) sem mynda

kalkstoðgrind, líkt og kóralar. Er rauður þegar hann er lifandi en verður hvítur þegar hann drepst

Page 19: L íftækni Lífverur sjávar

Botnþörungar (benthic algae)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Efnahagslegt mikilvægi (Economic importance)

• Botnþörungar hafa verið notaðir til áts frá alda öðli• Á vesturlöndum, þ.m.t. hér voru söl og aðrar tegundir mikilvægur

matur á tíðum. Sum staðar eru söl enn étin, en þó er það orðið sjaldgæft

• Þörungar eru einnig notaðir til áburðar og sem fóður fyrir húsdýr, hér á landi var hann notaður til brennslu

• Þari er seldur í töfluformi• Í Austurlöndum fjær er þörungaát þó mun þróaðra• Þar eru þörungar jafnvel ræktaðir

Page 20: L íftækni Lífverur sjávar

• Ýmsar aukaafurðir eru einnig unnar úr þörungum• Einna mikilvægast er algín sem er unnið úr stórum brúnþörungum, það

er notað sem bindiefni í ýmis matvæli, s.s. ís, sósur og osta. Það er einnig notað í prentiðnaðinum til að gera prentsvertu þykkari

• Carrageenan er unnið úr rauðþörungum og er notað í matvælaiðnaði. • Agar er unnið úr rauðþörungum, agarinn er notað sem hleypir í matvæla-

iðnaðinum og einnig í petriskálarnar ykkar • Hann fáum við úr rauðþörungategundum• Kalk er einnig unnið úr kóralþörungum.

kalkið er borið á tún til að lækka þar sýrustig.Kalkþörungavinnsla í Arnarfirði

• Nú til dags er þörungavinnsla á Reykhólum á Breiðafirði sem vinnur um 10.000 tonn af klóþangi og 2000 tonn af hrossaþara á ári

• Úr þessu er unnið algín, heilsuvörur, áburður og fóðurbætir

Botnþörungar (benthic algae)Efnahagslegt mikilvægi (Economic importance)

Page 21: L íftækni Lífverur sjávar

Dýr

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Dýr geta ekki framleitt eigin fæðu líkt og plöntur

• Skiptast í 2 meginhópa, hryggleysingja og hryggdýr

• Hryggdýr eru fiskar, skriðdýr, fuglar, froskdýr og spendýr, allt annað eru hryggleysingjar

• Hryggleysingjar því mun fleiri en hryggdýr, í flestum tilfellum eru þeir einnig minni

• Í sjó finnast fjölmargir hópar hryggleysingja, mun fleiri en á landi

• Enda hófst þróun lífs í sjónum og einungis örfáum hópum hefur tekist að nema land

Page 22: L íftækni Lífverur sjávar

Lægstu fæðuþrepin - dýrasvifið

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Margir hópar

Mikilvægustu hóparnir eru krabbaflær (t.d. rauðáta) og ljósáta

Ekki veidd en mikilvægur hlekkur í fæðukeðjunni

important species are planktonic at young age

Page 23: L íftækni Lífverur sjávar

Lægstu fæðuþrepin - Botnhryggleysingjar

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Fjölbreyttari en svifið

Sumar tegundir veiddar af okkur

Aðrar mikilvæg fæða nytjafiska

Leturhumar Stóri kampalampi (rækja)

Ígulker

Hörpudiskur

Beitukóngur

Kræklingur

Kúfskel

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Page 24: L íftækni Lífverur sjávar

• „Frumstæðastir“ dýra – eingöngu í sjó• Nálægt því að vera sambýli einfrumunga,

frumurnar eru þó sérhæfðar að ýmsu leiti• Mynda þó ekki vefi og því einfaldir • Eru botnfastir og geta ekki hreyft sig• Þó fjölbreyttir í útliti, kúlulaga, blaðlaga, vasalaga, skán ofl• Sérstakar frumur í svampinum sjá um að dæla sjó í gegnum þá, eru því

virkir síarar• Svampurinn sjálfur er búinn til úr nálum (spicules) og svampefni

(spongin), sumar tegundir eru með bæði aðrar einungis með svampefni• Áður fyrr voru baðsvampar búnir til úr sjávarsvömpum (tegundum sem

ekki höfðu nálar), nú hefur plastið að mestu leyst þá af• Mikilvægi svampa á þó kannski eftir að aukast verulega aftur því

margir svampar framleiða eiturefni sem mikil not má ef til vill hafa af í líftækniiðnaðinum. Af lífverum sjávar eru svampar einmitt hvað áhugaverðastir að þessu leiti

Svampar (Sponges – Porifera)

Page 25: L íftækni Lífverur sjávar

Holdýr (cnidarians - Coelenterata)• Næstfrumstæðust dýra á eftir

svömpum• Einföld líkamsbygging en ólíkt svömpum

með sérhæfða vefi - Geta því synt• 2 form - Flestar tegundir fara í gegnum

bæði stigin• Separ (polyp) eru botnlæg form• Hvelja (medusae) eru sviflæg

• Nánast öll holdýr eru rándýr• Sérstakar frumur (nematocysts) eru

notaðar til að ná í og lama eða drepa bráðina

• Inni í frumunum eru uppvöðlaðir þræðir með krók á endanum, nokkur konar skutull

• Oft eru þeir einnig eitraðir• Ef dýr snertir frumuna springur hún og

skutullinn skýst út og í dýrið

3 meginhópar• Hveldýr (hydrozoans)• Marglyttur (scyphozoans)• Kórallar og sæfíflar (schypozoans)

Page 26: L íftækni Lífverur sjávar

Ormar (Bilatral symmetrical worms)• Ýmsir fylkingar

orma eru á næsta þróunarstigi ofan við holdýrin

• Eru bilateral symmetrískir (líkt og við)

• Hafa því fram og afturenda ólíkt holdýrunum

• Helstu fylkingar eru•Flatormar•Þráðormar•Liðormar•Margir aðrir til

Liðormar• Líkaminn liðskiptur. 3 flokkar

• Ánar (oligochaeta), til í sjó en ekki áberandi• Blóðsugur (hirudinea), til í sjó en ekki áberandi• Burstaormar (polychaeta), aðallega í sjó og

mjög áberandi þar =>• Eru með fóttotur og bursta (hár) á hverjum lið, gerð

þessara bursta og fóttota mjög mismunandi milli tegunda

• Í ýmsum stærðum, yfirleitt 5-10 cm, einnig mun minni og þeir stærstu eru allt að 3 metrar

Page 27: L íftækni Lífverur sjávar

Lindýr (Molluscs: The successful soft body)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Mjög stór og fjölbreyttur hópur sjávardýra, ef til vill sá fjölbreyttasti.• Finnast alstaðar í sjó, fæðuval mjög fjölbreytt• Eru með mjúkan líkama og kalkskel• Eru með nokkurskonar fót, skráptungu (radula) og tálkn• Margar útgáfur eru af ofangreindu, sumir flokkar hafa jafnfvel týnt

sumu af þessu í þróuninni• Stærstu hóparnir eru

•Samlokur•sniglar•Smokkar•einnig til eru aðrir hópar

Page 28: L íftækni Lífverur sjávar

Sniglar (Snails - Gastropods)

• Stærsti og fjölbreyttasti hópur lindýra• Oftast með eina snúna skel• Stundum er skelin þó ekki snúin• Hjá mörgum tegundum hefur skelin

horfið í þróuninni• Ein algengasta fæðuöfunaraðferðin er að

skrapa þörunga af steinum með skráptungunni

• Aðrir eru setætur, hræætur eða rándýr• Sæsniglar án skeljar verjast gjarnan með

eitri, eru þá skrautlega litaðir• Alengastir á hörðum botni, en finnast

einnig á linum og sem svifdýr

Page 29: L íftækni Lífverur sjávar

Samlokur (Bivalves)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Mjög stór hópur• Eru allar með 2 skeljar• Nota yfirleitt tálkn til að sía fæðu úr sjónum• Flestar tegundir grafa sig í setið, senda þá rana upp á

yfirborðið og fá þær þar súrefni og stundum fæðu• Margar festa sig einnig á fast undirlag og sía fæðu úr

sjónum, t.d. kræklingur og ostrur• Aðrar tegundir eins og diskar eru frítt lifandi ofan á

botninum• Einnig til tegundir sem grafa sig inn í steina og tré

Page 30: L íftækni Lífverur sjávar

Smokkar (Cephalopods)

The web

• Tiltölulega fáar tegundir, en mjög þróaður hópur, einungis í sjó

• Bestu sunddýrin meðal hryggleysingja, einnig þau gáfuðustu

• Nánast allir rándýr, lifa á fiskum og smokkfiskum• Fóturinn skiptist í marga arma, á þeim eru

yfirleitt sogskálar sem notaðar eru til að grípa fæðu

• Lifa mjög stutt og hratt, yfirleitt aðeins í eitt ár, allir smokkar deyja að lokinni hrygningu (líkt og loðna)

• 3 meginflokkar•Kolkrabbar (e. octopuses) – 8 armar - botn•Smokkfiskar (e. squids og cuttlefishes) – 10 armar –

uppsjór•Kuggar (e. nautilus)

Page 31: L íftækni Lífverur sjávar

Liðfætlingar (Arthropods)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Langstærsta dýrafylkingin, 3 af hverjum 4 dýrum er liðfætlingur• Mjög fjölbreytt að lifnaðarháttum líkt og lindýrin

• Eru með liðskiptan líkama og útlimi• Eru með ytri skel (exoskeleton), sem er undirstaða velgengni þeirra. verndar

þau, Virkar einnig sem festing fyrir vöðva, (liðfætlingar eru því mjög virkir), • er hörð og takmarkar því vöxt, Leysa það vandamál með því að kasta ytri

skelinni reglulega og blása sig út, nýja skelin harðnar svo. takmarkar einnig stærð, því eru flestir liðfætlingar smáir

• 3 meginhópar, Krabbadýr (crustacea), Klóskerar (chelicerata), Skordýr (insecta)• Langflestir liðfætlingar í sjó eru krabbadýr• Því stór og fjölbreyttur hópur• Flest eru krabbadýrin í sjó en ferskvatns og landtegundir eru einnig til.• Flest krabbadýr eru smá og er fjöldi þeirra gríðarlegur• Þau er að finna nánast hvar sem er í sjónum, ofan á botninum, ofan í botninum,

í svifinu, á eða á í öðrum lífverum

Page 32: L íftækni Lífverur sjávar

Krabbadýr (Crustaceans)

• Krabbaflær (e. copepods) eru yfirleitt mjög litlar

• Sennilega mikilvægasti hópurinn í dýrasvifinu, en einnig algeng við botninn

• Mikilvægasta tegundin hér er rauðátan (Calanus finnmarchicus), aðalfæða síldarinnar

• Ljósáta (euphausids) er eingöngu að finna í svifinu• Tegundirnar eru mjög fáar, en þær bæta það upp með fjöldanum því mergð

þeirra getur verið gríðarleg• Eru nokkuð stærri en t.d. krabbaflærnar, en minni en rækjur sem þær líkjast• Að mestu leiti síarar, en einnig rándýr• Sérstaklega algengar á kaldari svæðum heimsins,

einnig hér við land

Page 33: L íftækni Lífverur sjávar

Krabbadýr (Crustaceans)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Ýmis sviflæg krabbadýr

Page 34: L íftækni Lífverur sjávar

Krabbadýr (Crustaceans)• Hrúðurkarlar (e. barnacles) eru einu krabbadýrin sem

eru botnföst• Líkjast í raun ekki krabbadýrum við fyrstu sýn því þeir

sitja inni í kalkhúsi, svipað og mörg lindýr• Sía plöntusvif úr sjónum

• Marflær (amphipods) eru litlar og hliðarflatar (líkt og venjulegar flær). Mjög algengar við botninn og í fjörum

• Nokkuð fjölbreyttir lifnaðarhættir, setætur, svifætur, hræætur, rándýr og sníkudýr.

• Sumar búa í rörum í botninum, nokkrar tegundir finnast einnig í svifinu

• Jafnfætlur (isopods) svipar til marflóa að stærð, en eru yfitrleitt flatar frekar en hliðarflatar

• Lifnaðarhættir jafnfjölbreyttir og hjá marflóm• Nokkrar eru þekkt sníkjudýr, t.d. fiskalýs og óskabirnir

Page 35: L íftækni Lífverur sjávar

Krabbadýr (Crustaceans)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Tífætlingarnir (decapoda) eru stærsti og fjölbreyttasti krabbadýrahópurinn

• Þar er einnig að finna stærstu einstaklingana, krabba og humra og rækjur

• Margar tegundir þeirra mjög mikilvæg nytjadýr• Eru með 5 pör af fótum, fyrsta parið er oft stærra og með

klóm• Humrar, aflangir, botndýr, ein tegund hér = leturhumar• Karbbar, lítinn afturbol, botndýr, nokkrar tegundir hér• Rækjur – sjá næsta

Page 36: L íftækni Lífverur sjávar

Krabbadýr (Crustaceans)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Rækjur (shrimps)

• Rækur eru aflangar og með hala, sem við étum• Eru gro- eða hrætætur, þ.e. nærast á lífrænum leifum, bakteríum og

einfrumungum í botnsetinu. Einnig rándýr• Sumar lifa við botninn, aðrar í svifinu, aðrar grafa sig í sandinn• Margar rækjutegundir til við Ísland, einungis ein nýtt, stóri

kampalampi, aðrar sérstaklega ísrækja í kaldari sjónum mikilvæg fæða þorsks og grálúðu. Flestar tegundir minni en stóri kampalampinn, en einnig til stærri tegundir, þær þó ekki algengar

Page 37: L íftækni Lífverur sjávar

Skrápdýr (Echinoderms)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Eru með sogfætur (tube feet) sem notaðar eru til að rölta með

• Notað til þess sjóþrýstingur• Helstu flokkar

• Krossfiskar• Slöngustjörnur• Ígulker• Sæbjúgu• Sæliljur

Page 38: L íftækni Lífverur sjávar

Skrápdýr (Echinoderms)Krossfiskar (sea stars)

• Flestir með 5 arma, stundum fleiri og er fjöldinn þá yfirleitt eitthvað margfeldi af 5. Armar vaxa aftur á þau ef þeir eru teknir af

• Hreyfa sig um með sogfótunum og geta þá farið í allar áttir, fara þó hægt• Eru yfirleitt með fremur sveigjanlega kalkbeinagrind, en þó margar útgáfur• Krossfiskar eru í raun grimm rándýr og éta mikið af samlokum, sniglum og

hrúðurkörlum, þ.e.a.s. dýrum sem ekki komast hratt yfir• Opnar samlokur með því að umlykja þær og toga í sundur smá saman,

þegar smá op hefur myndast sendir hann magann út úr sér og inn í samlokuna og meltir hana smá saman

Page 39: L íftækni Lífverur sjávar

Skrápdýr (Echinoderms)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Ígulker (sea urchins)

• Eru ætíð með 5 skiptan líkama • Geta verið eitruð• Eru með harða kalkhúð og því yfirleitt ekki sveigjanlega• Ferðast um á sogfótum og hreyfanlegum göddum• Éta þara, þörungaskánir á steinum, grot, hræ og í raun allt sem

þau geta náð í. • Hafa öfluga “kjálka” sem kallaðir eru lampar Aristotelesar.• Tvær helstu ígulkerategundirnar hér við land eru skollakoppur

(eða grænígull) og marígull (eða rauðígull) (Echinus esculentus). Báðar finnast allt í kringum landið, en skollakoppurinn er mun algengari, hann er einnig nýttur

• Talsverðar veiðar voru stundaðar frá 1993 til 1996, en vegna markaðsaðstæðna hafa þær verið svo til engar síðan

Skollakoppur

Marígull

Page 40: L íftækni Lífverur sjávar

Skrápdýr (Echinoderms)

The web

Sæbjúgu (Sea cucumbers)

• Sæbjúgu eru aflöng og yfirleitt með mjúka húð. Líkjast því stundum ormum• Eru ekki með gadda en með sogfætur, geta einnig hreyft sig með því að

teygja á og draga líkamann saman• Yfirleitt setætur eða síarar• Sæbjúgu eru stór, friðsæl, hægfara dýr sem ættu að vera mjúk undir

tönn, hversvegna eru ekki önnur dýr búin að éta öll sæbjúgun• Sum verjast með þykkri húð• Önnur með því að bregða árásardýrinu með því að æla út öllum

innyflunum. Árásardýrið bregður þá annaðhvort svo við þessari ógeðslegu hegðun að það forðar sér, eða fer að éta innyflin og sæbjúgað sleppur. Innyflin vaxa svo aftur inni í sæbjúganu

• Þriðja leiðin er að framleiða eitur

Page 41: L íftækni Lífverur sjávar

Seildýr (chordates without backbone)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Mjög stór og fjölbreyttur hópur, megnið af þeim eru hinsvegar ekki hryggleysingjar

• Hryggdýrin, sem við ásamt fiskum tilheyra eru í þessari fylkingu.

• Aðrir flokkar eru möttuldýr og lancelets sem ekki hafa hrygg

• Öll hafa þessi dýr hinsvegar seil á einhverjum hluta æviskeiðs síns, seilin er nokkurskonar brjósk sem hjálpar til við hreyfingar dýranna. Eru einnig með taug eftir seilinni, tálkn og skott eða sporð

• Hjá hryggdýrum hefur seilin breyst í hrygg

Page 42: L íftækni Lífverur sjávar

Seildýr (chordates without backbone)

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Möttuldýr (Tunicates)• Tiltölulega fjölliðaður flokkur. Eingöngu í sjó• Sía fæðu úr sjónum, með 2 op, sjór er síaður inn um annað og út um hitt• Margar tegundir eru botnfastar (e. sea squirts) og eru það einu seildýrin

sem eru svo• Sumar tegundir lifa stakar aðrar

í sambýli• Líkjast þá að mörgu leiti

svömpum (sem eru á hinum enda þróunarskalans)

• Þessi botnföstu stig eiga fátt sameiginlegt með öðrum seildýrum, skyldleikinn kemur í ljós á lirfustiginu, sem eru ekki ósvipuð halakörtum

• 2 hópar eru einnig sviflægir. Salps eru nokkurskonar fljótandi útgáfur af botnforminu, geta verið mjög algengir, þ.m.t. hér við land. Geta fjölgað sér gríðarlega ef aðstæður eru rétta, fer oft illa með sjómenn ef mikið af þeim lenda í nót (sulta). Larvaceans, líkjast lirfustiginu alla æfi

Page 43: L íftækni Lífverur sjávar

Sjófuglar

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Mjög algengir í kringum landiðLundinn er algengastur, áætlað er að 2-3 milljónir varppara séu hér. Fýlinn er næstalgengasturMargar tegundir nota einnig hafið hluta úr ári, t.d. eru margar endur þar á veturnar

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Page 44: L íftækni Lífverur sjávar

Selir

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Einu selirnir sem kæpa við Ísland eru landselurinn (15.000) og útselurinn (6.000)• Aðrar norðlægari tegundir heimsækja landið reglulega, sérstaklega norðurströndina

Ringed seal - hringanóri

Bearded seal - kampselur

Norrænir

Suðrænir

Hooded seal - blöðruselur

Harp seal - vöðuselur

Grey seal - útselurHarbor seal - landselur

Walrus - rostungur

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Page 45: L íftækni Lífverur sjávar

Hvalir

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Page 46: L íftækni Lífverur sjávar

Botnfiskar

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Margar og ólíkar tegundir sem hafa verið okkur afar mikilvægar í gegnum tíðinaÞorskurinn þó ætíð sú mikilvægasta

Page 47: L íftækni Lífverur sjávar

Uppsjávarfiskar

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

Loðna, sandsíli og síld eru hérna að staðaldri. Aðrar tegundir ganga annað slagið um íslenskt hafsvæði

Síld og loðna hafa verið afar mikilvægar fyrir Íslendinga í gegnum tíðina.

Oft um eða yfir helmingur heildarafla

Makríllinn gæti einnig verið að koma sterkur inn

Sandeel - sandsíli

Blue- fin tunaBlue whiting

Horse mackerel

Mackerel

Capelin

Herring

Lanternfish

Pearlside

Drawings: Jón Baldur Hlíðberg – www.fauna.is

Page 48: L íftækni Lífverur sjávar

Óhefðbundnar fiskafurður

SLT11U03 Hreiðar Þór Valtýsson The web

• Grýta efh – bragðefni og súpur• Iceprótein – þyngja flök • BioPol – kollagen úr grásleppu, lifandi lýsisperlur• Norðurbragð – bragðefni• Primex – kítosan og kítín úr rækjuskel• Genis – beinsement, bólguhemjandi (kítin)• Dr. Bragi – Penzim húðvörur• Sjávarleður / Atlantic Leather• Uggi Lights• Kerecis – sáraumbúðir og stoð vefur úr þorskroði