13
Verknúmer: 05121-002 Desember/2016 Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015 · Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015 05121002-4-GR-0026-Hlutfall-2015.docx FS-020-05 Verkís hf. | 422 8000 | verkis.is

  • Upload
    others

  • View
    6

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

  • Verknúmer: 05121-002 Desember/2016

    Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

  • Verknúmer: 05121-002 Desember/2016

  • Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

    05121002-4-GR-0026-Hlutfall-2015.docx FS-020-05

    Verkís hf. | 422 8000 | verkis.is | [email protected]

    GREINING Á ANDA- OG GÆSAVÆNGJUM ÚR VEIÐI 2015

    VERKNÚMER: VERKHLUTI:

    05121-002 0008

    DAGS: NR.:

    2016-12-13 0009

    UNNIÐ FYRIR: Umhverfisráðuneyti – Veiðikortasjóð VERKEFNISSTJÓRI: AÞS HÖFUNDUR: Arnór Þ. Sigfússon YFIRFARIÐ: GPé DREIFING: Opin: Óheimilt er að vitna í skýrsluna nema með leyfi höfundar

    SAMANTEKT Frá árinu 1993 hefur höfundur safnað vængjum af öndum og gæsum frá veiðimönnum víðsvegar að af landinu. Vængirnir hafa verið flokkaðir eftir tegundum og aldurshópum, þ.e. annars vegar ungfuglar á fyrsta ári og hins vegar eldri fuglar. Markmið þessara rannsókna er að vakta varpárangur stofnanna en hlutfall unga í veiði gefur vísbendingu um það hvernig varp tegundanna hefur gengið. Hér er gerð grein fyrir niðurstöðum frá árinu 2015. Alls voru aldursgreindar 6.943 gæsir sem söfnuðust frá veiðimönnum árið 2015. Hlutfall unga í veiðinni var um meðallag hjá grágæs og það lægsta síðan 2011. Hlutfall unga í veiðinni hjá heiðagæs var svipað og 2013 og 2014 og undir meðallagi þriðja árið í röð. Greindir voru vængir af 136 stokköndum 2015. Hlutfall ungra stokkanda var um 46% sem er nokkuð lægra en 1993-2000, þegar það var 64% (95% öryggismörk 61-67%). Það bendir til að árið 2015 hafi verið undir meðallagi hjá stokköndinni. Sýni af öðrum tegundum anda var svo lítið að það reyndist ekki vera marktækt.

  • Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

  • Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

    Efnisyfirlit 1 Inngangur ....................................................................................................... 1 2 Aðferðir .......................................................................................................... 1 3 Niðurstöður og umræður ................................................................................. 2 4 Heimildir ......................................................................................................... 6

  • Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2015

  • 1

    1 Inngangur Veiðikortasjóður veitti Verkís hf. styrk árið 2015 í verkefni það sem hér er greint frá og nefnt er „Vöktun á ungahlutföllum í veiðistofnum gæsa og anda með aldursgreiningu vængja úr veiði“. Frá árinu 1993 hefur höfundur safnað vængjum af öndum og gæsum frá veiðimönnum víðsvegar að af landinu. Vængirnir hafa verið flokkaðir eftir tegundum og aldurshópum, þ.e. annars vegar ungfuglar á fyrsta ári og hins vegar eldri fuglar. Markmið þessara rannsókna er að vakta varpárangur gæsastofnanna en hlutfall unga í veiði gefur vísbendingu um það hvernig varp tegundanna hefur gengið. Söfnun og greining anda- og gæsavængja hefur farið fram nær samfellt síðan 1993, þó féll greining niður 2001 og 2002. Höfundur hóf greiningar á vængjum árið 1993 sem starfsmaður hjá Veiðistjóraembættinu (nú Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar) og fluttust þær á Náttúrufræðistofnun Íslands 1995 - 2000 er höfundur starfaði þar. Þá féllu greiningar niður í tvö ár þar til höfundur hóf greiningar á gæsavængjum að nýju árið 2003 í samvinnu við Halldór Walter Stefánsson, en aðstöðuleysi og sú staðreynd að þær hafa oft verið kostaðar af athugendum hefur hamlað nokkuð umfangi og þess vegna hefur söfnun og greining andavængja m.a. verið látin mæta afgangi. Samantekt á niðurstöðum greininganna má m.a. sjá í Arnór Þ. Sigfússon 2000, Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004, Arnór Þ. Sigfússon 2005, Arnór Þ. Sigfússon 2007, Arnór Þ. Sigfússon 2010 og Arnór Þ. Sigfússon 2011. Helstu niðurstöður eru þær að góð samsvörun er milli ungahlutfalls í veiði og þess sem mælt er í gæsahópum á vetrarstöðvunum sem bendir til að báðar aðferðir gefi okkur góða vísitölu yfir ungaframleiðslu í stofnunum. Ungahlutfall er nokkuð mismunandi eftir tegundum. Það er hæst hjá grágæs, meðaltalið um 44%, nokkuð lægra hjá heiðagæs eða rúm 30% og hjá blesgæs var það einnig um 33% að meðaltali, þó síðustu árin sem blesgæs var veidd hafi hlutfallið lækkað mjög. Hjá helsingjanum er hlutfallið um 27%. Vegna breytinga á vetrarútbreiðslu grágæsa á Bretlandseyjum þar sem þær eru innan um stækkandi stofn breskra grágæsa er orðið erfitt að mæla ungahlutfall íslensku grágæsanna á vetrarstöðvum og því er mikilvægi ungahlutfalls í veiði á Íslandi orðið mun mikilvægara til að meta varpárangur grágæsa (Mitchell, C. 2014) Höfundur þakkar öllum þeim fjölmörgu veiðimönnum sem sendu inn vængi til greininga eða buðu okkur að koma og aldursgreina aflann. Halldóri Walter Stefánssyni er þakkað fyrir ómetanlega aðstoð við greiningar. Veiðikortasjóði er þakkaður styrkur sem veittur var í verkefnið 2015.

    2 Aðferðir Frá 20. ágúst, þegar gæsaveiðitíminn hefst, er gæsavængjum sem safnað er frá veiðimönnum og þeir aldursgreindir eða að veiðimenn eru heimsóttir og gæsirnar aldursgreindar. Veiðitími gæsa er til 15. mars en gæsir eru að mestu farnar af landinu um mánaðarmótin nóvember/desember, þannig að um það leyti lauk að mestu söfnun og greiningu gæsavængja. Þó bárust síðustu gæsa- og andavængir frá árinu 2015 fram í júní 2016. Aðeins má veiða þrjár tegundir gæsa hér á landi, en þær eru grágæs Anser anser, heiðagæs Anser brachyrhyncus og helsingi Branta leucopsis. Árið 2006 var fyrsta árið sem blesgæs Anser albifrons flavirostris var friðuð og hún því ekki lengur með í úrtakinu. Hlutfall unga hjá blesgæsum hefur þó verið mælt af höfundi frá 2006 með því að skoða blesgæsahópa í túnum og ökrum. Gæsavængir er aldursgreindir á lögun og litarmun á vængþökum og einnig á lögun stærstu dvergvængfjaðrar (Halldór W. Stefánsson 2009).

  • 2

    3 Niðurstöður og umræður Alls voru aldursgreindar 6.943 gæsir sem söfnuðust frá veiðimönnum á árinu 2015. Af þessum 6.943 gæsavængjum voru 6.011 af grágæsum, 751 af heiðagæsum og 170 af helsingjum. Auk þess voru greindir 11 vængir af blesgæsum. Hlutfall grágæsa í vængjasýninu er nokkuð hærra en búast mætti við út frá veiði samkvæmt veiðitölum frá Umhverfisstofnun (http://www.ust.is/einstaklingar/veidi/) á meðan hlutfall heiðagæsavængja er talsvert lægra (1. tafla). Hlutfall helsingja í vængjasýni var heldur lægra en búast hefði mátt við út frá veiði.

    1. tafla. Samanburður á hlutfalli tegunda í vængjasýni og veiði samkvæmt veiðitölum frá Umhverfisstofnun þegar. Einnig er sýnt hve stórt hlutfall af veiðinni er greint.

    Tegund Vængir 2015 Veiði 2015 Hlutfall greint Grágæs 6011 (87%) 38.120 (70%) 15,6%

    Heiðagæs 751 (11%) 14.328 (26%) 5,2% Helsingi 170 ( 2%) 1.863 ( 4%) 9,1%

    Af 6.011 grágæsum var fjöldi unga frá sumrinu 2659 eða um 44% og eins og sjá má á 1. mynd þá er þetta ungahlutfall það lægsta sem sést hefur síðan 2011. Meðalhlutfall unga í grágæsaveiðinni frá 1993 til 2015 er um 44% (95% öryggismörk; 42-47%) þannig að unghlutfall grágæsa er í meðallagi. Ungahlutfall grágæsa bendir til að varpárangur gæsanna hafi verið í lægra lagi sumarið 2015 sé miðað við síðastliðin ár. Samkvæmt talningum á grágæsum haustið 2015 þá fjölgaði þeim um lítillega frá frá talningum 2014 (Mitchell, C. 2014 Mitchell, C. 2015).

    1. mynd. Hlutfall grágæsaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

    81 336

    1241

    916

    2439

    1178

    1456

    997

    1367

    1367

    473

    1052

    1168

    2545

    2262

    2174

    2207

    3048

    3158

    6724

    6011

    0%

    10%

    20%

    30%

    40%

    50%

    60%

    70%

    Ár

    http://www.ust.is/einstaklingar/veidi/

  • 3

    Af 751 heiðagæs í vængjasýninu voru 202 ungar, eða um 27% sem er nær það sama og 2014 og aðeins undir meðallagi. Meðalhlutfall unga í heiðagæsaveiðinni frá 1995 til 2015 er um 30% (95% öryggismörk; 26-34%).

    2. mynd. Hlutfall heiðagæsaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

    Hlutfall unga í heiðagæsaveiðinni bendir til að varpárangur heiðagæsa sumarið 2015 hafi verið í minna lagi, svipaður og var árin tvö þar á undan. Talningar 2015 bentu til að stofninn hefði stækkað um 36,5% og hefði aldrei verið stærri, eða um 537 þúsund gæsir (Mitchell, C. 2015). Alls bárust vængir af 170 helsingjum árið 2015. Af þeim voru 34 af ungum eða um 20%, sem er nær það sama og árin tvö þar á undan og undir meðallagi (3. mynd). Meðalungahlutfall á tímabilinu frá 1995-2015 er um 27% (95% öryggismörk; 22-31%). Sökum þess hve sýni af helsingjavængjum eru yfirleitt lítil eru öryggismörk hlutfallsins mjög víð eins og sést á 3. mynd og skarast yfirleitt milli ára. Því er yfirleitt ekki um marktækan mun að ræða milli ára.

    153

    99 436

    320

    243

    302

    268

    377

    326

    410

    415

    324

    521

    498

    387

    963

    729

    1233

    751

    0%

    10%

    20%

    30%

    40%

    50%

    60%

    70%

    Ár

  • 4

    3. mynd. Hlutfall helsingjaunga í vængjasýnum. Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

    Ungahlutfall hjá blesgæs er sýnt á 4. mynd. Þar sem veiðar á blesgæsum voru bannaðar árið 2006 eru hlutföll unga sem sýnd eru árin 2006 til 2015 mæld með fjarsjá á ökrum og túnum þannig að þau eru ekki sambærileg við fyrri athuganir. Síðasta árið sem blesgæsir voru veiddar, 2005, var ungahlutfall í veiðinni nokkuð gott samanborið við árin þar á undan sem bendir til að varp hafi tekist vel það ár. Hafa verður þó í huga að sýnastærð var með minna móti það ár, einungis 93 fuglar. Árið 2006 var svo aldurshlutfallið í ökrum og túnum einungis um 7% sem er mjög lélegt en heldur betra árið 2007 eða um 10%. Næstu tvö árin, 2008 og 2009 nær svo ungahlutfallið í um 15%, en talið er að hlutfall unga í stofni blesgæsa þurfi að vera yfir 15% til að stofninn nái að vega upp á móti afföllum og stækka. Árið 2010 er svo unghlutfallið um 19% sem er það besta sem sést hefur frá friðun 2006 en dettur svo niður í um 11% aftur 2011 og 2012. Árin 2013 og 2014 er svo ungahlutfallið komið í og rétt undir 9% sem er næst lélegustu árin eftir friðum. Árið 2015 fer hlutfallið aðeins upp á við eða í um 12%. Eftir friðun hér 2006 hætti blesgæs að fækka og hefur stofninn að mestu staðið í stað en ungahlutfall áranna 2008-2010 gefur vonir um að hann gæti jafnvel rétt eitthvað við ef vel árar þó það hafi verið vonbrigði að hlutfallið lækkar aftur 2011 til 2013. Hátt ungahlutfall 2010 leiddi til aukningar í blesgæsastofninum um rúmlega þrjúþúsund gæsir sem er aukning um 14,4% (Fox, T. o.fl. 2011) en 2011 gekk sú aukning að mestu til baka (Fox, T. o.fl. 2012).

    50 50 338

    75 24 23 19 37 38 11 112

    135

    48 36 95 263

    114

    322

    170

    0%

    10%

    20%

    30%

    40%

    50%

    60%

    70%

    Ár

  • 5

    4. mynd. Hlutfall blesgæsaunga í vængjasýnum (bláar súlur) og í túnum, og ökrum (gular súlur). Sýnastærð árs er tilgreind í hverri súlu og sýnd eru 95% vikmörk hlutfallsins.

    Greindir voru vængir af 136 stokköndum 2015. Hlutfall ungra stokkanda var um 46% sem er nokkuð lægra en 1993-2000, en það var þá um 64% (95% öryggismörk 61-67%) (Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004). Þó sýnastærð sé lítil bendir þetta til að árið 2015 hafi verið undir meðallagi hjá stokköndinni. Sýni af öðrum tegundum anda var svo lítið að það reyndist ekki vera marktækt.

    2. tafla. Fjöldi stokkanda sem greindur var í veiðinni 2015.

    Tegund Fullorðin Ung Stokkönd 73 63

    Ávallt hefur reynst erfiðara að safna andavængjum en gæsavængjum og megnið af andavængjum sem berast eru sendir með gæsavængjum. Ástæður þessa eru meðal annars þær að frá 2003 eftir að söfnun vængja hófst á ný var megin áhersla lögð á að safna gæsavængjum þar sem söfnun og greining var að mestu á kostnað höfundar og Halldórs W. Stefánssonar þar til styrkur fékkst úr veiðikortasjóði 2006 og svo aftur 2008 og 2010 - 2015. Þá er einnig mun minna veitt af öndum en gæsum. Einnig ber stundum á því að veiðimönnum finnist ekki taka því að hafa samband eða senda vængi ef þeir veiða fáa fugla, en slíkt er algengara í andaveiðinni. Ólíklegt er að sæmilega stór sýni fáist úr andaveiðinni nema ráðist verði í sérstakt söfnunarátak með auknum auglýsingum. Ef slíkt átak bæri árangur þá er einna helst að marktæk sýni fáist af stokköndum þar sem hún er samkvæmt veiðiskýrslum langmest veidda öndin.

    246

    91 378

    355

    216

    207

    288

    189

    93

    912

    1190

    2357

    2982

    2908

    2170

    1858

    3028

    3115

    2195

    0%

    10%

    20%

    30%

    40%

    50%

    60%

    70%

    Ár

  • 6

    4 Heimildir Arnór Þ. Sigfússon 2000. Gæsarannsóknir og skotveiðimenn. SKOTVÍS 6(1): 29-34. Arnór Þ. Sigfússon 2005. Ungahlutfall í veiði. Gæsakvak, Fréttabréf gæsaáhugamanna, 1: 4-

    5. Arnór Þ. Sigfússon 2007. Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 2006. Skýrsla VST.

    Reykjavík, nóvember 2007, 4 bls. Arnór Þ. Sigfússon 2010. Greining á gæsavængjum úr veiði. Skotvís 16(1): 7-13 Arnór Þ. Sigfússon 2011. Greining á gæsavængjum úr veiði. Veiðidagbók 2011,

    Umhverfisstofnun. Akureyri 2011. Einar Guðmann 2007. Veiðar á villtum fuglum og spendýrum. Umhverfisstofnun, 290 bls. Fox AD, Francis I, Walsh A. 2011. Report of the 2010/2011 international census of Greenland

    White-fronted Geese. Greenland White-fronted Goose Study. National Parks & Wildlife Service, Ireland. 18 bls.

    Fox AD, Francis I, Walsh A. 2012. Report of the 2011/2012 international census of Greenland White-fronted Geese. Greenland White-fronted Goose Study. National Parks & Wildlife Service, Ireland. 28 bls.

    Halldór Walter Stefánsson 2009. Aldursgreining gæsa með fjöður úr dvergvæng. Veiðidagbók 2009, Umhverfisstofnun. Akureyri 2009.

    Mitchell, C. 2008. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2007 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge.

    Mitchell, C. 2013. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2012 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge.

    Mitchell, C. 2014. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2013 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge.

    Mitchell, C. 2015. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2014 international census. Wildfowl &Wetlands Trust Report, Slimbridge.

    Morten Frederiksen og Arnór Þ. Sigfússon 2004. Greining á anda- og gæsavængjum úr veiði 1993- 2000. Skýrslur Náttúrufræðistofnunar Íslands NÍ-03009. Reykjavík 2004.

    Newth, J.N. 2007. Status and distribution of Icelandic-breeding geese: results of the 2006 international census. Wildfowl & Wetlands Trust Report, Slimbridge

    http://pure.au.dk/portal/en/persons/anthony-david-fox(deb15e30-223d-4759-b62b-1df46dcf0d62).htmlhttp://pure.au.dk/portal/en/publications/report-of-the-20102011-international-census-of-greenland-whitefronted-geese(158f734e-3aad-4bc6-bd04-2a583b38b143).htmlhttp://pure.au.dk/portal/en/publications/report-of-the-20102011-international-census-of-greenland-whitefronted-geese(158f734e-3aad-4bc6-bd04-2a583b38b143).htmlhttp://pure.au.dk/portal/en/persons/anthony-david-fox(deb15e30-223d-4759-b62b-1df46dcf0d62).htmlhttp://pure.au.dk/portal/en/publications/report-of-the-20102011-international-census-of-greenland-whitefronted-geese(158f734e-3aad-4bc6-bd04-2a583b38b143).htmlhttp://pure.au.dk/portal/en/publications/report-of-the-20102011-international-census-of-greenland-whitefronted-geese(158f734e-3aad-4bc6-bd04-2a583b38b143).html

  • Efnisyfirlit1 Inngangur2 Aðferðir3 Niðurstöður og umræður4 Heimildir

    /ColorImageDict > /JPEG2000ColorACSImageDict > /JPEG2000ColorImageDict > /AntiAliasGrayImages false /CropGrayImages true /GrayImageMinResolution 300 /GrayImageMinResolutionPolicy /OK /DownsampleGrayImages true /GrayImageDownsampleType /Bicubic /GrayImageResolution 300 /GrayImageDepth -1 /GrayImageMinDownsampleDepth 2 /GrayImageDownsampleThreshold 1.50000 /EncodeGrayImages true /GrayImageFilter /DCTEncode /AutoFilterGrayImages true /GrayImageAutoFilterStrategy /JPEG /GrayACSImageDict > /GrayImageDict > /JPEG2000GrayACSImageDict > /JPEG2000GrayImageDict > /AntiAliasMonoImages false /CropMonoImages true /MonoImageMinResolution 1200 /MonoImageMinResolutionPolicy /OK /DownsampleMonoImages true /MonoImageDownsampleType /Bicubic /MonoImageResolution 1200 /MonoImageDepth -1 /MonoImageDownsampleThreshold 1.50000 /EncodeMonoImages true /MonoImageFilter /CCITTFaxEncode /MonoImageDict > /AllowPSXObjects false /CheckCompliance [ /None ] /PDFX1aCheck false /PDFX3Check false /PDFXCompliantPDFOnly false /PDFXNoTrimBoxError true /PDFXTrimBoxToMediaBoxOffset [ 0.00000 0.00000 0.00000 0.00000 ] /PDFXSetBleedBoxToMediaBox true /PDFXBleedBoxToTrimBoxOffset [ 0.00000 0.00000 0.00000 0.00000 ] /PDFXOutputIntentProfile () /PDFXOutputConditionIdentifier () /PDFXOutputCondition () /PDFXRegistryName () /PDFXTrapped /False

    /CreateJDFFile false /Description > /Namespace [ (Adobe) (Common) (1.0) ] /OtherNamespaces [ > /FormElements false /GenerateStructure false /IncludeBookmarks false /IncludeHyperlinks false /IncludeInteractive false /IncludeLayers false /IncludeProfiles false /MultimediaHandling /UseObjectSettings /Namespace [ (Adobe) (CreativeSuite) (2.0) ] /PDFXOutputIntentProfileSelector /DocumentCMYK /PreserveEditing true /UntaggedCMYKHandling /LeaveUntagged /UntaggedRGBHandling /UseDocumentProfile /UseDocumentBleed false >> ]>> setdistillerparams> setpagedevice