Upload
forlagid
View
215
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Við gerum tilboð í magn og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
Citation preview
GJAFABÆKUR »
A R n A l d U R I n d R I ð A s o n ReyKJAvíKURnÆtUR Erlendur er nýlega genginn til liðs við
lögregluna og starfið á strætum Reykja-
víkur er erilsamt. Óútskýrt mannslát
lætur hann ekki í friði. Útigangsmaður
finnst drukknaður og öllum virðist
standa á sama. Örlög hans ásækja Erlend
og leiða hann æ dýpra inn í framandi
heima borgarinnar. Mögnuð saga um
fyrsta mál Erlendar eftir sagnameist-
arann Arnald Indriðason.
s t e Fá n M á n I HúsIð
Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson
rannsakar dauðsfall sem flestir telja slys
en Hörður er á öðru máli. Um sama leyti
flytur fjölskylda í afskekkt hús innst í
Kollafirði og draugar fortíðar vakna á
ný. Æsispennandi og ískyggileg saga –
Stefán Máni eins og hann gerist bestur.
UppHAFIð Forsaga lífsins Heillandi yfirlit yfir milljóna ára sögu
lífsins á jörðinni. Fjölmargar furðuskepn-
ur spretta ljóslifandi fram auk þess sem
getur að líta sérkennilegar beinagrindur
og margslungna steingervinga. Efnið
er byggt á rannsóknum fremstu vísinda-
manna heims og nýjustu tækni, m.a.
við tölvuteikningar, beitt til að koma því
á framfæri. Allt leggst á eitt við að ljúka
upp heimi hundruða útdauðra tegunda,
allt frá elstu og frumstæðustu lífverum
til hinna miklu risaeðla, fornra spendýra
og jafnvel fyrstu mannanna.
Við gerum tilboð í magn og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
íslAnd í AldAnnA Rás 2001-2010 Fyrsti áratugur 21. aldarinnar var
ævintýralegt tímabil hér á landi svo
ekki sé meira sagt. Hér er öllum helstu
merkisviðburðum gerð ítarleg skil en
ýmsum veigaminni þáttum – skondnum
eða skelfilegum – jafnframt haldið til
laga.
GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »
KRIstín MARJA BAldURsdóttIR
KAntAtA Þegar Nanna hugar að gróðrinum sér
hún að allt er að fara úr böndum. Finnur
hefur svipaða tilfinningu gagnvart
bókhaldinu; þar er eitthvað sem ekki
stemmir. Í stórfjölskyldunni er yfirborð-
ið kyrrt – en þegar hægláti útlending-
urinn birtist á sviðinu breytist allt. Stór-
brotin og margradda fjölskyldusaga þar
sem ótal örlagaþræðir fléttast og rakna.
GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »
e I n A R M á R G U ð M U n d s s o n
íslensKIR KónGAR
Knudsenarnir í Tangavík eru skrautleg
og flokksholl ætt með dugandi útgerðar-
mönnum, ættræknum bankastjórum,
ástsælum alþingismönnum og skapmikl-
um fegurðardrottningum. Saga þeirra
er samofin sögu alþýðunnar því hana
hafa þeir ráðskast með frá ómunatíð.
Frásagnir sögumanns af þessu skraut-
lega fólki sem við þekkjum öll eru í senn
hárbeittar og drepfyndnar.
v I l B o R G d Av í ð s d ó t t I R víGRoðI
Auður djúpúðga elur upp son sinn á Kata-
nesi eftir skilnað þeirra Ólafs hvíta Dyfl-
innarkonungs. Illindi eru milli innfæddra
og norrænna manna á svæðinu og Orkn-
eyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Ólafur
hvíti inn í Péttland og leiðir hans og Auðar
liggja saman að nýju ... Áhrifamikið fram-
hald Auðar (2009) sem var tilnefnd til
íslensku bókmenntaverðlaunanna.
BílAR í máli og myndum
Bókin Bílar í máli og myndum leiðir les-
andann á einstakan hátt í gegnum sögu
þessa merkilega farartækis sem umbylti
20. öldinni. Hér getur að líta meira en
1200 bíla af öllum stærðum og gerðum,
margbreytilegar vélar og sögu ástsæl-
ustu tegundanna og mannanna á bak við
þær. Sannkölluð skemmtireisa í gegnum
bílasöguna og fullkomin gjöf handa bíla-
áhugamönnum á öllum aldri.
FeRðAAtlAs Innbundinn
Ferðaatlasinn er ómissandi ferðafélagi
sem inniheldur 78 ný landakort í mæli-
kvarðanum 1:200 000 og 47 þéttbýliskort
auk upplýsinga um sundlaugar, tjald-
svæði, söfn og golfvelli. Meðal helstu
nýjunga eru lýsingar og litmyndir af 104
náttúruperlum og sögustöðum. Þessar
upplýsingar, ásamt einstökum teikning-
um Jóns Baldurs Hlíðberg af varpfuglum,
plöntum og skeljum landsins, gera ferða-
lagið um Ísland ógleymanlegt.
Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is
á R n I Þ ó R A R I n s s o n áR KAttARIns Lífshættuleg árás fyrir utan skemmti-
stað í Reykjavík og óhugnanlegur hrekk-
ur í brúðkaupi hrinda af stað atburðarás
þar sem ekki er allt sem sýnist. Hver
sendir Einari klúru sms-in? Enn ein
perlan í glæpasagnafléttu Árna Þór-
arinssonar um blaðamanninn Einar.
s ó lv e I G e I R í K s d ó t t I R eFtIRRéttIR sollU
Solla opnar nýjar víddir í gerð gómsætra
eftirrétta og sælgætis fyrir alla sem hafa
áhuga á heilbrigði og hollri næringu
en vilja jafnframt gera vel við sig. Hér
má finna tertur, litlar og stórar bökur,
brownies, smákökur, konfekt, ís og fleiri
freistingar sem óhætt er að láta undan.
Solla er í fararbroddi meðal hráfæðis-
kokka, hérlendis sem erlendis.
A R n e n e R J o R d e t o G C A R l o s Z A C H R I s o n
JólAKúlUR
Arne og Carlos eru vinsælir hönnuðir
sem hafa sannarlega slegið í gegn með
prjónuðu jólakúlunum sínum. Bókin
hefur selst í tugþúsundum eintaka í
Noregi og verið þýdd á fjölda tungumála.
Jólakúlurnar eru frumlegar og óvenju-
legar en byggjast um leið á sterkum
hefðum og fallegu jólamynstrin er líka
hægt að nota á alls konar jólaskraut.
G í s l I e G I l l H R A F n s s o n o G I n G A e l s A B e R G Þ ó R s d ó t t I R
eldAð oG BAKAð í oFnInUM HeIMAGóður matur – gott líf
Einstök bók fyrir alla sem njóta þess
að elda og baka frá grunni með þátt-
töku allrar fjölskyldunnar. Fjölbreyttar
uppskriftir að gómsætum heimilismat,
girnilegum veisluréttum, góðu brauði og
freistandi og frábærum tertum og öðru
góðgæti, með áherslu á gott hráefni. Höf-
undar sendu í fyrra frá sér bókina Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar og
var hún tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna.
n A n n A R ö G n vA l d A R d ó t t I R MúFFUR í HveRt Mál
Það er fljótlegt og auðvelt að baka
girnilegar múffur og þær henta við öll
tækifæri – frá morgni til kvölds. Nanna
hefur sent frá sér á annan tug vinsælla
matreiðslubóka og hér gefur hún upp-
skriftir að alls konar múffum, hollum
morgunmúffum, nestis- og kvöldverðar-
múffum, sætum múffum með kaffinu
og jafnvel múffum fyrir gæludýrin.
Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is
e I n A R K á R A s o n
sKáld
Sumarið 1276 situr Sturla Þórðarson í
friði heima á Staðarhóli þegar Magnús
konungur lagabætir kallar hann á sinn
fund. Óvænt vetrardvöl í Færeyjum
gefur honum næði til að rifja upp válega
atburði undangenginna fjörutíu ára og
sjá þá í nýju samhengi. Með skáldi lýkur
Einar Kárason Sturlungasögu sinni
sem hlotið hefur miklar vinsældir og lof
gagnrýnenda.
ó l A F U R G U n n A R s s o n MálARInn
Davíð er dáður listmálari, verkin hans
seljast grimmt, hann er vel stæður og
vel giftur. En hann hefur aldrei öðlast
þá viðurkenningu menningarpáfanna
sem hann þráir og hryllilegt slys sem
hann átti ef til vill sök á varpar dimmum
skugga á fjölskyldulífið. Viðburðarík og
áhrifamikil skáldsaga um átök í sálinni
og átök milli fólks, togstreitu, umrót og
metnað.
Þ ó R A R I n n e l d J á R n HéR lIGGUR sKáld
Á hverju kvöldi hugsar Hallbjörn sauða-
maður um Þorleif jarlsskáld sem sagan
segir að hvíli þar undir sem Hallbjörn
sefur. Af Þorleifi og ætt hans eru fornar
sagnir um harðvítug átök höfðingja,
fyrirboða og forynjur, kynngimagnaðan
hefndarkveðskap og ómennskt víg á
Þingvöllum. Þórarinn Eldjárn segir hér
sögu af hógværu skáldi sem býður illsk-
unni birginn.
J ó n ó l A F s s o n AppelsínUR FRá ABKAsíUvera Hertzsch, Halldór laxness og hreinsanirnar miklu
Nafn Veru Hertzsch er órjúfanlega tengt
uppgjöri Halldórs Laxness við kommún-
ismann en árið 1938 voru Vera og dóttir
hennar teknar höndum fyrir augunum
á Halldóri í Moskvu. Áratugir liðu án
þess að nokkur vissi hvað af þeim varð.
Sú hörmulega saga er hér loksins sögð
til enda.
Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
KRIstín eIRíKsdóttIR
HvítFeld Fjölskyldusaga Fyrrverandi fimleikastjarnan Jenna
Hvítfeld hefur allt: útlitið, kynþokkann,
greindina og framann. Í þessari fyrstu
skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur kemur
í ljós að ekkert er eins og hún hélt, sjálf
lygin kvíslast líkt og eitur.
MAGnús ÞóR Jónsson
MeGAs textar 1966-2011 Hér er kominn obbinn af söngtextum
Megasar sem ortir voru á árabilinu
1966–2011. Margir textanna hafa aldrei
birst áður en aðrir hafa aflað honum
skáldfrægðar. Í bókinni er fjöldi ljós-
mynda af meistaranum og veröld hans
og síðast en ekki síst prýða bókina
myndskreytingar sem hann gerði sér-
staklega fyrir útgáfuna. Bókin fæst með
fjórum mismunandi kápum.
Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is
Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]
Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is
e R l e n d o G o R s o y l A H A A R B e R G , U n n U R J ö K U l s d ó t t I R
íslAnd í AllRI sInnI dýRð
Ísland er í mörgu tilliti land andstæðna.
Þar tekst ljósið á við myrkrið, ísinn við
eldinn, öræfakyrrðin á sér andhverfu
í öskrandi briminu við ströndina og
hrjóstrið á hálendinu á fátt sameiginlegt
með blómskrúðinu og gróskunni sem
finna má víða í skjólsælum unaðsreitum.
Bókin, sem kemur út á ensku og þýsku,
auk íslensku lýsir svo sannarlega Íslandi
– í allri sinni dýrð.
t o M A n G
stAFRÆn lJósMyndUn skref fyrir skref
Einstaklega yfirgripsmikill og aðgengi-
legur leiðarvísir um hvaðeina er lýtur að
stafrænni ljósmyndun. Bókin nýtist öll-
um sem vilja ná betri tökum á ljósmynd-
un, hvort sem þeir eru að stíga fyrstu
skrefin eða eru reyndir myndasmiðir.
Höfundurinn er margverðlaunaður ljós-
myndari, sjónvarpsþáttastjórnandi og
metsöluhöfundur. Stórfróðlegt uppfletti-
rit sem þú munt leita í aftur og aftur.
sKRípó
Skemmtilegustu skopmyndateiknarar
landsins leggja til teikningarnar – og þú
semur brandarann. Þannig er Skrípó,
einfalt og fáránlega fyndið nýtt íslenskt
spil sem fjölskyldan mun liggja í hláturs-
kasti yfir.