Upload
kennarasamband-islands
View
251
Download
8
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Â
Citation preview
Ágúst 2011 · tölublað 89
Fréttabréf
Félags tónlistarskólakennara
Kjarasamningurinn snýst um
starfskjör og faglega þróun
Undanfarin ár hafa miklar breytingar verið að eiga sér stað í
starfsemi tónlistarskóla. Þar má fyrst nefna starfstímann sem
hefur verið að styttast og þjappast saman jafnt og þétt. Flestir
þekkja þróunina í Reykjavík og ákvörðun Reykjavíkurborgar
um 32 kennsluvikur í tónlistarskólum borgarinnar sem lengdi
vinnuviku tónlistarkennara í 50 klst. Síðan fór vikufjöldinn
niður í 30 vikur og vinnuvika tónlistarkennara var orðin 53 klst.
sem kallar á tæplega 11 klst. vinnudag!
Samþjöppun kennslutímabils kallar á aukinn nemenda-
fjölda í umsjón kennara!
Samþjöppun kennslutímabils felur í sér hækkun á vikulegri
kennsluskyldu sem þýðir aukinn nemendafjöldi í umsjón
kennara. Aukinn nemendafjöldi útheimtir aukna vinnu við t.d.:
Undirbúning kennslu,
gerð einstaklingskennsluáætlana,
verkefnaval,
undirbúning vegna tónleika, prófa, samleiks,
skýrslugerðir og umsagnir,
foreldrasamstarf o.fl.
Stytting kennslustunda/skert þjónusta við nemendur kallar
á aukinn nemendafjölda í umsjón kennara!
Í ofan á lag hefur þjónusta við nemendur verið skert á undan-
förnum árum og dæmi eru um að kennslutímar hafi verið styttir
allt niður í 20 mínútur á viku. Styttri kennslustundir kalla á
aukinn nemendafjölda í umsjón kennara sem aftur útheimtir
aukna vinnu samanber upptalningu að framan.
Forsendur eldri kjarasamnings tónlistarkennara brostnar
Af þessu leiðir að kennarar eru nú með mun fleiri nemendur en
gengið hefur verið út frá við gerð kjarasamninga. Í kjarasamn-
ingum er kveðið á um að tónlistarskólar skuli aðlaga starfstíma
sinn að starfstíma grunnskóla á sama svæði og ef því væri fylgt
fæli það í sér 19-20 klst. kennsluskyldu á viku.
Starfshlutfall kennara hefur farið lækkandi samhliða fækkun
kennsluvikna en nemendum í umsjónarhópi kennara hefur stór-
lega fjölgað vegna þessarar samþjöppunar á kennslutíma og
einnig sökum styttingar á kennslustundum nemenda og
aukinnar samkennslu/hópkennslu.
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör
kennara
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta starfskjör kennara
sem hafa tekið á sig auknar byrgðar, í tengslum við fækkun
kennsluvikna og styttingu kennslutíma nemenda, án þess að fá
greitt fyrir.
Starfskjör kennara geta haft mikil áhrif á þróun faglegs
starfs í tónlistarskólum og það er hluti af fagmennsku
kennara að berjast fyrir bættum kjörum í hvívetna.
Kennarar og stjórnendur þurfa að vera vel meðvitaðir um
breytingar í þeirra starfsumhverfi og hvaða áhrif þær
kunna að hafa bæði á starfskjör og faglega þróun.
Frá undirritun kjarasamnings aðfararnótt 31. maí sl.
Á myndinni eru Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samn-
inganefndar SÍS og Sigrún Grendal, formaður FT.
Nýjum kjarasamningi er ætlað að leiðrétta
starfskjör kennara
Samkennsla og nemendur í hlutanámi:
„Vegna annarrar umsjónar en kennslu, sem vegur þyngra vegna
nemenda í hlutanámi eða samkennslu skal koma til greiðsla
álags með stuðlinum 1,2368 (sbr. framhaldsnám). Kennslu-
stund í samkennslu uppreiknast með stuðlinum 1,2368. Álag
vegna hlutanemenda reiknast á þann mínútufjölda sem vantar
upp á að kennsla nemenda nái 60 mínútum.“
Með þessu ákvæði er verið að tryggja að greiðslur fylgi
þegar fjöldi nemenda í umsjónarhópi kennara eykst með
auknum fjölda nemenda í hlutanámi eða samkennslu.
Við gerð kjarasamninga er eftir sem áður byggt á þeim starfs-
aðstæðum kennara að þeir hafi um 20 nemendur í fullu námi í
sínum umsjónarhópi. Þær starfsaðstæður hafa hins vegar gjör-
breyst mjög víða og nemendahópur kennara hefur allt að tvö-
faldast. Nýjum samningi er ætlað að bregðast við þessum
breyttu starfsaðstæðum.
Starfstími tónlistarskóla:
„Skóladagar nemenda skulu vera á tímabilinu 20. ágúst til 5.
júní og skal starfstíminn aðlagaður starfstíma grunnskóla á
sama svæði þannig að frávik nemi ekki meira en tveimur
vikum.“
Með ákvæðinu er verið að stöðva þá þróun að sveitarfélög
geti misnotað innbyggðan sveigjanleika í kjarasamningnum
með einhliða ákvörðunum um að stytta kennslutímabil
skóla, hækka vikulega kennsluskyldu kennara og minnka
þjónustu við nemendur.
Með því að skýra hvað „aðlögun“ felur í sér með skilgreindu
leyfilegu fráviki er staðinn vörður um vikulega vinnuskyldu
kennara en sem dæmi þá er vikuleg vinnuskylda kennara 45,3
klst. í skóla sem er 35 vikur.
Nýtt námsefni!
1) Í fyrsta lagi er staðinn vörður um vikulega
kennsluskyldu kennara sem hefur gríðarlega mikil
áhrif á starfskjör þeirra.
2) Í öðru lagi er kveðið á um greiðslu álags vegna
aukinnar vinnu sem hlýst af auknum nemendafjölda
í umsjón hvers kennara.
Kynning á nótum á punktaletri
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og dauf-
blinda einstaklinga hefur ákveðið að bjóða upp á kynningu á
nótum á punktaletri í haust. Notkun punktaletursnótna hefur
ekki staðið fólki til boða hérlendis hingað til, hvorki nem-
endum né kennurum. Punktaletursnótur geta hins vegar skipt
sköpum þegar kemur að tónlistarmenntun hjá blindum og veru-
lega sjónskertum einstaklingum og því er mjög mikilvægt að sá
möguleiki sé fyrir hendi.
Hópur fólks fór héðan til Noregs í maí síðastliðnum til að
fylgjast með námskeiði í punktaletursnótum og kynna sér þær
kennsluaðferðir, kennsluefni og annað sem notast er við þar í
þeim efnum. Ferðin gekk mjög vel og hefur verið unnið úr
þeim upplýsingum nú í sumar sem aflað var í Noregi í þeim
tilgangi að koma upp kennslu punktaletursnótna á Íslandi.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin vill bjóða öllum þeim
kennurum sem hafa áhuga að mæta og kynna sér betur hvernig
punktaletursnótur virka, mikilvægi þeirra og hvernig hægt er að
nota þær samhliða hefðbundnu tónlistar- og hljóðfæranámi svo
nemandinn njóti góðs af.
Kynningin mun fara fram miðvikudaginn 14. september frá kl.
17:00-19:00 í húsakynnum Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar-
innar í Hamrahlíð 17 og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig
með því að hafa samband við undirritaðan sem einnig veitir
frekari upplýsingar. Einnig er hægt að skrá sig á heimasíðu
Miðstöðvarinnar, www.midstod.is/namskeid.
Hlynur Þór Agnarsson, [email protected], sími: 545-5800.
Þetta er þriðja og síðasta bókin í miðnámi. Áður útkomnar
kennslubækur eru Ópus 1, 2 og 3 fyrir grunnnám og Ópus
4 og 5 fyrir miðnám.
Efni bókarinnar hefur verið kennt til reynslu í Tónlistarskóla
Kópavogs.
Eins og í fyrri bókum er lögð áhersla á að kenna tónfræðilegu
þekkingaratriðin á fjölbreyttan og myndrænan hátt. Fróðleikur
um tónskáld, tónverk og tónlistarsöguna fær að fljóta með, í
þeim tilgangi fyrst og fremst að vekja forvitni nemandans,
skemmta og hvetja til frekari kynna hans af fjársjóðum tón-
listarsögunnar.
Höfundar: Guðfinna Guðlaugsdóttir og
Marta E. Sigurðardóttir.
Nótnaskrift, myndskreytingar og uppsetning:
Rán Flygenring.
Dreifingaraðili: Tónastöðin ehf., Skipholti 50d,
105 Reykjavík, sími 552-1185.
Nýtt námsefni í
tónfræðum,
Ópus 6,
er komið út
Námskeið!
Í eftirfarandi dæmum er reynt að draga fram þau áhrif
sem ný ákvæði í kjarasamningnum hafa á launakjör
kennara.
Áhrif þess að nú má ekki muna meiru en tveimur vikum á
starfstíma tónlistarskóla og grunnskóla á sama svæði.
Í þessu dæmi er tekinn kennari sem er í u.þ.b. hálfu starfi ef
miðað er við þær forsendur sem byggt hefur verið á við gerð
kjarasamninga í gegnum tíðina – þ.e. 20 klst. vikulega
kennsluskyldu – hann er með 10 nemendur í eina klst. hvern á
viku. Við gefum okkur að hann hafi 320 þús. kr. í mánaðarlaun
fyrir fullt starf.
Fjöldi vikna Fjöldi vikna
fyrir samning skv. nýjum samningi
30 vikur 35 vikur
42,6% starfshlutfall 49,7 starfshlutfall
136.320 kr. í mánaðarlaun 159.040 kr. í mánaðarlaun
Með fjölgun kennsluvikna hækkar starfshlutfall kennarans og
þá um leið mánaðarlaun hans. Með því að setja undir þann leka
að hægt sé að þjappa saman kennslutímabili skóla út yfir þau
mörk að geta talist eðlilegur vinnutími eru starfskjör færð í það
horf að vikuleg kennsluskylda sé í kringum 20 klst.
Áhrif álags á samkennslu og hlutanemendur
Í þessu dæmi er einnig tekinn kennari sem er í u.þ.b. hálfu
starfi – hann er með 5 nemendur í fullu námi (einkakennsla/
grunnnám) og 10 hálfa nemendur (í 30 mín. hvern). Til að sjá
Í kjölfar nýs kjarasamnings hafa margir haft samband og
óskað nánari upplýsingu í tengslum við skipulagningu
starfstíma tónlistarskóla og leyfilegs fráviks frá starfstíma
grunnskóla. Eftirfarandi þætti ber að hafa í huga.
Starfstími grunnskóla
Samkvæmt grein 2.1.5 í kjarasamningi grunnskólakennara
skiptist starfstími grunnskóla í skóladaga nemenda og undir-
búningsdaga.
Skóladagar nemenda skuli vera 180 á ári (í einhverjum til-
fellum eru einstaka dagar taldir sem tveir).
Undirbúningsdagar á starfstíma skóla eru 5.
Undirbúningsdagar fyrir og eftir kennslutíma skulu vera 8.
Starfstími grunnskóla er því að hámarki 185 dagar sem gera 37
vikur (8 undirbúningsdagar fyrir og eftir kennslutíma teljast
ekki með).
Starfstími tónlistarskóla
Skóladagar nemenda skulu vera á tímabilinu 20. ágúst til 5.
júní og skal starfstíminn aðlagaður starfstíma grunnskóla á
sama svæði þannig að frávik nemi ekki meira en tveimur
vikum.
Ákvæðið um aðlögun felur það í sér að ef starfstími grunnskóla
á viðkomandi svæði er alls 185 dagar, þ.e. 37 vikur, getur
starfstími tónlistarskóla að lágmarki orðið 35 vikur. Kennslu-
dagar alls að meðtöldum starfsdögum/umbreyttum kennslu-
dögum inn á starfstíma skóla væru þá að lágmarki 175.
Til útskýringar er tekið dæmi um aðlögun að skóladagatali
grunnskóla í Reykjavík:
Skóladagar nemenda í grunnskóla eru 180 og starfsdagar
kennara inn á starfstíma nemenda 5, þ.e. starfstíminn er 185
dagar eða 37 vikur.
Starfsdagar grunnskólakennara utan starfstíma nemenda eru
8 eins og í tónlistarskólum þ.e. fyrir og eftir kennslutímabil.
Þeir eru ekki taldir hér með.
Í tónlistarskólum eru starfsdagar inn á starfstíma ekki skil-
greindir sérstaklega í kjarasamningi en tónlistarskólum er
heimilt að umbreyta kennsludögum í vinnudaga kennara.
Kennsludagar og umbreyttir starfsdagar í tónlistarskólum í
Reykjavík eiga því samkvæmt þessu að vera að lágmarki
175 dagar eða 35 vikur.
Hafa ber í huga að vinnutími starfsmanna skal vera sam-
felldur.
Hvernig skal aðlaga starfstíma tónlistarskóla að
starfstíma grunnskóla?
eingöngu áhrif álagsins eru kennsluvikur látnar vera 35 í
báðum dæmum.
Fyrir samning Skv. nýjum samningi
35 vikur 35 vikur
49,65% starfshlutfall 55,52% starfshlutfall
158.880 kr. í mánaðarlaun 177.664 kr. í mánaðarlaun
Hvaða áhrif hafa ný ákvæði í kjarasamningi á starfskjör kennara?
Við berum ábyrgð á þróun
tónlistarfræðslu í landinu!
Þær breytingar sem nýr kjarasamningur felur í sér eru að mínu
mati grundvallaratriði bæði hvað varðar faglega og kjaralega
þróun stéttarinnar.
Starfstími upp á 30 vikur þýðir að vinnuvika kennara var orðin
tæpar 11 klst. á dag. Slík samþjöppun stenst ekki skoðun og er
kennurum ekki bjóðandi. Vinnu kennara sem snýr að undir-
búningi og æfingum var gefið langt nef með slíkri samþjöppun
og er hætt við að áhrifin hefðu komið í ljós fyrr en síðar. Að
mínu mati er það afar þýðingarmikið að skólar snúi að fullu
við þeirri þróun sem hefur átt sér stað varðandi samþjöppun á
starfstíma því slíkt vinnufyrirkomulag er ekki verjandi faglega
og kippir þar með stoðum undan kjarabaráttu stéttarinnar!
Það er skylda okkar sem fagstéttar að berjast fyrir bættum
starfskjörum kennara og að skólastarfi sé sýnd sú virðing sem
því ber. Við berum öll ábyrgð á þróun tónlistarfræðslu í land-
inu - nýtum fagþekkingu okkar til að gera gott betra!
Félag tónlistarskólakennara
Laufásvegi 81,
101 Reykjavík.
Heimasíða á www.ki.is.
Skrifstofa félagsins er opin milli
kl. 9.00 og 13.00 alla virka daga.
Sími: 595-1111 og fax: 595-1112.
Netfang: [email protected].
Ábyrgð og umsjón fréttabréfsins:
Sigrún Grendal, formaður
Félags tónlistarskólakennara
Tíma- og
staðsetningar
Svæðisþing tónlistarskóla á
Vestfjörðum
Föstudaginn 9. september
(sama dag og haustþing grunnskóla)
Félagsheimilinu í Bolungarvík
- - - - - - Svæðisþing tónlistarskóla á
Austurlandi
Föstudaginn 16. september
(sama dag og haustþing grunnskóla)
Hótel Héraði Miðvangi 5-7, Egils-
stöðum
- - - - - - Svæðisþing tónlistarskóla á
Norðurlandi
Fimmtudaginn 22. september
Hótel KEA Akureyri
- - - - - - Svæðisþing tónlistarskóla á
höfuðborgarsvæðinu
Föstudaginn 23. september
Salur FÍH, Rauðagerði 27
- - - - - - Svæðisþing tónlistarskóla á
Suðurlandi og Suðurnesjum
Fimmtudaginn 6. október
(sama dag og haustþing grunnskóla)
Hótel Selfossi
- - - - - - Svæðisþing tónlistarskóla á
Vesturlandi
Föstudaginn 7. október
(sama dag og haustþing grunnskóla)
Tónlistarskólanum á Akranesi
Svæðisþing tónlistarskóla 2011 verða
haldin á sex stöðum um landið í
september og október. Síðastliðið vor
var kallað eftir ábendingum frá
kennurum og stjórnendum um áhuga-
verðar kynnisferðir skóla, námskeið
eða námsleyfi, nýtt námsefni eða verk-
efni í gangi sem gagnlegt væri að segja
frá á svæðisþingum. Dagskrárnar taka
mið af þeim ábendingum sem bárust
og eru því ekki að öllu leyti eins. Hér á
eftir er lýsing á megin efnisatriðum
þinganna.
Hver er reynslan af prófakerfi Prófan-
efndar tónlistarskóla?
Elín Anna Ísaksdóttir, tónlistarkennari við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, kynnir
frumniðurstöður rannsóknar þar sem reyn-
sla tónlistarkennara og skólastjórnenda af
áfangaprófakerfinu var til skoðunar. Í
erindi sínu kemur Elín Anna inn á eftirfa-
randi þætti: Samskipti við Prófanefnd
varðandi umsóknarferli og einkunnaskil,
form áfangaprófa og samskipti við próf-
dómara, markmið um samræmingu, stöðu
nemandans í prófakerfinu o.fl. Rann-
sóknin er lokaverkefni Elínar Önnu í
meistaranámi við Listkennsludeild Lista-
háskóla Íslands. Umræður.
Heildstæð kennsla í tónfræðagreinum
og hljóðfæraleik „Áhugi nemenda
skiptir sköpum um framvindu og góðan
námsárangur“.
Í grunn- og miðáfanga tónfræðanáms „er
gert ráð fyrir samþættri kennslu tónfræða-
greina þar sem inntak einstakra greina
fléttast með ýmsum hætti saman við
margvíslega virkniþætti, svo sem hljóð-
færaleik, söng, hreyfingu, lestur, skrán-
ingu, hlustun, greiningu og sköpun.“
„Mikilvægt er að nám í tónfræðagreinum
og hljóðfæranám myndi eina heild. Til að
svo megi verða þarf að huga að heildar-
skipulagningu og markvissri samvinnu
innan skólans. Brýnt er að í skólum séu
þróaðar aðferðir til að styðja við slíkt sam-
starf svo að tryggja megi að nemendur fái
heildstæða kennslu í tónfræðum og hljóð-
færaleik.“ (Tónfræðinámskrá bls. 8-9)
Jón Hrólfur Sigurjónsson, tónfræði-
kennari, mun halda erindi um efnið með
praktísku uppleggi fyrir þátttakendur.
Kallað hefur verið eftir ábendingum um
kennara á svæðunum til að taka þátt í
efnissmiðju með dæmum um nálgun sem
reynst hefur vel í þessu sambandi.
Hvernig kennum við tónlistarnem-
endum að skapa sína eigin tónsmíð?
Tryggvi M. Baldvinsson, aðjúnkt við tón-
listardeild Listaháskóla Íslands, stýrir
smiðju undir yfirskriftinni „Hvernig
kennum við tónlistarnemendum að skapa
sína eigin tónsmíð?“ Fyrirkomulag
smiðjunnar verður með eftirfarandi hætti:
Faglegt innlegg um fræðin – praktískt
upplegg/sýnidæmi á blöðum,
samræða við þátttakendur þar sem
kallað er eftir þeirra nálgun og að-
ferðum í kennslu inn í hugmyndabanka,
lifandi sýnidæmi um kennsluaðferðir
þar sem þátttakendur verða fengnir til
að búa til litlar tónsmíðar.
Framkvæmd nýs kjarasamnings Farið verður yfir framkvæmd nýrra á-
kvæða í kjarasamningi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga við Félag tónlistar-
skólakennara og Félag íslenskra hljóm-
listarmanna frá 31. maí sl. Starfstími skóla
verður sérstaklega ræddur og ákvæði um
hlutanemendur og samkennslu. Fyrir-
spurnir og umræður.
Svæðisþing tónlistarskóla 2011
Efnisatriði
Breytingar á skrifstofu félagsins
Þær breytingar hafa orðið á skrifstofu félagsins að Hafdís Dögg Guðmundsdóttir hefur
hætt störfum fyrir félagið. Hafdís var í 50% starfi hjá FT og 50% starfi hjá Vinnuum-
hverfisnefnd Kennarasambands Íslands. Hafdís mun nú færast alfarið yfir til KÍ þar
sem hún verður í 75% starfi fyrir Vinnuumhverfisnefndina. Við þökkum Hafdísi fyrir
vel unnin störf fyrir félagið og óskum henni alls hins besta í hennar störfum.