18
ƒ RAW

Eftirréttir Sollu

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Fátt er ánægjulegra en að prófa nýja og gómsæta rétti þar sem áherslan er á hollustu. Hér opnar Solla nýjar víddir í gerð eftirrétta og sælgætis, bæði fyrir þá sem aðhyllast hráfæði og alla aðra sem hafa áhuga á heilbrigði og næringu og vilja gera vel við sig. Hér er að finna uppskriftir að margvíslegu góðgæti með áherslu á gott og hollt hráefni sem farið er ítarlega yfir í inngangi. Allir ættu að geta útbúið brownies, litlar og stórar bökur, konfektkúlur, smákökur, múffur, bollakökur, ís og súkkulaði að hætti Sollu.

Citation preview

Page 1: Eftirréttir Sollu

+ Hráfæði nýtur sífellt meiri vinsælda og þar er

Sólveig eiríkSdót tir í fararbroddi, hérlendis

sem erlendis. í samkeppni bestu hráfæðiskokka

heims 2012 vann hún til tvennra verðlauna og var

útnefnd bæði raw vegan Simple Chef og gourmet

raw Chef. Hún rekur ásamt eiginmanni sínum

veitingastaðinn gló, þar sem boðið er upp á góm-

sætt hráfæði.

Fátt er ánægjulegra en að prófa nýja og gómsæta rétti þar sem áherslan er

á hollustu. Hér opnar Solla nýjar víddir í gerð eftirrétta og sælgætis, bæði

fyrir þá sem aðhyllast hráfæði og alla aðra sem hafa áhuga á heilbrigði og

næringu og vilja gera vel við sig.

Hér er að finna uppskriftir að margvíslegu góðgæti með áherslu á gott og

hollt hráefni sem farið er ítarlega yfir í inngangi. Allir ættu að geta útbúið

brownies, litlar og stórar bökur, konfektkúlur, smákökur, múffur, bollakökur,

ís og súkkulaði að hætti Sollu.

Eftirréttir

W

ƒ‚RAW

Page 2: Eftirréttir Sollu
Page 3: Eftirréttir Sollu

S ó l v e i g e i r í k S d ó t t i r

Eftirréttir

Page 4: Eftirréttir Sollu

E f t i r r é t t i r S o l l u

© Sólveig Eiríksdóttir 2012

ljósmyndir © Matthías Árni ingimarsson 2012

JPV útgáfa · reykjavík · 2012

Öll réttindi áskilin.

Stílisti: Gerður Harðardóttir

Hönnun, umbrot og kápa: Alexandra Buhl / forlagið

letur í meginmáli: Vista Sans light t 9/16 pt.

Prentun: Almarose, Slóveníu

Gefin út í reykjavík, bókmenntaborg uNESCo

Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti,

svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða

á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild,

án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda.

iSBN 978-9935-11-308-5

JPV útgáfa er hluti af forlaginu ehf.

www.forlagid.is

Page 5: Eftirréttir Sollu

EfnisyfirlitH r á e f n i o g g r u n n a ð f e r ð i r

Sætt

Framandi ofurfæða

Súkkulaði – fæða guðanna

Hnetur, möndlur, fræ

Kókos

Hleypi- og bindiefni

Tæki og tól

b r o w n i e S

Brownies með súkkulaðikremi

Þriggja laga brownies

Brownies með kókoskremi og súkkulaði

l i t l a r b ö k u r

Eplabökur

Grænar límónubökur

Krækiberjabökur

S t ó r a r b ö k u r

Bananabaka með mangókremi

Ávaxtabaka

Mokkapæja með kókoskremi

Pekanpæja

Jarðarberjapæja með súkkulaðikremi

Bláberjapæja með límónukremi

H n a l l þ ó r u r

Himnesk hindberjahnallþóra

Súkkulaði og bananaterta

Tiramisú

Hindberja- og súkkulaðikaka

Bláberja- og límónukaka

18

22

26

28

30

34

38

42

44

48

54

56

58

62

66

68

72

76

80

86

90

94

98

102

Page 6: Eftirréttir Sollu
Page 7: Eftirréttir Sollu

k o n f e k t k ú l u r

Lucuma-kúlur

Klikkaðar konfektkúlur

Valhnetu- og mórberjakúlur

Kakónibbukúlur

Kókos- og ávaxtakúlur

S m á k ö k u r

Kókoskökur með kasjúkremi

Súkkulaðibitakökur

Möndlukökur með appelsínubragði og karamellukremi

Möndlukökur með mintukremi

Sitrónukökur

b o l l a k ö k u r o g m ú f f u r

Grunnuppskrift að ljósum kökum

Ljóst grunnkrem

Grunnuppskrift að dökkum kökum

Mokkakökur með súkkulaðikremi

í S

Vanilluís

Súkkulaðiís

Kaffiís

Avókadóís

Bláberjaís

Berjaís

Sítrónukrapi

S ú k k u l a ð i

Súkkulaði

Hvítt súkkulaði

Gojiberjasúkkulaði

Mórberja- og makadamíusúkkulaði

Kókos- og mintusúkkulaði

Dökkur möndludraumur

Röndótt og rómantískt

108

110

112

114

116

120

122

124

126

128

132

136

140

142

148

150

152

154

156

158

160

164

166

168

170

172

174

176

Page 8: Eftirréttir Sollu

W

Page 9: Eftirréttir Sollu

13

Mig langar að kynna fyrir ykkur yndislega matreiðslu-

aðferð sem opnar nýjar víddir í eftirréttagerð og gefur

innblástur og aukinn fjölbreytileika. Þessi aðferð er

ekki bara fyrir þá sem aðhyllast 100% hráfæði, langt í

frá! Hráfæðis-eftirréttirnir eru æðislegir í félagsskap

við hefðbundnari kökur og eftirrétti, það má líka nota

hráfæðiskrem á bakaðan kökubotn og þeir eru alveg

jafn góðir hvort sem er á eftir steik eða salati ... það eru

engar reglur!

Þegar við búum sjálf til eftirrétti og sætindi frá grunni

vitum við hvert innihaldið er og ráðum algjörlega hvað

fer í réttina og ofan í okkur. Þá er gaman að lauma

einhverju næringarríku í eftirréttina, minnka sætuna

smám saman, auka trefjarnar, breyta og bæta án þess

að það komi um of niður á bragðinu. Svona breytingar

W

Page 10: Eftirréttir Sollu

venjast ótrúlega hratt og auka bara enn frekar á ánægj-

una. Ég legg líka mjög mikið upp úr góðu hráefni, reyni

að velja vörur þar sem ég veit að ræktunin, vinnslan og

allt ferlið hefur fallega hugsun á bak við sig. Ég vel líf-

rænt ræktað þegar hægt er, bæði fyrir mína eigin heilsu

og heilbrigði umhverfisins, sem svo hefur aftur áhrif á

heilsuna okkar. Svo er ég líka ævintýragjörn og finnst

fátt skemmtilegra en að prófa ný og spennandi hráefni

í matargerð. Kíkið í kaflann um framandi ofurfæðu til

að sjá skemmtilegar nýjungar. Athugið þó að það sem

okkur finnst nýtt og framandi eru oft eldgamlar fréttir

hinumegin á hnettinum!

Það passar oftast vel að bjóða upp á létta eftirrétti

með þungum mat, t.d. ávexti eða konfekt á eftir stórri

máltíð, en á eftir léttari mat er yndislegt að leyfa sér

W

Page 11: Eftirréttir Sollu

15

þyngri eftirrétti úr hnetum og súkkulaði. Kúlur og

hnetustykki geta svo verið góð sem millimál eða sem

orkuríkt nesti í fjallgöngur. Þar sem hnetur og sætindi

eru uppistaða í mörgum eftirréttanna eru þeir orku-

ríkir, en á sama tíma næringarríkir og seðjandi. Þó við

laumum aukinni næringu og andoxunarefnum hér

og þar í eftirréttina borðum við auðvitað hvorki hrá-

fæðis-eftirrétti né aðra ábætisrétti í staðinn fyrir

grænmeti og annan hollan mat. Eftirréttir eru lúxus

sem við njótum þegar við viljum gera vel við okkur.

Þess vegna eru þeir fyrst og fremst gerðir til að kæta

munna og maga og aðalatriðið er auðvitað að þeir

séu ómótstæðilega girnilegir og ljúffengir!

W

Page 12: Eftirréttir Sollu
Page 13: Eftirréttir Sollu

43

b o t n

4 dl valhnetur

1 dl kakóduft

½ dl kókospálmasykur

½ dl döðlur, smátt saxaðar

½ dl apríkósur, smátt saxaðar

2 msk kaldpressuð kókosolía

1 tsk vanilluduft eða -dropar

¼ tsk kanill

S ú k k u l a ð i k r e m

1 dl döðlur, smátt saxaðar

1 dl agavesíróp

1 dl kakó

½ dl kaldpressuð kókosolía

¼ dl kakósmjör, fljótandi

+ Setjið 4 dl af valhnetum í matvinnsluvél, stillið á

minnsta hraða og malið hneturnar í mjöl. Bætið

afganginum af hráefninu út í og blandið þar til allt

loðir saman og myndar deig. Þrýstið deiginu niður

í 20x20 cm form. Setjið plastfilmu yfir formið og látið

inn í kæli eða frysti í smástund áður en kreminu er

smurt á.

+ Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél eða kröftugan

blandara og blandið þar til kremið er silkimjúkt og

kekkjalaust. Ef það er of þurrt má bæta smávegis

kókosmjólk út í. Takið botninn úr kæli eða frysti og

smyrjið kreminu ofan á. Geymist í viku í ísskáp eða

1–2 mánuði í frysti.

Brownies með súkkulaðikremi

Page 14: Eftirréttir Sollu
Page 15: Eftirréttir Sollu

45

B o t n

2 dl pekanhnetur

2 dl salthnetur

1 dl hampfræ

1 dl kakóduft

¼ dl kókospálmasykur

1½ dl döðlur, smátt saxaðar

1 dl gráfíkjur, smátt saxaðar

1 tsk vanilluduft eða -dropar

¼ tsk kanill

1 dl gróft saxaðar salthnetur

+ Setjið 2 dl af pekanhnetum og 2 dl af salthnetum

í matvinnsluvél, stillið á minnsta hraða og malið

hneturnar í mjöl. Bætið afganginum af hráefninu út

í (geymið 1 dl af gróft söxuðum salthnetum) og bland-

ið þar til allt loðir saman og myndar deig. Þrýstið

deiginu niður í 20x20 cm form, setjið plastfilmu yfir

formið og látið inn í kæli/frysti í smástund áður en

kreminu er smurt á.

Þriggja laga Brownies

+

Page 16: Eftirréttir Sollu

+

k ó k o S k r e m

3 dl kókoskjöt

(fæst frosið í asíubúðunum)

¾ dl fljótandi sæta

(hunang, agave- eða hlynsíróp)

1 msk vanilla

⅛ tsk salt

1 dl kókosolía

3 dl kókosmjöl

+ Setjið allt nema kókosmjölið í matvinnsluvél og

maukið vel saman. Endið á að setja kókosmjölið út í

og blanda.

A

Page 17: Eftirréttir Sollu

47

k a r a m e l l u k r e m

2½ dl döðlumauk

½ dl hlynsíróp

1 msk vanilla

1 msk mesquite-duft

1 msk lucuma-duft

½ tsk maca-duft

⅛ tsk salt

½ dl kókosolía

+ Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið saman

þar til kremið fær karamelluáferð.

AA

Page 18: Eftirréttir Sollu

+ Hráfæði nýtur sífellt meiri vinsælda og þar er

Sólveig eiríkSdót tir í fararbroddi, hérlendis

sem erlendis. í samkeppni bestu hráfæðiskokka

heims 2012 vann hún til tvennra verðlauna og var

útnefnd bæði raw vegan Simple Chef og gourmet

raw Chef. Hún rekur ásamt eiginmanni sínum

veitingastaðinn gló, þar sem boðið er upp á góm-

sætt hráfæði.

Fátt er ánægjulegra en að prófa nýja og gómsæta rétti þar sem áherslan er

á hollustu. Hér opnar Solla nýjar víddir í gerð eftirrétta og sælgætis, bæði

fyrir þá sem aðhyllast hráfæði og alla aðra sem hafa áhuga á heilbrigði og

næringu og vilja gera vel við sig.

Hér er að finna uppskriftir að margvíslegu góðgæti með áherslu á gott og

hollt hráefni sem farið er ítarlega yfir í inngangi. Allir ættu að geta útbúið

brownies, litlar og stórar bökur, konfektkúlur, smákökur, múffur, bollakökur,

ís og súkkulaði að hætti Sollu.

Eftirréttir

W

ƒ‚RAW