Upload
builien
View
223
Download
0
Embed Size (px)
Citation preview
Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2018 Bráðabirgðatölur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
2
Hér eru skoðaðar upplýsingar um afbrot og verkefni hjá LRH árið 2018 borið saman við fyrri ár. Um er að ræða bráðabirgðatölur sem teknar voru út úr kerfum lögreglunnar þann 31. desember 2018. Þessar upplýsingar ættu þó að gefa innsýn í hver staðan verður þegar árið verður gert upp. Fjallað er um öll skráð brot sem fengu framgöngu.
Afbrot á höfuðborgarsvæðinu árið 2018
Helstu niðurstöður
Þegar árið 2018 er gert upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu má sjá að verkefnum
hefur fjölgað verulega samanborið við fyrri ár. Þannig voru skráð nær 16 prósent fleiri mál
árið 2018 en að meðaltali síðustu þrjú árin á undan, höfð voru afskipti af 26 prósent fleiri
einstaklingum og sinnt lögregla nær 27 prósent fleiri viðfangsefnum. Þannig voru að jafnaði
skráð 358 viðfangsefni á dag árið 2018 en að meðaltali voru skráð 283 viðfangsefni á dag á
árunum 2015-2017.
Þróun milli ára
Tilkynnt var um 9.762 hegningarlagabrot til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu árið
2018 sem er tæplega fimm prósent fjölgun á milli ára.
Sérrefsilagabrotum heldur áfram að fjölga og eru nú skráð 4.148 sérrefsilagabrot sem er
rúmlega fimm prósenta fjölgun frá fyrra ári.
Umferðarlagabrotum fjölgaði mikið árið 2018 og voru 44.984 brot skráð sem er 15 prósenta
fjölgun milli ára.
Heildar fjöldi auðgunarbrota var svipaður milli ára en á sama tíma og tilkynningum um
þjófnaði fækkaði um 12 prósent þá fjölgaði tilkynningum um innbrot um 29 prósent og til-
kynningum um rán um 59 prósent.
Tilkynningum vegna kynferðisbrota fjölgaði einnig milli ára og voru tilkynningar um
nauðgun 34 prósent fleiri í ár en árið 2017.
Tilkynningum um brot gegn börnum fjölgaði jafnframt á milli ára um 28 prósent.
Ofbeldisbrotum hefur fjölgað nokkuð síðustu ár, einkum vegna breytinga á skráningum
heimilisofbeldismála. Árið 2018 fjölgaði ofbeldisbrotum um tæplega sex prósent.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
3
Afbrot í umdæmi LRH
Mynd 1. Fjöldi hegningarlagabrota, sérrefsilagabrota og umferðarlagabrota árin 2011 til 2018
Hegningarlagabrot
Tafla 1. Fjöldi helstu hegningarlagabrota árin 2016 til 2018 (ath. tölur fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur)
2016 2017 2018
Auðgunarbrot 4.218 4.771 4.749
Þjófnaður 2.939 3.272 2.892
Innbrot 849 879 1.136
Rán 41 46 73
Hylming 46 87 108
Gripdeild 60 47 36
Fjársvik 352 375 440
Fjárdráttur 46 35 30
Auðgunarbrot, annað 49 30 34
Kynferðisbrot 277 300 386
Nauðgun 124 140 187
Kynferðisbrot gegn börnum 62 50 64
Klám/barnaklám 4 14 16
Vændi 3 9 36
Kynferðisbrot, annað 84 87 90
Manndráp og líkamsmeiðingar 1.197 1.284 1.356
Líkamsárás, minniháttar 997 1.043 1.055
Líkamsárás, meiriháttar/stórfelld 154 172 207
Líkamsárás, annað 46 69 94
Eignaspjöll og nytjastuldur 1.650 1.744 1.902
Minniháttar skemmdarverk 1.299 1.373 1.521
Meiriháttar skemmdarverk 26 45 35
Nytjastuldur vélknúinna farartækja 325 326 346
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
4
Sérrefsilagabrot
Tafla 2. Fjöldi fíkniefnabrota árin 2016 til 2018 (ath. tölur fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur)
Tafla 3. Magn fíkniefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og tollur haldlögðu á árunum 2016 til 2018 (ath. tölur fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur)
2016 2017 2018
Fíkniefni 1.345 1.626 1.664
Flutningur fíkniefna milli landa 195 216 189
Framleiðsla fíkniefna 74 71 79
Sala og dreifing fíkniefna 120 149 128
Varsla og meðferð ávana og fíkniefna 932 1.180 1.256
Ýmis fíkniefnabrot 24 10 11
2016 2017 2018
Hass (g) 646 23.971 705
Marijúana (g) 30.754 26.717 69.614
Amfetamín (g) 8.801 12.701 3.272
Metamfetamín (g) 1.014 302 67
Ecstasy (g) 1.814 4.351 685
Ecstasy (stk) 1.829 2.173 7.301
Kókaín (g) 621 2.016 6.355
Heróín (g) 0 9 25
LSD (stk) 370 501 267