Meginatriði og áherslur í kröfum Félags íslenskra náttúrufræðinga

Preview:

DESCRIPTION

Meginatriði og áherslur í kröfum Félags íslenskra náttúrufræðinga. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Meginatriði og áherslur í kröfum

Félags íslenskra náttúrufræðinga

Meginkrafa félagsins er að menntun og fagleg ábyrgð háskólamanna verði metin sem skyldi með hækkun grunnlauna, þannig að laun ríkisstarfsmanna verði hliðstæð því sem gerist á almennum markaði. Enda eru réttindi á almennum markaði að verða hliðstæð réttindum hjá ríkinu.

Lágmarkslaun

• Lágmarkslaun náttúrufræðinga með BSc. próf verði kr. 250.000.

• Nánar: Í samræmi við laun á almennum markaði. Með þessari kröfu eru 25% félagsmanna undir 275 þúsund krónum eins og á almennum markaði.

Gildistími

• Nýr kjarasamningur skal taka gildi sama dag og sá gamli fellur úr gildi.

• Nýr stofnanasamningur skal taka gildi sama dag og sá gamli fellur úr gildi.

• Að kjarasamningur verði laus breytist kaupmáttar- og/eða verðlagsforsendur.

• Að miðlægur kjarasamningur verði laus náist ekki endurskoðun stofnanasamninga.

Gildistími, frh.

• Nánar: Eða annars að stofnanasamningar verði ekki gerðir undir friðarskyldu. Ef hætta er á að miðlægir samningar losna vegna þess að stofnanasamningar nást ekki myndast þrýstingur á forstöðumenn stofnana frá SNR. Nánari útfærsla á rauðum strikum þarf að koma í kjarasamningi.

Launatafla

• Rammi A verði felldur út

• Launatöflu verði breytt í reikniformúlur með einn skilgreindi upphafstölu í hvorum ramma.

• Að þrep taki bæði mið af starfsaldri og lífaldri.

Launatafla, frh.

Nánar: • B rammi, upphafstala með 3% milli launaflokka• C rammi, upphafstala með 4,5% milli launaflokka• Með að taka út hámarkstölu í launaramma erum

við að færast nær almenna markaðinum.• Krafa um að launaþrep taki bæði mið af starfsaldri

og lífaldri er til að auðvelda flæði félagsmanna milli markaða.

Fjármagn til stofnanasamninga• Að aðilar vinni saman að því verkefni að byggja upp

matskerfi í stofnanasamningum sem feli í sér tengingu árangurs starfsmanna og markmiða stofnunar. Til þessa verkefnis verði veitt ákveðnu fjármagni.

• Nánar: Slíkt verkefni getur t.d. auðveldað framkvæmd árangursstjórnunarsamninga á stofnunum. Þetta felur í sér að koma á árangurstengdu matskerfi í stofnanasamningi sem byggir t.d. á starfslýsingum, starfsþróunaráætlunum og starfsmannviðtölum, fjármögnun matskerfisins og eftirfylgni.

Menntun, símenntun ofl.

• Álag vegna menntunar, þar með talin símenntun, verði aukið stórlega svo og álag vegna persónubundinna þátta.

• Réttur til símenntunar verði aukinn.

• Í grein 10.1.1 komi á rétt á að stunda framhaldsnám/símenntun í stað framhaldsnám.

Stytting vinnuviku

• Vinnuvikan verði stytt í 37,5 stundir að meðtöldum hléum.

• Nánar: Sbr. almenna markaðinn.

Greiðslur fyrir útköll• Að ákvæði um útköll og greiðslur fyrir þau

verði gerð skýrari.

• Nánar: Skoða ákvæði um greiðslur þegar útköll skarast og þegar dagvinna hefst út frá því hvort starfsmaður heldur vinnu dagvinnu í framhaldi eða fer heim. Í grein 3.3.3.1 setja inn “sé um einstakt útkall að ræða innan sólarhrings”

Frí í stað yfirvinnu• Að ekki sé þak á fjölda daga sem starfsmaður

getur tekið út frí í stað yfirvinnu.

• Nánar: Grein 2.3.8 verði: Heimilt er starfsmanni með samkomulagi við vinnuveitanda að safna frídögum í stað yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar en yfirvinnuálagið er greitt viðnæstu reglulegu útborgun. Hægt er að leita álits samstarfsnefndar þegar slíkar heimildir eru veittar.Síðasti hluti greinarinnar er til að hægt sé að sporna við misnotkun stofnunar.

Fæðispeningar

• Að hækka fæðispeninga.

• Nánar: Skoða upphæð hjá almenna markaðnum

Búferlaflutningur

• Að kostnaður starfsmanns við búferlaflutning sem til er kominn vegna starfs hans verði bættur.

• Nánar. Grein 5.11.1 verði Þurfi starfsmaður sem starfs síns vegna þarf að flytjast búferlum á hann rétt á greiðslu fargjalda sinna og fjölskyldu sinnar og flutningskostnaðar búslóðar. Sama á við ef starfsmaður flytur í kjölfar þess að stofnanir eru sameinaðar eða fluttar.

Öryggi á vinnustað

• Ef ekki er framfylgt tilmælum/ábendingum VER skulu starfsmenn fá auka launaflokk þar til úrbætur fást. Sama gilir ef öryggisvörður er ekki skipaður.

Tryggingar

• Ef starfsmaður er á vegum vinnuveitenda utan vinnustaðar gilda sömu ákvæði og um vinnustað mtt slysa, veikinda og bætur fyrir skemmdir á persónulegum munum.

Veikindi

• Veikindi teljast í stundum en ekki dögum

Fjölskyldu og styrktarsjóður

• Að aukin verði iðgjöld í fjölskyldu og styrktarsjóð vegna breytinga á lögum um viðmiðunartímabil.

• Nánar: Með lengingu viðmiðunartímabils geta þeir sem eiga börn með stuttu millibili fengið mun rýrara fæðingarorlof frá Tryggingastofnun en réttur þeirra var skv. reglugerð 410/1989. Skv. grein 14.1.2 á fjölskyldu- og styrktarsjóður að greiða þennan mun.

Orlof

• Ef orlof er geymt vegna beiðni stofnunar fyrnist orlofið ekki.

Staðgenglar

• Viðmiðunartímabil fyrir staðgengla í grein 9.1.1. breytist úr 7 í 5 vinnudaga.

Framlag í sjóði FÍN og BHM, orlofs- og desemberuppbót

• Aukið verði framlag í Vísindasjóð FÍN, FOS og starfsmenntunarsjóð BHM.

• Orlofsuppbót og desemberuppbót verði hækkuð.

• Nánar: Fer allt eftir öðrum hækkunum sem nást

RéttindamálAuk þeirra atriða sem þegar hefur verið samið um

fyrir hönd félagsins gerir félagið kröfur um:  Að ákvæði í lögum um réttindi ríkisstarfsmanna

verði færð inn í kjarasamning.  Að réttarstaða trúnaðarmanna verði skýrð og

aukin.  Að tryggðir verði fjármunir til þjálfunar/fræðslu

trúnaðarmanna Að félagsmönnum verði bættur að fullu sá

kostnaður sem hlýst af flutningi ríkis-stofnana

Réttindamál

• Að aðildaskiptalög gildi við samruna/uppskiptingu ríkisstofnana

 Að ákvæði um lágmarkhvíld verði gerð skýrari og aukin.

 Að greitt verði fyrir tímavinnufók iðgjöld í alla sjóði.

 Að tímavinnufólk hafi sama ráðningarrétt og starfsmenn tímabundið ráðnirNánar: Til að koma í veg fyrir misnotkun á grein 1.4.

Réttindamál

• Að tryggð verði réttarstaða félagsmanna í framhaldsnámiNánar: Bætt verði við yfirlýsingu í kjarasamningi setningunni: Taki stofnun félagsmann FÍN í framhaldsnám skal stofnun gera við hann ráðningarsamning.

• Lög félagsins gera nemum kleift að vera félagsmenn. Eðlilegt er að þeir taki laun skv. kjarasamningum félagsins eins og nemar annarra stétta gera.

• Félagið er reiðubúið að fallast á að um einstaka þætti sem að tilteknir eru hér að ofan sé að einhverju eða öllu leiti samið í stofnanasamningum enda sé þá samið um umgjörð stofanasamninganna, verklag við gerð þeirra og úrræði til að ná þeim fram.

Almennur áskilnaður

• Félag íslenskra náttúrufræðinga mun leggja fram ítarlegri kröfur um ofangreind atriði og áskilur sér rétt til að leggja fram frekari kröfur meðan á viðræðum stendur

Ábending

• Að stofnaður verði sjóður sem stofnanir ríkisins geta sótt í til að fjármagna langvarandi veikindi starfsmanna og barna þeirra en slík fjárútlát geta verið mjög erfið fyrir smærri stofnanir.

Meginatriði og áherslur í kröfum Félags íslenskra náttúrufræðingaMeginkrafa félagsins er að menntun og fagleg ábyrgð háskólamanna verði metin sem skyldi með hækkun grunnlauna, þannig að laun ríkisstarfsmanna verði

hliðstæð því sem gerist á almennum markaði. Enda eru réttindi á almennum markaði að verða hliðstæð réttindum hjá ríkinu. 

1.                  LágmarkslaunLágmarkslaun náttúrufræðinga með BSc. próf verði kr. 250.000.

2.                  GildistímiNýr kjarasamningur skal taka gildi sama dag og sá gamli fellur úr gildi.Nýr stofnanasamningur skal taka gildi sama dag og sá gamli fellur úr gildi.Að kjarasamningur verði laus breytist kaupmáttar- og/eða verðlagsforsendur.Að miðlægur kjarasamningur verði laus náist ekki endurskoðun stofnanasamninga. 3.                  LaunataflaRammi A verði felldur útLaunatöflu verði breytt í reikniformúlur með einn skilgreindi upphafstölu í hvorum ramma.Að þrep taki bæði mið af starfsaldri og lífaldri. 4.                  Fjármagn til stofnanasamningaAð aðilar vinni saman að því verkefni að byggja upp matskerfi í stofnanasamningum sem feli í sér tengingu árangurs starfsmanna og markmiða stofnunar. Til þessa verkefnis verði veitt ákveðnu fjármagni. 5.                  Menntun, símenntun ofl.Álag vegna menntunar, þar með talin símenntun, verði aukið stórlega svo og álag vegna persónubundinna þátta.Réttur til símenntunar verði aukinn. 6.                  Stytting vinnuvikuVinnuvikan verði stytt í 37,5 stundir að meðtöldum hléum. 7.                  RéttindamálAuk þeirra atriða sem þegar hefur verið samið um fyrir hönd félagsins gerir félagið kröfur um:        Að ákvæði í lögum um réttindi ríkisstarfsmanna verði færð inn í kjarasamning.        Að réttarstaða trúnaðarmanna verði skýrð og aukin        Að tryggðir verði fjármunir til þjálfunar/fræðslu trúnaðarmanna        Að aðildaskiptalög gildi við samruna/uppskiptingu ríkisstofnana        Að tímavinnufólk hafi sama ráðningarrétt og starfsmenn tímabundið ráðnir

 Félagið er reiðubúið að fallast á að um einstaka þætti sem að tilteknir eru hér að ofan sé að einhverju eða öllu leiti samið í stofnanasamningum enda sé þá samið um umgjörð stofanasamninganna, verklag við gerð þeirra og úrræði til að ná þeim fram. 

Almennur áskilnaðurFélag íslenskra náttúrufræðinga mun leggja fram ítarlegri kröfur um ofangreind atriði og áskilur sér rétt til að leggja fram frekari kröfur meðan á viðræðum stendur.

Recommended